Morgunblaðið - 27.08.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.08.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021 Fylltu á flöskuna, ekki á ruslafötuna. Áfyllingarnar okkar nota að minnsta kosti 77% minna plast en venjulegar umbúðir. K g 4 2 7 70 w o anrin lan -1 | s. 57 - 40 | ww.l ccit e.is Haustsöfnun Barnaheilla hófst í gær með formlegri athöfn þegar Najmo Fyasko, flóttakona frá Sómalíu, keypti fyrsta armbandið. Þannig sýndi hún verkefninu, sem snýr að vernd stúlkna gegn of- beldi í Síerra Leóne, samstöðu, en Najmo flúði Sómalíu 13 ára gömul eftir mikið ofbeldi. Najmo er mik- il baráttukona og í dag berst hún fyrir réttindum stúlkna og kvenna, segir í tilkynningu Barnaheilla. Söfnunin ber heitið Lína okkar tíma og rennur allur ágóði af söl- unni beint til þróunarverkefnis Barnaheilla í Síerra Leóne þar sem lögð er áhersla á vernd stúlkna gegn ofbeldi. Armbandið kostar 2.000 kr. og m.a. hægt að kaupa það á vefnum barnaheill.is. Haustsöfnun Najmo kaupir armband af Ernu Reynisdóttur hjá Barnaheillum. Haustsöfnun Barna- heilla farin af stað Byggingar- og skipulagsyfirvöld í Reykjavík samþykktu á þriðjudag að leyfa Félagi múslima á Íslandi að byggja tveggja hæða bænahús við Suðurlandsbraut 76. Þetta kemur fram í fundargerð byggingarfulltrúa og skipulagsfull- trúa borgarinnar frá 24. ágúst. Í fundargerðinni kemur fram að byggingin verði úr forsteyptum ein- ingum og telji samtals 677,6 fer- metra, þar sem neðri hæðin verður 598,3 fermetrar og sú efri 79,3 fer- metrar. Félag múslíma fékk leyfi til að byggja mosku við Suðurlandsbraut árið 2019 en ekki var hægt að hefja framkvæmdir strax þar sem ekki var búið að uppfylla ákveðin skilyrði á borð við afhendingu sérteikninga, greiðslu tilskilinna gjalda og ráðn- ingu byggingarmeistara. Samþykktu byggingu mosku Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Á miðvikudag var greint frá því að skrifstofa Landspítalans hefði blásið út síðasta áratuginn. Þannig sýndu opinberar tölur að starfsfólki sem heyrði undir hana hefði fjölgað um 115% á árabilinu 2010-2020. Vísaði blaðið þar til svara heilbrigðisráðu- neytisins til Alþingis við fyrirspurn sem laut að rekstri stofnunarinnar. Landspítalinn sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu vegna fréttarinnar og segir hana byggjast á misskilningi. Færðir undir skrifstofuna „Rétt er að stöðugildi 170 náms- lækna voru flutt til innan spítalans í maí 2020, frá sviðum og til skrifstofu framkvæmdastjóra lækninga, og skýrir það þá aukningu sem dregin er fram.“ Bendir spítalinn á að þessir námslæknar hafi starfað og starfi enn „við sjúklinga og lækningar eins og fyrir breytinguna“. Skýrir spítalinn þessa skipulags- breytingu á þeim forsendum að í henni felist „miðlægt utanumhald og skipulag, m.a. vegna alþjóðlegrar vottunar Royal College of Physicians í London sem er virtur samstarfsaðili í verkefnum sem þessum víða um heim“. Eftir breytingarnar voru 446,9 stöðugildi við skrifstofu Landspítal- ans en fyrir þær 276,9. Árið 2010 voru stöðugildin 207,6. Sé tillit tekið til færslu sérnámslæknanna fjölgaði því stöðugildum á skrifstofunni um 33,4%. Þá bendir spítalinn í yfirlýsingu sinni á að sérnámið sem þarna ræðir um hafi getið sér gott orð og sé for- senda klínískrar þjónustu og mönn- unar í lækningum til framtíðar. „Því er hér um að ræða lækna í sér- námi sem stunda sitt starfsnám á Landspítala og hafa m.a. leikið lyk- ilhlutverk í viðbragði spítalans í Covid-faraldrinum. Sérnámslæknar sinna þannig ekki skrifstofustörfum heldur sérnámi sínu og klínískri vinnu á spítalanum.“ Í ljósi viðbragða spítalans við frétt Morgunblaðsins hefur blaðið lagt fyr- irspurn fyrir stofnunina um hvernig skilgreiningu starfa er háttað á vett- vangi hennar og hvort skrifstofufólk sé flokkað undir öðrum sviðum en skrifstofu, rétt eins og að læknar sem sinna klínískri þjónustu séu skil- greindir undir hatti skrifstofunnar. Landspítalinn hafði ekki brugðist við fyrirspurn blaðsins þegar það fór í prentun. Nemar ástæða fjölgunar - Forsvarsmenn Landspítalans segja skrifstofu stofnunarinnar ekki hafa blásið út - 170 sérnámslæknar voru færðir undir hatt skrifstofunnar en starfa þar ekki Morgunblaðið/Eggert Skipulag á Landspítala Árið 2020 var ákveðið að færa 170 námslækna undir skrifstofu Landspítalans. Þeir starfa þó ekki fyrir skrifstofuna. Andri Ólafs- son, fyrrum aðstoð- armaður og upplýsinga- fulltrúi rekt- ors Háskóla Íslands, hef- ur verið ráð- inn til að annast fjöl- miðlasamskipti Landspítalans. Um er að ræða tímabundna ráðningu til nokkurra mánaða þar sem Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskiptadeildar, er á leið í frí. „Við erum í þungri törn núna og veitir ekki af liðsstyrk. Andri er með mikla reynslu bæði í fjöl- miðlum og almannatengslum og verður frábær viðbót,“ segir Stefán í samtali við Morg- unblaðið. Andri hleyp- ur í skarðið STEFÁN Á LEIÐ Í FRÍ Andri Ólafsson Fjölmargir skólar norðanlands og eystra hafa síðustu daga brugðið á það ráð að færa kennsluna úr skóla- stofum út undir bert loft. Hitinn hef- ur víða verið á bilinu 25-28 gráður og verið nær ólíft innandyra. Í gær var nemendum í 5. bekk Oddeyrarskóla á Akureyri boðið upp á útisturtu eftir íþróttatíma. Kenn- arinn mætti með vatnsslöngu og sprautaði á krakkana til að kæla þá niður að tíma loknum. Ríkti mikil kátína meðal nemendanna með þetta fyrirkomulag. Miðað við veðurspár er útilit fyrir ágætisveður áfram austanlands. Útisturta í hitanum á Akureyri Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Vatni var sprautað á nemendur Oddeyrarskóla í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.