Morgunblaðið - 12.10.2021, Side 28

Morgunblaðið - 12.10.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 Fransk-gríska kvikmyndin Moon, 66 Questions eftir Jacqueline Lentzou hlaut Gyllta lundann, aðalverðlaun RIFF, í ár. Alls voru veitt sex verð- laun. Úr keppnisflokknum Vitrunum hlutu einnig sérstaka viðurkenningu dómnefndar Vildmænd eftir Thomas Daneskov og Clara Sola eftir Nat- halie Álvarez Mesén. Clara Sola hlaut einnig útnefningu Dómnefndar unga fólksins. Verðlaun í dagskrár- flokknum Önnur framtíð hlaut Zin- der eftir Aicha Macky. Flokkurinn Önnur framtíð saman stendur af heimildarmyndum sem fjalla á einn eða annan hátt um umhverfis- og/ eða mannréttindamál. Eftirsjón eftir Björn Rúnarsson var valin besta íslenska nemamynd- in og Síðasti séns eftir Ástu Sól Kristjánsdóttur hlaut sérstaka við- urkenningu í þeim flokki. Frie Mænd eftir Óskar Kristin Vignisson hlaut verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina. Verðlaun sem besta mynd í flokki alþjóðlegra stuttmynda hluta Stran- gers eftir Noru Longatti en sérstaka viðurkenningu hlaut State of Ele- vation eftir Isabelle Prim. Verðlaun Gullna eggsins, stuttmynda þátttak- enda kvikmyndasmiðju RIFF „Tal- ent Lab“, hlaut Drowning Goat eftir Sebastian Johansson Micci. Lundinn Rafn Sigurðsson, ræðismaður Grikklands, tók við Gullna lund- anum fyrir hönd Jacqueline Lentzou úr hendi leikkonunnar Trine Dyrholm. Moon, 66 Questions hreppti lundann Fimm tilnefningar til Hönnunar- verðlauna Íslands hafa verið kynnt- ar, verkefni sem valnefnd telur framúrskarandi á sviði hönnunar og arkitektúrs, en verðlaunin verða afhent 29. október. „MAGNEA – made in Reykja- vík“, fatalína Magneu Einarsdóttur, er tilnefnd og í umsögn segir: „Fág- að litaval og listræn framsetning undirstrika nýstárlega möguleika íslensku ullarinnar…“ Ásýnd nýrrar plötu Hjaltalín er tilnefnd og er eftir grafíska hönn- uðinn Sigurð Oddsson, myndhöggv- arann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann. Um verkið segir: „Hér er hljóðheimur sköp- unar hlutgerður sem úlfabarn í formi höggmyndar úr basalti sem er jafnframt teiknuð og vistuð í þrí- víðu stafrænu formi …“ Söluhús við Ægisgarð eftir Yrki arkitekta hlýtur tilnefningu og um það segir m.a.: „Að innan er burð- arvirki húsanna sýnilegt, sem skap- ar hráa en um leið fíngerða stemn- ingu…“ Bókverkið Konur sem kjósa eftir Snæfríði Þorsteins, Hildigunni Gunnarsdóttur og Agnar Frey Stef- ánsson hlýtur tilnefningu en „nálg- un við viðfangsefnið einkennist af virðingu og verkinu er sköpuð við- eigandi og eftirtektarverð um- gjörð“. Þá er tilnefnt hönnunarverkefnið Þykjó eftir Sigríði Sunnu Reynis- dóttur, Ninnu Þórarinsdóttur, Sig- urbjörgu Stefánsdóttir og Erlu Ólafsdóttur: „Vel heppnuð sam- þætting rýmis, hönnunar og skynj- unar og þverfaglegt samstarf milli skapandi fólks og sérfræðinga.“ Af heimasíðu Yrki arkitekta Tilnefnd Söluhús eftir Yrki arkitekta við Ægisgarð eru meðal tilnefndra verkefna. Fimm verkefni keppa um Hönn- unarverðlaunin Á útgáfulista Veraldar eru glæpa- sögur áberandi að vanda, en einnig bækur með þjóðlegum fróðleik og frásögnum og ein ævisaga. Yrsa Sigurðardóttir sendir frá sér spennusögu sem hefst þannig að á köldu vetrarsíðdegi fer nágranni að huga að fjölskyldu í Hvalfjarðarsveit, sem ekki hefur svarað skilaboðum. Nágranninn sér ummerki um mannaferðir en enginn svarar þegar hann drepur á dyr. Eftir að hafa litið inn í húsið hrökklast hann aftur út og kallar til lögreglu. Í reyfara Ragnars Jónassonar, Úti, segir frá því er fjórir vinir leita skjóls í litlum veiðikofa uppi á heiði óveðursnótt eina í nóvember. Margt er þó hættulegra en stórhríð um vet- ur og ekki munu allir komast lífs af. Nýverið kom út skáldsagan Högg- ið eftir Unni Lilju Aradóttur sem hreppti glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir bókina í haust. Ung kona vaknar á sjúkrahúsi með höfuðáverka og hefur auk þess misst minnið. Hún þekkir hvorki tilveru sína né sjálfa sig en fljótlega fær hún á tilfinninguna að eitthvað sé ekki eins og það eigi að vera. Eva Björg Ægisdóttir sendir líka frá sér spennusögu, bókina Þú sérð mig ekki sem gerist að mestu á Snæ- fellsnesi. Sagan segir frá Snæbergs- fjölskyldunni, efnamikilli og voldugri fjölskyldu. Allt virðist leika í lyndi, en þegar stórfjölskyldan sameinast í tilefni af afmæli ættföðurins koma brestir í ljós. Kamilla Einarsdóttir vakti mikla athygli fyrir sína fyrstu skáldsögu, Kópavogskrónikuna, sem naut einn- ig hylli sem leikverk. Skáldsagan Til- finningar eru fyrir aumingja tekur upp þráðinn í sögu Höllu þar sem frá var horfið. Til að bregðast við yfir- vofandi miðaldrakrísu, sem kemur ekki síst fram í eilífu tali um dren og skólplagnir, fær Halla vini sína sem öll eiga sér skrautlega fortíð til að stofna með sér metalband. Samhliða sérkennilegum hljómsveitaræfingum geisa stormar í einkalífi Höllu. Réttindabréf í byggingu skýja- borga heitir ný ljóðabók Eyþórs Árnasonar. Líkt og í fyrri bókum Ey- þórs er sveitin yfir og allt um kring, en inn á milli bregður hann sér á allt aðrar slóðir. Í ljóðabókinni PTSD glímir Ragn- heiður Guðmundsdóttir við erfiðar tilfinningar og áföll sem brutust út hjá Ragnheiði er hún greindist með krabbamein. Hún varð að horfast í augu við þungbæra reynslu og takast á við hana og fór að skrifa ljóð til að skilja betur erfiðar hugsanir og til- finningar. Ásdís Halla Bragadóttir hefur vakið mikla athygli á síðustu árum fyrir bækur þar sem hún rekur ættarsögu sína og grefur upp ýmis- legt dulið sem hún hefur komist á snoðir um. Í bókinni Læknirinn í Englaverksmiðjunni rekur hún sögu ættmennis síns, Moritz Halldórs- sonar, sem enginn vildi ræða um, saga hans var hjúpuð dauðaþögn. Kliður hneykslisradda fór um sam- félagið á Íslandi og í Danmörku þeg- ar Moritz Halldórsson læknir var handtekinn og færður í gæslu- varðhald í Kaupmannahöfn undir lok nítjándu aldar en hann var bendl- aður við ein mestu fjöldamorð í sögu Danmerkur. Áfallið var mikið fyrir fjölskylduna, sem tilheyrði elítunni í Reykjavík. Á undanförnum árum hafa þeir Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stef- ánsson kynnt perlur Íslands í bóka- flokknum Hjarta Íslands. Fyrsta bindið fjallaði um perlur hálendisins, þá var farið um Vesturland, Vestfirði og norður til Eyjafjarðar, en nú ljúka þeir ferðalagi sínu með bókinni Hjarta Íslands: Frá Hrísey til Fagradalsfjalls og segja frá perlum á Norðausturlandi, Austfjörðum og Suðurlandi, allt til jarðeldanna við Fagradalsfjall. Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Steinar J. Lúðvíksson er manna fróðastur um sjóslys við Ísland og ritröðin Þrautgóðir á raunastund, sem komið hefur út í tuttugu og einu bindi, naut mikilla vinsælda á sjö- unda til níunda áratug síðustu aldar. Í bókinni Skipbrot á svörtum sönd- um – Örlög og mannraunir á suður- ströndinni segir frá söndunum miklu á suðurströndinni sem hafa orðið grafreitur margra skipa í aldanna rás og fjallað er um söguleg skipbrot við suðurströndina, frá níunda ára- tug síðustu aldar og allt aftur til mannskæðasta sjóslyss Íslandssög- unnar, þegar hollenska skipið Het Wapen van Amsterdam, sem síðar var kallað Gullskipið, strandaði. Dúi Landmark er ljósmyndari, úti- vistarmaður, náttúruunnandi og skotveiðimaður. Hann hefur gengið til rjúpna frá því hann var unglingur og aflað sér mikillar reynslu og þekk- ingar sem hann miðlar í bókinni Gengið til rjúpna: Allt um rjúpna- veiði fyrir byrjendur og lengra komna. Í bókinni fjallar hann um rjúpnaveiðar frá mörgum sjónar- hornum, fer yfir það hvernig rjúpna- skyttur þurfa að útbúa sig áður en haldið er til veiða, hvernig best er að haga sér á veiðislóð og greinir frá ýmsum þáttum í líffræði rjúpunnar. Einnig eru í bókinni leiðbeiningar um það hvernig fara á með villi- bráðina þegar heim er komið. Guðni Ágústsson er annálaður sagnamaður og vinsæll tækifæris- ræðumaður þjóðarinnar. Í bókinni Guðni á ferð og flugi segir Guðjón Ragnar Jónasson frá ferðalagi með Guðna um hinar dreifðu byggðir Ís- lands og heimsóknum til fólks af öllu tagi. Sveinn Víkingur safnaði á sínum tíma frásögnum íslenskra ljósmæðra víða að og frá ýmsum tímum og gaf út í bókunum Íslenskar ljósmæður. Æviþættir og endurminningar. Í bókinni Milli vonar og ótta – Örlaga- sögur íslenskra ljósmæðra er úrval úr sagnabálki Sveins. Flestar sög- urnar eru frá 19. öld og fyrri hluta þeirrar 20. og víðsvegar að af land- inu. Veröld gefur út eina barnabók að þessu sinni, bókina Saga finnur fjár- sjóð (og bætir heiminn í leiðinni) eftir Sirrý, Sigríði Arnardóttur. Bókin segir frá Sögu sem nýflutt er í borg- ina og leiðist. Afi hennar stingur upp á því að hún fari út og reyni að kynn- ast öðrum börnum og þegar út er komið hittir Saga þrjá stráka sem allir eru eins, og saman ákveða þau að gera heiminn betri. Fyrir stuttu kom svo út bókin Völ- undarhús tækifæranna eftir þær Ár- elíu Eydísi Guðmundsóttur og Her- dísi Pálu Pálsdóttur. Glæpasögur í aðalhlutverki - Veröld hallar sér að glæpum með þjóðlegan fróðleik í bland - Ásdís Halla Bragadóttir skrifar um íslenskan lækni sem bendlaður var við fjöldamorð Eva Björg Ægisdóttir Yrsa Sigurðardóttir Sigríður Arn- ardóttir, Sirrý Unnur Lilja Aradóttir Dúi Landmark Ásdís Halla Bragadóttir Kamilla Einarsdóttir Guðni Ágústsson S um sár gróa aldrei. Fólk tekst misjafnlega á við vandann, sumir virðast koma tiltölulega óskaddaðir frá ósköpunum, aðrir ekki. Gróa Finnsdóttir ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrstu bók sinni og tekst á við hrottalega mis- notkun og missi í bland við ást og vináttu í átaka- sögunni Hylnum. Hún fangar vel andrúmsloftið sem ríkir þar sem kynferðislegri misnotkun er beitt, en skáld- sagan gerist á Ís- landi og minnir um margt á sanna atburði, sem hulunni hefur verið svipt af á nýliðnum árum. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, segir máltækið. Sjálf- sagt er ekkert verra en að horfa á ungt barn sitt deyja og ekki er hægt að ímynda sér sársaukann sem fylgir því að vera sviptur barnæskunni. Gróa nálgast vandamálið með kær- leika að leiðarljósi, lýsir áföllunum, viðbjóðnum, og greinir frá hvernig reynt er að raða brotunum saman. Sjómannssonurinn Snorri er sögumaður. Hann lýsir lífi sínu, gleði og sorgum, og þar sem hann er skyggn sér hann ýmislegt sem aðrir sjá ekki. Skyggnigáfan nýtist honum vel í annars erfiðum að- stæðum, en hann getur líka hallað sér að góðum vinum í raunheimum, Stefáni og Kolfinnu. Þrenningin býður af sér góðan þokka en hún á líka við sín vandamál að stríða. Hún á sinn djöful að draga, eins og aðrir, ber harm sinn í hljóði, en vináttan opnar allar dyr og margt breytist eftir að þau hafa leyst frá skjóðunni. Systkinin Kári og Sólrún hafa sögu að segja, sögu, sem enginn á að þurfa að upplifa. Ekki er hægt að komast óskemmdur úr því umhverfi, sem þau alast upp í, en þau reyna að minnka skaðann, hvort með sínum hætti. Lýsing þeirrar þrautagöngu er erfið lesning. Hylurinn er örlagarík spennu- og glæpasaga þar sem andstæður tak- ast á; hið góða gegn hinu illa, ást og missir, fortíðin og framtíðin. Um- fjöllunarefnið er í deiglunni, frá- sögnin er skýr og uppbyggingin leið- ir lesandann jafnt og þétt í gegnum umhverfi, sem enginn heilvita maður vill að sé til. Morgunblaðið/Unnur Karen Höfundurinn Hylurinn eftir Gróu Finnsdóttur er „örlagarík spennu- og glæpasaga þar sem andstæður takast á“, skrifar gagnrýnandinn hrifinn. Misnotkun og missir Glæpasaga Hylurinn bbbbn Eftir Gróu Finnsdóttur. Sæmundur 2021. Kilja. 343 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.