Morgunblaðið - 08.10.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.10.2021, Qupperneq 26
EM KVENNA Kristján Jónsson kris@mbl.is Kvennalandsliðið í handknattleik átti erfiðan dag í Eskilstuna í Svíþjóð í gær. Ísland tapaði þá fyrir Svíþjóð 30:17 í undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik eftir að hafa verið 14:5 undir að loknum fyrri hálf- leik. Íslenska landsliðið er í uppbygg- ingarferli þar sem stefnt er að því að berjast um sæti á stórmótum eftir nokkur ár eins og fram hefur komið hjá landsliðsþjálfaranum Arnari Pét- urssyni. Eftir nokkur slæm töp á síð- ustu árum er íslenska liðið brothætt. Auk þess vantar ansi marga leik- menn sem hafa verið í stórum hlut- verkum. Steinunn Björnsdóttir hefur verið lykilleikmaður í vörninni og Karen Knútsdóttir í sókninni. Þær eru ekki með, né heldur Birna Berg Haraldsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Andrea Jacobsen, Þór- ey Rósa Stefánsdóttir og Sigríður Hauksdóttir. Þá meiddist markvörð- urinn Hafdís Renötudóttir á æfingu. Á sama tíma og íslenska liðið hefur verið í lægð hafa Svíar búið til sterkt lið. Þessi lið eru því á mjög ólíkum stað og það sást vel í gær. Svíar léku til að mynda um verðlaun fyrir tveim- ur mánuðum síðan á Ólympíu- leikunum í Tókýó. Öflug vörn og einföld mörk Helsta ástæðan fyrir þessum mikla mun á liðunum í fyrri hálfleik var öfl- ug vörn Svía. Það heppnaðist mjög vel hjá Svíum að koma fram á völlinn og trufla sóknir íslenska liðsins. Fyrir vikið tapaði íslenska liðið oft bolt- anum og náði sjaldan að koma sér í verulega góð marktækifæri í fyrri hálfleik. Á hinn bóginn skoruðu Svíar mörg einföld mörk úr hraðaupphlaupum og hröðum sóknum. Þetta eru þekkt stef úr handboltanum. Jamina Roberts átti frábæran leik. Hún var marka- hæst með 6 mörk hjá Svíum en var auk þess mjög öflug í vörninni og komst inn í margar sendingar. Sænsku markverðirnir vörðu samtals fjórtán skot. Íslenska liðið þurfti að hafa mikið fyrir hverju marki en öllu betur gekk að búa til marktækifæri í siðari hálf- leik. Þá fóru leikmenn af meiri krafti í ógnanir. Thea Imani og Ragnheiður létu vaða á markið fyrir utan sem skapar öðruvísi ógnun en frá leik- mönnum eins og Rut, Lovísu, Söndru og Karen þegar hennar nýtur við. Gegn bestu liðum Evrópu léttir mikið á sókninni þegar Thea og Ragnheiður ná að skora mörk með langskotum. Rut Jónsdóttir lék sinn 100. A- landsleik í gær og sýndi góð tilþrif á milli í vörn og sókn. Mörk Íslands: Thea Imani Sturlu- dóttir 4, Rut Arnfjörð Jónsdóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir 3, Tinna Sól Björgvinsdóttir 2, Lovísa Thomp- son 2, Ragnheiður Júlíusdóttir 1, Sandra Erlingsdóttir 1, Unnur Óm- arsdóttir 1. Varin skot: Elín Jóna Þorsteins- dóttir 6 og Saga Sif Gísladóttir 2. Svíar voru mun betri - Sóknin gekk betur í síðari hálfleik Morgunblaðið/Eggert Tímamótaleikur Rut Jónsdóttir skoraði 3 mörk í sínum 100. A-landsleik. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 Þjóðadeild UEFA Undanúrslit í Tórínó: Belgía – Frakkland ................................. 2:3 Yannick Carrasco 37., Romelu Lukaku 40. – Karim Benzema 62., Kylian Mbappé 69. (v), Theo Hernández 90. _ Frakkland mætir Spáni í úrslitaleik á sunnudaginn. Bandaríkin Portland Thorns – Houston Dash.......... 2:3 - Andrea Rán Hauksdóttir var á vara- mannabekk Houston allan tímann. EM U21 árs karla D-riðill: Portúgal – Liechtenstein ....................... 11:0 Staðan: Kýpur 3 2 1 0 12:0 7 Portúgal 2 2 0 0 12:0 6 Grikkland 3 1 2 0 6:1 5 Ísland 2 1 1 0 3:2 4 Hvíta-Rússland 2 0 0 2 1:3 0 Liechtenstein 4 0 0 4 0:28 0 _ Ísland mætir Portúgal á Víkingsvelli næsta þriðjudag. >;(//24)3;( Olísdeild karla HK – FH ............................................... 25:29 Staðan: Haukar 3 2 1 0 86:75 5 ÍBV 2 2 0 0 56:52 4 KA 2 2 0 0 51:43 4 FH 4 2 0 2 102:100 4 Fram 2 1 0 1 56:52 2 Stjarnan 1 1 0 0 36:35 2 Valur 1 1 0 0 22:21 2 Selfoss 3 1 0 2 72:83 2 Afturelding 2 0 1 1 61:62 1 Grótta 2 0 0 2 43:47 0 HK 2 0 0 2 50:57 0 Víkingur 2 0 0 2 45:53 0 Undankeppni EM kvenna 2. riðill: Danmörk – Austurríki ......................... 27:22 3. riðill: Þýskaland – Grikkland ........................ 36:10 4. riðill: Króatía – Úkraína ................................ 22:23 6. riðill: Svíþjóð – Ísland .................................... 30:17 Staðan: Svíþjóð 1 1 0 0 30:17 2 Serbía 1 1 0 0 36:27 2 Tyrkland 1 0 0 1 27:36 0 Ísland 1 0 0 1 17:30 0 _ Á sunnudag leikur Ísland við Serbíu á Ásvöllum og Tyrkland fær þá Svíþjóð í heimsókn. EHF-bikar kvenna Noregur – Slóvenía ............................. 29:17 - Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. Norður-Makedónía – Svartfjallaland. 21:29 Heimsbikar karla Leikið í Sádi-Arabíu: Undanúrslit: Magdeburg – Aalborg......................... 32:30 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson ekkert. - Aron Pálmarsson skoraði ekki fyrir Aal- borg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Barcelona – Pinheiras.......................... 39:24 _ Magdeburg og Barcelona mætast í úr- slitaleik á morgun en Aalborg og Pinheiras frá Brasilíu leika um bronsverðlaunin. Þýskaland Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Gummersbach – Ferndorf.................. 30:22 - Hákon Daði Styrmisson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach en Elliði Snær Vignisson ekkert. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. Sviss Kadetten – Kriens ............................... 28.15 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. E(;R&:=/D KNATTSPYRNA Undankeppni HM karla: Laugardalsvöllur: Ísland – Armenía .. 18.45 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: HS Orkuhöll: Grindavík – Þór Ak....... 18.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – Valur....... 20.15 1. deild karla: Hveragerði: Hamar – Skallagrímur ... 19.15 MVA-höllin: Höttur – Álftanes ........... 19.15 Akranes: ÍA – Selfoss........................... 19.15 Ice Lagoon-höll: Sindri – Hrunamenn 19.15 Dalhús: Fjölnir – Haukar .................... 19.15 1. deild kvenna: Kenn.hásk.: Ármann – Aþena/UMFK 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Ísafjörður: Hörður – Selfoss U ........... 19.30 Ásvellir: Haukar U – Vængir J. ...........19.30 Víkin: Berserkir – Afturelding U............. 20 Í KVÖLD! Frakkar leika til úrslita gegn Spán- verjum í Þjóðadeild karla í fótbolta á sunnudagskvöldið eftir sigur á Belgum, 3:2, í mögnuðum undan- úrslitaleik í Tórínó á Ítalíu í gær- kvöld. Kevin De Bruyne lagði upp mörk fyrir Yannick Carrasco og Romelu Lukaku í fyrri hálfleik en Frakkar jöfnuðu í þeim síðari þeg- ar Kylian Mbappé lagði upp mark fyrir Karim Benzema og skoraði svo sjálfur úr vítaspyrnu. Theo Hernández skoraði sigurmark Frakka á fyrstu mínútu uppbót- artímans. Frakkar sneru blaðinu við AFP Sigurmark Theo Hernández fagnar eftir að hafa skorað í lokin, 3.2. Enska félagið Newcastle United er skyndilega orðið eitt af ríkustu knattspyrnufélögum heims eftir að enska úrvalsdeildin samþykkti kaup sádiarabísks krónprins á því. Það var samþykkt eftir að staðfest- ing fékkst á því að félagið yrði ekki rekið af ríkissjóði Sádi-Arabíu. Þar með er fjórtán ára eignarhaldi Mike Ashley á Newcastle lokið en breski fjárfestirinn Amanda Stave- ley fer fyrir eignarhaldsfélaginu. Talið er að knattspyrnustjórinn Steve Bruce verði rekinn og fjöldi leikmanna keyptur í janúar. Algjör umskipti hjá Newcastle AFP Newcastle Þessum stuðningsmanni varð að ósk sinni í gær. FH-ingar lögðu nýliða HK að velli, 29:25, þegar liðin mættust í úrvals- deild karla í handknattleik, Olís- deildinni, í Kórnum í Kópavogi í gærkvöld. FH-ingar eru þá komnir með fjögur stig eftir fjóra leiki í deild- inni en þetta var aðeins annar leik- ur HK sem er án stiga. HK fór vel af stað og komst í 5:2 en FH-ingar svöruðu því með sex mörkum í röð. Í kjölfarið náðu Hafnfirðingar mest sex marka for- ystu í fyrri hálfleiknum, 13:7, en þeir voru yfir í hálfleik, 17:12. HK byrjaði seinni hálfleikinn vel og minnkaði muninn í 18:16. FH- ingar svöruðu því hins vegar með því að komast í 24:18 og voru með örugg tök á leiknum eftir það. Ásbjörn Friðriksson skoraði 11 mörk fyrir FH í leiknum og Birgir Már Birgisson 7. Hjá HK var Elías Björgvin Sigurðsson með 6 mörk, Sigurður Jefferson og Hjörtur Ingi Halldórsson 5 hvor og þá varði Sig- urjón Guðmundsson 15 skot í marki HK. Morgunblaðið/Unnur Karen Kórinn HK-ingurinn Hjörtur Ingi Halldórsson reynir að stöðva FH-inginn Egil Magnússon í viðureign liðanna í Kópavogi í gærkvöld. FH sigraði í Kórnum Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí tapaði 5:0 fyrir Bretum í fyrsta leik sínum í forkeppni Vetrarólymp- íuleikanna sem fram fór í Mot- orpoint-höllinni í Nottingham í gærkvöld. Katherine Gale og Bethany Hill skoruðu fyrir Breta í fyrsta leik- hluta og Aimee Headland bætti því þriðja við seint í öðrum hluta. Saff- ron Allen og Casey Traill innsigl- uðu sigurinn með mörkum í þriðja og síðasta leikhluta. Íslenska liðið mætir Suður-Kóreu á morgun og Slóveníu á sunnudag en sigurlið riðilsins kemst í fram- haldsriðil þar sem eitt sæti á leik- unum verður í boði. Fimm marka ósigur í fyrsta leik í Nottingham Ljósmynd/ÍHÍ Nottingham Íslensku landsliðskonurnar fyrir leikinn í gærkvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.