Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 20

Morgunblaðið - 08.10.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 og ég sendi Berglindi, Esther, Rögnu, barnabörnunum og öðrum ástvinum innilegar samúðar- kveðjur. Gunnþór B. Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. Skjótt skipast veður. Það var reiðarslag að frétta nýlega af Finnboga Jónssyni dauðvona vestur við Kyrrahaf. Aðeins tæpt ár var liðið frá því við síðast vorum í sambandi vegna sameiginlegra áhugamála, sem fylgt höfðu okkur í röska fjóra áratugi, og rétt um tvö ár frá því hann gekk á Elbrus, hæsta fjall Evrópu. Ég frétti fyrst af Finnboga við námslok hans í Lundi í Svíþjóð 1978 og að hann þá hygðist helga landsbyggðinni krafta sína. Svo fór þó að ég stöðv- aði hann af í iðnaðarráðuneytinu þar sem hann vann ómetanlegt starf um þriggja ára skeið, m.a. við að greina hagræn áhrif orku- sölu til erlendrar stóriðju. Þaðan lá leið hans á heimaslóðir í Eyja- firði og 1986 austur í Neskaupstað þar sem hann var framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar hf. í hálf- an annan áratug. Fjölskyldur okkar áttu með sér náið samband öll þessi ár, dæturnar Esther og Ragna í uppvexti og móðir þeirra Sveinborg geðhjúkrunarfræðing- ur sem starfaði í áratug sem fé- lagsmálastjóri í Neskaupstað. Andlát hennar á miðjum aldri var öllum áfall, sem samheldin fjöl- skylda stóð þó af sér. Náin kynni Finnboga af ís- lensku atvinnulífi og yfirburða- þekking skiluðu sér til margra gegnum þau fjölmörgu trúnaðar- störf sem hann tók að sér. Gagn- aðist honum þar einkar ljúf lynd- iseinkunn, afburða tölvísi og að vera fljótur að greina aðalatriði hvers máls. Kynni hans og Berg- lindar Ásgeirsdóttur sendiherra í hálfan annan áratug reyndust einkar farsæl. Þau auðguðu ekki aðeins líf beggja, heldur breikk- uðu enn sjóndeildarhring Finn- boga sem birtist m.a. í greiningu hans á alþjóðlegum sjávarútvegi og nýtingu á íslenskri tækniþekk- ingu til útflutnings. En þótt atvinnulíf og rekstur yrði aðalviðfangsefni Finnboga hafði hann áhuga á öllu í umhverfi sínu, náttúru og mannlífi. Því kom nafn hans upp í hugann þegar áhugahópur Perluvina ehf. hóf undirbúning að náttúrusýningu í Perlunni árið 2015 og vantaði for- ystukraft. Í heimsókn haustið 2015 til Parísar á fund Finnboga og Berglindar féllst Finnbogi á að taka að sér stjórnarformennsku fyrir hópnum sem skilaði brátt þeim árangri sem þar blasir við, með stuðningi frá Reykjavíkur- borg og samvinnu við aðra fjár- festa. Þetta verkefni rækti hann sem önnur af einstakri trú- mennsku og lagni. Við Kristín finnum sárt til með Berglind, dætrum Finnboga og öðrum niðjum sem sjá á eftir hon- um úr því öndvegi sem hann hefur skipað í huga okkar. Verka hans verður lengi minnst. Kristín og Hjörleifur Guttormsson. Góðvinur okkar hjóna, Finn- bogi Jónsson, er fallinn frá, allt of snemma. Ég átti erfitt með að trúa því að þetta væri rétt því hann og sambýliskona hans, Berglind Ásgeirsdóttir, klifu upp um hóla og hæðir jafnt sem fjöll og firnindi og voru aldrei sáttari en eftir góða fjallgöngu og ljóm- uðu af heilbrigði. Þannig litu þau a.m.k. út þegar þau komu til kvöldverðar hjá okkur beint ofan af Súlum ekki alls fyrir löngu. Enginn fær sköpum rennt og allir eiga sinn tíma. Enginn hefur „kú- vent“ mínu lífi og minnar fjöl- skyldu jafn algjörlega og Finn- bogi þegar hann fékk okkur til að fylgja sér austur til Neskaupstað- ar þar sem hann var að taka við Finnbogi Jónsson stöðu framkvæmdastjóra hjá Síld- arvinnslunni hf. hinn 15. júlí 1986. Það var ekki eins og við hefðum samþykkt það í fyrstu atlögu Finnboga að koma okkur austur því það tók nokkrar vikur og á endanum eftir heimsókn til Nes- kaupstaðar með þeim hjónum Finnboga og Sveinborgu sam- þykktum við boðið en þó skilyrt ráðning til þriggja ára. Síldarvinnslan stóð illa á þess- um tíma, hafði raunar aldrei náð að rétta sig af að fullu eftir snjó- flóðin hörmulegu í desember 1974 auk þess sem loðnuveiðibann varð fyrirtækinu erfitt og þorskafli var í lágmarki. Finnbogi barðist eins og ljón við að koma fyrirtækinu fyrir vind og sýndi ótrúlega stjórnkænsku, lagni, dugnað og útsjónarsemi í störfum sínum og oft logaði ljós fram eftir nóttu á skrifstofu hans í Steininum. Öll él birtir upp um síðir og mikil varð breytingin þegar hægt var að nefna afsláttarkjör við fyrirtæki sem mikið var skipt við en áður var gjarnan svarað: „Fyrst er að spyrja hvort við selj- um ykkur nokkuð og þá aðeins gegn póstkröfu.“ Farið var að huga að endurbyggingu skipanna, meira að segja samið um nýsmíði, endurnýjun fiskmjölsverksmiðj- unnar var ekki breyting heldur bylting og ekki síst þegar fyrsta alvöruuppsjávarvinnslan á Íslandi var byggð 1997 sem margfaldaði frystigetu og er í raun fyrirmynd þeirra glæsilegu vinnslustöðva sem nú eru starfræktar á Íslandi. Finnbogi blómstraði í Nes- kaupstað og þegar svo var komið fóru stórfyrirtæki fyrir sunnan að ásælast hann og þangað fór hann 1999 eftir glæsilegan feril hjá Síldarvinnslunni. Ég ætla ekki að fylgja þeim ferli eftir, það gera aðrir betur. Mikill og góður vinskapur var með okkur hjónum, Finnboga og eiginkonu hans Sveinborgu Sveinsdóttur sem lést árið 2006 langt um aldur fram eftir erfið veikindi. Með þeim fórum við í nokkrar vinnuferðir og ráðstefnur og gjarnan áttum við nokkra dásamlega daga eftir að erindum var lokið. Sami vinskapur hélst eftir að Finnbogi kynnti okkur sambýlis- konu sína Berglindi Ásgeirsdóttur og glöddumst við hversu vel þau náðu saman bæði eftir sáran ást- vinamissi. Að leiðarlokum vil ég þakka Finnboga allt það traust sem hann sýndi mér. Árin þrjú sem ég réð mig urðu þrjátíu og það segir mik- ið um allt það góða fólk sem starf- ar hjá Síldarvinnslunni og býr í Neskaupstað. Elsku Esther, Ragna, Berglind og fjölskyldur. Guð og góðar vætt- ir veri með ykkur og létti ykkur söknuðinn eftir góðan dreng. Freysteinn Bjarnason og Ingibjörg Árnadóttir. Kær vinur, Finnbogi Jónsson, er fallinn frá, sem er óbærileg til- hugsun. Finnbogi var fullur af orku og lífsgleði og hann að hefja nýjan kafla í lífinu í Vancouver með Berglindi. Við Finnbogi hittumst fyrir meira en hálfri öld, hann í verk- fræðinámi og ég að byrja í tækni- námi. Leiðir okkar lágu saman á mælingadeild Orkustofnunar þar sem við ferðuðumst um fjöll og firnindi um allt land við mælingar og komum á mjög fáfarna staði sem jafnvel enginn hafði komið á áður. Við urðum góðir vinir þetta fyrsta sumar af þremur, vinátta sem aldrei hefur borið skugga á. Sveina fyrrverandi eiginkona Finnboga var einstök manneskja, greind og skemmtileg, á þessum tíma voru þau með Esther á fyrsta ári og bjuggu á Hringbrautinni. Seinna fæddist þeim yngri dótt- irin Ragna. Leiðir okkar lágu aftur saman þegar Finnbogi var við nám í Lundi og ég í Kaupmannahöfn. Hittumst við nokkrum sinnum bæði í Lundi og Kaupmannahöfn. Við Finnbogi vorum líkir að mörgu leyti og áttum gott með að ræða heimsins gagn og nauðsynj- ar og áttum fjölmargar stundir saman á ferðalögum bæði tveir og með Berglindi og Gróu. Þar má nefna gönguferðir á ótal fjöll, um Gerpissvæðið, Fjörð- ur, Hvannadalshnjúk og Fimm- vörðuháls, og ógleymanlega sigl- ingu á seglskútu um gríska Eyjahafið fyrir þremur árum með góðum vinum. Fyrir nokkrum árum hjóluðum við Finnbogi Jakobsstíginn og vorum búnir að afgreiða miða- og hjólakaup á nokkrum dögum. Eft- ir að hafa hjólað tvo daga í París hófst hjólaferðin frá St. Jean Pied de Port í Frakklandi, ferðalag sem aldrei gleymist og syndaaf- lausn í lok ferðarinnar í dómkirkj- unni Santiago de Compostela. Þar hittum við Rögnu og áttum góðar stundir. Ógleymanleg ferð þegar vinur minn Þorsteinn Pálsson og ég heimsóttum Finnboga til Moskvu. Það var ein ævintýraferðin enn sem við áttum saman félagarnir. Finnboga hitti ég síðast á Helgamagrastræti í sumar, við Berglind og Gróa áttum gæða- stund saman og Finnbogi aldrei hressari og glaður að sýna okkur nýja heimilið og hamingjusamur að vera fluttur til Akureyrar með Berglindi sinni. Finnbogi var merkur maður, greindur, úrræðagóður og lét verkin tala, ævistarfið gríðarlegt og verður þess minnst um ókomin ár. Það er með miklum söknuði að ég kveð vin minn Finnboga Jóns- son og næsta ferð sem við vorum að skipuleggja verður að bíða og ef ég fer hana einn veit ég að hann verður með mér í anda. Elsku Berglind, Esther og Ragna, barnabörn og fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur til ykk- ar. Blessuð sé minning um góðan mann. Þórhallur Ólafsson. Vinur minn, Finnbogi Jónsson, hefur lokið sinni jarðvist langt um aldur fram. Dáinn, horfinn, harmafregn. Horfinn er af svið- inu, í einni svipan og óvænt, ein- stakur og ógleymanlegur maður, glæsimenni á velli, sannur höfð- ingi, og öflugur athafna- og for- ystumaður. Finnbogi seldi aldrei sál sína fyrir öryggi eða þægindi í lífinu. Hann var ætíð sannur og rökfastur og fylgdi eftir sinni eig- in sannfæringu, þótt það gæti stundum kostað átök og jafnvel tímabundnar óvinsældir. Finn- bogi bjó yfir mikilli skapfestu, þannig að ekki var auðvelt að snúa hann niður eða fá hann til að taka vinkilbeygju í máli þar sem hann hafði komist að niðurstöðu, var búinn að taka afstöðu og ákveða stefnu. Þannig var hann ætíð fast- ur fyrir og samkvæmur sjálfum sér. Finnbogi var mikill frum- kvöðull og brautryðjandi í at- vinnulífinu, og beitti þá jafnan fyr- ir sig leiftrandi gáfum, innsæi, ásamt hag- og verkfræðilegri greiningu. Menn sem búa yfir per- sónueinkennum og styrk Finn- boga Jónssonar eru ekki mjög al- gengir. Þess vegna er hið sviplega fráfall hans áfall og skaði fyrir okkar þjóðfélag, svo ekki sé minnst á hans fjölskyldu og nán- ustu aðstandendur. Missir þeirra er mikill og sár. Á seinni árum, þegar hann var ekki lengur bund- inn í föstu starfi, beitti hann sér sem forystumaður og frumkvöðull og lét gott af sér leiða í ýmsum framfaramálum, svo sem á vett- vangi Perluvina. Nú er skarð fyrir skildi í þessum verkefnum. Hvíl í friði kæri vinur. Blessuð sé minning Finnboga Jónssonar. Hermann Sveinbjörnsson. - Fleiri minningargreinar um Finnboga Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Robert Jacob Kluvers fædd- ist 4. júlí 1961 í Hengelo, Hollandi. Hann lést á heim- ili sínu Hófgerði 17 á Kársnesinu í Kópavogi 24. sept- ember 2021. Ro- bert er sonur hjónanna Willem Anton Kluvers, f. 16. september 1933, d. 20. desember 2001 og Rosa von Lima Scheiterbauer- Kluvers, f. 30. ágúst 1931, d. 25. apríl 2020. Systur Roberts eru Jacqueline Juliana Klu- vers, f. 18. desember 1962, d. 26. júlí 1984 og Caroline Ma- rijke Kluvers, f. 10. apríl 1966, d. 23. apríl 2015. Robert ólst upp í útjaðri þorpsins Delden í Austur- Hollandi. Foreldrar hans og föðurafi og -amma ráku þar hótelið og veitingastaðinn Car- leshaven á landareign sem rúmaði garðyrkju, ræktun blóma og ávaxta ásamt skógi sem leiksvæði barnæskunnar. Robert flutti árið 1985 til Ís- lands og bjó og starfaði í Skagafirði frá 1985 til 1996 garðyrkju og hjólreiða en hann fór flestra sinna ferða á hjóli. Robert var sjálflærður í smíðum og smíðaði sér íbúð- arhús í Hegranesi í Skagafirði sem hann nefndi Stekk. Hann hafði einstakt lag á öllum við- gerðum hvort sem það voru bílar, heimilistæki eða hús og var sérstakur áhugamaður um bíla, rallýkross og VW- bjöllur. Robert kvæntist 25. apríl 2003 Rannveigu J. Jón- asdóttur, sérfræðingi í hjúkr- un gjörgæslusjúklinga og lektor, við hjúkrunar- fræðideild Háskóla Íslands, f. 25. nóvember 1968. Foreldrar Rannveigar eru Valgerður Kristjánsdóttir og Jónas Sig- urjónsson, frístundabændur í Einholti í Skagafirði. Robert og Rannveig hófu búskap í Blönduhlíð í Reykjavík 1996 og fluttu þaðan á Kársnesið í Kópavogi 1997. Dætur Ro- berts og Rannveigar eru Helga Elín Robertsdóttur Klu- vers, f. 29. maí 1997, nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Ís- lands, maki Arnór Ingi Eg- ilsson, f. 3. júní 1992, og Katla Rut Robertsdóttur Klu- vers, f. 1. mars 2001, nemi í læknisfræði við Háskóla Ís- lands. Útför Roberts fer fram í dag, 8. október 2021, klukkan 14 í safnaðarheimilinu Borg- um við Kópavogskirkju. þegar hann flutt- ist til Reykjavík- ur. Robert lauk námi í rennismíði 1997 frá Iðnskól- anum í Hafn- arfirði og BS- gráðu í vél- og orkutæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2006. Robert vann sem rennismiður í vélsmiðjunni Framtak í Hafn- arfirði frá 1996-2001 og hjá Héðni 2001-2006 og 2009- 2010. Robert var véltækni- fræðingur hjá verkfræðistof- unni VSB í Hafnarfirði 2006- 2009, hjá Héðni 2010-2012 og verkfræðstofunni Eflu frá 2012 þar til hann lét af störf- um vegna veikinda í árslok 2018. Eftir Robert liggja fjöl- mörg verk smíða og hönnunar víðs vegar um Ísland, innrétt- ingar sem hann smíðaði í gripahús, hestakerrur, hönnun lagna fyrir íbúðarhús og fyrir- tæki og búnaður í álverum. Umhverfisvernd, sjálfbærni, nýting og endurvinnsla var Robert sérstaklega hugleikin og birtist í daglegri ástundun Og allt tekur enda. Við Robert hittumst fyrst sumarið 1986 þeg- ar ég kom heim forfrömuð frá ársdvöl í Hollandi og tókum upp þráðinn 1991. Það tók tíma að kynnast Robert. Hann vissi nefnilega svo margt, hafði ým- islegt reynt og talaði nokkur tungumál. Hann lauk þýskum hótelskóla og hafði unnið á hót- elum í Þýskalandi, Hollandi og Austurríki, við víngerð í Frakk- landi, í þýskri stálsmiðju og þýskri og íslenskri sveit. Hann kunni að byggja hús og bíla, sinna æðardúnstekju, safna fræjum og rækta skóg. Hann hafði keyrt í einum rykk á VW- bjöllu frá Hollandi til Austurrík- is, verið á skíðum og skautum, gengið á fjöll, verið á seglbretti og smíðað þau sjálfur, tjaldað, verið óhræddur og lifað einföldu lífi og íburðarmeiru. Einfalda líf- ið hafði alltaf vinninginn. Heimilið sem Robert ólst upp á er hótel og veitingastaður sem Kluvers- fjölskyldan í Hollandi hafði átt í 250 ár. Þolgæði Ro- berts í samskiptum og virðing gagnvart náunganum voru trú- lega þaðan því umhverfið krafð- ist tillitssemi, kurteisi og manna- siða sem voru honum eðlislæg. Hann veitti litarhætti eða útliti fólks aldrei athygli heldur hvað það sagði og hvernig því leið. Ro- bert var skapgóður, heilsteyptur og kjarkmikill en fyrst og fremst mjög greindur og lausnarmiðað- ur. Hann hafði yfirsýn og benti alltaf á önnur sjónarhorn, þann- ig að hugsun um efnið víkkaði. Yfirsýnin var kannski úr austur- rísku Ölpunum þar sem mamma hans fæddist en Robert hafði á unglingsárum dvalið þar sumar- langt í seli að gæta kúa og gætt sér á þverhandarþykku smjöri og osti. Þegar Robert kom til Ís- lands 1985 höguðu örlögin því svo til að hann bjó í skagfirskri sveit þar sem töluð var íslenska og ekkert annað. Í sveitinni hlustaði hann á Gufuna, las Tím- ann og Öldina okkar og lærði að athafna sig í stórhríð. Hann keyrði hringinn á malarvegum, talaði í sveitasíma, sinnti fé- lagsstörfum á sjónvarpslausum fimmtudagskvöldum og samlag- aðist þannig vel landinu með góða íslenskukunnáttu og djúp- an skilning á tungumálinu að vopni. Robert elskaði heimilið sitt og fólkið sem það innihélt og sinnti því af natni og kærleika. Hann hafði unun af heimilishaldi og garðyrkju og lagaði auðvitað allt sem bilaði, hannaði nýtt og bjó til. Að vera heimavinnandi húsfaðir var draumastarfið þó það skref hafi því miður aldrei verið stigið til fulls og alltaf unnin full vinna utan heimilis. Robert sagðist heppinn en það syrti í álinn í lok 2018 þegar hann greindist með MND-sjúkdóminn sem er ólækn- andi. Robert versnaði hratt en áttaði sig á hvað þyrfti til að halda sjó og lagði á sig mikla vinnu við að forðast óþarfar af- leiðingar sjúkdómsins. Hann var alltaf heima og þannig gátum við verið með honum á hverjum degi og hann með okkur. Hans er mjög sárt saknað en nú er enginn til að spyrja hvernig eigi að gera hlutina eða hvaða leiðir megi velja. Það er þakkarvert að Ro- bert fékk ósk sína uppfyllta að þurfa ekki að lifa einn vetur til viðbótar og að hafa ekki misst vit- ið heldur kvatt með viti. Við hitt- umst síðar og klárum þetta þá. Rannveig J. Jónasdóttir (Didda). Elsku pabbi. Takk fyrir allar kennslustundirnar. Djúpa skiln- inginn, Pýþagóras og pælingarn- ar. Svörin við spurningunum (líka þeim stóru). Æfingaaksturinn á Daihatsunum, dekkjaskiptin og tjónaskýrslurnar. Hjólatúrana, skauta- og skíðaferðirnar. Hollensku hlaupaskautana og skíðin úr Góða hirðinum. Heima- gerða nestið og gamla bláa kakó- brúsann. Hjónabandssæluna sem þú bakaðir stundum, heimarækt- aða grænkálið og gulræturnar. Útilegurnar og útlandaferðirnar. Kofann sem þú smíðaðir handa okkur systrum úti í garði og rauðu róluna sem þú logsauðst. Knúsin og bóndabeygjurnar, brandarana og gleðina. Trúna, traustið og stuðninginn. Ástina og öryggið. Það er auðvelt að vera reiður og bitur þegar lífið tekur svona ósanngjarna stefnu. Sérstaklega þegar lítið er hægt að gera nema sitja og horfa upp á það gerast, eins og í tilfelli MND. Þú tókst á við þetta á einstakan hátt: af gríðarlegu æðruleysi, styrk og þrautseigju. Ég neita því ekki, það væri ósköp gott að hafa þig áfram hjá okkur en ég mun ein- beita mér að tímanum sem við fengum saman – fyrir hann verð ég ævinlega þakklát og í þeim minningum muntu að eilífu lifa. Takk fyrir allt elsku pabbi. Þínar dætur, Katla og Helga. „Verðum við ekki bara að hringja í Róbert?“ var viðkvæðið í hvert einasta sinn sem við stóð- um frammi fyrir vandkvæði í verklegum efnum. Því ekki að- eins var mágur minn verkhagur svo af bar, heldur einstaklega bóngóður. Manni hreinlega stóð stundum ekki á sama yfir hvað hver einasti smáhlutur í sér- hverri vél, hver nagli og festa í sérhverri byggingu og hver planta og gras í sérhverjum garði var honum gagnkunnug að gerð og tilgangi. Allt lék í höndunum á honum. Hann varði eitt sinn ómældum tíma að í að aðstoða okkur feðga við að smíða kassabíl svo hægt væri að taka þátt í ár- legu kassabílarallíi Skerjafjarðar með sóma. Allt stússið við slíka smíði virtist skemmta honum ær- lega. Að fara á stúfana og útvega hitt og þetta smálegt, að láta dag- inn líða við að finna rétta hlutinn til að allt stemmdi saman þótt það tæki óratíma og maður sjálf- ur væri fyrir löngu farinn að spyrja sig hvort þetta ætlaði eng- an enda að taka. Eins og oft er um verkþyrsta menn varð honum léttast um mál og glens við svona stúss. Róbert gerði Ísland að heim- kynnum sínum, valdi að setjast hér að. Hann kom í Skagafjörð ungur og fór að vinna þar, vann lengi hjá Viðari á Bergstöðum og eignaðist síðan skika úr landi Hellulands í Hegranesi þar sem hann ræktaði grænmeti og seldi. Seinna tók hann íslenskt stúd- entspróf, lauk námi í rennismíði og starfaði við þá iðn, en bætti síðan við sig verkfræði og vann við það fag síðustu æviárin. Ég fór nokkrum sinnum með honum í vinnuna til að fylgjast með hvað hann var að bauka, fyrst þegar hann var að hanna búnað í fiski- mjölsverksmiðjur hjá Héðni og síðan þegar hann fór að vinna við hitakerfi og fleira því tengt hjá Eflu. Þetta fannst honum gaman og maður fann að hann var á réttri hillu. Róbert var margslungin blanda af heimsmanni og sveita- dreng. Alinn upp við hótelrekstur og restórasjón var hann sendur til að læra það fag niður í Aust- urríki, þaðan sem móðir hans var, og því kunni hann líka ofan á allt annað að elda fína rétti, para saman vín og mat og bera sig að við borðbúnað og útreikninga á þjórfé. Hollenska var auðvitað móðurmál hans, en hann var líka vel mæltur á þýsku, ensku kunni hann auðvitað og frönsku heyrði Robert Jacob Kluvers

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.