Morgunblaðið - 12.10.2021, Side 29

Morgunblaðið - 12.10.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI T H E T E L E G R A P H S . F. C H R O N I C L E B B C T I M E O U T 90% F R Á L E I K S T J Ó R A T H E R I T U A L R E B E C C A H A L L N I G H T H O U S E T H E T O D A R K A N D D A N G E R O U S P L A C E S” “A F I L M T H A T A L L O W S T H E M I N D T O G O S I L V E R S C R E E N R I O T 86% O R I G I N A L C I N T H E A U ST I N C H R O N I C L E SÍÐASTA BOND MYNDIN MEÐ DANIEL CRAIG ÞESSA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ Í BÍÓ 84% Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Markmið þessa hóps er að færa óper- una upp á afslappaðri nótum,“ segir Jón Svavar Jósefsson sem fer með hlutverk herforingjans Belcore í gam- anóperunni Ástardrykknum eftir ítalska tónskáldið Donizetti sem sviðs- listahópurinn Óður frumsýnir í Leik- húskjallara Þjóðleikhússins á fimmtu- dag í leikstjórn Tómasar Helga Baldurssonar. Bendir Jón Svavar á að stemningin í Leikhúskjallaranum, þar sem áhorfendur sitja við borð, henti gamanóperunni einstaklega vel. Upp- færslan er opnunarsýning Óperudaga sem standa næsta mánuðinn. Fá þetta bara beint í æð „Ástardrykkurinn segir frá hinum óframfærna Nemorino sem er ást- fanginn af hinni ríku og fögru Adinu. Nemorino er fátækur og Adinu ekki samboðinn en herforinginn Belcore ágirnist hana líka. Fyrir tilviljun hittir Nemorino töfralækninn eða snáka- olíusölumanninn Dulcamara og kaupir af honum svonefndan ástardrykk, sem er í reynd bara venjulegt rauðvín, sem á að virka eftir sólarhring. Adinu finnst hann hegða sér svo undarlega í sinn garð næst þegar þau hittast að hún ákveður að giftast Belcore í skyndi. Nemorino vill fyrir alla muni koma í veg fyrir brúðkaupið og leitar aftur til Dulcamara til að reyna að fá ástardrykk sem virkar strax. Hann hefur ekki efni á drykknum og grípur þá til þess ráðs að skrá sig í herinn og nota fyrirframgreiðslu þaðan til að kaupa drykkinn. Þegar Adina kemst að þessu verður hún hrærð og áttar sig á hve heit og sönn ást hans í raun og veru er. Hún greiðir fyrir lausn hans undan herskyldu og allt fer vel að lokum,“ segir Jón Svavar og tekur fram að í miðju verkinu falli ríkur og aldraður frændi Nemorinos frá og arf- leiði hann að auði sínum. Þórhallur Auður Helgason fer með hlutverk Nemorinos, Sólveig Sigurð- ardóttir er Adina og Ragnar Pétur Jó- hannsson er Dulcamara. Um píanó- leik sér Sigurður Helgi Oddsson og aðstoðarmaður leikstjóra er Níels Thibaud Girerd. Að sögn Jóns Svavars valdi hóp- urinn að syngja óperuna á íslensku vegna þess hversu mikilvægt þeim finnst að textinn komist til skila. „Það er mjög gaman að horfa á óperur á erlendu tungumáli og heyra feg- urðina í þeim blæ sem það tungumál býður upp á, en það gefur ekki sama skilning á hverju einasta orði sem verið er að túlka. Okkur finnst mjög mikilvægt að koma stemningu verks- ins eins vel til skila og hægt er. Í stað þess að áhorfendur hlusti á óperuna og lesi á skjá um hvað er verið að syngja, þá fá okkar gestir þetta bara beint í æð. Fyrir vikið verður skiln- ingurinn annar og innlifunin inn í verkið meiri,“ segir Jón Svavar og bendir á að svo skemmtilega vilji til að um þessar mundir eru um fimmtíu ár síðan Ástardrykkurinn var síðast fluttur hérlendis í þýðingu Guð- mundar Sigurðssonar frá 1967 sem Sólveig hefur nútímavætt. Næstu sýningar á Ástardrykknum í Leikhúskjallaranum verða föstu- daginn 15. október og fimmtudaginn 21. október. „En þessi sýning er hugsuð þannig að hún getur auðveld- lega verið farandsýning. Við gætum þannig með mjög litlum sem engum tilkostnaði farið með hana til dæmis norður og sýnt á kaffihúsi á Akureyri eða í Mývatnssveit.“ Plakat um gott skap hafði áhrif Jón Svavar segir nánar frá óperu- uppfærslunni í Dagmálum Morgun- blaðsins í dag sem aðgengileg eru áskrifendum á mbl.is. Þar ræðir hann einnig þau önnur verkefni sem hann er að fást við um þessar mundir, en hann leikur í söngleiknum Hlið við hlið sem sýndur er í Gamla bíói og byggist á tónlist eftir Friðrik Dór, syngur töluvert í jarðarförum, stjórn- ar þremur kórum og er senn að byrja að æfa Ávaxtakörfuna sem frumsýnd verður í Hörpu á nýju ári þar sem hann fer með hlutverk óþroskaðs banana. Einnig kemur dansinn tölu- vert við sögu í viðtalinu. Jón Svavar rifjar upp hvernig plakat frá Lýð- heilsustofnun með leiðbeiningum um það hvernig maður eigi að vera í góðu skapi leiddi hann á sínum tíma út í söngnám í Vínarborg og hvernig hann sá fyrir sér á námsárunum með því að járna íslenska hesta í Austur- ríki. Sviðslistahópurinn Óður Jón Svavar Jósefsson, Þórhallur Auður Helgason, Sólveig Sigurðardóttir, Ragnar Pétur Jóhannsson og leikstjórinn Tómas Helgi Baldursson setja upp gamanóperuna Ástardrykkinn eftir Donizetti. Ópera á afslappaðri nótum - Sviðslistahópurinn Óður frumsýnir Ástardrykkinn í Leikhúskjallaranum - Sýningin „hugsuð þannig að hún getur auðveldlega verið farandsýning“ Ljósmynd/Hallur Már Hallsson Fjölhæfur Jón Svavar Jósefsson. Söngvari í aukahlutverki lést af slysförum á sviði Bolshoi-leikhúss- ins kunna í Moskvu meðan á flutn- ingi óperunnar Sadko eftir Rimsky- Korsakov stóð á laugardaginn var. Samkvæmt rússneskum frétta- miðlum varð maðurinn, sem var 37 ára gamall, undir hluta af sviðs- mynd sem féll niður þegar verið var að færa hana til á sviðinu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem banaslys verður á sviði Bolshoi- leikhússins. Fyrir átta árum lést fiðluleikari í hljómsveit hússins þegar hann féll niður í hljóm- sveitargryfjuna. Morgunblaðið/Einar Falur Frægt Í Bolshoi-leikhúsinu hefur fjöldi rómaðra sýninga verið færður á svið. Banaslys á sviði Bolshoi í Moskvu Sýningar hófust um helgina í bandarískum kvikmynda- húsum á íslensku kvikmyndinni Dýrið. Kvik- myndin, sem nefnist Lamb á ensku, var sýnd í 583 sölum út um landið og voru um helgina seldir aðgöngumiðar að henni fyrir rétt rúmlega eina millj- ón dala, yfir 130 milljónir kr. Var hún sjöunda vinsælasta myndin í bíó vestra um helgina. Valdimar Jóhannsson leikstýrir Dýrinu en í aðalhlutverkum eru Noomi Rapace, Hilmir Snær Guðnason og Björn Hlynur Har- aldsson. Bestu aðsóknina um helgina í Bandaríkjunum fékk nýja Bond-kvikmyndin en hún var sýnd í um 4.400 sölum og seldust miðar fyrir rúmar 56 milljónir dala. Miðar seldir fyrir milljón dali á Dýrið Leikkonan Noomi Rapace í Dýrinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.