Morgunblaðið - 12.10.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021
Styrkir úr Verðlauna- og styrktar-
sjóði Rótarýumdæmisins á Íslandi
voru veittir á umdæmisþingi á Hall-
ormsstað um síðustu helgi. Að þessu
sinni voru veittir tveir styrkir að
upphæð hálf milljón króna hvor og
komu þeir í hlut Nemendaþjónustu
Menntaskólans á Egilsstöðum og
Tónleikafélags Austurlands.
Sú hefð hefur skapast að verk-
efnið/-in komi af svæði viðkomandi
umdæmisstjóra og fer úthlutun fram
á umdæmisþingi ár hvert, en um-
dæmisstjóri er nú Ásdís Helga
Bjarnadóttir, Rótarýklúbbi Hér-
aðsbúa. Að þessu sinni voru tilnefnd
ellefu verkefni af svæðinu og var út-
hlutunarnefndinni því vandi á hönd-
um að gera upp á milli verkefna sem
tilnefnd voru.
Í frétt frá Rótarý segir að starf
nemendaþjónustu Menntaskólans á
Egilsstöðum hafi vakið athygli hjá
lesblindum. Þar hafi verið veitt ráð-
gjöf með áherslu á nýtingu upplýs-
inga- og samskiptatækni fyrir les-
blinda. Það hafi meðal annars skilað
sér í námskeiðum fyrir nema við
Menntaskólann á Egilsstöðum sem
eiga erfitt með lestur, nokkuð sem
kallað hefur verið „lesblindusmiðja“.
„Þetta starf Nemendaþjónustu
Menntaskólans á Egilsstöðum er
mikilvægt samfélagsverkefni á sviði
mennta fyrir ungt fólk, verkefnið er
nýstárlegt og framúrskarandi fram-
tak sem getur verið öðrum mennta-
stofnunum fyrirmynd og hvatning.
Verkefnið getur einnig orðið mikil-
vægt framlag í þágu þeirra fjöl-
mörgu einstaklinga sem glíma við
lesblindu í íslensku samfélagi,“ segir
í frétt Rótarý.
Tónleikafélag Austurlands var
sett saman árið 2016 með það að
markmiði að styrkja geðheilbrigð-
ismál ungmenna í fjórðungnum
ásamt því að gefa yngra tónlistar-
fólki tækifæri á því að koma fram á
tónleikum og láta þannig gott af sér
leiða en allur ágóði af tónleikum hef-
ur runnið til geðsviðs HSA. „Verk-
efnið er mikilvægt fyrir samfélagið
og styrkir stöðu ungs fólks sem
glímir við þunglyndi og kvíða. Verk-
efnið er nýstárlegt í forvörnum á
þessu sviði og til fyrirmyndar fyrir
önnur sveitarfélög sem vinna að for-
vörnum á sviði gerðheilbrigðismála,“
segir í fréttinni. aij@mbl.is
Ljósmynd/MÖA
Verðlaunaafhending Ásdís Helga Bjarnadóttir, umdæmisstjóri Rótarý,
Bjarni Þór Haraldsson, Tónleikafélagi Austurlands, og Nanna Halldóra
Imsland, Nemendaþjónustu Menntaskólans á Egilsstöðum.
Styrkir í þágu aust-
firskra ungmenna
- Rótarý styrkir verkefni á Austurlandi
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Jólin koma snemma í ár fyrir bjór-
áhugafólk því J-dagurinn svokallaði
verður viku fyrr á ferðinni en alla
jafna. J-dagurinn hefur verið hald-
inn hátíðlegur í Danmörku fyrsta
föstudag í nóvember síðan 1981 og
hin síðustu ár einnig hér á landi. Á J-
deginum hefst sala á jólabjórnum
frá Tuborg á börum og veitinga-
stöðum klukkan 20:59 og er oft mik-
ið um dýrðir það kvöld.
Í ár verður J-dagurinn haldinn
hátíðlegur föstudaginn 29. október
og mun það vera vegna þess að
ÁTVR hefur flýtt sölu á jólabjór um
viku, rétt eins og í fyrra. Salan í Vín-
búðunum hefst fimmtudaginn 4.
nóvember. Þetta þýðir það að Ís-
lendingar fá danskan jólabjór viku
fyrr en Danir sjálfir í ár.
Eins og kunnugt er var J-
deginum aflýst í fyrra vegna kórónu-
veirufaraldursins. Margir munu því
eflaust líta svo á að tvöföld ástæða sé
til að gleðjast. Og ef það dugar ekki
til má horfa til 40 ára afmælis J-
dagsins í Danmörku í ár.
Ljósmynd/Mummi Lú
Hátíð Snjórinn fellur á veitingahúsum klukkan 20:59 hinn 29. október.
Jólabjór í október
- J-deginum flýtt - Jólabjór á börum
29. október - Viku á undan Danmörku
Kraftur hefur verið í byggingu
slökkvistöðvar í Flatey. Fyrsta
skóflustunga var tekin 22. apríl í
vor og nú innan við sex mánuðum
síðar er húsið risið. Það er að
mestu tilbúið fyrir utan frágang
innandyra sem bíður nýs árs. Um
helgina var slökkvibúnaðurinn sett-
ur þar inn og er þar með kominn í
skjól í upphituðu húsi.
„Þetta gerist með samstilltu
átaki Flateyinga ásamt ómetanlegri
aðstoð fjölmargra velunnara Flat-
eyjar,“ segir Heimir Sigurðsson,
sem ásamt fleirum hefur verið í for-
svari fyrir byggingu húss fyrir bún-
að slökkviliðsins. Flateyjarveitur,
sem eru í eigu húseigenda í Flatey,
reisa húsið og koma upp búnaði, en
sveitarfélagið leigir það til 15 ára.
Húsið er um 85 femetrar og er
kostnaður við bygginguna áætlaður
um 26 milljónir króna, þar af er um
helmingur sjálfboðavinna og sjálfs-
aflafé.
Stöðin er nánast á háeyjunni, á
milli annars vegar gamla þorpsins
og hins vegar Krákuvarar og
Læknishússins, en á síðarnefndu
stöðunum er heils árs búseta. Í
þorpinu er þyrping um 40 gamalla
timburhúsa.
Fastur liður í hauststörfunum í
Flatey er að flokka og ganga frá
dósum og flöskum sem til falla yfir
sumartímann. Í ár söfnuðust rúm-
lega 42 þúsund umbúðir, sem er um
30% aukning á milli ára, og mun
vera það mesta sem safnast hefur.
Dósa- og flöskusöfnunin skilar
um 750 þúsund krónum, sem renna
til kirkjunnar í Flatey. Umbúðirnar
standa meðal annars undir kostnaði
við rafmagn og upphitun í kirkj-
unni. aij@mbl.is
Stund milli stríða Vaskur hópur hefur komið að framkvæmdum og kaffisopinn var vel þeginn á vinnudegi í haust.
Ný slökkvistöð byggð í
Flatey á sex mánuðum
- Samstillt átak
Flateyinga
Búnaður Dráttarvél og haugsuga eru lykiltæki slökkviliðsins í Flatey.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Full búð af frábærum tilboðum
Hlakka til að sjá ykkur
20%
AFSLÁTTUR
í verslun
11 ára
afmæli
Túnikur á tilboði
2.990 kr.
Stærðir 38-50
Mörg mynstur í boði