Morgunblaðið - 12.10.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 12.10.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 Ljúfi pabbi minn lést á afmælisdag- inn minn hinn 9. júlí. Mér þykir af- ar vænt um að hann skyldi velja daginn minn til að ferðast yfir. Mér finnst það táknrænt fyrir samband okkar en hann fóstraði mig er ég var lítil er hann og mamma kynnast. Hann var mér svo undurgóður pabbi alla tíð. Pabbi var kominn með heila- bilun en í gegnum hana skein alltaf ást hans til okkar. Alltaf hafði hann áhuga á því sem ég sagði honum af börnunum mín- um og okkur fjölskyldunni og sýndi mér þannig ást sína á okkur öllum. Pabbi var ekki alltaf að knúsa og kyssa, Ágúst Þórarinsson ✝ Ágúst Þór- arinsson fædd- ist 12. apríl 1952. Hann lést 9. júlí 2021. Útförin fór fram 3. ágúst 2021. mamma sá um þá deild, en hann var alltaf svo hlýr og mér fannst líka gaman að alast upp við hvað honum fannst mamma alltaf best. Pabbi var svo minnugur og snjall, vissi allt og gat. Hann saumaði á okkur systkinin föt, klippti hárið okkar og þannig gæti ég lengi áfram tal- ið. Og ég notaði hann eins og leitarvélina google. Gúglaði allt milli himins og jarðar hjá hon- um og oftast vissi hann svörin. Hann hjálpaði mér alltaf með allt heimanám, í barnaskóla, menntaskóla og háskóla. Alltaf svo þolinmóður og hvetjandi. Þetta jók sjálfstraust mitt því mér gekk alltaf svo vel verandi með leynivopn heima. Pabbi veikist mikið þegar hann var bara 37 ára, fær slag. Þá uppgötvast hjartagalli sem hann var með, lokuð ósæð, þökk sé góðum lækni. Pabbi náði sér hægt og bít- andi að mestu leyti en hefur líklega breyst hvað varðaði lífsviðhorf og annað, eins og gjarnan er, þegar fólk kemst nærri dauðanum. Því árið 1989 héldum við í 35 daga Evrópu- reisu fjölskyldan, vopnuð korti (á pappír) og áfram næstu ár var ferðast. Mamma sagði oft að hún hefði ekki sofið næt- urnar áður en við lögðum í hann, sannfærð um að hún væri að fara með okkur beint í opinn dauðann. Í reisunni heimsóttum við m.a. lönd eins og Tékkóslóvakíu (sem ég var ekki par hrifin af) og Ung- verjaland þar sem andi komm- únistans og niðurníðslu ríkti í öllu að mér fannst. Klósett- pappír sem hrinti frá sér vatni hlekkjaður við vegginn í ein- hverri blokk sem við gistum í í Prag. Svo sannarlega fyrir all- an túrisma. Og pabbi stjórnaði því að öll söfn voru þrædd til að mennta okkur sem mest. Það var oft mjög skondið að fylgjast með mömmu og pabba í framsætunum að reyna að rata hingað og þangað með risakort og redda gistingu nótt fyrir nótt. Oft sögðu þau: „Jæja, krakkar, við verðum líklega að gista í bílnum í nótt.“ Það fannst okkur Jó- hannesi bróður bara ævintýri, en svo bjargaðist þetta alltaf á elleftu stundu. Ég man að einu sinni kallaði mamma hátt og benti til vinstri: „Farðu til hægri, farðu til hægri!“ Hún er lesblind og man aldrei muninn, a.m.k. ekki ef hún á að muna hratt. Margt er hægt að læra af pabba og veikindum hans sem héldu áfram að banka upp á, eins og seiglu, æðruleysi og út- hald. Einnig gjafmildi og kúnstina að geta samglaðst öðrum innilega. Pabbi var líka fyndinn og hafði gaman af gríni og alla mína barnæsku hækkaði hann aldrei róminn. Það er með miklu þakklæti sem ég þakka fyrir tímann með pabba um leið og ég sam- gleðst honum að vera nú frjáls eins og fuglinn. Ebba Guðný Guðmundsdóttir. ✝ Sonja Jó- hanna Andr- ésdóttir (f. Jacob- sen) fæddist í Klaksvík í Fær- eyjum 3. október 1933. Hún lést 2. október 2021 á Hjúkrunar- heimilinu Uppsöl- um á Fáskrúðs- firði. Foreldrar Sonju voru Andreas Jacobsen skipstjóri, f. 12. febrúar 1900, d. 13. ágúst 1995, og Elsa Ja- cobsen húsfreyja, f. 26. mars 1902, d. 14. nóvember 1983. Börn Sonju og Óskars Sig- urðssonar eru: 1) Sigurður Jörgen, f. 22. janúar 1958. Eiginkona hans er Guðný Sigríður Ólafsdóttir og eiga þau þrjá syni. 2) Andrés Ing- ólfur, f. 28. júlí 1962, eig- inkona hans er Linda Ás- björnsdóttir og eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn. Fyr- ir átti Andrés tvær dætur með Herdísi Pétursdóttur og eiga þær sex börn. 3) Jónína Guðrún, f. 28. september 1963, maður hennar er Hall- dór Unnar Snjólaugsson og eiga þau þrjú börn. 4) Elvar, f. 25. nóvember 1966, eigin- kona hans er Borghildur Hlíf Stefánsdóttir og eiga þau einn son. Útför Sonju fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag, 12. október 2021, klukkan 14. Systkini Sonju eru: Ellý María Kristjánsson, f. 17. október 1924, d. 15. ágúst 2020, Maria Hvanna- stein, f. 19. des- ember 1925, Hans Pauli Jacobsen, f. 30. ágúst 1927, d. 8. febrúar 2019, Erland Jacobsen, f. 17. nóvember 1929, d. 16. október 2009, Jør- gen, f. 1931, d. 1936, Jørga Mouritzen, f. 11. apríl 1937, d. 20. janúar 2014, Jógvan Ja- cobsen, f. 26. september 1938. Sonja tengdamamma mín var mér svo miklu meira en bara tengdamamma. Mamma mín lést árið 1982 og þegar ég kom fyrst í Þingholt rúmum tveimur árum síðar og kynntist Sonju fann ég að þar átti ég hlýtt og gott athvarf og var velkomin þangað frá fyrstu stundu. Ró- legheitin, jákvæðnin, æðruleys- ið, blíðan og umhyggjan … þær áttu svo margt sameiginlegt sem ég tengdi strax við. Sonja og Óskar voru sem eitt, eins og vel smurð tannhjól sem unnu saman hnökralaust. Það eru forréttindi að hafa fengið að upplifa kærleikann og ástina sem þau auðsýndu hvort öðru í verki. Þegar aldurinn færðist yfir varð verkaskiptingin skýr- ari; Óskar hjálpaði Sonju í sokkana að morgni og strauk yfir gólfin, hún sá um bakst- urinn og þurrkaði af, öll mat- seld var gerð í samstarfi; annað græjaði sósuna meðan hitt flysjaði kartöflurnar. Fallegu blómin í garðinum við Þingholt eru vitnisburður um áhuga Sonju og natni við blómaræktunina og tók Óskar þátt í því með henni þegar hann hætti að vinna. Eitt vorið þegar krókusarnir fóru að skjóta upp kollinum utan við eldhúsglugg- ann mynduðu þeir orðið SONJA í grasinu – þá hafði Óskar raðað þeim þannig í jörðina um haust- ið og kom sinni ástkæru eig- inkonu þannig á óvart. Þetta fannst mér lýsa vel þeirri ást sem einkenndi samskipti þeirra. Ég mun sakna þess að vakna á sunnudagsmorgnum á loftinu í Þingholti með ilminn af lamba- læri í nösunum og færeyska messu í eyrunum. Tilhugsunin gefur mér hlýtt í hjartað. Stundum þegar við komum í Þingholt hljómuðu færeysk trúarlög úr kjallaranum, þá voru þau bæði framan við tölvu- skjáinn og horfðu á útsendingar frá Færeyjum. Tengdapabbi fylgdist oft með því sem við vor- um að brasa í gegnum facebook og prentaði síðan út bæði myndir og ýmsar fréttir handa Sonju. Strákarnir okkar minnast ömmu sinnar með kærleika og þakklæti. Færeyski hreimur- inn, fiskibollurnar og skerpu- kjötið, fallegu peysurnar sem hún prjónaði handa þeim þegar þeir voru litlir … brúna rúllu- tertan hennar sem kom með jól- in í okkar hús í fjöldamörg ár. Við fengum þetta fallega ljóð þegar mamma mín dó og finnst mér þetta eiga vel við núna: Þótt margir tárist moldum þínum yfir og mikið skarð oss dauðinn hafi gjört þá mildar harm að mynd í hugum lifir og minning sífellt hrein og sólskinsbjört. (SH) Þegar þú kvaddir okkur var það gert með sömu hógværð og æðruleysi og hafði einkennt þig alla tíð. Takk fyrir allt sem þú varst mér og mínum, elsku tengdamamma. Þín Guðný. Sonja Jóhanna Andrésdóttir Mig langar að minnast tengdaföð- ur míns, Símonar Símonarsonar, með nokkrum orðum. Ég kynntist Símoni fyrst um það leyti sem samband okkar Eddu, konu minnar hófst. Ég hafði vitað af honum áður, þar sem hann var skipstjóri á báti sem hann gerði út með fisk- vinnslufyrirtæki á Akranesi sem ég starfaði hjá sem verk- stjóri í sumarafleysingum. Símon var mikill fjölskyldu- maður og naut þess að vera með börnum sínum, barnabörn- um og barnabarnabörnum þeg- ar þau komu til. Margar minn- Símon Símonarson ✝ Símon Sím- onarson fædd- ist 17. febrúar 1928. Hann lést 4. september 2021. Útför Símonar fór fram 17. sept- ember 2021 í kyrr- þey. ingar koma upp í kollinn, m.a. þar sem hann er með eitthvert þeirra á arminum þar sem þau halla höfði sínu að öxl hans og hann gengur ró- lega um gólf. Þess fengu þau öll að njóta og leið vel. Fyrsta barna- barnið, var Símon Óttar, sonur okkar Eddu. Hann varð snemma mjög hændur að afa sínum enda dvaldi hann mikið hjá afa sínum og ömmu og heimili þeirra hans annað heimili. Seinna dvaldi hann hjá þeim fjóra vetur í góðu yfirlæti í framhaldsskólanámi sínu við Fjölbrautaskóla Akraness. Að fjölskyldunni undanskil- inni lá áhugi Símonar í sjávar- útvegi og því sem sneri að sjó- mennsku. Hann gerði út nokkra báta á sínum tíma og sinnti útgerðinni eins og best var á kosið, gerði vel við sína starfsmenn og var farsæll. Enda var það svo að honum reyndist það ekki létt að hætta störfum og selja frá sér ævi- starf sitt. En það gaf honum færi á að sinna betur fjölskyldu og þá höfðu þau hjónin tíma sem þau höfðu ekki haft áður, til að ferðast um landið með vinafólki sínum og nutu þau þess mjög. Þegar tengdamóðir mín veiktist af parkinsonsveiki fluttu þau hjónin frá Akranesi til Garðabæjar, til að geta ver- ið nær afkomendum sínum, sem öll bjuggu á höfuðborg- arsvæðinu. Eftir að tengda- móðir mín féll frá, og Símoni reyndist erfiðara að nota bíl sinn, tókum við upp þá venju að ég tók hann með til að versla til heimilisins. Notuðum við þá oft tímann til að fara í bíltúra í leiðinni, skoða ná- grennið, oft urðu hafnarsvæðin fyrir valinu eða Álftanes þar sem við fylgdumst með fuglalíf- inu. Þá var í leiðinni rabbað um það sem var á döfinni, eða hann sagði mér frá barnæsku sinni og lífinu á sjónum. Símon var með eindæmum glöggur og minnugur, þekkti mikið af eldri bátum sem við sáum í höfnum og sögu þeirra. Þá var alltaf hægt að ræða um veðrið, en hann gat iðulega sagt mér ein- hvern fróðleik um veðurfarið sem reynslan hafði kennt hon- um. Símon var einstakt ljúf- menni, þægilegur í umgengni og einstaklega barngóður, enda hændust barnabörnin og barna- barnabörnin að honum. Hann bjó einn í sinni íbúð til enda, vildi halda sínu sjálfstæði og vera innan um sitt, þótt það væri orðið honum erfitt undir það síðasta. Þótt síðustu vik- urnar þyrfti hann að dvelja á líknardeild, þá var hann alltaf á leiðinni heim, en var þó sáttur við sitt hlutskipti, enda einstak- lega vel hugsað um hann og honum léttar þjáningarnar sem sjúkdómurinn sem dró hann til dauða olli honum. Símonar er sárt saknað af fjölskyldunni, hans er minnst með mikilli hlýju og öllum þeim góðu minningum sem við eigum um hann. Hvíl í friði kæri vinur. Vésteinn Benediktsson ✝ Ásdís Ásgeirs- dóttir var fædd á Sólvangi í Hafn- arfirði 15. júní 1963. Hún lést 3. september 2021. Foreldrar Ásdís- ar voru Jóna Ólafs- dóttir, f. 6.11. 1936, d. 31.8. 2020, og Ás- geir Magnússon, f. 1. 10. 1933, d. 24.8. 2001. Foreldrar Jónu voru Friðrika Margrét Jónsdóttir, f. 26.7. 1918, d. 30.3. 1990 og Ólafur Tryggva- son, f. 28.3. 1912, d. 25.4. 1999. Alsystkin Jónu voru Erling Ólafsson, f. 24.12. 1944, d. 2.9. 2006, Erna Ólafsdóttir, f. 28.5. 1949 og Margrét Ólafsdóttir, f. 12.3. 1953. Foreldrar Ásgeirs voru Magn- ús S. Jónsson, f. 2.11. 1894, d. 22.7. 1985 og Oddrún Ein- arsdóttir, f. 14.4. 1918, d. 25.8. 1999. Bræður Ásgeirs eru Steinar Valur, f. 22.9. 1932 og Einar Már, f. 3.2. 1938. Ásdís átti 3 systkin, sem kennd hafa verið við Gróf í Hafnarfirði (Grófarfjölskyldan): Róbert Ólaf- ur Grétar Mckee, f. 9.11. 1954, d. 17.12. 2020, maki Helga Margrét Sveinsdóttir, f. 20.5. 1959, börn: Arnar Róbertsson, f. 8.1. 1976, Anton Sveinn Mckee, f. 18.12. 1993, Karitas Irma Mckee, f. 16.10. 1996. Magnús Ásgeirsson, f. 24.1. 1958, eiginkona Sigrún María Ingjaldsdóttir, f. 3.3. 1960, börn: Elva Dögg Magnúsdóttir, f. 6.8. 1980, Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 12.6. 1984, Ívar Orri Magnússon, f. 6.12. 1992. Gyða Ásgeirsdóttir, f. 5.10. 1959, börn: Kristófer Björk- strand, f. 21.8. 1980, Alexander Björkstrand, f. 17.1. 1991, Re- bekka Björkstand, f. 2.6. 1992. Eiginmaður Ásdísar er Guð- mundur Helgason, f. 26.8. 1959, og sonur þeirra er Friðrik Helgi, f. 9.11. 2000, kærasta Rebekka Rún Odd- geirsdóttir, f. 17.12. 2001. Í móðurætt var Ásdís af Grófar- ættinni sem er samheldin ætt í Hafnarfirði. Hún gekk í Öldutúnsskóla og síðar fór hún í Flensborgarskóla. Hún stundaði einnig nám í ferða- málafræði í Háskólanum á Hól- um og framhaldsnám í ferða- málafræði við Háskóla Íslands. Þá var hún eitt ár í guðfræði- deild. Ásdís bjó hjá foreldrum sín- um að Móabarði 26 í Hafnar- firði, sem þau byggðu ásamt foreldrum Jónu árið 1962. Ásdís bjó á ýmsum stöðum, m.a. á Kárastíg í Reykjavík, áður en hún giftist Ólafi Þorleifssyni, fyrri eiginmanni, árið 1995. Þau bjuggu m.a. í Hafnarfirði og Álftanesi. Þau slitu samvistum árið 2000. Ásdís kom víða við í sínum störfum. Hún vann í Gler- augnabúð á Laugavegi, í Glóbus heildverslun, hjá Heimilis- tækjum, í Prentsmiðjunni Odda, hjá Sjóvá- Almennum, hjá Vís á Selfossi og síðan sem ráðgjafi í lífeyrissparnaði og tryggingum. Árið 2004 var hún svo ráðin yfirlandvörður í Mývatnssveit. Leiðir þeirra Guðmundar og Ásdísar lágu saman í Mývatns- sveit og þar voru þau búsett fram til ársins 2005. Friðrik Helgi sonur þeirra fæddist fyrir norðan og þau þrjú fluttu á Álftanesið árið 2005. Ásdís bjó með Guðmundi til dánardags í Blátúni á Álftanesi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinar látnu. Ásdís var glaðvær að eðlisfari og naut sín vel í góðum fé- lagsskap. Hún hafði ánægju af mannlegum samskiptum og átti létt með að blanda geði við og kynnast fólki. Þegar Ásdís bjó á Móabarði 26 í Hafnarfirði á sín- um yngri árum, bjuggu einnig amma og afi á efri hæðinni. Oft kom Ásdís við hjá þeim en þar var oft gestkvæmt og glatt á hjalla þegar vinir og ættingjar úr Grófarfjölskyldunni komu saman. Ásdís naut þessarar glaðværðar í uppvextinum og var gott veganesti fyrir hana í lífinu. Hún hafði einnig yndi af útivist og við fjölskyldan ferð- uðumst víða meðan heilsa henn- ar leyfði. Uppáhaldsgönguferðir okkar í Mývatnssveit voru í Höfða og höfðum við það til siðs að ganga þar saman bæði vetur og sumar. Göngutúrar niður á strönd og við hana á Álftanesi voru vinsælir hjá okkur og þá sérstaklega þegar Nói var meðal okkar og voru fastir liðir í tilver- unni. Við nutum þess að búa í Blátúni á Álftanesi og fyrir Co- vid voru á hverju sumri haldnir svokallaðir Blátúnsleikar sem enduðu með götugrilli. Þegar hundurinn Nói dó vorið 2016 þá lögðust okkar föstu göngutúrar á Álftanesi að mestu leyti af. Ferð okkar Ásdísar til Krítar er mér ógleymanleg en þar kynntumst við Reyni og Bellu og hefur sá vinskapur verið okkur Ásdísi ákaflega dýrmætur. Ferð okkar með Friðrik Helga til Austur- ríkis 2007/2008 á skíði yfir jól og áramót var mjög eftirminnileg þegar Friðrik Helgi lærði fyrst á skíði og það endaði með því að hann stakk foreldra sína af á skíðum síðustu daga ferðarinnar. Í júní árið 2008 fórum við Ásdís með Friðriki ásamt Jónu Ólafs- dóttur eða ömmu Jónu eins og hún var oft kölluð. Þar áttum við ánægjulegar stundir með þrem- ur ættliðum. Þegar Ásdís var fimmtug fórum við til Amster- dam og Hamborgar en ætlunin var að fara á fótboltamót með Friðrik Helga í Danmörku síðar en Friðrik veiktist og endaði á spítala í Hamborg með sprung- inn botnlanga um miðjan júlí til byrjun ágúst. Við Ásdís áttum síðan eftirminnilega kvöldstund með vinum og ættingjum með veislu á heimili okkar í Blátúni á Álftanesi, þegar við komum heim aftur eftir erfitt ferðalag. Síðasta ferð okkar fjölskyld- unnar var til Tenerife um jólin og áramótin 2018/2019, þar nut- um við þess að vera saman, þó Ásdís hafi þá átt í smá erfiðleik- um með gang. Það stoppaði okk- ur þó ekki að ferðast um eyjuna og fórum við m.a. hringferð um eyjuna. Þegar ég varð sextugur fórum við Ásdís út að borða á Apótekinu en nærri þremur vik- um seinna lenti ég í alvarlegu vinnuslysi, sem reyndi mjög á Ásdísi. Síðasta ferð okkar á veitinga- stað var á afmæli Ásdísar 15. júní 2020, með mér, Friðriki Helga, Rebekku kærustu Frið- riks og ömmu Jónu. Síðasta árið var Ásdísi erfitt vegna þess að hún var með undirliggjandi sjúk- dóm og ekki æskilegt að vera neitt á ferðinni vegna Covid. Ég kveð bæði kæran vin, sam- býliskonu og eiginkonu mína til tuttugu ára með orðum sem mamma hennar færði henni á 50 ára afmæli hennar: Elsku Ásdís mín! Fimmtug er hún og mér svo kær, frá henni stafar ætíð gleði. Stjarna hennar er svo skær og hjartað hreint sem rósabeð. Guðmundur. Ásdís Ásgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.