Morgunblaðið - 27.08.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.08.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021 Sænski rithöfundurinn Gunilla Bergström er látin, 79 ára að aldri. Samkvæmt upplýsingum frá útgef- anda hennar lést höfundurinn í svefni eftir langvarandi veikindi. Þessu greinir SVT frá. Á löngum og farsælum ferli sínum skrifaði Berg- ström 26 bækur um Einar Áskel, sem býr einn með föður sínum. Sam- kvæmt frétt SVT leit Bergström fyrst og fremst á sig sem myndhöf- und, en hún myndlýsti sjálf allar bækur sínar, sem urðu alls um fjöru- tíu talsins. Gunilla Bergström ólst upp í Gautaborg þar hún menntaði sig sem blaðamaður. Hún starfaði hjá dagblöðunum Aftonbladet og Dagens Nyheter áður en hún sendi frá sér sína fyrstu bók árið 1971 sem nefnist Pabbi Míu flytur. Ári seinna sendi hún frá sér bókina Góða nótt Einar Áskell, en titilpersónan átti eftir að öðlast heimsathygli. Sein- asta bókin um Einar Áskel kom út árið 2012. Í Svíþjóð hafa bækurnar um Einar Áskel verið prentaðar í samtals 5,5 milljónum eintaka og við bætast síðan fjórar milljónir í öðrum löndum heims, en bækurnar um Einar Áskel hafa verið þýddar á fjölda tungumála. „Hún var snillingur. Ég hef aldrei hitt manneskju sem var jafn snögg og snjöll til svara,“ segir Sofia Hahr, sem verið hefur útgefandi Berg- ström frá 2009. Að hennar sögn var Einar Áskell ekki uppáhaldssögu- persóna Bergström heldur þótti henni vænst um bækurnar um Bill og Bollu. Þær bækur skrifaði Berg- ström eftir að hún eignaðist seinna barn sitt, dótturina Boel sem er ein- hverf. „Fyrsta bókin um Bill og Bollu fjallar um fjölskyldu sem fær dóttur heim sem er ekki eins og önn- ur börn. Þetta voru bækurnar sem hún var stoltust af,“ segir Hahr. Gunilla Bergström látin 79 ára að aldri Flink Gunilla Bergström var þekkt- ust fyrir bækurnar um Einar Áskel. Sýningu Hrafnhildar Arnardóttur í eyjunni Hrútey við Blönduós, Boð- flennu, lýkur á sunnudaginn, 29. ágúst, en hún var opnuð 3. júlí. Er áætlað að yfir fimm þúsund manns hafi farið út í eyjuna til að skoða verk Hrafnhildar og er þetta fyrsta útilistaverk hennar. Hrafnhildur stillir upp náttúruperlunni Hrútey og gervináttúruverkum sínum sem hliðstæðum sem einnig má skoða sem andstæður, samstæður eða gagnstæðar spegilmyndir, eins og segir í tilkynningu. Hrafnhildur var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíær- ingnum fyrir tveimur árum þar sem innsetn- ing hennar, Chromo Sapiens, vakti mikla at- hygli og var af mörgum talin meðal þess sem hæst bar á tvíær- ingnum. Sýn- ingin í Hrútey er opin allan sólar- hringinn og aðgangur að henni er ókeypis. Seinustu dagar Boðflennu Hrafnhildar Hrafnhildur Arnardóttir Leikhópurinn Trigger Warning sýnir verkið BRUM í Heiðmörk 28.-29. ágúst og svo aftur á sviðslistahátíðinni Plöntutíð 5.-6. september. BRUM er hljóðganga í skógi og segir í tilkynningu að þátttakendur „hlusti sig inn í skóginn“ og upplifi „tengsl trjánna hvert við annað og manneskjuna“. Trén í skóginum eru flytjendur verksins, segir í tilkynningunni og að þau leiði áhorfendur í ferðalag þar sem þau miðli djúpri vitneskju tilvistar sinnar sem á ævintýra- legan hátt endurspegli samfélag manna. Verkið hefst á borg- arstjóraplaninu svonefnda þar sem einn að- standenda þess tekur á móti gestum. Að- standendur eru Andrea Elín Vilhjálms- dóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter, Harpa Arnardóttir, Kara Hergils og Ragnheiður Erla Björnsdóttir. Trén í skóginum flytjendur verksins Kynningarmynd fyrir BRUM Í tilefni af 10+1 árs afmæli Menning- arhússins Hofs verður vídeóverkið „Catalysis #2“ frumsýnt í kvöld kl. 21 en það var gert með afmælið í huga og er eftir Heimi Hlöðversson. Því verður varpað utanhúss á Hof og segir í tilkynningu að það eigi að endurspegla sköpunarkraftinn í húsinu og um leið vera óður til sköp- unarinnar. Verkið verður sýnt á sama tíma annað kvöld og sunnu- dagskvöld. Í tilefni afmælisins verð- ur lifandi tónlistarflutningur um helgina á BARR sem er í Hofi. Andr- ea Gylfadóttir, Pálmi Gunnarsson, Kristján Edelstein og Halldór Gunn- laugur leika kl. 17 í dag, á morgun í hádeginu koma fram systkinin Örn og Ösp Eldjárn og kl. 17 Tríó Akur- eyrar. Dagskráin er samstarfsverk- efni Menningarfélags Akureyrar og Akureyrarbæjar. Afmælisdagskrá á 10+1 árs afmæli Hofs Systkini Ösp og Örn Eldjárn flytja lög af væntanlegri plötu í bland við íslensk dægurlög. Sumarhátíð Helga Björns, sem átti að fara fram í maí í fyrra, verður nú loksins haldin í Eldborg í Hörpu í kvöld og annað kvöld kl. 21.30. Munu Reiðmenn vindanna sjá um hljóðfæraleik en þeir eru Ingólfur Sigurðsson, Stefán Magnússon, Ingi Björn Ingason, Hrafn Thoroddsen og Matthías Stefánsson. Loksins hátíð Í stuði Helgi Björns heldur sumarhátíð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ný sýning hefur verið opnuð í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur og nefnist hún Endurfundur. Á henni má sjá ljósmyndir eftir Önnu Elínu Svavarsdóttur, sem fæddist árið 1961 og lést árið 2019. Í tilkynningu er eftirfarandi texti sem Anna skrifaði árið 2017: „Eitt af viðfangsefnum mínum í mynd- sköpun er að nýta mér nærum- hverfið séð frá mismunandi sjón- arhornum. Hlutir í umhverfinu taka sífelldum breytingum, fá mismun- andi tilgang eftir því hvenær og hvernig maður horfir á þá.“ Segir í tilkynningunni að eftir andlát Önnu Elínar hafi vaknað áhugi fjölskyldunnar á að sýna hluta verka hennar. Verkin í Skotinu end- urspegli feril hennar sem listræns ljósmyndara. Anna Elín hafði einstaklega næmt auga fyrir hinu myndræna í um- hverfinu og myndaði fjölbreytileg mótíf, segir í tilkynningunni en hún útskrifaðist sem ljósmyndari árið 1987, lærði hjá Leifi Þorsteinssyni og að hluta hjá Guðmundi Ingólfs- syni. Eftir útskrift vann hún á Ljós- myndasafni Reykjavíkur, frá 1987- 1989 og frá 1994-1998, sem yfir- maður myndadeildar og hóf síðan feril sem sjálfstætt starfandi ljós- myndari. Vann hún meðal annars sem ljósmyndari á tökustað í kvik- myndum og árið 2011 stofnaði hún fyrirtækið Lífssögu og sérhæfði sig í lífssögugerð í máli og myndum. Næmt auga fyrir hinu myndræna Að störfum Anna Elín Svavarsdóttir. Opnuð hefur ver- ið ljósmyndasýn- ing á verkum Áskels Þórisson- ar í Gallerí Göng- um í Háteigs- kirkju. „Um langt ára- bil hefur Áskell haft mikinn áhuga á ljós- myndun og þá ekki síst nærmyndum á íslenskri náttúru. Hann notar Nikon 850 í myndatökur og notar gjarnan 60 eða 35 mm linsur,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að flestir Íslendingar þekki Bænda- blaðið, en Áskell stofnaði það og rak fyrir Bændasamtökin í tæp 12 ár. Áskell sýnir í Gallerí Göngum Áskell Þórisson Í frétt í blaðinu í gær kom fram að samsýning Sigurðar Ámundasonar og Jónatans Grétarssonar, Formlag, yrði opnuð í Midpunkt-galleríinu í Hamraborg í Kópavogi en hið rétta er að sýningin var opnuð í Tan & Tar, Hamraborg 1. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.