Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 16
Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is 16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Pappírsskjölin sem berast Þjóð- skjalasafni Íslands eru ekki aðeins frá opinberum stofnunum. Safnið tekur að jafnaði við um 70 einka- skjalasöfnum á ári. Þau eru þó mjög misjöfn að umfangi, allt frá einu blaði upp í 450 hillumetra. Þessi skjöl eru ýmist frá einstaklingum, fyrirtækjum eða félögum. Umfangsmesta safnið af þessu tagi sem borist hefur er frá Ice- landair og kom það í fyrra. Um er að ræða skjöl um starfsemi og rekstur flugfélagsins og fyrirrenn- ara þess, Loftleiða og Flugfélags Ís- lands. Mörg matarholan er þar fyrir áhugamenn um íslenska flugsögu. En því miður er skjalasafnið ófrá- gengið og óskráð og var afhent þannig á 22 vörubrettum. Vinna við frágang og skráningu bíður í öruggri geymslu þar til fjármagn fæst til þess. Einkaskjöl eru reyndar ekki að- eins varðveitt í Þjóðskjalasafni. Í héraðsskjalasöfnunum á lands- byggðinni eru mörg slík söfn og ennfremur í Borgarskjalasafni í Reykjavík og á Landsbókasafninu. Þeir sem eru að leita heimilda þurfa því víða að koma við. Bót er í máli að á netinu er samskrá um slík skjöl á vefsíðunni einkaskjalasafn.is, en hún er þó ekki tæmandi. Vilja skjöl Eimskips Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni, segir að safnið hafi á sínum tíma óskað eftir að fá af- hent skjöl Eimskipafélags Íslands, eins elsta fyrirtækis landsins. Skjöl- in voru þá varðveitt að hluta hjá Straumi fjárfestingarbanka og að hluta hjá Eimskip. „Því miður varð ekki af afhend- ingu skjalanna þrátt fyrir fundi og bréfaskipti. Þjóðskjalasafn hefur enn mikinn áhuga á að fá skjöl Eim- skipafélagsins til varðveislu enda um mikilvægt fyrirtæki í íslenskri sögu að ræða,“ segir Njörður. Ein safndeildin innan Þjóð- skjalasafnins er svonefnt hag- sögusafn. Það er samsafn skjala- safna aflagðra verslana, fyrirtækja og einstaklinga af ólíkum toga, allt frá lokum 18. aldar og fram yfir miðbik 20. aldar. Þetta safn og hug- myndafræðin á bak við það er arfur frá gamalli tíð þegar menn vildu koma upp sérstöku íslensku skjala- safni um atvinnulífið í landinu, að danskri fyrirmynd. Þegar ráðist var í sérstakt átak við frágang og skrán- ingu safnsins fyrir þremur árum voru undir þessum hatti þúsundir skjalabóka í stöflum á 12 vörubrett- um. Þar af voru rúmlega þúsund ómerktar skjalabækur og ýmis önn- ur skjöl með óvissan uppruna. Eftir skráninguna eru skjalasöfnin í hag- sögusafninu 336 talsins. Þrotabúin enda í safninu Annað safn áhugaverðra einka- skjala er skjöl þrotabúa en lögum samkvæmt skal skila þeim til Þjóð- skjalasafns. Að sögn Njarðar var fyrir nokkrum árum gengið í frá- gang á þessum skjölum. Var farið í gegnum vel á þriðja þúsund hillu- metra af pappírum sem voru á 291 vörubretti. Voru rúmlega 400 hillu- metrar teknir til varðveislu úr um eitt þúsund þrotabúum. Grisjaðir, þ.e. hent, voru um 2.300 hillumetrar af bókhaldsskjölum. Njörður segir að í þrotabúunum sé að finna mörg merkileg skjöl, t.d. frá Álafossi, Hafskipum, Arnarflugi, hljómsveitinni Utangarðsmönnum og kaupfélögum víða um landið, svo nokkuð sé nefnt. Pólitíkina líka að finna Nokkrir stjórnmálaflokkar hafa afhent Þjóðskjalasafni gögn sín. Elsti starfandi flokkurinn, Framsóknarflokkurinn, afhenti árið 2018 um fjóra hillumetra af skjölum sem spanna tímabilið frá 1922 til 2017. Í safninu eru m.a. fund- argerðir miðstjórnar og þingflokks. Áður höfðu skjöl Alþýðuflokksins borist. Borgarahreyfingin og Hreyfingin, sem urðu til upp úr hruninu 2008, hafa einnig afhent skjöl sín, þar á meðal fundargerðir. Sjálfstæðis- flokkurinn á stórt skjalasafn sem spannar um hundrað ára tímabil (frá stofnun Íhaldsflokksins 1924) en þau eru varðveitt í höfuðstöðvum flokksins, Valhöll. Mun færri skjöl frá konum Talsvert hefur einnig borist til Þjóðskjalasafns af skjölum fyrrver- andi stjórnmálamanna. Karlar í þeim hópi eru langtum duglegri en konur að koma skjölum sínum til varðveislu. Raunar gildir það al- mennt að mun færri einkaskjöl ber- ast frá konum en körlum. Hætt er við því að það brengli söguna, sér- staklega á tímabilinu eftir að konur fóru að láta að sér kveða í opinber- um málum. Meðal undantekninga frá þessu eru bréfasöfn kvenskör- unga eins og Bríetar Bjarnhéð- insdóttur og Guðrúnar Lárusdóttur, en þau eru varðveitt á Lands- bókasafni. „Það er mikilvægt að safnkostur skjalasafna endurspegli samfélagið sem best á hverjum tíma og því er nauðsynlegt að fá inn meira af skjöl- um kvenna til varðveislu,“ segir Njörður Sigurðsson. Hann rifjar upp að árið 2015, í tilefni af 100 ára kosningarétti kvenna, hafi verið gert átak í að safna skjölum kvenna í samstarfi við héraðsskjalasöfn og Landsbókasafnið. En betur má ef duga skal. Skjöl stjórnmálaforingja Meðal skjalasafna stjórnmála- karla eru skjöl Geirs Hallgríms- sonar, Sigurðar Bjarnasonar frá Vigur, Sverris Hermannssonar og alþýðuflokksmannanna Gylfa Þ. Gíslasonar, Jóns Sigurðssonar, Jóns Baldvins Hannibalssonar, Sighvats Björgvinssonar, Kjartans Jóhanns- sonar og Finnboga Rúts Valdimars- sonar. Svavar Gestsson, Alþýðu- bandalaginu, afhenti einnig skjöl sín. Skjöl Ólafs Thors og Bjarna Benediktssonar eldri eru í Borgar- skjalasafni og eru sérstakar vefsíð- ur á netinu helgaðar þeim skjölum og æviferli Ólafs og Bjarna. Er til mikillar fyrirmyndar hvernig staðið hefur verið að birtingu þessara gagna. Mun færri skjöl koma frá konum - Mikill fjöldi skjala einstaklinga og fyrirtækja varðveittur í Þjóðskjalasafni - Sumir stjórnmála- flokkar hafa afhent gögn sín - Mörg skjalasöfn frá stjórnmálamönnum, aðallega frá körlum Morgunblaðið/Ómar Einkaskjöl Gríðarstórt safn skjala frá flugfélaginu Icelandair og fyrirrennurum þess, Flugfélagi Íslands og Loftleiðum, bíður frágangs og skráningar í fjargeymslu safnsins við Höfðabakka. Það er Gunnar Örn Hannesson, fagstjóri skráninga, sem þarna er að kanna stöðu mála. Í sumar hófu starfsmenn Þjóðskjalasafns loka- frágang á hinu stóra einkaskjalasafni Ólafs Ragn- ars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands. Það var afhent í byrjun júní 2016. Safnið innihélt 223 kassa og þrjá fulla skjalaskápa. Skjölin eru enn lokuð almenningi. „Ég vonast því til þess að skjalaskráin geti verið tilbúin á þessu ári og í framhaldinu samningur við Ólaf um aðgang að skjölunum,“ segir Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni. Skjalasafnið er eitt stærsta safn einstaklings í Þjóðskjalasafninu. Fyrir frágang og skráningu skjalanna greiðir Ólafur Ragnar um 3,5 milljónir króna úr eigin vasa. Lokafrágangur hafinn SKJÖL ÓLAFS RAGNARS Ólafur Ragnar Grímsson Jón Baldvin Hannibalsson Sigurður Bjarnason Svavar Gestsson Sverrir Hermansson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.