Morgunblaðið - 12.10.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.10.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 Margvíslegur misskilningur veður uppi í opinberri um- ræðu vegna talningar í Norðvest- urkjördæmi. Eða, ef til vill er hæpið að tala um misskilning, líklegra er að ýmsir tali þvert gegn betri vitund enda eiga sumir mikilla hagsmuna að gæta og virðast láta þá stýra gjörð- um sínum. Þeir sem átta sig á að svokölluð upp- kosning í einu kjör- dæmi væri afar hæpin hafa þess í stað talað fyrir því að vegna „vafa“ um talningu í Norðvesturkjördæmi verði að kjósa á ný á landinu öllu! - - - Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild HÍ, sló á þessar hugmyndir í samtali við undirbún- ingskjörbréfanefnd þingsins í gær. Hann benti aðspurður á að lögin væru alveg skýr, þetta væri ekki heimilt. - - - Hann var einnig spurður út í þá meintu ágalla sem verið hefðu á framkvæmdinni í Norðvestur- kjördæmi og sagði þá að hann teldi að skortur á innsiglum á kjör- gögnum dygði tæplega til þess að ógilda kosningu. - - - Þetta blasir við og ágætt að búið er að útskýra það fyrir und- irbúningsnefndinni. Um leið er ágætt að hafa í huga að ekkert hef- ur komið fram um að nokkuð hafi verið átt við kjörgögnin eða að nokkrar líkur séu á að svo hafi ver- ið. - - - Það er þess vegna langt gengið að tala um vafa og segja má að það helsta sem er vafasamt í málinu sé málflutningur þeirra sem vilja slá pólitískar keilur eða þjóna eigin hagsmunum með því að ala á órök- studdum efasemdum. Hafsteinn Þór Hauksson Vafasamur vafi STAKSTEINAR Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Friðrik krónprins Danmerkur kemur til Íslands í dag ásamt Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Dan- merkur, og sendinefnd tíu þarlendra fyrirtækja og samtaka. Markmið ferðarinnar er að styrkja sam- starf og viðskiptatengsl Íslands og Danmerkur á sviði sjálfbærra orkulausna. Heimsókn krónprinsins hefst með með kvöld- verði honum til heiðurs á Bessastöðum í kvöld. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytur ávarp við setningu fundar dansk-íslenskrar sendinefndar sem fer fram í Grósku hug- myndahúsi í fyrramálið. Krón- prinsinn og fylgdarlið hans heimsækja einnig Hellisheiðar- virkjun og danska varðskipið HDMS Triton sem liggur við höfn í Reykjavík auk þess að funda í atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytinu. Kveðjuathöfn verður svo í danska sendiráðinu síðdegis á morgun. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Friðrik kemur hingað til lands. Hann og Mary eig- inkona hans komu í opinbera heimsókn árið 2008. Friðrik heldur af landi brott á fimmtudags- morgun. Eftir verður utanríkisráðherrann Jeppe Kofod sem mun ásamt fulltrúum úr dönsku sendi- nefndinni sitja Arctic Circle-ráðstefnuna í Hörpu. Samkvæmt upplýsingum frá Ólafi Ragnari Gríms- syni, stjórnarformanni Arctic Circle, mun Kofod flytja ræðu á opnunarþinginu og verður norður- slóðastefna danska konungsríkisins til umfjöllunar á ráðstefnunni. Friðrik krónprins til Íslands í dag - Styrkir samstarf á sviði sjálfbærra orkulausna - Ráðherra sækir Arctic Circle Friðrik krónprins Danmerkur. „Það var kominn mikill fúi í burð- arvirki brúarinnar og talið nauð- synlegt að endurbyggja hana frá grunni,“ segir Þorkell Heiðarsson, verkefnisstjóri hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Síðustu vikur hefur verið unnið að framkvæmdum við brúna Bifröst sem tengir saman Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Skipt verður um brúargólf auk annars viðhalds og endurbóta. Samkvæmt áætlun á endurbótum að ljúka 22. nóvember. Framkvæmdin er á vegum um- hverfis- og skipulagssviðs Reykja- víkurborgar og er áætlaður kostn- aður um 11 milljónir króna. Ekki er hægt að komast á milli garðanna á hefðbundinn hátt um þessar mundir vegna fram- kvæmdanna. Nú er því gengið inn í Fjölskyldugarðinn um hlið sem er milli sjoppu og salerna. hdm@mbl.is Brúarframkvæmdir standa yfir í Laugardal Morgunblaðið/KHJ Bifröst Brúin og burðarbitar hennar hafa verið tekin niður. Fundur! Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, er gestur á opnum hádegisfundi eldri sjálfstæðismanna á morgun, miðvikudaginn 13. október, kl. 12:00 í Valhöll. Allir velkomnir! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.