Morgunblaðið - 27.09.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.09.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is UMFERÐAREYJAR Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki Henta vel til að stýra umferð, þrengja götur og aðskilja akbrautir. Til eru margar tegundir af skiltum, skiltabogum og tengistykkjum sem passa á umferðareyjarnar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉTTU EINKUNNASPJALDIÐ MITT OG LÁTTU MIG UM ÞETTA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita nákvæmlega hversu margar freknur hún er með. HEI, GRETTIR … VEISTU HVAÐ VANTAR Í MORGUNSÁRIÐ? POLKAMÚSÍK! DREPTU MIG STRAX, MÁNUDAGUR! ÞAÐ ER TÍMA- BÆRT AÐOPNA GLUGG- ANN!!! EN ÞÚ ÞOLIR EKKI KULDA OG TREKK! RÉTT! EN ÉG ELSKA HEITA PÍTSU! „ÞÚ VEIST AÐ ÞETTA ÞÝÐIR AÐ ÞÚ VERÐUR AÐ HÆTTA AÐ HITTA MÖMMU ÞÍNA.“ Það sem veitir mér mesta gleði í lífinu er að njóta ávaxta náttúrunnar með fjölskyldu minni og góðum vinum.“ Björn Steinar ætlar að halda nokkrar smærri veislur í tilefni af- mælisins. „Aðalmarkmiðið er að ná saman allri fjölskyldunni, börnum og barnabörnum sem eru stödd víða um heim. Aðalafmælisveislan verður því 3. janúar á næsta ári, en þá verða þau öll á landinu.“ Fjölskylda Eiginkona Björns Steinars er Hrefna Harðardóttir, f. 5.10. 1954, myndlistarkona. Þau eru búsett í 605 Eyjafjarðarsveit og 101 Reykjavík. Foreldrar Hrefnu voru Hörður Sig- mundsson, f. 8.12. 1928, d. 19.11. 1974, matsveinn í Vestmannaeyjum og Reykjavík, og Inga Halldóra Kristín Maríusdóttir, f. 22.10. 1931, 8.6. 1997, húsfreyja og innheimtustjóri Reykja- vík. Börn Björns Steinars og Hrefnu eru 1) Linda Ólafsdóttir (stjúpdóttir), f. 7.7. 1974, búsett á Akureyri. Maki: Guðni Konráðsson kjötiðnaðarmaður. Barnabörn: Kolbrún María Ingólfs- dóttir, f. 1990, Dagur Elí Guðnason, f. 1995, Logi Steinn Guðnason, f. 2006, Leon Máni Guðnason, f. 2007. Barna- barnabarn: Bríet Embla Dagsdóttir 2020; 2) Sólbjörg Björnsdóttir, f. 24.1. 1983, master í liststjórnun í Leiden í Hollandi. Maki: Thomas Evan Spack- mann tónlistarkennari og tölvunar- fræðingur. Barnabörn: Kolbrún Dís Spackmann, f. 17.11. 2017, Sóley Björt Spackmann, f. 17.11. 2017, d. 24.4. 2018, Sólberg Bjartur Spack- mann, f. 5.5. 2021. Bræður Björns Steinars eru Valdi- mar Sólbergsson, f. 26.6. 1952, vél- virki á Akranesi; Sigurður Sólbergs- son, f. 9.3. 1957, skipaverkfræðingur á Akranesi. Foreldrar Björns Steinars: Hjónin Sólberg Björnsson, f. 7.11. 1932, d. 19.7. 2013, skipasmiður á Akranesi og Arnfríður Árnadóttir, f. 15.7. 1931, húsfreyja á Akranesi. Björn Steinar Sólbergsson Anna Katrín Jónsdóttir húsfreyja í Geirshlíð Pétur Þorsteinsson bóndi í Geirshlíð í Flókadal, Borg. Margrét Pétursdóttir húsfreyja og saumakona á Akranesi Árni Guðmundsson sjómaður á Akranesi Arnfríður Árnadóttir húsfreyja á Akranesi Sigurrós Gunnlaugsdóttir húsfreyja á Akranesi Guðmundur Árnason sjómaður á Akranesi Salbjörg Guðfinna Jónsdóttir húsfreyja á Hofsósi Ágúst Sigurðsson sjómaður á Hofsósi Steinunn Ágústsdóttir húsfreyja á Hofsósi Björn Björnsson frystihússtjóri á Hofsósi Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Göngustaðakoti Björn Björnsson bóndi í Göngustaðakoti í Svarfaðardal Úr frændgarði Björns Steinars Sólbergssonar Sólberg Björnsson skipasmiður á Akranesi Það er alltaf gaman að fletta upp í séra Jóni á Bægisá. Þetta er- indi um Magnús Einarsson prest á Tjörn í Svarfaðardal er eitt kunn- asta ljóð hans. Magnús var vel skáldmæltur. Rétt er að hafa í huga að latn. „magnus“ þýðir mikill, „Minerva“ er menntagyðjan og Móría heimskugyðjan. Nú grætur mikinn mög Mínerva táragjörn; nú kætist Móría mjög mörg sem á dára-börn. Nú er skaarð fyrir skildi – nú er SVANURINN á Tjörn. Þannig yrkir hann um dauðann: Segðu mér hvort sannara’ er að sálin drepi líkamann eður hitt að svakk með sitt sálunni stundum fargi hann. Þá er „Hóf“ Gakktu hægt um gleðinnar dyr og gá að þér. Enginn veit sína ævina fyr en öll er. Jón varð tvívegis að láta af prest- skap fyrir að eiga barn utan hjóna- bands. Jón Ólafsson segir að hann hafi lifað alla ævi við mestu fátækt, enda haft talsverðan kostnað af ástarfari sínu. Af og til eignaðist hann launbörn, og fóstraði þau oft- ast upp. Jón telur hann best skáld á Íslandi sinna samtíðarmanna. Hér eru tvær faðernisvísur eftir séra Jón. Um Jón „Sigurðsson“: Á Bæsá ytri borinn er býsna valinn kálfur; vænt um þykja mundi mér mætti’ eg eiga ‘ann sjálfur. Um Guðmund: Illa fór það, unginn minn, öðrum varst þú kenndur; finnst um síðir faðirinn frómur að þér Gvendur. Launbarnið: Alltjent segja eitthvað nýtt ýtar lyndisglaðir. Hvað er í fréttum? Hvað er títt? Hvort er ég orðinn faðir? Holdið mitt í hægum sess hopaði sér til vansa; nú er ég kominn á náðir prests, - nýtt er mér að dansa! Staka: Óborinn til eymdarkífs ellegar dauður væri’ eg ef að bæði lykil lífs og lásinn sjálfur bæri’ eg. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Blaðað í séra Jóni á Bægisá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.