Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 16
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Pappírsskjölin sem berast Þjóð-
skjalasafni Íslands eru ekki aðeins
frá opinberum stofnunum. Safnið
tekur að jafnaði við um 70 einka-
skjalasöfnum á ári. Þau eru þó mjög
misjöfn að umfangi, allt frá einu
blaði upp í 450 hillumetra. Þessi
skjöl eru ýmist frá einstaklingum,
fyrirtækjum eða félögum.
Umfangsmesta safnið af þessu
tagi sem borist hefur er frá Ice-
landair og kom það í fyrra. Um er
að ræða skjöl um starfsemi og
rekstur flugfélagsins og fyrirrenn-
ara þess, Loftleiða og Flugfélags Ís-
lands. Mörg matarholan er þar fyrir
áhugamenn um íslenska flugsögu.
En því miður er skjalasafnið ófrá-
gengið og óskráð og var afhent
þannig á 22 vörubrettum. Vinna við
frágang og skráningu bíður í
öruggri geymslu þar til fjármagn
fæst til þess.
Einkaskjöl eru reyndar ekki að-
eins varðveitt í Þjóðskjalasafni. Í
héraðsskjalasöfnunum á lands-
byggðinni eru mörg slík söfn og
ennfremur í Borgarskjalasafni í
Reykjavík og á Landsbókasafninu.
Þeir sem eru að leita heimilda þurfa
því víða að koma við. Bót er í máli
að á netinu er samskrá um slík skjöl
á vefsíðunni einkaskjalasafn.is, en
hún er þó ekki tæmandi.
Vilja skjöl Eimskips
Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri í
Þjóðskjalasafni, segir að safnið hafi
á sínum tíma óskað eftir að fá af-
hent skjöl Eimskipafélags Íslands,
eins elsta fyrirtækis landsins. Skjöl-
in voru þá varðveitt að hluta hjá
Straumi fjárfestingarbanka og að
hluta hjá Eimskip.
„Því miður varð ekki af afhend-
ingu skjalanna þrátt fyrir fundi og
bréfaskipti. Þjóðskjalasafn hefur
enn mikinn áhuga á að fá skjöl Eim-
skipafélagsins til varðveislu enda
um mikilvægt fyrirtæki í íslenskri
sögu að ræða,“ segir Njörður.
Ein safndeildin innan Þjóð-
skjalasafnins er svonefnt hag-
sögusafn. Það er samsafn skjala-
safna aflagðra verslana, fyrirtækja
og einstaklinga af ólíkum toga, allt
frá lokum 18. aldar og fram yfir
miðbik 20. aldar. Þetta safn og hug-
myndafræðin á bak við það er arfur
frá gamalli tíð þegar menn vildu
koma upp sérstöku íslensku skjala-
safni um atvinnulífið í landinu, að
danskri fyrirmynd. Þegar ráðist var
í sérstakt átak við frágang og skrán-
ingu safnsins fyrir þremur árum
voru undir þessum hatti þúsundir
skjalabóka í stöflum á 12 vörubrett-
um. Þar af voru rúmlega þúsund
ómerktar skjalabækur og ýmis önn-
ur skjöl með óvissan uppruna. Eftir
skráninguna eru skjalasöfnin í hag-
sögusafninu 336 talsins.
Þrotabúin enda í safninu
Annað safn áhugaverðra einka-
skjala er skjöl þrotabúa en lögum
samkvæmt skal skila þeim til Þjóð-
skjalasafns. Að sögn Njarðar var
fyrir nokkrum árum gengið í frá-
gang á þessum skjölum. Var farið í
gegnum vel á þriðja þúsund hillu-
metra af pappírum sem voru á 291
vörubretti. Voru rúmlega 400 hillu-
metrar teknir til varðveislu úr um
eitt þúsund þrotabúum. Grisjaðir,
þ.e. hent, voru um 2.300 hillumetrar
af bókhaldsskjölum.
Njörður segir að í þrotabúunum
sé að finna mörg merkileg skjöl, t.d.
frá Álafossi, Hafskipum, Arnarflugi,
hljómsveitinni Utangarðsmönnum
og kaupfélögum víða um landið, svo
nokkuð sé nefnt.
Pólitíkina líka að finna
Nokkrir stjórnmálaflokkar hafa
afhent Þjóðskjalasafni gögn sín.
Elsti starfandi flokkurinn,
Framsóknarflokkurinn, afhenti árið
2018 um fjóra hillumetra af skjölum
sem spanna tímabilið frá 1922 til
2017. Í safninu eru m.a. fund-
argerðir miðstjórnar og þingflokks.
Áður höfðu skjöl Alþýðuflokksins
borist.
Borgarahreyfingin og Hreyfingin,
sem urðu til upp úr hruninu 2008,
hafa einnig afhent skjöl sín, þar á
meðal fundargerðir. Sjálfstæðis-
flokkurinn á stórt skjalasafn sem
spannar um hundrað ára tímabil
(frá stofnun Íhaldsflokksins 1924)
en þau eru varðveitt í höfuðstöðvum
flokksins, Valhöll.
Mun færri skjöl frá konum
Talsvert hefur einnig borist til
Þjóðskjalasafns af skjölum fyrrver-
andi stjórnmálamanna. Karlar í
þeim hópi eru langtum duglegri en
konur að koma skjölum sínum til
varðveislu. Raunar gildir það al-
mennt að mun færri einkaskjöl ber-
ast frá konum en körlum. Hætt er
við því að það brengli söguna, sér-
staklega á tímabilinu eftir að konur
fóru að láta að sér kveða í opinber-
um málum. Meðal undantekninga
frá þessu eru bréfasöfn kvenskör-
unga eins og Bríetar Bjarnhéð-
insdóttur og Guðrúnar Lárusdóttur,
en þau eru varðveitt á Lands-
bókasafni.
„Það er mikilvægt að safnkostur
skjalasafna endurspegli samfélagið
sem best á hverjum tíma og því er
nauðsynlegt að fá inn meira af skjöl-
um kvenna til varðveislu,“ segir
Njörður Sigurðsson. Hann rifjar
upp að árið 2015, í tilefni af 100 ára
kosningarétti kvenna, hafi verið
gert átak í að safna skjölum kvenna
í samstarfi við héraðsskjalasöfn og
Landsbókasafnið. En betur má ef
duga skal.
Skjöl stjórnmálaforingja
Meðal skjalasafna stjórnmála-
karla eru skjöl Geirs Hallgríms-
sonar, Sigurðar Bjarnasonar frá
Vigur, Sverris Hermannssonar og
alþýðuflokksmannanna Gylfa Þ.
Gíslasonar, Jóns Sigurðssonar, Jóns
Baldvins Hannibalssonar, Sighvats
Björgvinssonar, Kjartans Jóhanns-
sonar og Finnboga Rúts Valdimars-
sonar. Svavar Gestsson, Alþýðu-
bandalaginu, afhenti einnig skjöl
sín. Skjöl Ólafs Thors og Bjarna
Benediktssonar eldri eru í Borgar-
skjalasafni og eru sérstakar vefsíð-
ur á netinu helgaðar þeim skjölum
og æviferli Ólafs og Bjarna. Er til
mikillar fyrirmyndar hvernig staðið
hefur verið að birtingu þessara
gagna.
Mun færri skjöl koma frá konum
- Mikill fjöldi skjala einstaklinga og fyrirtækja varðveittur í Þjóðskjalasafni - Sumir stjórnmála-
flokkar hafa afhent gögn sín - Mörg skjalasöfn frá stjórnmálamönnum, aðallega frá körlum
Morgunblaðið/Ómar
Einkaskjöl Gríðarstórt safn skjala frá flugfélaginu Icelandair og fyrirrennurum þess, Flugfélagi Íslands og Loftleiðum, bíður frágangs og skráningar í
fjargeymslu safnsins við Höfðabakka. Það er Gunnar Örn Hannesson, fagstjóri skráninga, sem þarna er að kanna stöðu mála.
Í sumar hófu starfsmenn Þjóðskjalasafns loka-
frágang á hinu stóra einkaskjalasafni Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands. Það
var afhent í byrjun júní 2016. Safnið innihélt 223
kassa og þrjá fulla skjalaskápa. Skjölin eru enn
lokuð almenningi. „Ég vonast því til þess að
skjalaskráin geti verið tilbúin á þessu ári og í
framhaldinu samningur við Ólaf um aðgang að
skjölunum,“ segir Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri
í Þjóðskjalasafni. Skjalasafnið er eitt stærsta safn
einstaklings í Þjóðskjalasafninu. Fyrir frágang og
skráningu skjalanna greiðir Ólafur Ragnar um 3,5
milljónir króna úr eigin vasa.
Lokafrágangur hafinn
SKJÖL ÓLAFS RAGNARS
Ólafur Ragnar
Grímsson
Jón Baldvin
Hannibalsson
Sigurður
Bjarnason
Svavar
Gestsson
Sverrir
Hermansson