Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021
Solihull nálgunin byggir á heildrænni aðferðarfræði fyrir foreldra og fagaðila þar sem markmiðið er að auka skilning
á tilfinningalegri og andlegri heilsu barna. Námskeiðin nýtast öllum þeim sem koma að uppeldi og umönnun barna.
SOLIHULL NÁMSKEIÐ Í BOÐI
GEÐVERNDARFÉLAG
ÍSLANDS
TVEGGJA DAGA GRUNNNÁMSKEIÐ,
VAL UM TVÆR DAGSETNINGAR:
a) 12. okt. og 2. nóv., kl. 9-16
b) 16. og 30. nóv., kl. 9-16
Hámark 12 þátttakendur í hvort skipti.
Leiðbeinendur:
Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldu-
fræðingur og Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi
AÐ SKILJA ÁFÖLL
1. nóvember, kl. 9-16
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
HEILAÞROSKI
29. nóvember, kl. 9-13
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
TENGSLAMYNDUN
15. nóvember, kl. 9-16
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
Námskeiðsgjald
Tveggja daga grunnnámskeið: 59.000 kr.
Önnur námskeið: 29.000 kr.
Tryggðu þér sæti í tíma!
Skráning á www.gedvernd.is
eða með netpósti á gedvernd@gedvernd.is
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Íbúar í Neðra-Breiðholti hafa miklar
áhyggjur af breytingum á aðalskipu-
lagi Reykjavíkur til 2040 sem varða
Mjódd og Norður-Mjódd. Þeir hafa
mótmælt tillögu sem gerir ráð fyrir
byggð þar sem leyfileg byggingar-
hæð væri 5-8 hæðir. Íbúar telja þetta
of hátt og vilja að byggingar á reitn-
um séu lækkaðar í flokkinn fimm
hæðir eða lægri.
„Við sem búum næst þessu, í rað-
húsunum fyrir ofan Mjóddina og í
vestanverðum Stekkjum, erum ekki
sátt við þetta og finnst þetta ekki í
takt við núverandi hverfisskipulag.
Þarna allt í kring eru tveggja hæða
hús og það er byggt í halla. Svo það
eru allir með útsýni og sól í garðinum
fram eftir degi,“ segir Gunnhildur
Karlsdóttir, íbúi í hverfinu.
Húsin í hverfinu eru flest 2-3 hæð-
ir en á því er ein undantekning og
það er níu hæða blokkin Þangbakki
við Mjódd.
Þykir forsendubrestur
Hafa íbúar áhyggjur af skugga-
varpi sem skapist við uppbygg-
inguna sem og tapi á útsýni. Gunn-
hildur segir íbúa á svæðinu hafa
keypt eignir miðað við ákveðnar for-
sendur og að þessum breytingum á
skipulagi fylgi forsendubrestur.
„Við viljum fá þetta lækkað niður í
næsta flokk fyrir neðan sem eru
fimm hæðir og undir. Að fara að
byggja 5-8 hæðir, með möguleika á
að byggja tvær aukahæðir á stöku
stað, það er náttúrulega algjörlega
galið. Þetta er hverfi sem er einstak-
lega vel skipulagt og fjölskylduvænt.
Okkur finnst þetta engan veginn í
takt við byggðina sem er þarna
núna.“
Gunnhildur nefnir að í aðalskipu-
laginu komi fram að hæð húsa skuli
almennt ákvarðast af yfirbragði að-
liggjandi byggðar. „Það er alls ekki
verið að gera það þarna. Við höfum
áhyggjur af þessu og við vildum
pressa á borgina með þetta.“
Íbúar stóðu fyrir undirskriftasöfn-
un í þeim húsum sem yrðu fyrir
mestum áhrifum af byggingu í
Mjódd. Viðtökurnar voru góðar og af
þeim sem heima voru þegar gengið
var í hús skrifuðu íbúar 96% heimila
undir. Kolbrún Baldursdóttir hjá
Flokki fólksins hefur síðan lagt fram
bókanir og fyrirspurnir um málið á
fundum skipulags- og samgönguráðs
undanfarið.
Telja þetta styrkja byggðina
Pawel Bartoszek, formaður skipu-
lags- og samgönguráðs, segir málið
hafa verið rætt í tengslum við stórar
breytingar á aðalskipulagi til ársins
2040. Í gildandi aðalskipulagi sé gert
ráð fyrir húsum sem eru níu hæðir
og hærri en brugðist hafi verið við
áhyggjum íbúa af fyrirhuguðum
byggingum á svæðinu. Þá var ákveð-
ið að færa þær niður í næsta bygg-
ingarhæðarflokk, þ.e. 5-8 hæðir.
Áfram hafi borist athugasemdir
við hæð húsanna frá íbúum á svæð-
inu eins og Gunnhildur hefur lýst.
Pawel segir að brugðist hafi verið við
þeim að einhverju leyti en ekki öllu.
„Krafa íbúanna er að fara með þetta
niður í fimm hæðir en okkur finnst
byggð á þessu svæði geta borið meiri
hæð en það. Við höfum nú sett
ákvæði um að viðmiðið sé 4-7 hæðir
og sérstök ákvæði um að húsin
skyldu vera lægst næst núverandi
byggð. Þar væru þau nær fjórum
hæðum en gætu stallast upp. En það
verður allt saman útfært í deiliskipu-
lagi,“ segir borgarfulltrúinn.
„Það hefur staðið til í mjög langan
tíma að þarna yrði íbúabyggð. Borg-
arlínan mun koma þarna og þetta er
svæði sem er þjónað mjög vel nú
þegar af samgöngum. Við teljum að
þetta muni styrkja byggðina enn
frekar.“ Almennt sé gert ráð fyrir að
byggð meðfram borgarlínu verði
yfirleitt 5-8 hæðir. Íbúarnir við
Mjódd hafa þó bent á að það eigi ekki
alls staðar við, t.d. sé byggð við
kjarnastöðvar á borð við Lækjartorg
og BSÍ í flokknum fimm hæðir eða
lægra.
„Það er þannig með deiliskipulag-
ið að þetta verður allt útfært nánar
og þá verður tekið tillit til þeirra at-
hugasemda sem þar berast.“
Íbúarnir hafa einnig áhyggjur af
því að innviðirnir í Breiðholti ráði
ekki við fjölgun íbúa sem fylgir
byggingu um 800 íbúða. „Maður
spyr sig: Mun skólinn þola þetta,
mun heilsugæslan þola þetta?
Hvernig ætla þau að breyta skipu-
laginu þannig að þetta virki? Við vit-
um það ekki enn þá,“ segir Gunn-
hildur. Pawel segir það hins vegar
ekki eiga að vera áhyggjuefni, fundið
verði út úr skólamálum og öðru og
uppbyggingin muni bara styrkja
innviðina ef eitthvað er.
„Náttúrulega algjörlega galið“
- Deilt um hæð fyrirhugaðrar byggðar í Mjódd - Íbúar í Neðra-Breiðholti mótmæla tillögu sem gerir
ráð fyrir 5-8 hæða húsum - Tillit tekið til athugasemda með nýjum ákvæðum, segir borgarfulltrúi
Skuggavarp af 5-8 hæða byggð
Við sumarsólstöður 21. júní frá kl. 15 til 24
<5 hæðir
5-8 hæðir
+2 hæðir*
Mjódd Bakkar
Norður-Mjódd
Stekkir
*Byggingaraðilar geta sótt um
tvær aukahæðir á völdum stöðum
Lágreist Byggðin í Neðra-Breiðholti er yfirleitt lág, með nokkrum undan-
tekningum. Íbúar hafa mótmælt fyrirhuguðum byggingum.