Morgunblaðið - 27.08.2021, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir #,&)"-/%
í síma %!" $#$$
Morgunblaðið óskar eftir
blaðber#! $
.('!+*$"
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Hallgrímssafnaðar
Sunnudaginn 5. september 2021 er boðað til
aðalsafnaðarfundar Hallgrímssafnaðar í
Hallgrímskirkju að guðsþjónustu lokinni.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Sóknarnefnd Hallgrímskirkju
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Óðinsgata 14A, Reykjavík, fnr. 200-7076, þingl. eig. HV 10 ehf.,
gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
þriðjudaginn 31. ágúst nk. kl. 11:00.
Óðinsgata 14B, Reykjavík, fnr. 200-7079, þingl. eig. HV 10 ehf.,
gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
þriðjudaginn 31. ágúst nk. kl. 11:10.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
26. ágúst 2021
Tilkynningar
AMUNDI RESPONSIBLE INVESTING
SOCIETE D'INVESTISSEMENTACAPITALVARIABLE - SICAV
(INVESTMENT COMPANYWITH VARIABLE CAPITAL)
Registered office: 90 Boulevard Pasteur, 75015 PARIS
PARIS TRADEAND COMPANIES REGISTER (RCS)834 854 838
MEETING NOTICE
PLEASE NOTE
Given the current COVID-19 pandemic, and in line with Order No. 2020-321 of
25 March 2020 on adapting the rules for meetings and meeting decisions, as extended by
Act No. 2021-689 of 31 May 2021, the Board of Directors has decided to call the General
Meeting with no shareholders in attendance.
In view of this situation, shareholders are invited to appoint the Chairman of the General
Meeting as their proxy or to vote by post using the voting form.
Dear Sir/Madam, The shareholders of AMUNDI RESPONSIBLE INVESTING
are convened to a Combined General Meeting upon receiving this initial notice,
to be held on 16 September 2021 at 3 pm at the management company's premises at
91-93 Boulevard Pasteur, 75015 PARIS. The agenda shall be as follows:
Ordinary General Meeting items
- Reading of the Board of Directors' report on the financial year ended 31 May 2021;
- Reading of the Statutory Auditor's report and the special report on the agreements
subject to Article L. 225-38 of the French Commercial Code;
- Adoption of the financial accounts for the financial year ended;
- Profit allocation for the financial year;
- Adoption of the special report prepared by the Statutory Auditor;
- Renewal of the terms of six Directors;
- Ratification of the transfer of the SICAV's registered office
- Authorisations for formalities.
Extraordinary General Meeting items
- Reading of the report of the Board of Directors to the Extraordinary General Meeting;
- Amendments to Articles 17, 21 and 27 of the Articles of Association;
- Authorisations for formalities.
All documents that must be provided to each of the General Meetings are available to
shareholders at the Registered Office of the Company.
In accordance with the law, the right to participate in this meeting is subject to the
registration of shares in an account in the shareholder's name – or the registered
intermediary if the shareholder is resident abroad – on the second business day preceding
the Meeting at midnight, Paris time, in the registered share accounts or in the accounts of
bearer shares held by the authorised intermediary.
This registration must be recorded by a participation certificate issued by the authorised
intermediary and attached either to the postal voting form or proxy voting form, or to the
request for an admittance card issued in the name of the shareholder.
All shareholders shall be admitted to the Meeting regardless of their number of shares and
may be represented by their spouse or by a representative who is also a shareholder.
A postal voting form or proxy voting form is available to any shareholders who submit a
written request no later than six days before the meeting, sent to the registered office of the
Company or its representative, CACEIS Corporate Trust, 14 Rue Rouget de Lisle,
92862 Issy-Les-Moulineaux.
To be taken into consideration, this duly completed form must be returned to the Company
or to its representative cited above, no later than three days before the Meeting.
If the Extraordinary General Meeting may not legitimately deliberate because the
required quorum has not been reached, shareholders shall be reconvened to an
Extraordinary General Meeting to deliberate on matters with the same agenda,
on 5 October 2021 at 3 pm at the management company's offices at
91-93 Boulevard Pasteur, 75015 PARIS.
The Board of Directors
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-12. Upplestur kl. 11. Hádegismatur
kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími: 411-2600.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10:00.
Gönguferð kl. 10:40. Opið kaffihús 14:30-15:15. Erum að byrja að skrá
í ýmiskonar námskeið hjá okkur endilega verið í bandi við okkur
535-2760. Það eru t.d. ennþá laus pláss í tálgun og myndlist.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:10-11:00.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30.
Hæðargarðsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 13:45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur frá
Jónshúsi kl. 10:00.
Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 08:30 til 15:30, heitt á
könnunni. Gönguhópur /leikfimi frá kl. 10:00 (Sólstofa) Prjónakaffi frá
kl. 10 –12:00. Söngstund frá kl. 10:15, Hannes leikur undir á gítar.
Allir velkomnir.
Hraunsel Mánudagur: Myndlistarklúbbur kl. 9, stóla-jóga kl. 10 og
félagsvist kl. 13. Þriðjudagur: Brids kl. 13. Miðvikudagur: Stóla-jóga
kl. 10, línudans kl. 11, bingó kl. 13 og handverk kl. 13. Fimmtudagur:
Pílukast kl. 13. Föstudagur: Línudans kl. 10 og brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Handavinna - opin vinnustofa frá kl. 10:30.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á því að spila
Boccia í setustofunni okkar klukkan 10:30 og á sama tíma hittist
kaffihópur í handverksstofu. Klukkan 12:50 verður svo fjörug dans-
leikfimi í setustofunni okkar. Klukkan 13:30 verður svo Bingó í matsal-
num okkar og beint á eftir verður síðan vöfflukaffi klukkan 14:30.
Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg. Hlökkum til að sjá ykkur!
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum alla morgna. Á næstu dögum
getum við vonandi farið af stað með félagsstarfið án mikilla hafta.
Enn þurfum við þó að fara varlega og virða sóttvarnarreglur.
Fyrirhugað er að halda opið hús fimmtudaginn 9. september milli
kl. 13.00 og 16.00 í aðstöðu félagsstarfsins á Skólabraut 3-5.
Þá kynnum við vetrardagskrána og skráum á námskeiðin. Allir
velkomnir.Kaffi og vöfflur.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
200 mílur
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Daihatsu Sirion 9/2008 EKINN
AÐEINS 108 ÞÚS. KM.
Þessi litla rúsina er ný skoðuð án
athugasemda og er bara fín í akstri.
Samt kostar hann bara 390.000,-
Fyrstur kemur fyrstur fær á við hér !
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Á björtum sum-
ardegi þegar við
fjölskyldurnar vor-
um á ferðalagi
fengum við þær sorglegu fréttir
að Dodda væri látin. Við vitum
að hún hefði verið ánægð með
okkur að ferðast og kynnast
landinu okkar og því var það
táknrænt að fá fréttirnar um
andlát hennar þegar við virtum
fyrir okkur fallega Hvítserk sem
gnæfði svo tignarlega yfir okkur
í flæðarmálinu.
Dodda og Einar höfðu mikinn
áhuga á ferðalögum og voru
dugleg að ferðast bæði innan-
lands og utan. Þau nutu þess að
fara á menningarviðburði og
heimsækja söfn og Dodda ljóm-
aði öll þegar hún talaði um Vín-
arborg. Dodda „frænka“ eða
Dodda hans Einars var okkur af-
skaplega kær. Þau voru höfð-
ingjar heim að sækja og þegar
við systurnar voru litlar þá var
skemmtilegt að fara til Einars
og Doddu, þau voru yndisleg við
okkur systur, þau áttu svo
skemmtilegt dót, eitthvað sem
enginn annar átti og svo var
Týna kisan þeirra svo mjúk og
falleg. Á jólunum héldu þau
skemmtilegt jólaboð fyrir okkur
krakkana þar sem við dönsuðum
í kringum jólatréð og þau stjön-
uðu við okkur. Það var alltaf jafn
gaman að spjalla við Doddu en
hún var fróð um allt á milli him-
Georgía Magnea
Kristmundsdóttir
✝
Georgía Magn-
ea Kristmunds-
dóttir fæddist 7.
apríl 1951. Hún lést
18. júlí 2021.
Útförin hefur
farið fram í
kyrrþey.
ins og jarðar og
lagði sig fram við að
læra nýja hluti,
hvort sem það var
nýjasta tæknin eða
hvað annað sem
henni fannst áhuga-
vert. Það var auð-
velt að kenna henni
og hún var þakklát
fyrir það að Fanney
skyldi kenna henni
á nýja ipadinn núna
á vormánuðum þá nýorðin sjö-
tug. Dodda var vel lesin og það
var áhugavert að heyra hvað hún
hafði lært og upplifað á sínum
yngri árum en okkur fannst
stórmerkilegt að hún hefði unnið
í fangelsi í Danmörku. Dodda
var sálfræðingur að mennt og
hafði mikinn áhuga á fólki. Hún
vann hjá SÁÁ og svo síðast vann
hún hjá félagsþjónustunni í
Hafnarfirði. Hún fylgdist vel
með allri stórfjölskyldunni og
vissi alltaf hvað allir voru að
læra, æfa eða vinna við. Hún
hafði mikinn áhuga á að kynnast
öllum krökkunum og naut þess
að sjá þau vaxa úr grasi.
Við munum öll sakna þín
elsku Dodda. Við sjáum þig fyrir
okkur í sumarlandinu með góða
bók, hlustandi á klassíska tónlist
á milli þess sem þú púslar og
lærir tungumál í ipadinum og að
sjálfsögðu alltaf með tölvuna
stillta á dönsku. Það kemur að
því einn daginn að við förum til
Vínarborgar og skoðum alla þá
merku staði sem þú sagðir okkur
frá og minnumst þín.
Okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur til elsku Einars frænda,
minningin lifir um elsku Doddu.
Fanney, Helga Björk,
Jóna Kristín og fjölskyldur.
Í dag kveðjum við
frænku sem var
okkur svo kær.
Helga var mikill
kvenskörungur, frændrækin og
stolt af sínum. Hún var skemmti-
leg, kraftmikil og það var aldrei
lognmolla í kringum hana. Þegar
Helga veiktist þótti henni sárt að
hafa ekki alla þessa orku lengur
og þótti erfitt að þiggja aðstoð.
Missir hennar var mikill þegar
hún þurfti að kveðja eiginmann
sinn hann Rabba alltof snemma.
Þau voru samrýnd hjón, nutu
þess að ferðast, þá helst til sólar-
landa, og hefðu svo sannarlega
kunnað að njóta efri áranna sam-
an. Einnig var missirinn erfiður
þegar systkini hennar létust þau
Bói og Vallý með stuttu millibili.
Kærleikur var á milli þeirra og
Helga Sigrún
Helgadóttir
✝
Helga Sigrún
Helgadóttir
fæddist 31. júlí
1942. Hún lést 8.
ágúst 2021.
Útför Helgu Sig-
rúnar fór fram 24.
ágúst 2021.
hittust þau nær dag-
lega. Mikill sam-
gangur var á milli
okkar fjölskyldna
og voru Helga og
Rabbi okkur systr-
um og mömmu mikil
stoð. Við verðum
þeim ætíð þakklátar
fyrir það.
Við sendum börn-
um hennar Helenu,
Helga, Ólöfu Elínu
og fjölskyldum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Við munum
halda minningu um góða konu á
lífi.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Elín, Laufey og Ólöf.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar