Morgunblaðið - 08.10.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.10.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 Höfum opnað á Selfossi komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ www.tengi.is Kópavogur – Smiðjuvegur 76 Akureyri – Baldursnes 6a Selfoss – Austurvegur 69 414 1000 414 1050 414 1040 40 ÁRA Gunnar Páll Ólafsson er Reykvíkingur og ólst upp í Laugar- dalnum, á Kleppsveginum. „Ég er kominn aftur í gamla Þróttarahverfið og hef búið í Álfheimunum frá 2012.“ Gunnar er með BS-gráðu í við- skiptafræði frá HÍ og M.Sc.-gráðu í al- þjóðaviðskiptum frá Gautaborgarhá- skóla. Gunnar er sendiráðsfulltrúi í sænska sendiráðinu. „Ég sé um að efla við- skipta- og menningartengslin milli Sví- þjóðar og Íslands. Áhugamálin fyrir utan fjölskylduna eru íþróttir, ég tek reglulega þátt í keppnishlaupum og spila fótbolta með Old Boys Þróttar.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Gunnars er Kristbjörg Gunnarsdóttir, f. 1981, heyrnarfræðingur á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Börn þeirra eru Brynhildur Anna, f. 2006, Haukur Gunnar, f. 2014, og Bragi Valur, f. 2018. Foreldrar Gunnars eru Ólafur Guðni Bjarnason, f. 1943, fv. kerfisfræðingur hjá Valitor, og Brynhildur Hauksdóttir, f. 1946, fv. dagmamma. Þau eru bú- sett á Kleppsveginum. Gunnar Páll Ólafsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Oft er skammt á milli hláturs og gráts. Hugleiddu á hvern hátt þú getur bætt samskiptin innan fjölskyldunnar. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú ert sannkallaður gleðigjafi og þess vegna sækjast margir eftir félagsskap þínum. Forðastu ákvarðanir í stórum mál- um og umfram allt reyndu að ná jarð- sambandi aftur. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Lífið er eins og dans á rósum og þér finnst þú svífa um í draumi. Ekki kaupa óþarfa, þú hefur verið of kaupglaður/glöð síðustu vikur. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú leggur þitt svo sannarlega af mörkum núna og hefur ákveðið að tjalda því sem til er. Láttu vonbrigði fortíðarinnar ekki hafa áhrif á ákvarðanir þínar núna. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Einhver verður á vegi þínum sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf þitt. Leitaðu svara við áleitnum spurningum. Þér eru all- ir vegir færir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Forðastu deilur við maka þinn. Vertu til staðar fyrir þá sem skipta þig máli og hlúðu að eigin heilsu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Gerðu áætlun og láttu óttann við hið óþekkta ekki ná tökum á þér. Óvænt ferða- lag er í uppsiglingu. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Hunsaðu ekki reynslu þeirra sem hafa gengið veginn á undan þér. Vinir þínir myndu vaða eld og brennistein fyrir þig. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú sækir í einveruna þessa dagana og ert ekki í skapi til að vera í fé- lagsskap. Eitthvað á eftir að koma þér á óvart seinni part dags. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er allt í sómanum hjá þér um þessar mundir í vinnunni svo þú getur leyft þér að slaka svolítið á. Ekki vera of fljót/ur að afskrifa hlutina. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Eitthvert málefni hefur náð tök- um á þér og ófáar spurningar leita á hug- ann. Þegar upp er staðið er fjölskyldan það besta sem þú átt. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Heimilið er þinn griðastaður þar sem naprir vindar lífsins ná ekki til þín. Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt allt klárist ekki í dag sem þú ætlaðir þér að gera. Í Búðardal tók Friðrik virkan þátt í starfi Skógræktarfélags Dalasýslu, sem og í Lionsklúbb- unum þar og í Ólafsvík, en eftir búferlaflutninginn í Garðabæ hefur starf í Frímúrarareglunni gengið fyrir öðrum félagsstörfum. Búðardal og á Laugum, sem og í Ólafsvík. Ég starfaði við bókasafn- ið í Búðardal, en eitt af skemmti- legri verkefnum mínum utan prestsþjónustunnar var að vera „okkar maður“, fréttaritari Morg- unblaðsins í Ólafsvík, um tíma.“ F riðrik Jónsson Hjartar fæddist 8. október 1951 á Flateyri við Önundarfjörð og bjó þar til 11 ára aldurs, en fluttist þá með fjölskyldu sinni í Borgarnes, þar sem heimilisfestin var næstu 11 árin. „Snemma fór ég að bera út póst- inn á Flateyri en allmörg sumur var ég vistaður á Grafargili í Val- þjólfsdal og lærði þar til margra verka og naut góðs atlætis og var m.a. falin ábyrgð á söluskálanum á Mosvallahálsi. Eitt sumar dvaldi ég einnig á Bjarnastöðum í Hvít- ársíðu. Sumarið eftir fermingu af- greiddi ég jöfnum höndum olíu og pylsur á Essóstöðinni í Borgarnesi. Eftir það tóku við mörg sumur við störf hjá Vegagerð ríkisins, fyrst sem snúningastrákur og tipp- ari, en síðar sem vélamaður. Þetta var góður undirbúningur undir tvö góð sumur á traktorsgröfu hjá Borgarverki.“ Skólaganga Friðriks var nokkuð hefðbundin, en að loknu stúdents- prófi úr Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1972 og mánaðar frönskunámskeiði í september hjá þarlendum tók við einn vetur í siglingum á kaupskipi. Haustið 1973 lá leiðin í guðfræðideild Há- skóla Íslands. Lauk Friðrik emb- ættisprófi þaðan vorið 1979. Eftir námið var Friðrik við kennslu í grunnskólanum í Borgar- nesi, en á þeim tíma losnaði Hjarð- arholtsprestakall í Dölum og var hann vígður til starfa þar hinn 6. júlí 1980. Hann var síðan sókn- arprestur í Ólafsvíkurprestakalli 1987-1999 og prestur í Garða- prestakalli 1999-2018. „Það var gott og gefandi að starfa í Búðardal, en jók síðan verulega á reynsluna að þjóna Ólafsvíkurprestakalli, sem var gjörólíkt samfélag. Eftir þessa góðu reynslu lá leiðin til starfa í Garðaprestakalli þar sem alls ólík viðhorf réðu. Framan af voru launakjörin með þeim hætti að ekki var vikist und- an að sinna öðrum störfum jafn- framt prestsþjónustunni. Ég sinnti stundakennslu í grunnskólunum í Áhugamál Friðriks hafa verið af ýmsum toga, ekki síst veiðiskapur. „Á fullorðinsaldri eignaðist ég harmoniku en sjórinn hefur jafnan togað. Ég átti um tíma lítinn segl- bát með öðrum og var í nokkur ár virkur í sjóstangaveiði. Síðasta uppátækið var að festa kaup á SOT-kajak til að sækja soðningu, en golfíþróttin þarf líka sinn tíma. Ég þykist enn vera þokkalega ferskur og framsækinn, en jafn- framt starfslokum mínum í prests- skap hóf ég nám á ný í HÍ, en árangurinn af því er að ég er nýútskrifaður þaðan með BA-próf í listfræði með guðfræði sem auka- grein.“ Fjölskylda Eiginkona Friðriks er Anna Nilsdóttir, f. 7.3. 1949 á Siglufirði, fyrrverandi aðalbókari Snæfells- bæjar og síðar Garðabæjar. Þau hafa búið í Hlíðarbyggð í Garðabæ frá árinu 2000. Foreldrar hennar voru hjónin Nils Ísaksson, f. 3.3. 1893, d. 16.2. 1991, fyrrverandi Friðrik J. Hjartar, prestur og listfræðingur – 70 ára Í Þýskalandi 2019 F.v.: Jón Fjölnir, Rodica, Sölvi, Steinunn Ragna, Friðrik, Anna, Kristrún, Arvind og Mridula. Enn þá ferskur og kláraði BA-nám Afmælisbarnið Sól í San Francisco. Á góðri stund Sjóstangaveiðimót. Til hamingju með daginn Grindavík Anna Hugrún Eggerts- dóttir fæddist 21. september 2020 kl. 17.38 í Reykjavík. Hún vó 3.530 g og var 48,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Eggert Daði Pálsson og Theodóra Káradóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.