Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 2

Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Rútuslys varð á þjóðvegi 1 í grennd við Dyrhólaey á ellefta tímanum í gær. Átta voru um borð í rútunni og einhverjir þeirra slösuðust en þó er ekki talið að neinn hafi slas- ast alvarlega að sögn Odds Árna- sonar, yfirlögregluþjóns á Suður- landi. Tilkynning um slysið barst Neyð- arlínunni klukkan 10.32 og var þá hópslysaáætlun virkjuð og við- bragðsaðilar sendir á vettvang. Samkvæmt fréttaritara á vett- vangi var ekki útlit fyrir að rútan hefði lent á hvolfi, en hún stóð á hjólunum spölkorn vestur af af- leggjaranum að bænum Skeiðflöt. Allri vinnu á veginum var lokið um hádegisbil en vegurinn hélst lok- aður vegna veðurs fram eftir degi. Rútan var þó ekki fjarlægð strax. Rútuslys á þjóðveginum við Dyrhólaey Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Á slysstað Átta voru um borð í rútunni. BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Viðræður formanna stjórnarflokk- anna, þeirra Bjarna Benediktssonar, Katrínar Jakobsdóttur og Sigurðar Inga Jóhannssonar, héldu áfram í Ráðherrabústaðnum í gær líkt og fyrr í vikunni, en sem áður halda leiðtogarnir málum mjög þétt að sér og þaðan hefur lítið frést. Þingmenn stjórnarflokkanna, sem Morgunblaðið ræddi við, segja að málið sé alfarið í höndum formann- anna, enn sem komið er, þótt búist sé við því að þeir kalli fleiri að borðinu í komandi viku, þegar og ef rammi endurnýjaðs ríkisstjórnarsamstarfs liggi fyrir. Gert hafði verið ráð fyrir því að boðað yrði til þingflokksfunda fyrr í vikunni, en af því kann að verða í dag eða jafnvel um helgina. „Erfiðu málin“ tefja fyrir Þingmennirnir lögðu allir áherslu á að flokkarnir hefðu nægan tíma og vildu gefa sér þann tíma sem þyrfti til þess að leysa úr ágreiningsefnum. Nefnt var að flokksformennirnir vildu einmitt leysa „erfiðu málin“ frá fyrra kjörtímabili áður en tekið væri til að semja nýjan stjórnarsáttmála, sem viðbúið er að taki talsverðan tíma og fleiri komi að. Þar vilja menn búa tryggilega um alla hnúta, svo sem fæst úrlausnarefni geti valdið usla síðar. Þessi erfiðu mál hafa hins vegar reynst tafsamari en vonir stóðu til. Þar mun hálendisþjóðgarður og orkunýting vera helstu ásteytingar- steinar, en segja má að þar ræði um sitt hvora hlið á sama peningi. Ýmis fleiri mál voru nefnd til sög- unnar, en almennt virðast þing- mennirnir bjartsýnir á að formenn- irnir leysi þau. Hins vegar séu viðræður formannanna orðnar nokkru lengri en til stóð og líklegt að þeir taki sér hlé um helgina og heyri í sínu fólki. Eða sú virtist a.m.k. von þingmanna, sem sumir eru greini- lega forvitnir um hvernig gangi. Formennirnir hafa þó rætt fleira en gömul rifrildi, svo sem breytingar á Stjórnarráði, áherslur og útgjöld á kjörtímabilinu, efnahagshorfur og skattamál. Um hið síðastnefnda er töluverður munur á afstöðu flokk- anna. Katrín er sögð mjög áfram um þrepaskiptan fjármagnstekjuskatt og Sigurður Ingi leggur til að fyr- irtækjaskattur leggist misþungt á fyrirtæki eftir umsvifum, líkt og flokkar þeirra boðuðu í kosningabar- áttunni. Bjarni mun hins vegar taka því fálega til samræmis við fyrirheit flokks hans um lægri skatta. Sjálfstæðismenn einhuga Brynjar Níelsson, sem nú er vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hef- ur sagt í vikunni, að hann telji ágreining milli síns flokks og Vinstri grænna of mikinn til þess að þeir geti náð saman í ríkisstjórn á ný. Telur hann vænlegra að tala við Við- reisn í þeirra stað. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem blaðið ræddi við í gær, taka ekki í sama streng. Þeir segja ekkert nýtt við að flokkana greini á um eitt og annað, en það hafi ekki orðið sam- starfinu til trafala fram til þessa. Formaður flokksins hafi fengið um- boð þingflokksins til þess að ganga til þessara viðræðna og hann hafi fullt traust til þess að leiða þær far- sællega til lykta. Þeir gefa lítið fyrir hugmyndir um að allt eins mætti ræða samstarf við Viðreisn eða Flokk fólksins. „Það heyrast alls kyns sögur og hugmynd- ir,“ sagði einn þeirra. „Við erum í þessu af fullum heilindum og meðan Bjarni situr við samningaborðið er- um við ekkert að tala við aðra.“ Stjórnarmyndun mjakast áfram - Formennirnir hittast enn einir á fundum - Viðræður alfarið í þeirra höndum og þingmenn þöglir - Hálendisþjóðgarður og orkunýting tafsöm - Fleira rætt en ásteytingarsteinar frá fyrra kjörtímabili Morgunblaðið/Eggert Stjórnarmyndun Flokksformennirnir Sigurður Ingi Jóhannsson og Katrín Jakobsdóttir verjast frétta utan við Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Oddeyrin fór í sína fyrstu veiðiferð undir merkjum Samherja í vikunni. Með nýstárlegum aðferðum á tog- veiðum er aflanum dælt úr pokanum í tanka um borð með dælu eða fisk- sugu. Ýmist verður hægt að koma með fiskinn lifandi í land, blóðgaðan í kælitanka eða ísaðan í körum eins og tíðkast á togurunum. Hjörtur Vals- son, skipstjóri á Oddeyrinni, segir að með búnaði skipsins opnist nýir og spennandi möguleikar til framtíðar, en við togveiðar hafi menn ekki hing- að til komið með lifandi fisk í land. Magnveiðar voru ekki verkefni í fyrsta túrnum heldur var fyrst og fremst verið að læra á búnaðinn og prófa margs konar nýja hluti. Hjört- ur segir að trollinu hafi aðeins verið dýft tvívegis í sjó og var afraksturinn 2-3 tonn af þorski sem fékkst út af Skjálfanda. Læra og þróa vinnubrögðin Í stað þess að taka pokann um borð var hann tekinn á síðuna og fiskinum dælt um borð þar sem hann var blóðgaður í kælitanka. Við lönd- un í gærmorgun var fiskinum dælt beint úr skipinu í frystihús þar sem hann fékk lokavigtun áður en hann fór í aðgerð. Eftir lagfæringar á „nokkrum agnúum“ sem komu í ljós er ráðgert að halda á ný til veiða í kvöld. Hjörtur segir að menn haldi áfram að læra og þróa vinnubrögðin, en heilt yfir hafi gengið vel í fyrsta túrnum. Hjörtur og hans menn á Oddeyr- inni eru frumherjar hérlendis hvað varðar þróun þessara aðferða því fiski mun ekki hafa verið dælt lifandi í land á togveiðum. Norðmenn hafa gert tilraunir með dælingu á lifandi bolfiski, en þá fyrst og fremst á drag- nótaveiðum, að sögn Hjartar. Dæling á uppsjávarafla er hins vegar al- þekkt, en þær aðferðir eru ekki alveg sambærilegar. Oddeyrin var smíðuð 2004 og keypt af írskri útgerð, sem notaði það til uppsjávarveiða. Eftir að skip- ið hafði verið lengt um 10,5 metra, í 55 metra, og breytt fyrir bolfisk- veiðar hjá Carstensensens- skipasmíðastöðinni í Danmörku kom skipið til Akureyrar í júlí. Þá tók við uppsetning búnaðar á vinnsludekki í Slippnum á Akureyri og unnið var að fleiri endurbótum. Morgunblaðið/Margrét Þóra Löndun Afla dælt í gegnum sterklega slöngu beint í frystihúsið. Mögulegt verður að koma með fiskinn lifandi í land. Undirbúa að landa lifandi fiski úr Oddeyrinni EA - Nýir og spennandi möguleikar - Frumherjar hérlendis Rafmagnslaust var í gamla Vest- urbænum og miðbænum í tæpan klukkutíma á sjöunda tímanum í gærkvöld. Ástæðuna mátti rekja til bilaðs háspennustrengs í mið- bænum. Sjá mátti kertaljós loga í hinum ýmsu gluggum en ekkert þeirra logaði eins skært og um- ræðuvettvangur Vesturbæinga á Facebook. Rétt fyrir klukkan 18 var kastað fram þeirri spurningu hvort rafmagnslaust væri hjá fleir- um í hverfinu, og svöruðu henni yfir hundrað manns áður en raf- magnið komst aftur á. Sumir virt- ust svekkja sig á rafmagnsleysinu, enda styttist í kvöldmat og margir sem stóla á rafmagnseldavélar og ofna rétt fyrir kvöldmatarleytið. Þá sáu nokkrir ljósið í myrkrinu og litu á björtu hliðarnar: „Ímyndið ykkur hvað við erum heppin að vera með rafmagn, ef þetta væri alltaf svona þyrftum við að horfa á sjónvarpið við kertaljós,“ sagði einn. Vesturbæingar spauguðu í rafmagnsleysi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.