Morgunblaðið - 27.08.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Fyrirtækið er ekki orðið tveggja ára
gamalt en okkur hefur þegar tekist
að breyta ferðahegðun þúsunda íbúa
á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Við
ætlum okkur stærri hluti og stefnum
á að breyta ferðahegðun fólks um all-
an heim,“ segir Sæunn Ósk Unn-
steinsdóttir, framkvæmdastjóri
Hopp Reykjavík.
Hinar grænu rafskútur Hopps fara
ekki fram hjá neinum sem ferðast um
á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana.
Sæunn tók við starfi framkvæmda-
stjóra í mars síðastliðnum og
skömmu síðar tók Hopp á móti 1.100
nýjum rafskútum og stækkaði þjón-
ustusvæðið frá Reykjavík til Hafn-
arfjarðar.
„Þetta var stórt stökk en það var
tekið að vel ígrunduðu máli. Við vor-
um með 300 skútur í flotanum en
höfðum greint í hugbúnaðinum gríð-
arlega vöntun. Stækkunin á sér stað
út frá eftirspurn notenda,“ segir hún.
Þjónusta Hopps er afar umhverfis-
væn enda er hún alfarið keyrð á raf-
magni. Hugbúnaðurinn að baki Hopp
er alfarið unninn á Íslandi af hugbún-
aðarfyrirtækinu Aranja, en eigendur
þess eiga einnig Hopp Hopp, og sama
gildir um hönnun á appinu sem tengir
notendur við skúturnar. „Notendur
okkar geta því sagt: „Íslenskt já,
takk,“ því hinar rafskútuleigurnar
eru allar með erlendan hugbúnað,“
segir Sæunn.
144 þúsund skráðir notendur
Óhætt er að segja að vöxtur fyrir-
tækisins hafi verið hraður. Haustið
2019 byrjaði það með 60 rafskútur
miðsvæðis í Reykjavík en vinsæld-
irnar voru slíkar að fljótlega var 300
rafskútum bætt við. Eins og áður
segir bættust svo 1.100 við í vor en
við það tækifæri voru eldri skút-
urnar, sem að sögn Sæunnar áttu þó
nóg inni, seldar til sérleyfishafa Hopp
víða um land. Hopp er nú með starf-
semi á Akranesi, Akureyri, Egils-
stöðum, Selfossi, Hveragerði og í
Reykjanesbæ.
„Sveitarfélögin sem prufukeyrðu
Hopp í sumar eru búin sýna það og
sanna að eftirspurnin er víðar en á
höfuðborgarsvæðinu. Lítil fjölskyldu-
fyrirtæki sérleyfanna munu stækka
hratt því þau ásamt fleiri nýjum sér-
leyfum eru að gera áætlanir um
stærri fjárfesingar fyrir næsta ár,“
segir framkvæmdastjórinn en í dag
starfa um 30 manns hjá Hopp á höf-
uðborgarsvæðinu og fyrirtækið er
með vakt allan sólarhringinn.
Sæunn segir að rafskútan hafi
heldur betur sannað gildi sitt sem
samgöngumáti. Fólk vilji hafa val um
fjölbreytta og umhverfisvæna ferða-
máta, það sé framtíðin. Rafskútan
nýtist sérstaklega vel í borgum eins
og Reykjavík þar sem ekki er full-
komið lestarkerfi. „Við erum komin
með 144 þúsund notendur á skömm-
um tíma sem fara fleiri þúsund ferðir
á dag. Þessi nýsköpun gerir fólki auð-
veldara að notast við aðra ferðamáta
en bíla. Það ættu allir að fagna því að
við séum að taka bíla af götunni, líka
þeir sem eru á bílaskeiði í lífi sínu,
enda er meira pláss á götunni fyrir þá
á móti. Umferðin verður léttari og
fólk kemst fljótt að því að með því að
nota Hopp breytist upplifun þess af
borginni og höfuðborgarsvæðinu.
Það tekur styttri tíma að komast á
milli staða. Til dæmis er ég innan við
20 mínútur að komast úr Kópavogi í
miðju menningarinnar í Reykjavík.
Deilihagkerfið er komið til að vera,
það þurfa ekki allir að eiga allt.“
Stefna á aukin umsvif
Sæunn segir að umsvif Hopps
verði aukin á höfuðborgarsvæðinu í
framtíðinni og þessa dagana sé unn-
ið að stefnumótunarvinnu fyrir
næsta ár. „Við eigum rosalega mikið
inni enda erum við ekki búin að ná
utan um allt höfuðborgarsvæðið. Við
heyrum líka frá notendum sem eru
ósáttir við að svæði okkar nái ekki
heim til þeirra. Einn sendi okkur
nýlega skilaboð og lýsti því yfir að
honum fyndist á sér brotið með því
að fá ekki þjónustuna heim að dyr-
um.“
Bjöguð umræða um skútuslys
Ekki hafa allir verið jákvæðir í
garð rafskúta. Gagnrýnt hefur verið
að skútur frá rafskútuleigum séu
skildar eftir á gangstéttum og hindri
för fólks auk þess sem slysahætta
skapist af notkun þeirra. Þá hefur til
dæmis verið bent á að í Ósló hafi ver-
ið settur kvóti á fjölda rafskúta í leigu
og útleiga bönnuð á nóttunni. Sæunn
segir að fyrirtækið sé ekki hafið yfir
gagnrýni en henni finnist umræðan
um slys nokkuð bjöguð.
„Við viljum ekki draga úr alvar-
leika slysa en það er stundum svolítið
skrítið að allur fókus á umfjöllun sé
settur á 0,1% af notkuninni sem end-
ar í slysum. Það verða margir
árekstrar bíla á degi hverjum og ekki
eru birtar fréttir af því. Við hvetjum
fólk alltaf til að aka af öryggi, nota
hjálm og aka ekki undir áhrifum. Auk
þess erum við að þróa hugbúnaðinn
þannig að hann verði enn þá örugg-
ari.“
Þá segir hún að Hopp eigi í góðu
samstarfi við Reykjavíkurborg og því
muni það aldrei gerast hér að fækka
þurfi rafskútum eins og nýverið gerð-
ist í Ósló. „Við skilum mánaðarlega
skýrslum um notkun til borgarinnar
og þar er vel haldið utan um okkur
rafskútuleigurnar með skýrum
reglum. Þessi starfsemi passar vel í
innviðafjárfestingar sveitarfélaga
samkvæmt samgönguáætlun þar sem
á næstu 15 árum á að fjárfesta millj-
arða króna í meðal annars okkar inn-
viðum, göngustígum og hjólastígum.“
Hvað varðar það hvernig
viðskiptavinir skila af sér skútunum
segir Sæunn að þótt alltaf megi gera
betur þurfi að huga að því að skút-
urnar séu komnar til að vera. „Við
þurfum pláss í borgarlandinu. Við
viljum auðvitað að skútunum okkar
sé vel lagt og þær blokki ekki gang-
stíga eða hjólastíga. Framtíðarmark-
miðið er að það verði stæði fyrir raf-
skútur fyrir utan öll fyrirtæki og
fjölbýlishús rétt eins og bílastæði.“
Stórfelld útrás hafin
Vöxtur Hopps hefur verið hraður
eins og áður er getið. Til marks um
það höfðu notendur fyrirtækisins í
mars hoppað um eina milljón kíló-
metra á rafskútum þess. Nú í ágúst-
lok er þessi tala komin upp í 2,7 millj-
ónir kílómetra.
Og Hopp stefnir á landvinninga á
næstunni. Þegar hafa sérleyfishafar
Hopps opnað rafskútuleigur á Spáni
og í Færeyjum og unnið er að því að
opna Hopp í Bandaríkjunum, Mið-
Austurlöndum, Frakklandi, Rúmen-
íu, Noregi, Svíþjóð, Gvatemala og
víðar. Það er Eyþór Máni Stein-
arsson, 22 ára fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Hopps Reykjavík, sem
leiðir útrásina undir merkjum Hopp
Mobility. „Þetta er gríðarlega spenn-
andi. Það hefur verið skrifað undir
samninga í nokkrum borgum í þess-
um löndum og þá hefst ferlið, að
sækja um leyfi og fleira, og mismun-
andi er eftir hverri borg hvenær
hægt verður að opna. Eftir eitt ár veit
ég það verður mjög mikið búið að
gerast varðandi sérleyfishlutann,
enda tók það Eyþór Mána ekki lang-
an tíma að greiða leiðina og byggja
Hopp upp frá grunni ásamt Aranja,“
segir Sæunn.
Ótrúlegur vöxtur á tveimur árum
- Rafskútuleigan Hopp nýtur sívaxandi vinsælda - 144 þúsund notendur hafa hoppað 2,7 milljónir
kílómetra á tveimur árum - Umhverfisvæn þjónusta sem notast við rafmagn og íslenskan hugbúnað
Morgunblaðið/Eggert
Á vaktinni Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopps, telur að fyrirtækið geti vaxið enn frekar.
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Baldur S. Blöndal
baldurb@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson formað-
ur Framsóknarflokksins segir að
hans flokkur sé í raun eini raun-
verulegi miðjuflokkurinn. Sig-
urður segir Miðflokkinn hafa lítið
með miðjuflokksstefnu að gera
þrátt fyrir nafnið. Framsókn
kynnti nýja málefnaskrá í gær með
yfirskriftina „fjárfesting í fólki“.
Sigurður segir flokkinn ekki úti-
loka samstarf með neinum að svo
stöddu: „Við höfum hingað til ekki
útilokað nokkurn, en það liggur
svo sem í augum uppi að þeir
flokkar sem eru fjarlægastir okkur
í málefnum séu ólíklegri en það á
kannski bara eftir að koma í ljós
hverjir það eru.“
Með því að segjast vilja fjárfesta
í fólki vill Framsókn tryggja meiri
innlenda verðmætasköpun og
leggja áherslu á lýðuheilsutengdar
forvarnir. Meðal áherslumála er að
öll börn frá sex ára aldri fái tóm-
stundastyrk að andvirði 60 þúsund
krónur. Auk þess segir í stefnu
flokksins að heilbrigðiskerfið eigi
að vera blanda opinbers reksturs
og einkaframtaks. Þá þurfi að taka
upp fleiri þrep í tekjuskatti fyr-
irtækja til þess að styðja við minni
og meðalstór fyrirtæki.
Sigurður segir færi til opinberra
fjárfestinga geta skapast á næstu
misserum þegar fjárfestingar í
Landspítala og tækni- og listahá-
skólum séu lengra komnar. „Þá
gæti farið að skapast meira rými
fyrir opinberar fjárfestingar. Þess
vegna erum við að leggja áherslu
á þjóðarleikvangana.“
Hann segir það vel hugsanlegt
að færa leikvangana út úr Laug-
ardalnum þótt vinnan miði að
Laugardalsreitnum núna en segir
sveitarfélagið þurfa að sýna mál-
efninu áhuga.
Hlutdeildarlán til fleiri
Sigurður fagnar því að hlut-
deildarlán hafi komist í gegnum
þingið og segir tilefni til að út-
víkka gildissvið þeirra þannig að
hópar á borð við eldri borgara og
öryrkja hafi tök á slíkum lánum.
Stefna flokksins miðar einnig að
því að heildarendurskoðun fari
fram á málefnum öryrkja.
Með þessu segir Sigurður að
flokkurinn sé að vísa annars vegar
til forvarnastefnu flokksins en
einnig vinnu sem hafi farið fram
um innleiðingu færnismats: „Í stað
þess að taka fólk út af atvinnu-
markaðinum þarf að meta það í
hverju tilfelli hver færnin og getan
sé til þess að taka þátt í stað þess
að vera dæmdur út af fyrir fertugt
og eiga aldrei afturkvæmt.“
Sigurður sagði í ávarpi sínu að
Framsókn væri eini raunverulegi
miðjuflokkurinn í dag. Hann segir
Miðflokkinn og stefnur hans ekki
passa við nafnið:
„Miðað við stefnu flokksins þá
hefur hann verið að leggja áherslu
á hluti sem hafa lítið með miðju-
flokksstefnu að gera. Þess vegna
þori ég að halda þessu fram fullum
fetum. Sama gildir um Viðreisn og
Flokk fólksins og fleiri flokka sem
hafa sóst eftir því að vera í miðju-
flokkabandalaginu en ættu
kannski heima með einhverjum
öðrum miðað við þær stefnur sem
þeir birta.“
Segir Framsókn eina miðjuflokkinn
- Framsókn kynnir stefnumál komandi kosninga - Segir nýja þjóðarleikvanga tímabærar fjárfest-
ingar - Fleiri hafi kost á því að sækja um hlutdeildarlán - Færri út af vinnumarkaði fyrir fertugt
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sigurður Ingi Verkefni nýrrar ríkisstjórnar verður að sögn Sigurðar að
leiða þjóðina út úr þeim takmörkunum sem hafi verið settar á daglegt líf.