Morgunblaðið - 08.10.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021
Kolbrún Baldursdóttir fulltrúi
Flokks fólksins rakti helstu
vanefndir meirihluta borgar-
stjórnar 5. október og fór í gegnum
meirihlutasáttmála hans:
- - -
Íbúðaskortur og
biðlistar er
kjarninn í van-
efndum þessa meiri-
hluta sem er þvert á
það sem stendur í
meirihlutasáttmál-
anum þar sem segir
að byggja eigi sem
aldrei fyrr.
- - -
Samt hafa aldrei
verið færri
íbúðir á markaði í
Reykjavík frá 2017.
Ástæðan er skortur
á lóðaframboði. Lóðaskorturinn
kemur í veg fyrir hagkvæma hús-
næðisuppbyggingu á þéttingar-
reitum. Margir sérfræðingar hafa
stigið fram og bent á þetta, t.d.
Samtök iðnaðarins sem og seðla-
bankastjóri sem nefndi að brjóta
þyrfti land í Reykjavík undir
byggð. Nú eru eingöngu um 3.400
íbúðir í byggingu en byggja þarf
árlega 3.000-3.500 nýjar íbúðir ef
vel ætti að vera.
- - -
Aðrar vanefndir:
Langur biðlisti er eftir fé-
lagslegri leiguíbúð og sértæku hús-
næði fyrir fatlaða.
Fátækt er vandamál í Reykjavík.
Lágtekjufólk á ekki mikið eftir
milli handanna þegar búið er að
borga leiguna. Hópurinn sem leitar
til hjálparstofnana hefur stækkað.
Á þremur árum hefur biðlisti eftir
fagfólki í skólaþjónustu þrefaldast
og nú bíða 1.448 börn á listanum.
- - -
Á sama tíma sýna kannanir að
andleg líðan barna fer versn-
andi.“ Listi fulltrúans er lengri og
æði dapurlegur, svo sem vonlegt er.
Kolbrún
Baldursdóttir
Get ekki svikið
meira en ég lofaði
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hafnfirðingum býðst nú nýr ferða-
máti, deilibíll frá Zipcar, sem stend-
ur á merktu stæði á horni Fjarðar-
götu og Linnetsstígs í miðbænum.
Þjónustan virkar þannig að íbúar
bóka bílinn, sækja hann og skila aft-
ur í sama stæði. Í tilkynningu frá
Hafnarfjarðarbæ segir að deilibíll-
inn sé frábær viðbót við þá fjöl-
breyttu samgöngumöguleika sem
standa íbúum Hafnarfjarðar til
boða. Þetta sé hluti af tilraunaverk-
efni um deilibíla til sex mánaða og að
þeim tíma loknum velti framhald
verkefnisins á áhuga og fjölda not-
enda. Þannig geti íbúar og starfsfólk
fyrirtækja í Hafnarfirði haft bein
áhrif á vöxt deilibíla í Hafnarfirði.
Nýr ferðamáti er
„frábær viðbót“
- Fyrsti deilibíllinn í Hafnarfirði
Prufukeyrsla Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Helga
Ingólfsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Hafnarfjarðar.
Grímseyingar eru staðráðnir í að
reisa nýja kirkju í Miðgörðum í stað
þeirrar sem brann til grunna á dög-
unum, að sögn Alfreðs Garðars-
sonar, formanns sóknarnefndar.
Hann segir að Grímseyingar finni
fyrir miklum samhug frá fólki um
allt land og margir hafi látið peninga
rakna til nýrrar kirkjubyggingar.
Að sögn Alfreðs hafa safnast um
tíu milljónir króna, en gamla kirkjan
og innanstokksmunir voru tryggð
fyrir rúmar 30 milljónir króna.
Margir hafi haft samband til að
votta Grímseyingum samúð og láta í
ljós von um að ný kirkja verði byggð
fyrir Miðgarðasókn í þessu nyrsta
byggðarlagi á Íslandi. Alfreð segir
Grímseyinga þakkláta fyrir stuðn-
inginn, sem þeir hafi fundið fyrir.
Hann segir að ekkert verði að-
hafst í haust. Næsta vor liggi fyrir
að moka grunninum í burtu en hann
sé krosssprunginn eftir hitann í
eldsvoðanum. Á þessum tímapunkti
sé ekki farið að ræða hvernig kirkja
verði byggð, annað en að hún verði á
svipuðum stað og gamla kirkjan. Um
upptök brunans vísar Alfreð á rann-
sókn lögreglu og segir að sjónir
manna hafi beinst að því að eldurinn
hafi kviknað út frá rafmagni.
Margir munir glötuðust
Hafist var handa við að reisa Mið-
garðakirkju árið 1867 og var bygg-
ingu hennar lokið ári síðar. Hún var
stækkuð 1932. Árið 1956 var hún
gerð rækilega upp og endurvígð og
hefur sætt margvíslegu viðhaldi síð-
an. Í brunanum glötuðust margir
munir og má m.a. nefna altaristöflu
eftir Arngrím Gíslason alþýðulista-
mann frá 1879. Fyrirmynd hans var
kvöldmáltíðarmynd Leonardos da
Vincis. aij@mbl.is
Staðráðnir í að
byggja nýja kirkju
- Kirkjan tryggð
fyrir um 30 milljónir
- 10 milljónir safnast
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Miðgarðakirkja Grímseyingar
hafa fundið fyrir miklum samhug.