Morgunblaðið - 12.10.2021, Qupperneq 32
Í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði var á laugardaginn
opnuð sýningin Hringfarar. Listamennirnir sem sýna
eru margreyndir og þekktir, þau Guðrún Hrönn Ragn-
arsdóttir, Guðjón Ketilsson, Elsa Dóróthea Gísladóttir
og Sólveig Aðalsteinsdóttir. Í verkunum á sýningunni
vinna þau öll út frá náttúrulegum ferlum, efnivið og
samhengi. Hver og einn hefur sína persónulegu nálgun
en sameiginlega mengið er efniviður úr nærumhverf-
inu, sem unnið er með á eigin forsendum.
Guðrún Hrönn, Elsa Dóróthea, Sól-
veig og Guðjón sýna í Svavarssafni
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khkmbl.is
„Ó já, það er ekkert smá skemmti-
legt að fá svona flotta dóma, bæði
uppsetningin sem slík og líka ég fyrir
mitt hlutverk,“ segir Elísabet Ein-
arsdóttir sópransöngkona sem var
sannarlega í skýjunum þegar blaða-
maður náði tali af henni, en hún
syngur eitt af aðalhlutverkunum í
óperunni Draumi á Jónsmessunótt,
sem frumsýnd
var nú í október í
Óperunni í
Malmö í Svíþjóð.
Elísabet syngur
hlutverk álfa-
drottningarinnar
Títaníu og gagn-
rýnendur í nor-
rænum fjöl-
miðlum hafa
hlaðið lofi bæði á
sýninguna og
frammistöðu Elísabetar.
„Þessi ópera hefur hingað til ein-
ungis verið flutt í Glyndebourne í
Bretlandi, þaðan sem höfundur tón-
listarinnar er, Benjamin Britten.
Hann samdi þessa tónlist meðal ann-
ars fyrir eiginmann sinn á sínum
tíma, fyrir 40 árum, sem söng þá eitt
af aðalhlutverkunum,“ segir Elísabet
og bætir við að í þessari uppfærslu
hafi heilmikið verið skorið niður af
upprunalegum texta Shakespeares.
„Ævintýrið er það sama og við
syngjum textann orðrétt eins og
hann er í handriti Shakespeares.
Þetta er ótrúlega flott tónlist sem
hljómar mjög nútímaleg og það er
auðvelt að taka hana inn. Í álf-
heimum, þar sem persóna mín, álfa-
drottningin Títanía, býr, er allt ann-
ars konar tónlist en í öðrum atriðum.
Hjá mér er tónlistin draumkennd og
svífandi, mjög fallegt,“ segir Elísa-
bet og bætir við að þessi uppfærsla
sé alveg mögnuð.
„Það var frábært að vinna með
leikstjóranum Lynne Hockney að
þessari uppsetningu sem er eftir
Peter Hall, en Lynne er líka mjög
þekkt fyrir sína kóreógrafíu. Hún sá
til dæmis um kóreógrafíuna í Tit-
anic-kvikmyndinni.“ Elísabet segir
að sumar senur með álfadrottning-
unni séu mjög fyndnar.
„Álfadrottningin mín verður ást-
fangin af asna, eins og allir þekkja úr
þessu leikriti Shakespeares. Ástæð-
an er sú að ástarblómasafa er hellt í
augu hennar, sem hefur þau áhrif að
ég verð yfir mig ástfangin af þeim
fyrsta sem ég sé þegar ég vakna,
sem er asni. Mér finnst rosalega
gaman að syngja þetta atriði.“
Elísabet er það sem kallað er
kóloratúrsópran, eða lýrískur lita-
sópran, sem getur sungið allra hæstu
tónana og hratt.
„Títanía og álfakonungurinn
syngja bæði hátt og hratt og hann
syngur í falsettu, eða kontratenór.
Við erum bæði yfirnáttúruleg og
þess vegna syngjum við með þessum
sérstaka hætti. Raddir okkar eru
sérstakar en það var einmitt hugs-
unin hjá Britt að þær ættu að vera
það þegar hann samdi þessa tónlist.“
Einn gagnrýnandinn talaði um að
hann hefði grátið gleðitárum á sýn-
ingunni.
„Þetta er líka gleðin að fá aftur að
njóta sviðslista, fólk er bæði glatt og
þakklátt að fá að njóta þessarar
sprellfjörugu óperu. Við öll sem
vinnum í óperunni höfum líka saknað
þess mikið að fá að syngja á sviði
vegna covid-ástands undanfarið eitt
og hálft ár. Við erum öll svo ótrúlega
glöð og það skilar sér eflaust í þess-
ari uppfærslu. Að fá svo þessa rosa-
lega jákvæðu dóma hefur verið al-
gerlega æðislegt og aukið enn á gleði
okkar,“ segir Elísabet, sem hefur
sungið við óperuna í Malmö frá því
2018 þegar hún byrjaði þar í starfs-
námi.
„Þá vann ég í því sem kallað er
óperustúdíó í tvö ár og söng ýmis
minni hlutverk í alls konar óperum.
Á sama tíma var ég líka í námi í óper-
unni. Ég hef verið að vinna hjá þeim
eftir að starfsnáminu lauk, ég söng
til dæmis í Cosi fan Tutte síðastliðið
haust,“ segir Elísabet og bætir við að
hún hafi komið fram og sungið í fjöl-
mörgum viðburðum þar fyrir utan, á
tónleikum og sýningum, enda er hún
sjálfstætt starfandi.
Elísabet er alin upp í Svíþjóð en
hún bjó í fjögur ár á Íslandi þegar
hún var í söngnáminu í Listaháskól-
anum. „Ég fer alltaf heim til Íslands
á sumrin til að heimsækja mömmu
og pabba og fólkið mitt.“
xxx
Sprell Elísabet sem álfadrottningin Títanía sem verður ástfangin af asna.
Fær glimrandi dóma
fyrir frammistöðuna
- Elísabet Einarsdóttir syngur Títaníu í óperunni í Malmö
Elísabet
Einarsdóttir
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 285. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Við vitum allir hvað við þurfum að gera til þess að ná
árangri og við viljum alltaf ná í góð úrslit á okkar
heimavelli,“ segir Kolbeinn Þórðarson, fyrirliði 21-árs
landsliðs Íslands í knattspyrnu, sem mætir öflugu liði
Portúgals á Víkingsvellinum í dag klukkan 15. Íslenska
liðið er með fjögur stig eftir tvo leiki og Portúgal er
með sex stig. »26
Viljum ná í góð úrslit á heimavelli
ÍÞRÓTTIR MENNING