Morgunblaðið - 27.08.2021, Síða 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
EIN ALLRA BESTA
HEILSUDÝNA Í HEIMI
SUMARLEG SÆNGURVERASETTSÆNGURVER OG NÁTTSLOPPAR
HÖFUM
ÞAÐ GOTT
HEIMA
KERTATÍMIKósý
ÚRVAL AD VÖNDUÐUM ILMKERTUM FRÁ FRANSKA
MERKINU DURANCE, FULLKOMIN Á SÍÐSUMARKVÖLDUM
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Jón Gnarr mun syngja Völuspá við eigið lag í Þjóðminja-
safni Íslands í dag og á morgun, 27. og 28. ágúst, kl. 16.
Völuspá er eitt eddukvæða og það þekktasta af íslensk-
um fornkvæðum og segir frá sköpun heimsins, tilkomu
manneskjunnar og atburðum og átökum þeim sem að
lokum leiða til Ragnaraka. Kvæðið er varðveitt í tveim-
ur megingerðum og styðst Jón við svo-
kallaða Konungsbókarútgáfu sem er
elsta varðveitta útgáfa kvæðisins, frá
árinu 1270. Hilmar Örn Agnarsson og
Hilmar Örn Hilmarsson sjá um tónlist-
arlega útsetningu og hljóðmynd verks-
ins og nota ýmis hljóðfæri meðan
á flutningi stendur, til dæmis ým-
is hljóðfæri úr smiðju Páls á
Húsafelli. Urður, Verðandi og
Skuld sjá einnig um söng, bak-
raddir og hljóðfæraslátt en þær
eru Berglind Björgúlfsdóttir,
Hjördís Árnadóttir og Rannveig
Þyri Guðmundsdóttir.
Jón syngur Völuspá í Þjóðminja-
safninu í dag og á morgun
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 239. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Íslenska frjálsíþróttafólkið sem mætt er til keppni á Ól-
ympíumót fatlaðra í Tókýó tekur þátt í sínum greinum
um helgina. Patrekur Andrés Axelsson keppir í 400
metra hlaupi í flokki blindra í nótt og í fyrramálið
keppir Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir í kúluvarpi. Hún
keppir í seinni grein sinni, langstökkinu, á sunnudags-
morguninn. Kári Jónsson er yfirmaður landsliðsmála
Íþróttasambands fatlaðra og þrautreyndur frjáls-
íþróttaþjálfari og leggur mat á möguleika Patreks og
Bergrúnar í viðtali í blaðinu í dag. »27
Frjálsíþróttafólkið Patrekur og
Bergrún hefja keppni um helgina
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Eldgosið og umhverfið breytist
stöðugt. Mér finnst gaman að fylgj-
ast með þeirri þróun auk þess sem
ég hef alltaf mikla þörf fyrir hreyf-
ingu. Þetta tvennt hef ég náð að
sameina í göngum að gosinu,“ segir
Eiríkur Óli Dagbjartsson, útgerðar-
stjóri í Grindavík. Eins og aðrir þar í
bæ hefur Eiríkur eldgosið við
Fagradalsfjall fyrir augunum og
fylgist því vel með þróun þess.
Gosið, sem hófst 19. mars sl.,
hafði aðeins staðið í fáeina klukku-
tíma þegar Eiríkur var kominn að
eldgígnum og síðan þá eru ferðirnar
að þessum nornapotti náttúrunnar
orðnar 42. Sennilega met!
Hraunelfur streymir fram
Eiríkur segist gjarnan fara að
gosstöðvunum síðdegis, eftir vinnu,
eða á kvöldin. Misjafnt sé hvaða leið
hann taki en um nokkrar sé að velja.
„Nýlega var útbúið bílastæði austan
við Ísólfsskála og þaðan er skemmti-
leg leið upp að Langahrygg, þeim
góðan útsýnisstað,“ segir Eiríkur
Óli. Þau Sólveig Ólafsdóttir eigin-
kona hans hafa oft farið saman í
þessar göngur, sem þau njóta í botn!
„Fyrir nokkrum dögum gekk ég
seint um kvöld inn Nátthagadal og
lenti þar í þoku. Þegar komið var
innarlega í dalinn mátti sjá hraun-
elfina streyma fram brekkurnar,
sem var mikið sjónarspil. Mikinn
hita lagði þar upp af hrauninu svo
þarna var auður blettur og ágætt
skyggni. Svo nánast villtist ég á leið-
inni til baka, slík var þokan. Ferð-
irnar á þessar slóðir hafa allar verið
gefandi og skemmtilegar, þarna
rekst maður á ótrúlegasta fólk en
sykurhúðuð gulrót í öllum þessum
ferðum er að sjá náttúruna í ótrú-
legum ham.“
Glóandi gígur og svart hraun
Jarðvísindamenn telja ómögulegt
að segja neitt fyrir um hugsanleg
goslok við Fagradalsfjall. Jafnvel er
gert ráð fyrir að eldgosið geti staðið
í einhver ár, þótt jafn líklegt sé að
því ljúki á morgun.
„Í upphafi gossins kraumaði í að-
eins einum gíg, sem síðan fjölgaði
þegar ný sprunga myndaðist. Hvert
glóandi hraun hefur runnið hefur
líka komið á óvart, eins og raunar
flest í þessum atburðum. Að gosið
standi í mörg ár er nokkuð sem ég
hef áhyggjur af, því hver veit nema
hraunið gæti þá ógnað byggðinni
hér í Grindavík,“ segir Eiríkur,
einkaflugmaðurinn sem á dögunum
renndi sér yfir eldgosið.
„Úr flugvél séð úr lofti fæst nýtt
og mjög skemmtilegt sjónarhorn á
staðinn og allar aðstæður við gos-
stöðvarnar,“ segir Eiríkur. „Ég
hlakka þess vegna til þess í vetur að
fljúga yfir svæðið og sjá andstæð-
urnar sem myndast þegar rauðgló-
andi gígurinn vellur – og biksvart
hraunið og snæviþakin jörð verða
andstæður. Slíkt verður mikið sjón-
arspil eins og allt viðvíkjandi eldgos-
inu, sem nú hefur staðið í rúma
fimm mánuði, hefur svo sannarlega
verið.“
Göngugarpar Eiríkur Óli Dagbjartsson og Sólveig Ólafsdóttir kona hans á
ferðinni við Fagradalsfjall með eldgíginn mikla kraumandi að baki sér.
Gengið að nornapotti
- Skemmtilegar ferðir - Náttúra í ham er sykurhúðuð
gulrót - Eiríkur Óli hefur farið alls 42 sinnum að gosinu