Morgunblaðið - 12.10.2021, Page 13

Morgunblaðið - 12.10.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 Alexander Schallenberg tók í gær við emb- ætti kanslara í Austurríki, en forveri hans, Sebastian Kurz, sagði af sér í fyrradag vegna gruns um að hann hefði nýtt opinbert fé í ímyndarherferð sína í fjölmiðlum árin 2016 til 2018 auk þess sem hon- um er borið á brýn að hafa greitt fyrir skoðanakannanir með lag- færðum niðurstöðum honum í hag og síðast en ekki síst logið að þing- nefnd sem rannsakar spillingu í austurrísku stjórnkerfi. Skammt er síðan húsleit var gerð í höfuðstöðvum Lýðflokksins, Öst- erreichische Volkspartei, flokks Kurz, og var atkvæðagreiðsla um vantraust á hendur honum á dag- skrá þingsins í Vínarborg þegar hann tilkynnti afsögn sína auk þess að lýsa sig saklausan af öllum áburði. AUSTURRÍKI Nýr kanslari í kjölfar afsagnar Kurz Alexander Schallenberg Þrír flokkar á norska Stórþinginu, græningjaflokkurinn MDG, Rautt og Sósíalíski vinstriflokkurinn, munu í dag leggja fram þingsálykt- un um að allri olíuleit á norska landgrunninu verði hætt. „Mark- miðið er að Norðmenn hætti að leita að nýjum olíulindum. Það er algjörlega nauðsynlegt fyrir lofts- lagið og einnig besta lausnin fyrir viðskiptalíf landsins,“ segir nýkjör- inn þingmaður MDG, Lan Marie Nguyen Berg. Lars Haltbrekken úr röðum SV tekur undir orð Berg og segir Norðmenn þegar hafa fundið mun meiri olíu en hægt verði að nota, sé ætlunin að halda loftslagi jarð- arinnar réttum megin við hættu- mörk. Við getum ekki haldið áfram leit að olíu og gasi,“ segir hann. NOREGUR Vilja hætta olíu- og gasleit á landgrunni Ljósmynd/Wikipedia Olíupallar Ekofisk-olíuvinnslusvæðið úti fyrir Stavanger í Vestur-Noregi. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Thierry Breton, framkvæmdastjóri innri markaðsmála Evrópusam- bandsins, sagði í gær að hann tryði því ekki „í eina sekúndu“ að til „Pol- exit“, útgöngu Póllands úr samband- inu, kæmi í kjölfar umdeilds úrskurð- ar stjórnlagadómstóls landsins á fimmtudag í síðustu viku, sem kvað á um forgang laga ESB gagnvart pólskum landslögum, og varð kveikj- an að fjölmennum mótmælum um allt Pólland, sem hófust síðdegis á sunnu- dag, og komu um 100.000 mótmæl- endur saman í höfuðborginni Varsjá einni. Kjósendur vilja hvergi fara Forsætisráðherra Póllands, Mat- eusz Morawiecki, greip til varna fyrir dómstólinn og studdi úrskurðinn auk þess sem hann fullvissaði þjóð sína um að stjórn hans hefði engin áform um að draga Pólland út úr ESB, allt tal um slíkt væri skaðleg flökkusaga, sem stjórnarandstaðan nýtti til að bæta upp fyrir hörgul sinn á hug- myndum um ábyrga stöðu landsins í Evrópu. Nýjar skoðanakannanir sýna styrkan vilja pólskra kjósenda til að landið tilheyri Evrópusambandinu áfram og tók Stanislaw Gadecki, erki- biskup rómversk-kaþólsku kirkjunn- ar í Póllandi, sem er hliðholl stjórn- völdum, undir þetta í útvarpsviðtali við útvarp Vatíkansins í Róm í gær og sagði pólsku þjóðina andsnúna því að hverfa úr sambandinu. „Við viljum öll vera í Evrópu […] engin skynsöm manneskja vill fara út.“ Mótmælin héldu áfram víða í Pól- landi í gær, en lögregla hefur haft sig nokkuð í frammi við að halda friðinn síðan þau hófust, til dæmis var frændi Morawieckis forsætisráð- herra handtekinn og hélt hann því fram að lögregluþjónn hefði sparkað í höfuð hans þar sem hann lá á götunni í lögreglutökum. 94 ára í ræðustólnum Þá staðfesti Sylwester Marczak, talsmaður lögreglunnar í Varsjá, að Franek Broda, 18 ára gamall lands- þekktur aðgerðasinni og baráttumað- ur fyrir réttindum hinsegin fólks, hefði verið í haldi lögreglu tímabund- ið og handjárnaður. Meðal þeirra, sem tóku til máls við mótmælin og fluttu ræður, var Wanda Traczyk-Stawska, 94 ára gömul þjóðþekkt liðskona pólsku andspyrnuhreyfingarinnar gegn her- námi nasista árið 1944. „Þetta er okk- ar Evrópa og enginn getur tekið okk- ur úr henni,“ mælti Traczyk-Stawska í tölu sinni. „Þetta er okkar Evrópa“ - Trúir ekki „í eina sekúndu“ á útgöngu - Kannanir sýna vilja kjósenda til áfram- haldandi ESB-veru - Frændi ráðherra handtekinn og brigslar lögreglu um ofbeldi AFP Mótmæli Stuðningsfólk áframhaldandi veru Póllands í Evrópusambandinu. Konur af Mapuche-ættbálkinum í borginni Temuco í Síle búa sig nú undir það hannyrðastórvirki að vefa rúmlega eins kílómetra langan dúk og freista þess að setja þannig nýtt heimsmet, en núverandi met í lengd vefnaðar er samkvæmt heimsmetabók Guinness akkúrat einn kílómetri. Munu 500 vefarar spreyta sig á þessu metnaðarfulla verkefni, sem fram fer í febrúar, en við undirbúninginn nú kanna 120 konur hvort verkið sé vinnandi veg- ur. Takist konunum ætlunarverk sitt verður það ekki aðeins fyrsta heimsmet Mapuche-fólksins, heldur einnig fyrsta heimsmet nokkurs ættbálks á suðurhveli jarðar, svo til mikils er að vinna. Mapuche-fókið talar eigið tungu- mál og er borgin Temuco með sína 260.000 íbúa helsta aðsetur þess og menningarsetur, en í fyrndinni dreifðist ættbálkurinn einnig til Argentínu. Síle Hyggjast vefa einn kílómetra AFP Mælst hefur verið til þess við íbúa bæjanna El Paso og Los Llanos de Aridane á Kan- aríeyjunni La Palma að þeir haldi sig innan- dyra, loki glugg- um og slökkvi á loftræstikerfum til að forðast að anda að sér eitruðum gufum eftir að hraunstraumur frá eldgosinu í fjallinu Cumbre Vieja, sem staðið hefur án afláts síðan 19. september, umlukti sementsverk- smiðju í gær og kveikti í henni. Þá var greint frá því að glóandi hraunstraumurinn hefði eyðilagt 1.186 byggingar á eyjunni síðan gosið hófst, en í kjölfar þess að hluti topps fjallsins féll saman á laugardaginn streymdi ný hraunelfur niður hlíðar þess og eyðilagði banana- og lárperu- rækt auk þess litla sem eftir stóð af bænum Todoque. atlisteinn@mbl.is Eitrað and- rúmsloft Gosið hefur staðið frá 19. september. Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.