Morgunblaðið - 12.10.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.10.2021, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 ✝ Helga Alfons- dóttir fæddist í Hnífsdal 19. ágúst 1927. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Seltjörn 25. september 2021. Foreldrar henn- ar voru Helga Sig- urðardóttir hús- móðir, f. 18.11. 1895, d. 19.1. 1981, og Alfons Gíslason, bakari, kaupmaður og símstjóri í Hnífsdal og hreppstjóri í Eyr- arhreppi, f. 4.2. 1893, d. 19.5. 1975. Systkini Helgu: Ólafía Guðfinna, f. 1924, d. 2013, Þor- varður, f. 1931, og Grétar Gísli, f. 1939, d. 1946. Fóstursystkini, sem einnig voru systkinabörn við Helgu, voru Ólöf, f. 1915, d. 2012, Sigríður, f. 1920, d. 2002, og Ólafur Guðfinnur Sigurður, f. 1924, d. 2002, Karvelsbörn. hún fór á Seltjörn árið 2019. Börn Helgu og Halldórs eru: 1) Þorgerður Helga, f. 14.9. 1952, maki Jakob K. Krist- jánsson, þeirra dætur eru Jó- hanna og Gréta. 2) Grétar Alf- ons, f. 28.7. 1954, maki Ásdís Bragadóttir, þeirra börn eru Kristín og Halldór. 3) Bryndís, f. 12.4. 1963, maki Jóhann Svavar Jóhannsson, þeirra dætur eru Helga Dóra og Fanney. Barnabarnabörnin eru átta. Helga ólst upp í Hnífsdal og gekk þar í barnaskóla. Hún stundaði nám við Húsmæðra- skólann Ósk á Ísafirði veturinn 1950-1951. Ásamt húsmóð- urstörfum vann hún verslunar- og skrifstofustörf og var síðar lengi skólaritari við Langholts- skóla í Reykjavík. Hún var virkur félagi í Kvenfélagi Langholtssóknar um árabil og tók þátt í félagsstarfi í Félags- miðstöðinni Hæðargarði. Útför Helgu fór fram í kyrr- þey að hennar ósk. Helga giftist hinn 23.12. 1952 Halldóri Jakobi Þórarinssyni kenn- ara frá Þúfum í Vatnsfirði, f. 16.8. 1927, d. 29.4. 1973. Foreldrar hans voru Þorgerður Helga Halldórs- dóttir, f. 2.5. 1883, d. 19.7. 1964, og Þórarinn Einar Einarsson, f. 25.11. 1876, d. 8.4. 1968. Helga og Halldór bjuggu fyrst í Hnífsdal og á Suðureyri, þar sem Halldór kenndi til árs- ins 1954 er þau fluttu til Reykjavíkur, þar sem hann kenndi við Langholtsskóla upp frá því. Þau byggðu sér hús við Álfheima 24 og bjuggu þar en Helga flutti svo í Gautland 13 og síðar í Hæðargarð 35, þar til Með hlýju, þakklæti og söknuð í hjarta kveð ég elskulega tengdamóður mína eftir 40 ára einstaklega góða og skemmtilega samfylgd. Hugurinn hvarflar að Álfheimum 24 en þar hófust kynnin, þegar Grétar kynnti mig fyrir henni. Helga var virðuleg og glæsileg kona, alltaf vel tilhöfð og fallega klædd. Allt sem Helga tók sér fyrir hendur var einstaklega vel gert og hún hafði næmt auga fyrir því að ganga vel frá hlutum, allt í röð og reglu. Úrklippur úr blöðum með mataruppskriftum frá ætt- ingjum, vinum eða samstarfsfólki vélritaði hún og gerði úr því lítið hefti, fjölritaði það og gaf. Helga klippti líka úr dagblöð- um allar frásagnir þar sem ætt- ingjar og vinir höfðu komist í fréttir í leik og starfi og límdi inn í bækur. Þessar bækur voru reglulega dregnar fram og skemmt sér við að rifja upp góða tíma. Hún sagði mér fyrir stuttu að einn rigningardag hefði hún sýnt vinkonum sínum á Seltjörn þessar bækur og skemmtu þær sér við að skoða þær dagstund. Helga hafði yndi af að ferðast, hvort sem var innanlands eða ut- an. Það var mikið tilhlökkunar- efni hjá barnabörnunum að fá ömmu heim og hún keypti alltaf eitthvað fallegt handa þeim í ferðum sínum. Landakortabókin átti vísan stað í stofunni og ferð- irnar rifjaðar upp eða farið í ferðalag í huganum. Hún hafði gaman af að ráða krossgátur og ber Íslenska samheitaorðabókin hennar þess glöggt vitni. Fékk hún okkur þá stundum í lið með sér en þar bar hún höfuð og herðar yfir okkur hin. Nokkrum dögum fyrir andlát- ið heimsótti ég Helgu. Það lá vel á henni. Þegar ég fór fylgdi hún mér út á hlað. Á leiðinni fór hún að velta fyrir sér hvort hún ætti ekki að fá sér stóris fyrir her- bergisgluggann. Þetta lýsti henni svo vel, alltaf að skipuleggja og bæta, allt til hinstu stundar. Nú hafa tjöldin verið dregin fyrir. Ég kveð góða og vandaða konu. Blessuð sé minning hennar. Ásdís Bragadóttir Þá er hún Helga tengdamóðir mín búin að fá hvíldina, enda var hún búin að segja okkur að henni fyndist þetta vera komið gott. Hún var andlega skýr og ern til hinstu stundar þótt líkamleg orka hafi farið hratt minnkandi síðustu mánuðina. Hún gat samt heimsótt okkur af og til og nú síð- ast fyrir rúmri viku naut hún þess vel að borða með okkur lambasteik og nýtínd aðalbláber með rjóma. Hvort tveggja hinn besti veislumatur að hennar mati. Ég kom inn í fjölskylduna í ársbyrjun 1973 þegar við Þor- gerður urðum par og var mér strax einstaklega vel tekið, enda spillti það ekki fyrir að ég var Vestfirðingur í húð og hár, kom- inn af góðu fólki, sem fjölskylda Helgu þekkti vel til. Það var því mikið áfall að aðeins viku eftir að við Þorgerður opinberuðum trú- lofun okkar, þá lést Halldór skyndilega, langt um aldur fram, aðeins 45 ára gamall. Ég fékk því aldrei tækifæri til að kynnast tengdaföður mínum, manni sem allir sögðu að hefði verið öðlingur í alla staði og einstakt ljúfmenni. Fráfall Halldórs varð Helgu mjög þungbært og má segja að hún hafi aldrei jafnað sig á þeim mikla missi. Helga sat því uppi, sem einstæð móðir með þrjú börn, það yngsta aðeins 10 ára. Hún var samt staðráðin í að standa sína plikt og harkaði af sér, þótt við sem næst henni stóðum vissum vel að hún bældi bara söknuðinn niður, en hann var þó alltaf til staðar, svo mjög að oft var henni þungt í skapi. Ég átti alltaf gott og traust samband við tengdamóður mína og reyndi ég alltaf að hjálpa henni eins og ég gat. Hún mat það mikils og við gátum alltaf spjallað og náð vel saman. Helga var trúuð og hún nefndi það nokkrum sinnum við mig að hún teldi það gæti ekki hafa verið annað en guðleg forsjón að ég skyldi hafa komið til sögunnar á þessum erfiða tíma fjölskyldunn- ar. Helga naut þess mjög að ferðast og fór margar ferðir til útlanda, bæði með vinkonum sín- um og síðan var hún líka mjög dugleg að heimsækja okkur Þor- gerði til útlanda þegar ég var við nám og rannsóknarstörf í Boston og einnig til Þýskalands og Sví- þjóðar. Hún ferðaðist talsvert með okkur innanlands og naut þess sérstaklega að koma með okkur í sumarbústaðinn í Tungu- dal og seinna í Sælingsdalstungu. Hún hafði líka einstaklega gam- an af því að fara í bíltúra í ná- grenni Reykjavíkur og þannig enduðu flestar heimsóknir til okkar á því taka rúnt niður Laugaveginn á leiðinni heim. Síðustu árin var heilsan ekki alltaf upp á sitt besta og var hún því að mestu hætt að vilja fara í lengri ferðir en naut þess samt alltaf að fá heimsóknir og heim- sækja börn og barnabörn. Helgu var mjög annt um sitt fólk og stolt af því hvað allir voru að standa sig vel í námi og starfi. Hún var orðin södd lífdaga og hvíldin kærkomin. Guð blessi minningu hennar. Jakob K. Kristjánsson. Nú er elsku amma okkar farin í sína hinstu för. Við systkinin munum sakna hennar en erum þakklát fyrir tímann sem við fengum með henni. Margar ljúfar og góðar minn- ingar koma upp í hugann. Frá barnæsku var það fastur liður að fara um helgar í Gautlandið til ömmu. Margar heimsóknirnar byrjuðu á bíltúr út fyrir bæinn og síðan var endað í kaffi hjá ömmu. Alltaf hafði hún bakað marmara- köku eða eitthvert annað góð- gæti handa okkur. Vöfflur voru líka í miklu uppáhaldi, með sykri fyrir okkur börnin en vestfirsk- um aðalbláberjum fyrir þá full- orðnu. Amma hafði nefnilega ein- staklega gaman af að fara í berjamó og sulta síðan þegar heim var komið. Jóladagur í Gautlandi hjá ömmu var alltaf tilhlökkunarefni. Þar hittumst við frændsystkinin og lékum okkur saman allan dag- inn. Við spiluðum, borðuðum dýrindis kræsingar, hangikjöt í hádeginu, heitt súkkulaði og kök- ur í kaffitímanum. Eftir það voru allir orðnir meira en vel saddir. En amma þreyttist ekki á að bjóða okkur meira fram á kvöld. Það var alltaf svo notalegt að koma til ömmu. Amma hafði mjög gaman af að ferðast og vænt þótti henni um að koma vestur á æskustöðvar sínar og rifja upp gamla tíma. Einnig fór hún margar ferðir til útlanda. Fyrir slíkar ferðir spurði hún okkur iðulega hvort það væri ekki eitthvað sem hún gæti keypt handa okkur. Spenn- an og eftirvæntingin í barns- hjartanu að fá ömmu heim voru eins og litlu jólin. Alltaf keypti hún eitthvað fallegt til að gleðja okkur. Þegar við stofnuðum okkar heimili hafði hún mikla ánægju af að heimsækja okkur. Hún hafði gaman af að fylgjast með okkur barnabörnunum í leik og starfi og gladdist með okkur þegar vel gekk. Við urðum ekki þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Halldóri afa. Hann lést í blóma lífsins, áð- ur en við komum til sögunnar, og var öllum þeim sem hann þekktu harmdauði. Amma kenndi okkur að minnast hans á einstaklega fallegan hátt, á afmælisdegi hans 16. ágúst ár hvert. Kynslóðir koma og kynslóðir fara. Við kveðjum góða og elsku- lega ömmu og þökkum fyrir allt það sem hún var okkur. Blessuð sé minning hennar. Kristín og Halldór Grétarsbörn. Helga Alfonsdóttir ✝ Jón Sturluson fæddist á Suð- ureyri við Súg- andafjörð 21. októ- ber 1932. Hann lést 27. september 2021. Foreldrar hans voru hjónin Einar Sturla Jónsson, f. 24.8. 1902, d. 2.10. 1996, hreppstjóri á Suðureyri, og Kristey Hallbjarnardóttir, f. 22.2. 1905, d. 30.7. 1983, hús- freyja. Systkini Jóns eru Eva, f. 7.9. 1927, fv. bankastarfsmaður, búsett í Reykjavík; Sigrún f. 18.4. 1929, d. 1.11. 2019, m.a. fv. kirkjuvörður í Bústaðarkirkju; Kristín, f. 30.6. 1930, húsmóðir, búsett í Reykjavík og Eðvarð, f. maki: Jón Ómar Gunnarsson, þau eiga þrjú börn. c) Kristín Björg, f. 1992, maki Ívar Elí Sveinsson, þau eiga eitt barn. 2) Eyrún, f. 27.4. 1960, maki henn- ar er Kristján Jóhannesson, f. 4.10. 1957. Börn þeirra eru a) Ásbjörg Elín, f. 1979. b) Signý Rut, f. 1995. c) Sigurbjörg María, f. 1998. d) Jóhannes Karl, f. 1998. 3) Sturla, f. 4.5. 1965. Börn hans eru: a) Jón Bragi, f. 1992. b) Anton Leví, f. 1998. Jón flutti ungur suður til Reykjavíkur þar sem hann lauk námi sem rafvirkjameistari. Í Reykjavík kynntist hann Sigur- björgu og hófu þau þar búskap. Þau giftu sig 6.11. 1954. Þau bjuggu alla tíð í Reykjavík. Jón starfaði meðal annars hjá Hauki & Ólafi og Landsbankanum ásamt því að starfa sjálfstætt. Útför Jóns fór fram í kyrrþey að hans ósk hinn 6. október 2021. 23.3. 1937, fv. bif- reiðastjóri á Suður- eyri og oddviti, bú- settur í Hafnarfirði. Eiginkona Jóns er Sigurbjörg Björnsdóttir, f. 11.8. 1935. For- eldrar hennar voru Björn Guðmunds- son, f. 25.9. 1903, d. 27.1. 1980 og Sig- rún Eggertína Björnsdóttir, f. 28.2. 1899, d. 13.12. 1983. Börn Jóns og Sig- urbjargar eru: 1) Svanhildur, f. 4.3. 1955, maki hennar var Sig- urvin Bjarnason, f. 22.7. 1955, d. 27.7. 2019. Börn þeirra eru a) Jón Þór, f. 1978, maki: Guðrún Þorgeirsdóttir, þau eiga þrjú börn. b) Berglind Ólöf, f. 1984, Nonni afi var alveg frábær. Honum var margt til lista lagt. Hann var flinkur fagmaður, rafvirki og ekki síður handlag- inn smiður. Hann var hæglátur, hjálpsamur og hlýr. Okkur barnabörnunum fannst hann geta gert allt, ef eitthvað var bilað gat afi lagað það. Þegar hann vann í Emmessís átti hann það til að koma með ís heim úr vinnunni og vakti það mikla gleði. Það var alltaf svo gott að gista hjá ömmu og afa. Nonni afi var með góðan húm- or. Það var alltaf hægt að treysta á afa til að taka þátt í smá sprelli. Hann átti það til dæmis til að sýna barnabarna- börnunum fölsku tennurnar við mikinn fögnuð. Þegar við kom- um með börnin okkar í heim- sókn naut hann þess að tala við þau og grínast með þeim. Hann gladdist mikið yfir þeim og þau voru hæstánægð með langafa. Nonni afi hafði einnig dálæti á góðum mat og voru hann og amma höfðingjar heim að sækja. Það var alltaf heitt á könnunni, pönnukökur og ran- dalín í borði. Það var fátt betra en að koma inn á hlýja heimilið hjá ömmu og afa og spjalla saman. Við eigum margar góð- ar minningar um Nonna afa. Hans verður sárt saknað. Blessuð sé minning þín, elsku afi. Jón Þór Sigurvinsson, Berglind Ólöf Sigur- vinsdóttir og Kristín Björg Sigurvinsdóttir. Jón Sturluson Útför í kirkju Upprisa, von og huggun utforikirkju.is Ástarþakkir til Lóu og starfsmanna í Fríðuhúsi, sem og til Mússu, Thuy og starfsmanna Vegamóta á Grund, fyrir ómetanlegan stuðning, ást og umhyggju gegnum árin. Kærum ættingjum og vinum viljum við einnig þakka fyrir samúð og hlýju vegna andláts okkar ástkæra ÁGÚSTAR ÞÓRARINSSONAR húsasmíðameistara, Rauðalæk 73 í Reykjavík. Sigríður Hanna Jóhannesdóttir Ebba G. Guðmundsdóttir Hafþór Hafliðason Jóhannes Þór Ágústarson Ragnhildur Lilja Ásgeirsdóttir og barnabörnin Hanna Hulda, Hafliði, Embla María og Hrafnhildur Freyja Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, AGNAR ÞORSTEINSSON, Öxará, lést sunnudaginn 3. október. Útför hans fer fram frá Þorgeirskirkju á Ljósavatni fimmtudaginn 14. október klukkan 14. Elín Inga Þórisdóttir Þröstur Agnarsson Jónína Sigurbergsdóttir Þórir K. Agnarsson Dagný Pétursdóttir Agnar Berg Þrastarson Inga Lóa Þrastardóttir Kjartan Sigurðsson og börn Pétur Rósberg Þórisson Elvar Logi Þórisson Bróðir okkar, MAGNÚS ÓLAFSSON, Háaleitisbraut 16, Reykjavík, lést miðvikudaginn 29. september á hjartadeild Landspítalans. Hann verður jarðsunginn í Guðríðarkirkju fimmtudaginn 14. október klukkan 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans fyrir einstaka umönnun og aðstoð við aðstandendur. Sigríður Guðmundsdóttir Agnar Guðmundsson Vilhelmína Ólafsdóttir Pétur Ólafsson Símon Ólafsson og aðrir aðstandendur Elskuleg eiginkona mín, systir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar 7. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 15. október klukkan 13. Þórður R. Jónsson Anna Þórðardóttir Kári Grétarsson Elín Þórðardóttir Jón Þórðarson Linda Hilmarsdóttir Sigríður Þorsteinsdóttir Erla Þorsteinsdóttir Ágúst Haraldsson Þórður, Elsa, Grétar, Nótt, Sigvaldi, Embla, Janus Laufey, Anna, Tinna, Sunna, Kári Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Vallarbraut 6, Njarðvík, lést miðvikudaginn 6. október. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 21. október klukkan 13. Sigurður Bergmann Sólveig Steinunn Guðmundsd. Aðalheiður Kristjánsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.