Morgunblaðið - 08.10.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.10.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 ✝ Finnbogi Jóns- son, verkfræð- ingur og fyrrver- andi framkvæmda- stjóri, fæddist á Akureyri 18. janúar 1950. Hann lést 9. september 2021 í Vancouver í Kan- ada. Finnbogi er fæddur og uppalinn á Akureyri. For- eldrar hans voru Esther Finn- bogadóttir, f. 24.1. 1917, d. 23.6. 1986, verka- og matráðskona, og Jón Sveinbjörn Kristjánsson, f. 13.9. 1912, d. 26.3. 2001, fv. stýrimaður og skipstjóri. Finn- bogi lauk stúdentsprófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í eðlisverk- fræði frá HÍ 1973, lokaprófi frá Tækniháskólanum í Lundi í Sví- þjóð 1978 og lokaprófi í rekstr- arhagfræði frá háskólanum í Lundi sama ár. Finnbogi kenndi við Gagn- fræða- og Iðnskóla Vest- mannaeyja 1970-71. Eftir að hann lauk háskólanámi varð hann deildarstjóri í iðnaðarráðu- neytinu 1979-82 og fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1982-86. Hann var framkvæmdastjóri Síld- arvinnslunnar hf. frá 1986-99, forstjóri Íslenskra sjávarafurða 2004, geðhjúkrunarfræðingi og félagsmálastjóra. Börn Finn- boga og Sveinborgar eru Esther, f. 30.11. 1969, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu, og er mað- ur hennar Ólafur Georgsson, f. 5.7. 1967, flugstjóri. Börn Estherar eru Finnbogi Guð- mundsson, f. 18.4. 1996, Vigdís Elísabet Bjarnadóttir, f. 11.1. 2006, og Georg Ólafsson, f. 10.2. 2012, dóttir Ólafs er Guðrún Soffía f. 25.2. 1989; Sigríður Ragna, f. 20.7. 1976, fyrrverandi flugfreyja og starfsmaður á fast- eignasölunni Miklaborg, og er maður hennar Roberto González Martínez, f. 8.8. 1977, slökkvi- liðsmaður. Synir þeirra eru Elm- ar, f. 28.3. 2009, og Erik Máni, f. 16.2. 2012. Sambýliskona Finnboga frá 2006 er Berglind Ásgeirsdóttir, f. 15.1. 1955, sendiherra. Börn hennar eru Ásgeir Gíslason, f. 6.7. 1981, viðskiptafræðingur, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, f. 13.6. 1988, lögmaður og Sæunn Gísladóttir, f. 4.6. 1993, þróun- arhagfræðingur. Alsystir Finnboga er Dóro- thea J. Bergs f. 20.2. 1947, hjúkrunarfræðingur, hálfsystir sammæðra er Hrafnhildur Ólafsdóttir, f. 20.5. 1939, fv. deildarstjóri, og hálfbróðir Finn- boga, samfeðra, er Anton Helgi Jónsson, f. 15.1. 1955, skáld. Útför verður frá Hallgríms- kirkju í dag, 8. október 2021, klukkan 15. hf. 1999, síðar að- stoðarforstjóri SÍF hf. og starfandi stjórnarformaður Samherja hf. 2000- 05. Hann var fram- kvæmdastjóri Ný- sköpunarsjóðs at- vinnulífsins frá 2006-10 og fram- kvæmdastjóri Framtakssjóðs Ís- lands frá 2010-12. Þá sat hann auk þess í stjórnum fjölmargra fyrirtækja, samtaka og stofnana. Finnbogi var bú- settur í París og Moskvu árin 2012-20. Síðari árin sinnti Finn- bogi einkum nýsköpun og stjórn- arsetu. Meðal annars beitti hann sér fyrir samstarfi um útflutning á íslenskri tækniþekkingu í sjáv- arútvegi. Hann var formaður Perluvina sem staðið hafa að uppbyggingu náttúrusýninga í Perlunni og sat hann um árabil í háskólaráði á Akureyri. Finn- bogi hlaut ýmsar viðurkenn- ingar fyrir störf sín og var með- al annars útnefndur maður ársins í íslensku viðskiptalífi ár- ið 1997 og sæmdur heiðursmerki Verkfræðingafélags Íslands 1999. Finnbogi kvæntist hinn 27.2. 1971 Sveinborgu Helgu Sveins- dóttur, f. 13.6. 1948, d. 13.3. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að við eigum ekki eftir að spjalla aftur eða njóta samveru- stunda með fjölskyldunni. Þegar ég sest niður og hugsa um allt sem þú hefur gefið mér í gegnum tíð- ina er erfitt að byrja, listinn er svo langur. Með fyrstu minningum mínum eru brot frá Hringbraut- inni þar sem við bjuggum um tíma þar til við fluttum til Svíþjóðar. Þú sinntir náminu þínu með prýði en alltaf gafstu þér tíma fyrir skottið þitt sem fékk meira að segja að „lesa pló“ með ykkur skólafélög- unum. Við áttum margar góðar stundir við taflborðið eða í legó á þessum árum. Íslendingahópur- inn hélt vel saman og þið mamma voruð boðin og búin að aðstoða þegar nýir bættust við. Heimilið var alltaf opið vinum ykkar og öðrum gestum og enda þótt lítið væri um aur í buddunni á þeim tíma tókst mömmu vel til með að gera veislu úr því sem til var. Þetta voru óneitanlega lífleg og mótandi ár; ég fór á mína fyrstu alvörutónleika með Þursaflokkn- um og þar hafði ég mín fyrstu kynni af pólitík. Stúdentarnir fylgdust að sjálfsögðu vel með kosningum heima á Íslandi og það var spennandi að sitja við útvarpið og fylgjast með tölum. Enda þótt við höfum ekki alltaf verið sam- mála var fátt skemmtilegra en að skiptast á skoðunum og spá í spil- in með þér. Ég saknaði þess veru- lega í nýafstöðnum kosningum, geta ekki hringt í þig og hvað þá að vera með þér á kosninganótt. Eftir að við fluttum heim til Ís- lands tóku við krefjandi verkefni, bæði í ráðuneytinu, á Akureyri og á Neskaupstað. Þótt samveru- stundir yrðu með öðrum hætti gat ég alltaf leitað eftir stuðningi til þín við nám eða störf. Það voru þó kannski árin i Hafnarfirði sem lögðu grunninn að okkar vinskap eins og hann var. Þú treystir mér líka alltaf, sem sýndi sig best þeg- ar ég var fengin til að skoða húsið sem við síðar keyptum saman, en þið mamma óséð. Það var aðdáun- arvert hversu vel þú hugsaðir um mömmu í hennar veikindum og síðan hvernig þú vannst þig út úr sorginni með útivist og líkams- rækt. Með því sýndir þú þann mikla innri styrk sem þú bjóst yf- ir, þrautseigju og kraft. Kennar- inn í þér fékk útrás á ný þegar þú tókst að þér leiðsögn fyrir okkur veiðivinkonur í Árdísum og ófáir maríulaxarnir sem komu á þinni vakt. Þú tókst vinum mínum alltaf opnum örmum og sýndir, eins og í veiðinni, alltaf einlægan áhuga á því sem við vorum að sýsla. Það var gott að sjá þig finna ástina á ný og fylgjast með spennandi stefnumótum ykkar Berglindar hingað og þangað um heiminn. Það var dásamlegt að heimsækja ykkur í París og Moskvu og nú síð- ast á Akureyri. Þær urðu ekki margar heimsóknirnar til ykkar þar, því miður, en við náðum þó góðum stundum í skíðafríi með fjölskyldunni, þegar við feðginin fórum saman á gönguskíðin. Ómetanleg er sameiginleg afmæl- isveisla okkar fyrir tæpum tveim- ur árum, sem bar kannski meiri merki um vinskap okkar. Elsku pabbi, með þér er ekki eingöngu farin frábær fyrirmynd og stuðn- ingsmaður, heldur líka besti vinur og ráðgjafi. Þú hefðir ekki getað gert betur í föðurhlutverkinu, þín verður ævinlega sárt saknað. Esther. Elsku pabbi. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn. Fyrir 17 árum kvaddi mamma okkur aðeins 55 ára gömul og nú hverfur þú skyndilega aðeins 71 árs. Það er mér enn óskiljanlegt, að þú svona ungur og orkumikill, fullur af lífskrafti, hverfir á braut með þessum hætti. Það koma óteljandi minningar upp í hugann. Brosið þitt, hlátur- inn, krafturinn, hversu dásamleg- ur pabbi þú varst, lékst við okkur og dekraðir. Bílaferðalag fjöl- skyldunnar í Frakklandi þegar við sváfum í bílnum af því öll hótelin voru upptekin. Fíflagangurinn í þér. Til dæmis þegar við fjölskyld- an keyrðum yfir sprengisand á rauðu ljósi og þú sagðir „eigum við að athuga hvað við komumst langt“. Þú varst stærðfræðisnill- ingur og vaktir áhuga minn á henni löngu áður en ég byrjaði í skóla. Hugardæmin sem þú lést mig reikna voru svo skemmtileg. Ég er þér endalaust þakklát fyrir að vera yndislegasti faðir og afi sem maður getur hugsað sér og fyrir að vera mér stoð og styrkur eftir að mamma dó. Þú varst án efa kletturinn minn. Það var ynd- islegt að geta leitað til þín ef mér leið illa og yndislegt hvernig þú leitaðir til okkar ef þér leið illa. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig með strákana og komst oft langar leiðir til að passa. Það verður skrýtið að hafa ekki afa lengur í lífi okkar. Það var svo gaman að heim- sækja ykkur í París og Moskvu og svo gaman hvað þú komst oft að heimsækja okkur til Spánar. Ég naut samveru þinnar óendanlega mikið og saman deildum við áhug- anum fyrir fótboltanum hjá strák- unum. Alltaf varst þú mættur á alla leiki eða fylgdist ákafur með úr fjarlægð. Hljópst eftir endi- langri línunni fullur af kappi. Lést þig auðvitað ekki vanta á N1-mót- ið (og fleiri mót) og eitt af því síð- asta sem þú veltir fyrir þér var hver yrði andstæðingur Elmars og félaga í úrslitum á íslandsmótinu. Þú hefðir orðið svo stoltur af þeim. Þú átt líka mikinn þátt í að Máni byrjaði svona ungur að æfa. Dróst hann út á völlinn aðeins 2 og ½ árs á Spáni og fékkst þjálfarana til að bæta honum í hópinn þó að hann væri ári yngri en allir hinir. Með handapati og nokkrum orðum, bendandi á Mána, fékkstu þitt fram. Ég held reyndar að enginn hafi séð eftir því, enda vakti Máni mikla lukku. Þótt samneyti fjölskyldna ykk- ar Berglindar hafi verið lítið var ótrúlega gaman þegar þú bauðst okkur öllum til Danmerkur í tilefni af 60 ára afmælinu þínu. Einnig var yndislegt hvað við áttum dásamlega stund um áramótin í Helgamagrastræti. Þær hefðu ef- laust orðið fleiri. Við vorum svo ánægð að vera loksins í sama landi og þú svo ánægður að vera kominn norður. Tímdir varla að fara út því þér leið svo vel þar. Máni spurði mig eitt kvöldið: „Mamma, ef afi hefði ekki farið til Kanada hefði hann þá ekki dáið?“ Þessari spurningu verður aldrei svarað. En alla vega er ynd- islegt hvað þið nutuð lífsins síð- ustu vikurnar. Knúsaðu mömmu frá mér og eins og segir í lagi KK „When I think of angels“; „I see you again when its my time to go“. Megi minning þín vera ljós í lífi okkar. Ég elska þig að eilífu elsku pabbi. Koss og knús, Ragna. Finnbogi var svo einstakur að mörgu leyti. Stórtækur, glettinn og glæsilegur. Það sem stendur upp úr er þó einlægur áhugi hans á fólki og óskert athygli þegar hann lagði við hlustir. Hann var á öðru tempói en við mæðgur og á meðan við fórum í gegnum fimm um- ræðuefni við matarborðið á Huldubraut var hann enn að greina það fyrsta. Þegar upp var staðið var hann svo að sjálfsögðu sá eini sem hafði fullan skilning á því sem hafði verið rætt og fann lausnir. Hann setti sig nefnilega inn í öll mál sem honum var sagt frá og spurði spurninga þar til hann skildi viðfangsefnið út í gegn. Það var gott að leita til hans, for- dómaleysið algert og athyglin 100%. Við systkinin hlógum oft að því hvernig mömmu og Finnboga lá lífið á. „Slakið þið aðeins á, það er hægt að gera þetta á morgun,“ sögðum við en allt kom fyrir ekki og alltaf fann Finnbogi upp á ein- hverju nýju að gera. Heimsreisa á einum mánuði, hæstu fjöll klifin og lengstu vegir hjólaðir. Hugtakið „vesen“ ekki í orðabókinni og því flóknari sem framkvæmdin var, þeim mun spenntari varð Finn- bogi. Augun ljómuðu þegar hann sagði frá ævintýrunum og ekki var verra ef honum tókst betur til en yngri mönnum. Það er eitthvað svo skrýtið að skrifa um Finnboga í þátíð, enda fáir jafn lifandi og hann. Sem bet- ur fer lá honum lífið á því ekki urðu dagarnir jafn margir og við hefðum viljað. Honum tókst fyrir vikið að áorka meira en flestum, en sporin sem hann skilur eftir sig eru þeim mun stærri og söknuður- inn meiri. Elsku mamma, Esther og Ragna, ég votta ykkur innilega samúð mína. Sigrún Ingibjörg Gísladóttir. Ég var tólf ára gömul þegar Finnbogi kom inn í líf mitt eftir að leiðir þeirra mömmu lágu saman. Hann lagði mikið upp úr því að kynnast mér strax frá byrjun og þurfti því að umbera píanótónleika byrjanda, kórferðir og að láta rekja fyrir sig allan söguþráð fyrstu seríu Aðþrengdra eigin- kvenna í eftirminnilegri bílferð frá Austurlandi til Reykjavíkur. Þeg- ar á leið fór hann að deila með mér sínum áhugamálum og fékk ég meðal annars fyrsta flokks kennslu í hvernig ætti að stunda fjallgöngur á Íslandi, hvernig væri best að ganga upp brekkur á gönguskíðum og hvernig ætti að matreiða ljúffengt salsa ofan á þorskhnakka, svo eitthvað sé nefnt. Finnbogi var kennari af guðs náð, hans kennsluferill var stuttur, en ljóst er að hann bjó að þeirri reynslu alla ævi. Ég get fullyrt að ég væri ekki hagfræðingur í dag ef hann hefði ekki gefið sér endalaus- an tíma til að sitja yfir formúlum með mér, fyrst til að komast í gegnum stærðfræðina í fram- haldsskóla og síðar til að ljúka hagfræðiprófi í háskóla. Þrátt fyr- ir litla þolinmæði mín megin kom hann mér í gegnum námsefnið og var ég stolt að geta haft hann mér við hlið þegar ég útskrifaðist í Skotlandi. Finnbogi var Akureyringur og mjög stoltur af heimabæ sínum. Þau mamma festu kaup á einu fal- legasta húsinu í gamla bænum á síðasta ári og nutum við Egill þess að fá að gista þar margoft á síðast- liðnu ári. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið að vera með Finn- boga þar milli jóla og nýárs á gönguskíðum og aftur í steikjandi hita í júní. Finnbogi smitaði mig af aðdáun sinni af Norðurlandinu og stuttu eftir húsakaup þeirra mömmu keyptum við Egill hús á Siglufirði. Það er sárt að hugsa til þess að við munum ekki njóta samvista saman fyrir norðan eins og alltaf stóð til hvort í sínum fal- lega bænum. Finnbogi var nautnaseggur og kunni að lifa lífinu til fulls, ég held að við gætum mörg tileinkað okk- ur viðhorf hans að kýla á hlutina og láta drauma okkar rætast. Þannig lifði hann fram að síðasta degi og vikurnar þeirra mömmu í Kanada var hann uppfullur af gleði. Ég minnist Finnboga með hlý- hug og þakklæti fyrir þennan mann sem kynntist mér á svo við- kvæmum tíma á æviskeiðinu og hvatti mig alltaf til að elta drauma mína. Ég vildi óska að hann hefði náð að hitta dóttur mína en hún mun heyra margar sögur af uppá- tækjum hans. Sæunn Gísladóttir. Elsku Finnbogi. Þú breyttir lífi okkar allra til hins betra. Fyrir mér varst þú mikill leiðtogi með hjartað á réttum stað. Við komum inn í líf Berglindar og fjölskyldu með stuttu millibili og það var skemmtilegt að deila með þér hlutverkinu „nýjasta við- bótin“ við þessa dásamlegu fjöl- skyldu. Ég upplifði ekkert nema ást, kærleik og velvild frá okkar fyrstu kynnum og svo skemmdi nú ekki fyrir að við vorum bæði verkfræðingar með áhuga á stjórnun og í þér hafði ég góða fyrirmynd. Þú umvafðir fjölskyld- una ást og hlýju, leiðtoginn með stóra hjartað. Mér þótti alltaf aðdáunarvert að maður með þína þekkingu, metnað og reynslu væri einnig tilbúinn að aðlaga sig og styðja svo þétt við bakið á maka sínum í hennar krefjandi verkefnum út um allan heim. Þú varst jafnrétt- issinni af guðsnáð með sterka réttlætiskennd og veittir mér þannig innblástur í leik og starfi. Þú sagðir ekki endilega margt en þegar ég þurfti á stuðningi að halda þá sagðir þú allt sem segja þurfti með faðmlagi, hlýju augna- ráði og örfáum orðum. Þú varst alltaf tilbúinn að hlusta og ég fann að þér þótti vænt um mig og vildir að mér vegnaði vel, slíkur stuðn- ingur er ómetanlegur. Þú varst yndislega góður við börnin okkar, hlustaðir og hvattir þau, hjartans þakkir fyrir það elsku Finnbogi. Þú varst frábær í hlutverki tengdaföður og afa og við hefðum viljað hafa þig hjá okkur svo miklu, miklu lengur. Hildigunnur Jónsdóttir. Fallinn er frá tengdafaðir minn, Finnbogi Jónsson, og bar andlát hans brátt að. Hann virtist vel á sig kominn enda gekk hann á Elbrus, hæsta fjall Evrópu, fyrir tveimur árum. Við héldum sann- arlega ekki að komið væri að leið- arlokum. Ég kynntist Finnboga þegar við Esther fórum að vera saman árið 2009. Það fór strax vel á með okkur og samband okkar var allt- af mjög gott. Finnbogi var eldhugi og ég held að það hafi verið sama hvað hann tók sér fyrir hendur þá hafi verkefnið alltaf skipt mestu máli, en ekki það sem hann sjálfur bar úr býtum. Það var fræðandi og skemmti- legt að ræða við Finnboga um landsins gagn og nauðsynjar. Við vorum ekki alltaf sammála, en þessar stundir eru mér ógleyman- legar og þeim hefði ég ekki viljað missa af. Ég minnist einnig góðra samverustunda okkar við veiðar, eldamennsku og margt fleira. Ég kveð tengdaföður minn með miklum söknuði. Ólafur Georgsson. Elsku afi, ég sakna þín svaka- lega mikið og lífið er svaka erfitt núna en ég verð að halda áfram að lifa lífinu og verð að hugsa um minningarnar. Ég græt þrisvar í viku. Afi, það eru svo margar minningar um þig að það er erfitt að velja eina en ég man eftir einni sem var í Rússlandi þegar við fór- um á Hataratónleikana og það var rosa stuð og gaman. Það var líka geggjað hús hjá ykkur, svaka bíll og matarlyftan var geggjuð. Það var líka gaman að koma til Parísar þótt ég hafi verið yngri. Líka gam- an á Akureyri í skíðaferðinni. Það var mjög gaman að horfa á lands- leiki með þér. Það var líka stuð í Gufudal að veiða, ég saknaði þín svo mikið í veiðinni í sumar og mig langaði svo að þú kæmir með okk- ur næsta sumar. Þú varst svo skemmtilegur afi og skilningsrík- ur. Þinn, Georg. Elskulegur bróðir minn er skyndilega horfinn á braut og það er stutt í tárin síðan það gerðist. Það er sárt að fá ekki að sjá þig aftur og knúsa í þessu lífi. Ég þakka samt fyrir að hafa fengið að kveðja þig áður en þú fórst til Kanada fyrir tveimur mánuðum og njóta kvöldverðar með þér og fjölskyldunni þinni. Þú ert búinn að vera hluti af lífi mínu frá því þú fæddist enda er fyrsta minningin mín úr lífinu tengd fæðingu þinni. Þú fæddist heima í sama herbergi og ég svaf í og ég rétt að verða þriggja ára vakna við einhvern hávaða og þeg- ar ég lít til mömmu minnar í gegn- um rimlana á rúminu mínu, sé ég hana halda á einhverju sem öskr- ar ógurlega að mér fannst. En þarna komu strax fram þínir eig- inleikar, Brói minn eins og ég kall- aði þig meðan þú varst lítill dreng- ur. Frá fyrstu tíð kraftmikill og atorkusamur. Ég réð að vísu ekki alltaf vel við þig eins og þegar þú varst ákveðinn í að kanna hvað brunnurinn á bak við saumastof- una hennar Boggu frænku væri djúpur og endaðir á að hverfa ofan í hann og ég rétt náði í annan fót- inn þinn og gat dregið þig upp úr. Þegar þú fékkst ný leikföng eins og fína jeppann sem hægt var að draga upp og láta keyra um gólfið, vildir þú helst taka þau í sundur og sjá hvað væri innan í. Fyrstu sex árin þín bjuggum við í Grænugötunni og það var nú gaman að að leika sér þar, sér- staklega á veturna en oft komst þú heim eftir að hafa verið að renna þér á magasleða með skurði á enninu eða hnjánum. Fyrir framan húsið sem við bjuggum í var Eiðsvöllurinn og við vorum oft send í mjólkurbúð- ina til að kaupa eitthvað. Þú vildir nú fá að halda á peningnum og í eitt skipti týndist seðillinn á leið- inni og þá leituðum við lengi vel og fundum eftir langa tíð. Þú varst svo glaður en ekki var verið að gefast upp. Við bjuggum á mörgum stöðum á Akureyri og alltaf varstu fljótur að eignast vini á nýjum stöðum og ég öfundaði þig mikið af því. Ég man hvað þú varst ánægður þegar Helgi minn fór að venja komur sínar til okkar í Löngumýri 10 og þið gátuð alltaf spjallað mik- ið saman og voruð góðir vinir. Þegar sonur okkar fæddist varst þú svo góður frændi að passa hann. Þú varst alltaf svo áhuga- samur um líðan barnanna minna, Helga, Vilhjálms og Þórdísar og þeirra fjölskyldnam, enda ríkti mjög gott samband milli dætra þinna, Rögnu og Estherar, og minna barna og var það ekki síst fyrir þitt tilstilli. Ég hef haft tæki- færi til að fylgjast með þeim og barnabörnum þínum frá því þau fæddust. Þín verður sárt saknað í árlegu jólaboði okkar. Þegar þú, Sveina og Esther heimsóttu okkur til London, var gaman að fara um borgina og skoða skemmtilega og fallega staði saman. Ég var alltaf svo stolt af þér vegna þess að þér gekk svo vel að læra og komast áfram í lífinu. Ég man hvað ég varð ánægð þegar þú ákvaðst að flytja til Akureyrar þegar ég bjó þar og oft nutum við skemmtilegra stunda þar. Síðar þegar þú áttir heimili á öðrum stöðum vissi ég alltaf að ég gæti leitað til þín ef eitthvað væri að, það var svo gott að vita að þú værir til. Ég minnist bróður míns sem rólegum, hressum og ánægðum með lífið. Ég á eftir að sakna hans næsta aðfangadag en hann kom alltaf til mín áður en varð heilagt og þáði einn jóladrykk hjá mér sem var rautt portvín sem varð að vera borið fram í kristalsglasi. Ég bið að heilsa í Sumarlandið. Þín Meira á www.mbl.is/andlat Dóróthea systir (Didda). Finnbogi Jónsson er látinn, langt fyrir aldur fram. Hann kom stormandi inn í líf systur minnar fyrir rúmlega 16 árum og hélt ferðinni áfram í orðsins fyllstu merkingu fram á síðasta dag. Með kynnum Finnboga af Berglindi systur minni tengdist hann fjölskyldunni og kom með Finnbogi Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.