Morgunblaðið - 12.10.2021, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021
Undankeppni HM karla
J-RIÐILL:
Ísland – Liechtenstein ............................. 4:0
Norður-Makedónía – Þýskaland ............ 0:4
Rúmenía – Armenía ................................. 1:0
Staðan:
Þýskaland 8 7 0 1 23:3 21
Rúmenía 8 4 1 3 11:8 13
N-Makedónía 8 3 3 2 15:10 12
Armenía 8 3 3 2 8:11 12
Ísland 8 2 2 4 11:15 8
Liechtenstein 8 0 1 7 2:23 1
_ Ísland mætir Rúmeníu og Norður-Make-
dóníu á útivöllum í tveimur síðustu umferð-
unum í nóvember.
E-RIÐILL:
Hvíta-Rússland – Tékkland .................... 0:2
Eistland – Wales....................................... 0:1
Staðan:
Belgía 16, Tékkland 11, Wales 11, Eistland
4, Hvíta-Rússland 3.
G-RIÐILL:
Lettland – Tyrkland................................. 1:2
Holland – Gíbraltar .................................. 6:0
Noregur – Svartfjallaland ....................... 2:0
Staðan:
Holland 19, Noregur 17, Tyrkland 15,
Svartfjallaland 11, Lettland 5, Gíbraltar 0.
H-RIÐILL:
Kýpur – Malta........................................... 2:2
Króatía – Slóvakía .................................... 2:2
Slóvenía – Rússland ................................. 1:2
Staðan:
Rússland 19, Króatía 17, Slóvakía 10, Slóv-
enía 10, Malta 5, Kýpur 5.
Suður-Ameríka:
Kólumbía – Brasilía.................................. 0:0
Argentína – Úrúgvæ ................................ 3:0
Síle – Paragvæ.......................................... 2:0
Venesúela – Ekvador ............................... 2:1
Bólivía – Perú ........................................... 1:0
Staðan:
Brasilía 28, Argentína 22, Ekvador 16,
Úrúgvæ 16, Kólumbía 15, Paragvæ 12,
Perú 11, Síle 10, Bólivía , Venesúela 7.
Bandaríkin
Houston Dash – North Carolina ............ 4:1
- Andrea Rán Hauksdóttir var á vara-
mannabekk Houston allan tímann.
Katar
Deildabikarinn, B-riðill:
Al-Arabi – Al-Gharafa ............................ 3:3
- Aron Einar Gunnarsson lék seinni hálf-
leikinn með Al-Arabi sem er með þrjú stig
eftir þrjá leiki.
>;(//24)3;(
Olísdeild karla
Grótta – Fram....................................... 23:24
Haukar – Stjarnan ............................... 28:30
Staðan:
ÍBV 3 3 0 0 91:83 6
Haukar 4 2 1 1 114:105 5
Valur 2 2 0 0 52:40 4
Fram 3 2 0 1 80:75 4
KA 3 2 0 1 82:78 4
Stjarnan 2 2 0 0 66:63 4
FH 4 2 0 2 102:100 4
Afturelding 3 1 1 1 87:86 3
Selfoss 4 1 0 3 96:109 2
Grótta 3 0 0 3 66:71 0
HK 2 0 0 2 50:57 0
Víkingur 3 0 0 3 64:83 0
E(;R&:=/D
Hallgrímur Jónasson verður
áfram aðstoðarþjálfari knatt-
spyrnuliðs KA og leikur að
óbreyttu með liðinu að nýju á
næsta keppnistímabili. KA-menn
tilkynntu í gær að Hallgrímur
hefði skrifað undir nýjan samning
sem leikmaður og aðstoðarþjálf-
ari fyrir næsta tímabil. Hall-
grímur slasaðist illa á hné í bik-
arleik með KA gegn Leikni R. í
júní 2020 með þeim afleiðingum
að hann hefur ekki spilað með lið-
inu síðan en nú stefnir í að hann
verði aftur kominn inn á völlinn á
næsta keppnistímabili.
Hallgrímur
spilar á ný
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM U21 árs karla:
Víkingsvöllur: Ísland – Portúgal.............. 15
HANDKNATTLEIKKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Origo-höllin: Valur – HK .......................... 20
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – Fram U............ 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Stykkishólmur: Snæfell – Stjarnan ......... 18
Akranes: Aþena/UMFK – Þór Ak ........... 18
Í KVÖLD!
„Portúgal er mjög sterkt lið en í
leikjum sínum hingað til í undan-
keppninni hafa þeir fengið að vera
mjög mikið með boltann. Þeir hafa
fengið góðan tíma til að athafna sig
og okkar markmið er að reyna að
draga úr því. Við ætlum að sjá
hvernig leikurinn þróast en planið er
að liggja ekki í vörn allan leikinn.
Við ætlum okkur að mæta þeim
með okkar styrkleika að leiðarljósi
en það má samt ekki gleyma því að
þeir léku til úrslita í lokakeppninni
núna í ár þar sem þeir töpuðu naum-
lega fyrir Þýskalandi. Þeir eru vissu-
lega með nýtt lið núna en þetta verð-
ur klárlega hörkuleikur.“
Stór og breiður hópur
Elías Rafn Ólafsson, Mikael Egill
Ellertsson, Hákon Arnar Haralds-
son og Kristian Nökkvi Hlynsson
eru allir fjarverandi í þessum lands-
leikjaglugga en þeir léku stórt hlut-
verk með liðinu í síðasta glugga þar
sem Ísland vann 2:1-sigur gegn
Hvíta-Rússlandi í Brest, ásamt því
að gera 1:1-jafntefli gegn Grikklandi
á Würth-vellinum í Árbænum.
„Hópurinn er talsvert breyttur frá
síðasta landsleikjaglugga en að
sama skapi tel ég að það muni ekki
hafa of mikil áhrif á okkur. Við erum
með góðan, stóran og breiðan hóp og
það eru allir með sitt hlutverk á
hreinu, hvort sem þeir byrja inni á
gegn Portúgal eða á bekknum. Við
vitum allir hvað við þurfum að gera
til þess að ná árangri og við viljum
alltaf ná í góð úrslit á okkar heima-
velli.“
Kolbeinn er einn þeirra sem voru í
íslenska hópnum sem tók þátt í loka-
keppni EM 2021 í Slóveníu og Ung-
verjalandi í mars.
„Við erum allir sammála um að við
viljum komast á lokamótið í Georgíu
og Rúmeníu. Það eru nokkrir í hópn-
um sem hafa gert þetta áður og við
vitum því hversu stórt og gaman það
er að taka þátt í svona móti. Þetta er
fyrst og fremst leikur á okkar
heimavelli og við þurfum að reyna að
ná í eins mörg stig og við getum hér
heima. Þetta er enginn úrslitaleikur
en samt sem áður mjög mikilvægur
leikur þegar kemur að þeim mark-
miðum sem við höfum sett okkur
fyrir þessa undankeppni,“ sagði Kol-
beinn í samtali við Morgunblaðið.
Allir eru með
sitt hlutverk
á hreinu
- Ísland mætir Portúgal í Víkinni í dag
Ljósmynd/Szilvia Micheller
6 Kolbeinn Þórðarson er einn sex leikmanna í núverandi hóp U21-árs lands-
liðsins sem tóku þátt í lokakeppninni í Ungverjalandi og Slóveníu í sumar.
EM U21 ÁRS
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Við erum mjög spenntir fyrir þess-
um leik og mjög vel undirbúnir,“
sagði Kolbeinn Þórðarson, fyrirliði
U21-árs landsliðs karla í knatt-
spyrnu, í samtali við Morgunblaðið.
Ísland tekur á móti Portúgal í 4.
riðli undankeppni EM 2023 á Vík-
ingsvelli í Fossvogi í dag klukkan 15
en Ísland er með 4 stig í fjórða sæti
riðilsins en Portúgal er í þriðja sæt-
inu með 6 stig.
Bæði lið hafa leikið tvo leiki í
undankeppninni til þessa en liðið
sem hafnar í efsta sæti riðilsins fer
beint í lokakeppnina sem fer fram í
Georgíu og Rúmeníu, en liðið sem
hafnar í öðru sæti fer áfram í umspil.
„Við vitum hvað við viljum gera,
hvernig við viljum mæta þeim og við
erum tilbúnir að gera allt til þess að
vinna.
Stemningin í hópnum er frábær
og það er mikið sjálfstraust innan
liðsins. Það eru allir leikmenn heilir
heilsu, ferskir og tilbúnir í slaginn,“
sagði Kolbeinn.
Portúgal lék til úrslita í loka-
keppni EM 2021 sem fram fór í Slóv-
eníu og Ungverjalandi þar sem liðið
tapaði 0:1 fyrir Þýskalandi í úrslita-
leik í Ljubljana.
Argentínumenn stigu stórt skref í
átt að lokakeppni HM 2022 í knatt-
spyrnu í fyrrinótt með því að leggja
granna sína í Úrúgvæ að velli, 3:0, í
Buenos Aires. Lionel Messi, Ro-
drigo De Paul og Lautaro Martínez
skoruðu mörkin. Argentínumenn
slitu sig frá næstu liðum og eru
áfram taplausir í öðru sæti í Suður-
Ameríku þar sem allar tíu þjóð-
irnar leika tvöfalda umferð. Bras-
ilía tapaði sínum fyrstu stigum með
markalausu jafntefli í Kólumbíu.
Fjögur efstu liðin fara beint á HM
og það fimmta í umspil.
Argentína er
skrefi nær HM
AFP
Skoraði Lionel Messi fagnar 80.
landsliðsmarki sínu gegn Úrúgvæ.
Þýskaland varð í gærkvöld fyrsta
þjóðin til að tryggja sér sæti í loka-
keppni HM karla í knattspyrnu í
Katar með því að vinna sannfær-
andi útisigur á Norður-Makedóníu,
4:0, í Skopje. Timo Werner skoraði
tvö markanna, Kai Havertz og Jam-
al Musiala eitt hvor en þau komu öll
í seinni hálfleiknum.
Alexandru Mitrita tryggði Rúm-
enum 1:0-sigur á Armenum og þeir
komust þar með upp fyrir þá og í
annað sætið en gríðarlega hörð
barátta verður um umspilssætið í
lokaumferðunum.
Þýskaland fyrst
allra á HM
AFP
Tvenna Timo Werner fagnar seinna
marki sínu í Skopje í gærkvöld.
Stjörnumenn sýndu í gærkvöld að
þeir eru til alls líklegir á Íslandsmóti
karla í handknattleik þegar þeir
lögðu Hauka á Ásvöllum, 30:28.
Þetta var aðeins annar leikur
Garðabæjarliðsins í deildinni og sá
fyrsti í 24 daga en þeir hófu mótið
einnig á útisigri, gegn Aftureldingu.
Haukar töpuðu hinsvegar í fyrsta
skipti í fjórum leikjum á tímabilinu.
Stjarnan komst í 29:26 þegar
skammt var eftir, en Haukar minnk-
uðu muninn í eitt mark, 29:28, og
fengu tækifæri til að jafna eftir að
hafa tekið leikhlé. Allt kom fyrir
ekki og Starri Friðriksson skoraði
síðasta mark leiksins fyrir Garðbæ-
inga úr hraðaupphlaupi.
Hafþór Már Vignisson skoraði níu
mörk fyrir Stjörnuna og Björgvin
Þór Hólmgeirsson átta. Adam
Haukur Baumruk skoraði sex mörk
fyrir Hauka og Darri Aronsson
fimm. Aron Rafn Eðvarðsson varði
tólf skot.
Á Seltjarnarnesi vann Fram
nauman sigur á Gróttu, 24:23, eftir
gríðarlega spennu á lokakafla leiks-
ins. Ólafur Jóhann Magnússon skor-
aði 24. mark Fram þegar enn voru
þrjár mínútur eftir af leiknum og
það reyndist vera sigurmarkið.
Grótta er þar með enn án stiga
eftir þrjá tvísýna leiki í byrjun móts.
Vilhelm Poulsen skoraði sex mörk
fyrir Fram og Breki Dagsson fimm.
Valtýr Már Hákonarson varði átta
skot í markinu. Igor Mrsulja skoraði
sex mörk fyrir Gróttu og Ísak Arnar
Kolbeinsson varði níu skot.
Morgunblaðið/Eggert
Níu Hafþór Már Vignisson var markahæstur hjá Stjörnunni gegn Haukum
þegar Garðbæingar sóttu óvænt tvö sig á Ásvelli í Hafnarfirði.
Stjörnumenn
skelltu Haukum
- Fram vann spennuleik á Nesinu