Morgunblaðið - 08.10.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 08.10.2021, Síða 27
ARMENÍA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óhætt er að segja algjör hlutverka- skipti hafi orðið hjá karlalandsliðum Íslands og Armeníu í fótbolta eftir að yfirstandandi undankeppni heimsmeistaramótsins í Katar fór af stað. Íslenska liðið hefur farið með him- inskautum á undanförnum árum, tvisvar komist á stórmót og tvisvar verið naumlega slegið út í umspili. Armenar hafa hinsvegar skrapað botninn í undankeppnum stórmót- anna um árabil og unnu m.a. engan leik í undankeppni EM 2016 og tvo leiki af tíu í undankeppni HM 2018. Þeir hafa oftast vermt annað tveggja neðstu sætanna í sínum riðli. En nú er öldin önnur í Jerevan og Reykjavík. Armenar gerðu heldur betur vart við sig með því að sigra Ísland 2:0 í annarri umferð undan- riðilsins í Jerevan í marsmánuði. Þeir lögðu líka Rúmena að velli þremur dögum síðar og eru komnir með 11 stig í öðru sæti riðilsins, stigi á undan Rúmenum. Hjá Armenum er því virkilega raunhæft markmið að ná öðru sæti riðilsins og komast í umspilið fyrir HM. Þeir komu reyndar aðeins nið- ur á jörðina í september þegar þeir töpuðu 6:0 fyrir Þjóðverjum og misstu efsta sæti riðilsins í hendur þeirra, og urðu svo að sætta sig við jafntefli gegn Liechtenstein á heimavelli, 1:1. Á meðan er Ísland aðeins með fjögur stig eftir sex leiki, eftir sigur í Liechtenstein í mars og jafntefli við Norður-Makedóníu á Laugardals- velli í september, 2:2. Möguleikarnir á öðru sætinu eru sáralitlir, enda þótt það væri kannski hægt að láta sig dreyma ef leikurinn í kvöld vinnst, og líka leikurinn við Liecht- enstein á mánudagskvöldið. Þá væri hugsanlega mögulegt að ná öðru sætinu með því að vinna líka útileikina við Rúmeníu og Norður- Makedóníu í nóvember. En það verður skoðað betur eftir leikinn á mánudagskvöld, ef sex stig koma í hús næstu fjóra dagana. _ Armenar tefla nú fram sínum besta leikmanni, fyrirliðanum Hen- rikh Mkhitaryan, leikmanni Roma og fyrrverandi leikmanni Arsenal og Manchester United. Hann var ekki með í leiknum í Jerevan í mars. _ Tigran Barseghyan, leikmaður Astana í Kasakstan, og Khoren Bayramyan, leikmaður Rostov í Rússlandi, skoruðu mörkin í sigri Armena í fyrri leik þjóðanna í Jerev- an. _ Þrettán í hópi Armena leika með félagsliðum í heimalandinu en hinir í Rússlandi, Þýskalandi, Dan- mörku, Spáni, Kasakstan og Banda- ríkjunum. _ Birkir Bjarnason leikur sinn 102. landsleik í kvöld og hefur tekið við stöðu fyrirliða Íslands. Jóhann Berg Guðmundsson og Kári Árna- son voru fyrirliðar í septemberleikj- unum en þeir eru ekki með í kvöld. Hlutverkin hafa snúist við - Armenar í öðru sæti undanriðils HM en Ísland næstneðst fyrir leikinn í kvöld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Upphitun Hluti landsliðsmannanna með fyrirliðann Birki Bjarnason fremst- an í flokki á æfingu á Laugardalsvellinum í gær. Leikið er kl. 18.45 í kvöld. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 2021 _ Eyjamaðurinn Ian Jeffs hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Þróttar í Reykjavík í knattspyrnu til næstu þriggja ára. Jeffs stýrði síðast kvennaliði ÍBV sem hann hefur verið með samtals í fimm tímabil. Þá hefur hann stýrt karlaliði ÍBV um skeið og var um tíma aðstoðarþjálfari kvenna- landsliðsins. Þróttarar féllu niður í 2. deild í haust og verkefni Jeffs er að rétta liðið við á nýjan leik. Hann tekur við af Guðlaugi Baldurssyni sem sagði starfinu lausu á dögunum. _ Fylkismenn eru byrjaðir að safna liði fyrir 1. deildina næsta sumar en þeir féllu úr úrvalsdeild karla í knatt- spyrnu í haust. Tveir af reyndustu leikmönnum félagsins hafa ákveðið að snúa aftur í Árbæinn. Albert Brynjar Ingason, markahæsti og næstleikjahæsti leikmaður Fylkis í efstu deild, kemur frá Kórdrengjum og Ásgeir Börkur Ásgeirsson kemur aftur frá HK þar sem hann hefur leik- ið undanfarin þrjú ár. _ Landsliðskonurnar Berglind Björg Þorvaldsdóttir hjá Hammarby og Hallbera Guðný Gísladóttir hjá AIK mætast á sunnudag þegar félög þeirra munu slá áhorfendametið í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kvenna. Þegar hafa verið seldir yfir 15 þúsund miðar á leik grannliðanna í Stokkhólmi en áhorfendametið í deildinni er 9.413 ára gamalt og hefur staðið í þrettán ár. _ Afturelding hefur enn ekki tapað hrinu í úrvalsdeild kvenna í blaki á þessu keppnistímabili eftir öruggan heimasigur gegn Álftanesi að Varmá í fyrrakvöld, 3:0. Afturelding vann hrin- urnar 25:15, 25:19 og 25:12. Stiga- hæst í liði Aftureldingar var Thelma Dögg Grétarsdóttir með 16 stig og María Rún Karlsdóttir var með 14 stig. Stigahæst i liði Álftaness var Michelle Traini með 9 stig og Auður Líf Benediktsdóttir var með 7 stig. _ Pétur Pétursson hefur framlengt samning sinn við Val um þjálfun meistaraflokks kvenna sem varð Ís- landsmeistari í knattspyrnu undir hans stjórn í ár. Það var annar titillinn undir stjórn Péturs en liðið vann einn- ig árið 2019. Hann tók við því fyrir tímabilið 2018 og hefur nú samið til loka tímabilsins 2023. Nýr að- stoðarþjálfari verður við hlið hans en það er Matthías Guð- munds- son, sem lék með karlaliði Vals um árabil. Eitt ogannað Fjórir nýir leikmenn koma inn í A- landsliðshóp kvenna í knattspyrnu fyrir leikina gegn Tékklandi og Kýpur í undankeppni heimsmeist- aramótsins sem fram fara á Laug- ardalsvellinum 22. og 27. október. Berglind Rós Ágústsdóttir, Elín Metta Jensen, Hafrún Rakel Hall- dórsdóttir og Telma Ívarsdóttir koma inn en fimm leikmenn detta út. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er úr leik vegna höfuðmeiðsla en nánar má sjá um þetta og hópinn í heild sinni á sérvefnum Íslenski boltinn á íþróttavef mbl.is. Fjórar koma inn í landsliðshópinn Morgunblaðið/Eggert Tilbúin Elín Metta Jensen verður með á ný í októberleikjunum. Ómar Ingi Magnússon var sínum gömlu félögum í danska liðinu Aal- borg erfiður í gær þegar Magde- burg vann leik liðanna, 32:30, í und- anúrslitum heimsbikar félagsliða í handknattleik í Sádi-Arabíu. Ómar skoraði sjö mörk í leiknum og var næstmarkahæstur í þýska liðinu en danski landsliðsmaðurinn Michael Damgaard skoraði ellefu mörk gegn löndum sínum. Aron Pálm- arsson kom inn í hóp Aalborg í fyrsta sinn um nokkurt skeið en skoraði ekki. Magdeburg mætir Barcelona í úrslitaleik á morgun. Úrslitaleikurinn gegn Barcelona AFP Sjö Ómar Ingi Magnússon var sín- um gömlu félögum erfiður í gær. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Nýliðar Vestra komu skemmtilega á óvart í fyrstu umferð úrvals- deildar karla í körfuknattleik í gærkvöld þegar þeir töpuðu naum- lega fyrir Keflavík í tvíframlengd- um leik á Ísafirði, 99:101. Keflvíkingar skoruðu síðustu fjögur stigin eftir að Vestramenn voru yfir nær allan framlengda tímann. Jaka Brodnik og David Okeke skoruðu 23 stig hvor fyrir Keflavík en Ken-Jah Bosley skoraði 33 stig fyrir Vestra og Nemanja Knezevic 22. _ Nýkrýndir bikarmeistarar Njarðvíkur unnu merkilega auð- veldan sigur á Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn, 107:82, eftir að hafa náð yfirburðaforystu strax í fyrri hálfleik. Bæði lið eru reyndar gjörbreytt frá síðasta tímabili og ljóst er að Njarðvíkingar eru líklegir til að standa undir væntingum sem meistaraefni, nokkrum mánuðum eftir að þeir héldu sér í deildinni með minnsta mun. Dedrick Basile, sem kom til Njarðvíkur frá Þór á Akureyri, skoraði 26 stig, Mario Matasovic gerði 23 og Argentínumaðurinn Nicolás Richotti sem áður var fyr- irliði stórliðs Tenerife, skoraði 20 stig. Danski framherjinn Daniel Mor- tensen skoraði 24 stig fyrir Þór og Glynn Watson 19. _ KR vann Breiðablik með sann- kölluðum NBA-tölum á Meist- aravöllum, 128:117, eftir framleng- ingu en í henni skoruðu nýliðarnir úr Kópavogi aðeins tvö stig. Shawn Glover skoraði 40 stig fyrir KR og Brynjar Þór Björnsson 29 en Hilmar Pétursson skoraði 30 stig fyrir Blika og Everage Rich- ardson 27. _ Þriðja framlenging kvöldsins kom síðan í Garðabæ þar sem Stjarnan lagði ÍR loks 113:102 eftir að framlengingin endaði 14:3. ÍR missti niður forskot á lokamín- útunum í venjulegum leiktíma. Shawn Hopkins skoraði 29 stig fyirr Stjörnuna Robert Turner 26 og Hlynur Bæringsson 15 en Shak- ir Smith skoraði 30 stig fyrir ÍR og Tomas Zdanavicius 19. Morgunblaðið/Unnur Karen Meistaravellir Blikinn Everage Richardson reynir að komast fram hjá KR- ingnum Dani Koljanin í framlengdum slag liðanna í Vesturbænum. Sluppu fyrir horn á Ísafirði - Þrír leikir af fjórum framlengdir Subway-deild karla Njarðvík – Þór Þ................................. 107:82 Vestri – Keflavík ........................ (frl.) 99:101 KR – Breiðablik ....................... (frl.) 128:117 Stjarnan – ÍR ........................... (frl.) 113:102 1. deild kvenna Þór Ak. – Snæfell.................................. 79:67 Staða efstu liða: Þór Ak. 2 2 0 157:135 4 Aþena/UMFK 1 1 0 79:49 2 ÍR 1 1 0 73:57 2 Tindastóll 1 1 0 89:76 2 Snæfell 2 1 1 141:152 2 57+36!)49,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.