Morgunblaðið - 12.10.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.10.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9.-12.30, nóg pláss - Boccia kl.10:15 -Tálgað í tré kl.13:00 - Postulínsmálun kl.13:00 –Prjónakaffi með Önnu kl.13:30 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi m. Milan kl. 10.30. Handavinna kl. 12-16. Karlakórinn Kátir karlar kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.40-12.40. Heitt á könnunni. Kaffi- sala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kir- kjunnar kl 20. Allir velkomnir Safnaðarfélag kirkjunnar Boðinn Þriðjudagur: Kynning á Okkar Kópavogi kl. 10:45. Ganga/staf- ganga kl. 10. frá anddyri Boðans. Fuglatálgun kl. 13. Bridge og Kanasta kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina. Félagsstarf eldri borgara kl. 13 Rithöfundurinn Kristín Björg Sigurvinsdóttir kemur til okkar og segir frá bókum sínum. Verið velkomin í gott og gefandi samfélag. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12:30-15:30. Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrrum form. LEB. „Þetta verður góður dagur“ kl. 13:30. Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Bókabíllinn kl. 1 Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Po- olhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Qi- Gong í Sjál kl. 9:00. Stólajóga kl. 11:00 í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði kl. 12:15. Boccia í Ásgarði kl. 12:55. Smíði kl. 9:00 og 13:00 í Smiðju Kirkjuhv. Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 og 13. til 16 = opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 9 til 10.15 = qigong æfingar í hreyfi- og aðalsal. Kl. 13.30 = Gleðigjafarnir og Dóra mæta með samsöng! Kl. 16 til 18 = Nafnlausi leikhæopurinn með námskeið í upplestri og framsögn. Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 12. október verður opið hús fyrir el- dri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er til ga- mans gert svo s.s. tekið í spil eða prjónað. Opna húsinu lýkur með kaffiveitingum. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12. Að henni lokinni er boðið upp á léttar veitingar gegn vægu gjaldi. Allir hjartanlega velkomnir! Gullsmára Myndlist kl. 9. Boccia kl. 10.Tréútskurður og Kanasta kl. 13. HraunselBilljard: Kl. 8 -16. Dansleikfimi kl. 9. Qi Gong kl. 10. Bridge kl. 13. Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Jóga með Rakel Írisi kl. 9:00, örfá sæti laus í jóga á þriðjudögum. Bridge í handavinnustofu 13:00. Helgistund kl. 14:00. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9:45 í Borgum. LIstmálun Korpúfa með Pétri kl. 9. og Boccia í Borgum kl. 10. Helgistund á vegum Grafarvogs- kirkju kl. 10:30 og leikfimishópur Korpúlfa í umsjón Margrétar kl. 11 í Egilshöll. Spjallhópur Korpúlfa í listasmiðjunni í Borgum kl. 13. og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14:00. Allir hjartanlega velkom- nir í BORGIR, þar sem gleðin býr. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Ljónatemjarinn. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um Daníel spámann úr Gamla testamenntinu. Kaffiveitingar. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur í handavin- nustofu milli kl. 09-12. Hópþjálfun verður í setustofu 2. hæðar milli kl. 10:30-11. Þá verður tölvu og snjalltækjaaðstoð í setustofu milli kl. 11:00-11:30. Bókband er í smiðju 1. hæðar milli 13.-16:30. Milli kl. 13:30-14:30 hlustum við saman á hlaðvarp í handavinnustofu. Þá leg- gjum við af stað í göngu með viðkomu í verslun kl. 15. úr móttöku. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9.00. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Helgistundin sem vera átti í salnum í dag frestast um eina viku og verður þriðjudaginn 19. október. Örnámskeið/roð og leður á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30 - 18.30. Minnum á bingóið í salnum á Skólabraut nk. fimmtudag kl. 13.30. Allir velkomnir. Minnum fólk á hafa samband vegna greiðslu á leikhúsmiðum Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ Árnína Hildur Sigmundsdótt- ir fæddist á Norð- firði 19. jan. 1927. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja laug- ardaginn 18. sept. 2021. Foreldrar hennar voru Sig- mundur Stefáns- son, skósmiður í Neskaupstað, f. 5. nóv. 1875, d. 18. feb. 1953, og kona hans, Stefanía Árnadótt- ir, f. 6. feb. 1886, d. 1. júní 1960. Árnína var yngst af þrettán börnum þeirra hjóna sem nú eru öll látin: Eldri systkinin voru: Guðmundur Valdimar, f. 12. júlí 1907, Guð- rún, f. 18. júlí 1908, Guðríður Árný, f. 21. nóv. 1909, Val- borg, f. 18. apríl 1911, Stefán, f. 19. sept. 1912, Guðmundur Snorri Steinar Skúlason, f. 11. nóv. 1947. Sigmundur, f. 4. ágúst 1950, maki Margrét Ingibjörg Kjartansdóttir, f. 9. jan. 1952, Inga, f. 6. nóv. 1953, maki Þórarinn Egill Sveins- son, f. 10. júlí 1952, Valborg, f. 22. feb. 1956, maki Stefán Sæmundsson, f. 4. júní 1946, Valdemar, f. 1. júlí 1962, maki Sif Axelsdóttir, f. 20. sept. 1961. Árnína lauk hefðbundnu barnaskólanámi í Neskaupstað og var í Húsmæðraskóla Suð- urlands að Laugarvatni 1947- 1948. Hún flutti til Keflavíkur 1948 og hóf síðan fljótlega af- greiðslustörf í apóteki bæj- arins og síðar í kaupfélaginu. Meðan börnin uxu úr grasi sá hún alfarið um heimilið en smám saman tók hún að starfa utan heimilisins, m.a. í Kaup- félaginu, á Aðalstöðinni og á böllum í Ungmennafélagshús- inu. Síðar fór hún að vinna við saumastörf hjá Álnabæ og loks á eigin vegum heima. Útför Árnínu fór fram frá Keflavíkurkirkju 1. október 2021. Valgeir, f. 26. nóv. 1913, Sigrún, f. 3. júní 1915, Jóhann, f. 1. ágúst 1917, Lovísa, f. 26. feb. 1919, Ingi Sigfús, f. 24. jan. 1921, Sveinlaug, f. 30. júní 1922, og Al- bert, f. 24. apríl 1924. Þann 28. des. 1949 giftist Árnína Einari Ingimund- arsyni, f. 30. apríl 1926 í Borgarholti í Stokkseyrarhr., d. 5. ágúst 2012, sem þá var lögreglumaður í Keflavík og síðar lengi starfsmaður Frí- hafnarinnar á Keflavík- urflugvelli. Þau bjuggu alla tíð í Keflavík. Árnína og Einar eignuðust fimm börn. Þau eru: Sigrún, f. 1. júlí 1949, maki Elsku Adda amma okkar lést í faðmi fjölskyldunnar eftir veik- indi morguninn 18. september. Það hafa verið forréttindi að hafa elsku ömmu í okkar lífi. Það var alltaf gott að koma á Brekku- brautina til Öddu ömmu og Ein- ars afa og þau voru ófá skiptin sem við mættum þar í heimsókn í kaffi, kvöldmat og fjölskylduboð yfir jól, páska og svo að sjálf- sögðu á afmælisdögum þeirra. Eftir að afi lést þá flutti amma á Nesvelli þar sem við héldum áfram að koma reglulega til hennar og auðvitað á afmælis- degi hennar og afa. Amma var handlagin mjög og margt til lista lagt. Hún saumaði mikið, málaði á postulín, heklaði fjölda teppa og prjónaði. Eftir að hún hætti að geta sinnt handavinnu þá dundaði hún sér við að lita fal- legar myndir. Allt sem amma tók sér fyrir hendur var vandað og fallega unnið. Amma og afi voru dugleg að ferðast um landið þegar við vor- um lítil og fengum við stundum að fara með þeim í ferðalög á þeim tíma. Síðari árin ferðuðust þau einnig víða erlendis en þau voru mjög samrýmd og gerðu flestallt saman. Amma saknaði afa mikið eftir að hann lést og hafði áhyggjur af því hversu lengi hann þurfti að bíða eftir henni. Það er huggun að vita af þeim sameinuðum í sumarland- inu. Amma tók alltaf vel á móti okkur og vildi allt fyrir okkur gera. Hún var stolt af fjölskyld- unni sinni og okkur barnabörn- unum og henni varð tíðrætt um það þessar síðustu vikur sem hún lifði. Hún var þakklát fyrir alla umhyggjuna sem hún fékk á spítalanum og átti oft erfitt með að biðja um aðstoð þar sem hún vildi ekki trufla starfsfólkið að óþörfu. Okkur er þakklæti efst í huga. Þakklæti fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur systkinin. Það er erfitt að kveðja, elsku Adda amma. Þín verður sárt saknað. Minning þín lifir. Þökk sér þér amma mín, alla tíð öll er þín myndin fögur og blíð sem birtist frá bernskunnar degi. Ennþá kertið þitt birtu ber í bænum heima sem lýsti mér, það ljómar upp lífs míns vegi. (Birna Guðrún Friðriksdóttir) Herdís Snorradóttir Helga Hildur Snorradóttir Einar Snorrason Árnína Hildur Sigmundsdóttir ✝ Óskar Harry Jónsson var fæddur 18. júlí 1939 í Reykjavík, sonur Johns Har- rys Bjarnasonar verkstjóra hjá Reykjavíkurborg og Sigríðar Óskar Einarsdóttur hús- freyju. Hann lést á Landspítalanum 18. september 2021 eftir löng og erfið veik- indi. Systkini hans eru Einar S. Jónsson, lést 2008, Amalía Jóna Jónsdóttir, Njörður Mar- el Jónsson, lést 2017, og Dag- mar Jónsdóttir. Hinn 25. desember 1962 kvæntist Óskar eftirlifandi eiginkonu sinni, Margréti Jónsdóttur, fæddri 15. októ- ber 1941. Börn þeirra eru: 1. Ingibjörg Óskarsdóttir, fædd 6.8. 1962, gift Pétri Björnssyni. Börn þeirra eru Jón Hjörtur Pétursson og Agnes Þóra Pétursdóttir. Óskar Harry var fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann tók gagnfræðapróf frá Hlíð- ardalsskóla í Ölfusi 1958. Hann lauk námi við Hjúkr- unarskóla Íslands í mars 1962. Þann 18. júní 1962 flutt- ust Óskar og Margrét að Arn- arholti á Kjalarnesi. Óskar tók þá við stöðu yfirhjúkrun- armanns og starfaði þar nán- ast óslitið til ársins 1989. Sumarið 1968 fluttust þau Margrét til Bodø í Noregi ásamt tveimur elstu börnum sínum. Óskar stundaði þar framhaldsnám í geðhjúkrun við Statens Specialskole i Psykiatrisk Sykepleje og út- skrifaðist í júlí 1969. Eftir að Óskar hætti störf- um sem geðhjúkrunarfræð- ingur stofnuðu hann og Mar- grét fyrirtækið Belís Heilsu- vörur sem þau ráku með góðum árangri til ársins 2013. Óskar lærði fjölskyldumeð- ferð og rak einnig á tímabili Hjúkrunarmiðstöðina ásamt hjónunum Jóni Snorrasyni og Úlfhildi Grímsdóttur hjúkr- unarfræðingum, en Hjúkrun- armiðstöðin var eitt af fyrstu einkareknu fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Útför fór fram í kyrrþey. Sambýlismaður Agnesar Þóru er Sveinn Vignir Is- aksen. 2. Jón Harry Óskarsson, fædd- ur 23.6. 1965, giftur Dóru Guð- nýju Rósudóttur Sigurðardóttur. Börn þeirra eru Margrét Rósa Dórudóttir Har- rysdóttir og Óskar Harry Dóruson Harrysson. Sam- býlismaður Margrétar Rósu er Kormákur Jarl Gunn- arsson. 3. Margrét Ósk Óskarsdótt- ir, fædd 15.2. 1976. Hennar sonur er Kristinn Jökull Kristinsson. 4. Guðrún Anna Magnús- dóttir, fædd 4.3. 1962. Sam- býliskona hennar er Hrefna Huld Helgadóttir. Börn henn- ar eru Ólafur Karl Stefánsson og Anna Laufey Stefáns- dóttir. Sonur Önnu Laufeyjar er Gísli Freyr Eyþórsson. Nú hefur faðir okkar kvatt þennan heim eftir erfið veik- indi. Eftir sitja minningar um einstakan mann og föður. Hann var alltaf til staðar fyr- ir okkur og studdi okkur með ráðum og dáð. Hann var klett- urinn okkar sem alltaf var hægt að leita til. Hans helsta ósk okkur til handa var að við yrðum ham- ingjusöm og að það sem við tækjum okkur fyrir hendur veitti okkur lífsfyllingu og gleði. Það var alltaf gaman að tala við pabba um allt mögulegt enda hafði hann áhuga á svo mörgu og komum við sjaldan að tómum kofunum þegar heims- málin eða eilífðarmálin voru rædd. Hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á flestu en var fær um að skipta um skoðun ef hann sá að ákveðin rök eða söguskoðun stóðst ekki. Pabbi var kjarkaður maður sem þorði að láta drauma sína rætast. Í því var hann okkur börnum sínum fyrirmynd eins og í svo mörgu öðru. Hvort sem var að flytjast til útlanda með fjölskylduna eða að skipta um starfsvettvang á miðjum aldri. Pabbi var nærgætinn maður og endaði oftar en ekki samtöl með því að spyrja hvort hann gæti gert eitthvað fyrir okkur. Og gerði hann það þar til yfir lauk. Pabbi var ekki allra en hann var mikill vinur vina sinna og tryggur þeim sem hann tók. Þótt öldur gætu risið hátt þá risti það aldrei djúpt. Við vissum um nokkurt skeið að hverju stefndi en ekkert okkar var þó tilbúið. Við erum þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með honum og að þján- ingum hans sé lokið. Hvíl í friði, kæri pabbi. Ingibjörg, Harry og Margrét Ósk. Óskar Harrý Jónsson geð- hjúkrunarfræðingur er látinn. Leiðir okkar Óskars lágu fyrst saman þegar ég starfaði tvö sumur í Arnarholti og síðan upp úr 1980 þegar ég flutti mig úr starfi á geðdeild Borgarspítal- ans í Arnarholt. Óskar hafði verið beðinn um að taka að sér rekstur hjúkrunar í Arnarholti þegar geðdeild Borgarspítalans tók það undir sinn væng. Arn- arholt varð því stærsta geðdeild Borgarspítalans með um 60 rúm. Þegar ég hóf störf í Arn- arholti stýrði Óskar einni af deildum staðarins, sem nú voru fluttar í nýtt húsnæði á tveimur hæðum sem í alla staði var hentugra fyrir sjúklingana en Óskar var helsti hvatamaður að byggingu nýs húsnæðis í Arn- arholti. Öll herbergi fyrir sjúk- linga voru einbýli fyrir utan tvö herbergi sitt á hvorri hæðinni sem var einsdæmi á geðdeildum á þessum tíma. Óskar lagði mikla áherslu á að sjúklingar hefðu einhver viðfangsefni og að þeir stunduðu vinnu á staðn- um í hópum, s.s. við steypu- vinnu, útivinnu, ræstingar, fata- viðgerðir, símavörslu, í þvottahúsi sem sá um allan þvott staðarins, eldhúsi, lista- smiðju o.fl. Að vinnudegi lokn- um fóru allir í bað. Allir sjúk- lingar fengu greitt fyrir vinnu sína. Þó flestir sjúklinganna stunduðu einhverja vinnu voru nokkrir óvinnufærir en þeir sóttu í staðinn föndur og handa- vinnu sem var mjög öflug á staðnum. Þá var sett upp aðstaða fyrir sjúkraþjálfun þar sem starfs- fólk átti einnig kost á að æfa líkamsæfingar. Á hverju ári var svo haldið þorrablót sem sjúk- lingar, aðstandendur og starfs- fólk tóku þátt í. Farið var reglulega í lengri og styttri ferðir með sjúklingana, kór sjúklinga var starfandi undir stjórn hjúkrunarfræðings sem söng m.a. á þorrablótinu og fleira mætti telja. Á ákveðnum tímapunkti var ákveðið að auka vægi endur- hæfingar sjúklinga á geðdeild Borgarspítalans. Það kom í hlut Óskars og deildarinnar sem hann stýrði að taka það verk- efni að sér. Þegar Hannes Pétursson geðlæknir tók við af Karli Strand fóru geðlæknar, sál- fræðingur og félagsráðgjafi að koma í hverri viku í Arnarholt til að hitta sjúklinga. Að auki komu vikulega sérfræðingar í lyflækningum sem fylgdust með líkamlegri heilsu sjúklinga og meðhöndluðu þá eftir þörfum. Fyrir milligöngu þeirra var greiður aðgangur að bráðadeild Borgarspítalans og öðrum deildum ef flytja þurfti sjúk- linga brátt. Vegna langra vakta starfs- fólks var tekið upp það verklag að gefa starfsfólki frían tíma um miðjan dag til að hvíla sig eða hreyfa sig. Þetta held ég að hafi verið nýjung á þeim tíma en núna þykir þetta sjálfsagt á vinnustöðum til heilsueflingar þar sem hægt er að koma því við Ég hef starfað á flestum geð- deildum landsins og hef því nokkuð góða yfirsýn yfir starf- semi þeirra. Engin þeirra er mér eins ofarlega í minni fyrir gæði hjúkrunar og deildin sem Óskar stýrði. Ég þakka Óskari fyrir sam- starfið og vinskapinn og bið góðan Guð að blessa fjölskyldu hans. Jón Snorrason Óskar Harry Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.