Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 48
48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 Undankeppni HM kvenna C-RIÐILL: Ísland – Tékkland..................................... 4:0 Kýpur – Holland....................................... 0:8 Staðan: Holland 3 2 1 0 11:1 7 Tékkland 3 1 1 1 9:5 4 Hvíta-Rússland 1 1 0 0 4:1 3 Ísland 2 1 0 1 4:2 3 Kýpur 3 0 0 3 1:20 0 B-RIÐILL: Skotland – Ungverjaland......................... 2:1 Staðan: Skotland 9, Spánn 6, Úkraína 3, Ungverja- land 0, Færeyjar 0. D-RIÐILL: Austurríki – Lúxemborg ......................... 5:0 Staðan: Austurríki 9, England 6, Norður-Írland 6, N-Makedónía 3, Lettland 0, Lúxemborg 0. G-RIÐILL: Ítalía – Króatía ......................................... 3:0 Sviss – Rúmenía ....................................... 2:0 Staðan: Sviss 9, Ítalía 9, Rúmenía 6, Litháen 0, Mol- dóva 0, Króatía 0. I-RIÐILL: Kasakstan – Grikkland ............................ 0:1 Slóvenía – Wales....................................... 1:1 Frakkland – Eistland............................. 11:0 Staðan: Frakkland 9, Wales 7, Grikkland 6, Slóven- ía 4, Kasakstan 0, Eistland 0. EM U17 karla Undanriðill í Ungverjalandi: Georgía – Ísland ...................................... 1:1 Tengo Alibegashvili 41. – Daníel Tristan Guðjohnsen 81. Ungverjaland – Eistland ......................... 3:0 _ Ísland mætir Eistlandi á mánudag og Ungverjalandi á fimmtudag. England Arsenal – Aston Villa ............................... 3:1 Staða efstu liða: Chelsea 8 6 1 1 16:3 19 Liverpool 8 5 3 0 22:6 18 Manch. City 8 5 2 1 16:3 17 Brighton 8 4 3 1 8:5 15 Tottenham 8 5 0 3 9:12 15 Manch. Utd 8 4 2 2 16:10 14 West Ham 8 4 2 2 15:10 14 Everton 8 4 2 2 13:9 14 Arsenal 9 4 2 3 10:13 14 Brentford 8 3 3 2 10:7 12 Þýskaland Mainz – Augsburg ................................... 4:1 - Alfreð Finnbogason var varamaður hjá Augsburg og kom ekki við sögu. Holland B-deild: Eindhoven – Jong Ajax........................... 1:3 - Kristian Nökkvi Hlynsson var varamað- ur hjá Ajax og kom ekki við sögu. Hvíta-Rússland Neman – BATE Borisov ......................... 0:2 - Willum Þór Willumsson lék ekki með BATE. 4.$--3795.$ Grill 66-deild karla Berserkir – Þór..................................... 24:37 Haukar U – Valur U............................. 26:21 Staða efstu liða: Hörður 3 3 0 0 108:78 6 ÍR 3 3 0 0 106:83 6 Þór 4 2 0 2 121:115 4 Afturelding U 2 2 0 0 55:48 4 Haukar U 3 2 0 1 81:72 4 Fjölnir 2 1 0 1 57:63 2 Grill 66-deild kvenna FH – Fram U........................................ 28:16 Staða efstu liða: FH 4 3 0 1 103:68 6 Fram U 3 2 0 1 75:79 4 Selfoss 3 2 0 1 84:79 4 Stjarnan U 4 2 0 2 97:116 4 Grótta 3 2 0 1 75:69 4 Þýskaland B-deild: Gummersbach – Hüttenberg ............. 40:34 - Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach og Hákon Daði Styrmisson þrjú. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. Bietigheim – Aue................................. 33:30 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði sex mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði ekkert skot í marki liðsins. Lübeck-Schwartau – Emsdetten....... 28:22 - Anton Rúnarsson skoraði ekki fyrir Emsdetten. _ Efstu lið: Gummersbach 14, Hagen 11, Hüttenberg 10, Essen 9, Rostock 8, Nord- horn 8, Hamm 7, Bietigheim 7. Frakkland Créteil – Aix ......................................... 23:29 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 10 mörk fyrir Aix. Nantes – Nancy.................................... 37:28 - Elvar Ásgeirsson skoraði tvö mörk fyrir Nancy. Austurríki Ferlach – Alpla Hard .......................... 25:25 - Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard. %$.62)0-# SKÍÐI Kristján Jónsson kris@mbl.is Bandaríska skíðakonan Mikaela Shiffrin setur nú stefnuna á að keppa í öllum fimm keppnisgrein- unum í alpagreinum á Vetrarólymp- íuleikunum í Peking. Shiffrin segir þó að slíkar áætlanir kalli á mikinn undirbúning, ekki síður andlegan heldur en líkamlegan. Nú er farið að styttast í Vetraról- ympíuleikana en þeir eiga að hefjast 4. febrúar í Kína eða eftir tæpa fjóra mánuði. Eitt ár líður alla jafna á milli Ólympíuleika og Vetrarólymp- íuleika en nú verður það rétt rúm- lega hálft ár. Vetrarólympíuleik- arnir eru á fyrirhuguðum tíma en Ólympíuleikunum í Tókýó var frest- að um eitt ár eins og fram hefur komið. Shiffrin ræddi við Eurosport í til- efni þess að heimsbikarinn á skíðum fer af stað á ný um næstu helgi. Þar segir hún að það væri draumur að geta verið með í öllum fimm grein- unum, svigi, stórsvigi, risasvigi, bruni og tvíkeppni. Í alpatvíkeppni er bæði keppt í bruni og svigi og tím- arnir lagðir saman. Þekkir ekki aðstæður Shiffrin tók skýrt fram að hún þyrfti að leggja á sig mikla vinnu til að þetta gæti orðið að veruleika í Peking. „Mig hefur dreymt um að keppa í öllum greinunum í Kína. En það kallar á mun umfangsmeiri and- legan undirbúning. Ég þarf að vera mjög einbeitt. Ég þarf að ná utan um hvaða atriði þurfa að vera í lagi. Fleiri atriði en þau sem snúa að tækni og líkamlega þættinum. Auk þess verð ég á keppnisstað sem ég þekki ekki og hef aldrei keppt þar. Þar verður maður í þrjár vikur og þarf að ná úr sér ferðaþreytu eins hratt og auðið er,“ sagði Shiffrin sem hefur lagt nokkra áherslu á að bæta sig í hraðagreinunum, bruni og risasvigi. Samtals hefur hún unn- ið sex heimsbikarmót í þeim grein- um og er því samkeppnisfær. Hún er hins vegar illviðráðanleg í sviginu og hefur unnið 45 heims- bikarmót í svigi sem er met. Er Shiffrin þó einungis 26 ára gömul. Tvöfaldur ólympíumeistari Nokkuð ljóst þykir að Shiffrin verði álitin sigurstranglegust í svigi og líklega í stórsvigi einnig í Peking. Hún veit hvað þarf til að næla í gull- verðlaun á Vetrarólympíuleikum. Hún varð ólympíumeistari í svigi á leikunum í Sochi árið 2014. Þá var hún ekki orðin 19 ára og varð yngsti ólympíumeistari í svigi frá upphafi. Á leikunum í Pyeongchang í Suð- ur-Kóreu árið 2018 sigraði hún í stórsvigi og fékk silfurverðlaun í tví- keppni. Hún hafnaði þá hins vegar í 4. sæti í sviginu og kom sú niður- staða á óvart. Shiffrin stefnir á fimm greinar - Vetrarólympíuleikarnir skammt undan - Ekki síður andlegur undirbúningur AFP Stórsvig Mikaela Shiffrin er sterkust í svigi og stórsvigi en færni hennar í hraðagreinunum hefur aukist. Arsenal var áfram á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld og lagði Aston Villa að velli á sann- færandi hátt, 3:1, í London. Eftir þrjú töp í byrjun tímabils er Arsen- al nú ósigrað í sex leikjum og hefur klifrað upp töfluna jafnt og þétt. Thomas Partey skoraði fyrst og síð- an Pierre-Emerick Aubameyang, sem fylgdi á eftir þegar Emiliano Martínez varði frá honum víta- spyrnu. Emile Smith-Rowe kom Arsenal í 3:0 snemma í síðari hálf- leik en Jacob Ramsey lagaði stöð- una fyrir Villa undir lokin. Arsenal á siglingu upp töfluna AFP Mark Pierre-Emerick Aubameyang fagnar markinu með liðsfélögunum. Kristján Örn Kristjánsson, lands- liðsmaður í handknattleik, átti sannkallaðan stórleik með Aix í gærkvöld þegar lið hans vann úti- sigur á Créteil, 29:23, í frönsku 1. deildinni. Kristján, eða Donni eins og hann er ávallt kallaður, skoraði tíu mörk í leiknum og átti þrjár stoðsendingar að auki. Aix er þar með komið í annað sæti deildarinnar með 11 stig, einu minna en stórveldið París SG sem er með 12 stig eftir sex leiki og á leik til góða á Kristján og félaga hans. Stórleikur Krist- jáns gegn Créteil AFP Tíu Kristján Örn Kristjánsson átti stórleik með Aix í gærkvöld. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Njarðvíkingar héldu áfram sinni góðu byrjun á keppnistímabilinu í körfuboltanum í gærkvöld þegar karlalið þeirra vann stórsigur á Val, 96:70, í Ljónagryfjunni. Njarðvíkingar hafa nú unnið þrjá fyrstu leiki sína, eins og Keflavík og Tindastóll á meðan Valsmenn máttu þola sitt annað tap. Lokatölurnar segja þó ekki allt því Njarðvíkingar stungu af í fjórða leikhluta eftir að þrjú stig skildu liðin að um tíma í þriðja leikhluta. Fotios Lampropoulos var með 20 stig og 13 fráköst fyrir Njarðvík, Nicolas Richotti skoraði 19 og Mario Matasovic 16. Kári Jónsson skoraði 18 stig fyrir Valsmenn, Pablo Cesar 13, Hjálmar Stefánsson og Callum Lawson 12 stig hvor. Nýliðar Vestra sýndu að þeir ætla að vera með í baráttunni í vetur. Flestir hafa spáð þeim falli en þeir unnu fyrsta sigurinn í gærkvöld, lögðu Þór frá Akureyri 88:77 á Ísa- firði eftir að hafa verið átta stigum yfir í hálfleik, 47:39. Þórsarar sitja eftir á botninum með ÍR-ingum eftir þrjár umferðir. Ken-Jah Bosley skoraði 28 stig fyrir Vestra, Julio Calver De Assis skoraði 19 stig og tók 10 fráköst og Hilmir Hallgrímsson var með 15 stig. Þá tók Nemanja Knezevic 14 fráköst. Dúi Þór Jónsson skoraði 25 stig fyrir Þór, Eric Etienne Fongué 19 og Norðmaðurinn Atle Bouna Ndiaye skoraði 18. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Njarðvík Argentínumaðurinn reyndi Nicolas Richotti sækir að körfu Valsmanna. Hann skoraði nítján stig fyrir Njarðvíkinga í leiknum. Þriðji sigurinn hjá Njarðvíkingum - Nýliðar Vestra kræktu í fyrstu stigin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.