Morgunblaðið - 26.10.2021, Blaðsíða 2
150
125
100
75
50
25
0
júlí ágúst september okt.
Staðfest smit
7 daga meðaltal
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
1.
0
0
íg
æ
r1.777 einstaklingar
eru í sóttkví
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
298 eru í
skimunarsóttkví757 eru með virkt smit
og í einangrun
7 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af einn á gjörgæslu
214 ný innanlandssmit
greindust sl. helgi
(fös. 22. til sun. 24. okt.)
Oddur Þórðarson
Þóra Birna Ingvarsdóttir
Alls greindust 214 manns með kór-
ónuveiruna sem veldur Covid-19
innanlands um helgina, frá föstudegi
til sunnudags, að því er kom fram í
uppfærðum tölum á covid.is í gær.
Á föstudaginn greindust alls 75 og
greindist sami fjöldi á laugardaginn.
Á sunnudaginn greindust 64.
Í gær voru sjö á sjúkrahúsi með
veiruna, allir eru þeir fullorðnir. Þar
af er einn á gjörgæslu en ekki í önd-
unarvél. Meðalaldur þeirra sem
liggja inni með Covid-19 er 42 ár.
Í gær voru 757 í einangrun og
1.777 í sóttkví. Fyrir helgi voru 653 í
einangrun og 1.418 í sóttkví.
Fjórir smituðust á LSH
Smit greindist í gær hjá fjórum
sjúklingum á hjarta-, lungna- og
augnskurðdeild 12G á Landspítala.
Ekki var vitað hvernig smit
barst inn á deildina þegar tilkynn-
ing frá spítalanum var send út í
gærkvöldi. Deildinni var í kjölfarið
lokað fyrir innlagnir og heimsóknir.
Á Landspítala eru enn í gildi
reglur um grímuskyldu og
fjarlægðartakmörk ásamt persónu-
legum sóttvörnum. Um nýliðna
helgi var 21 tilvik þar sem fólk með
tengsl við Landspítala reyndist
smitað.
Þá kom fram í tilkynningu frá
stjórnarráðinu í gær að ekkert smit
hefði greinst hjá bólusettum börn-
um á aldrinum 12 til 15 ára hér á
landi. Tæplega 64 prósent barna á
tilskildum aldri eru nú fullbólusett
við Covid-19. Er þannig unnt að
halda því fram að bólusetning hjá
þessum aldurshópi, sem hófst í
ágúst, veiti 100 prósent vörn, líkt
og kemur fram í tilkynningu.
Þau börn sem hafa smitast af
Covid-19 og veikst að undanförnu
hafa öll verið óbólusett. Bóluefna-
framleiðandinn Moderna tilkynnti í
gær að rannsóknir fyrirtækisins
gæfu til kynna að bóluefni þess
væri öruggt fyrir börn á aldrinum 6
til 11 ára og gæfi sterka mótefnas-
vörun.
- 214 veirusmit greindust um helgina
- Sjö liggja inni á sjúkrahúsi með veiruna
Fjölgar nokkuð í sóttkví og einangrun
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Rafbílum í eigu íbúa í lífsgæða-
kjörnum íbúðaleigufélagsins
Naustavarar, dótturfélags sjó-
mannadagsráðs, fer fjölgandi og til
að bæta þjónustuna voru nýlega
settar upp fjórar rafhleðslustöðvar
við kjarnana í samstarfi við Hleðslu-
vaktina.
Jóhannes Nordal, fyrrverandi
seðlabankastjóri með meiru, var
fyrstur til þess að nota nýja hleðslu-
stöð fyrir rafbíla við Brúnaveg í
Reykjavík, þar sem hann býr. Slíkar
stöðvar voru líka teknar í notkun á
dögunum við lífsgæðakjarna félags-
ins við Boðaþing í Kópavogi, Hraun-
vang í Hafnarfirði og Sléttuveg í
Reykjavík.
Við hæfi þótti að Jóhannes, sem er
97 ára, nýtti fyrstur aukna þjónustu
því hann starfaði lengi að raforku-
málum sem stjórnarformaður
Landsvirkjunar í þrjá áratugi og
formaður stóriðjunefndar.
Rafmagn Jóhannes Nordal hleður bílinn. Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri sjómannadagsráðs, fylgist með.
Bætt þjónusta fyrir eldri íbúa
- Jóhannes Nordal, 97 ára, fyrstur til að nota rafhleðslustöðina
Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn
kjörbréfa heldur vinnufund í dag
með aðilum sem hafa reynslu af taln-
ingarstarfsemi. Í næstu viku má bú-
ast við að nefndin taki afstöðu til
þeirra álitamála sem hafa komið upp
í sambandi við síðastliðnar alþingis-
kosningar. Þetta segir Birgir Ár-
mannsson, formaður nefndarinnar, í
samtali við Morgunblaðið.
Nefndin mun funda daglega það
sem eftir er af þessari viku. Í dag
verður fundur með aðilum sem hafa
reynslu af talningarstarfi. Þeirra á
meðal eru starfsmenn sem töldu at-
kvæði í Norðvesturkjördæmi í al-
þingiskosningunum í september.
„Tilgangur fundarins er að nefnd-
armenn átti sig betur á því hvernig
fyrirkomulag talningar í kosningum
er og verður horft til Norðvestur-
kjördæmis en sömuleiðis til annarra
kjördæma til að fá betri mynd á það
hvernig vinnulagið er í talningarferl-
inu,“ segir Birgir.
Birgir segir nefndina á loka-
sprettinum í gagnaöflun en verkefni
nefndarinnar er tvíþætt. Annars
vegar þarf hún að afla sér gagna og
hins vegar þarf hún að taka afstöðu
til þeirra álitamála sem koma upp.
„Ég held að við séum á lokasprett-
inum með að afla þeirra gagna sem
við þurfum og í beinu framhaldi för-
um við að ræða þau atriði sem kalla
á mat af okkar hálfu. Ég vil ekki slá
neinu föstu en ég held hins vegar að
ef þessi vika nýtist vel ættu hlutir að
skýrast í næstu viku.“
Undirbúningsnefnd kjör-
bréfa á lokasprettinum
- Ræða við talningarstarfsfólk í Norðvesturkjördæmi í dag
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Undirbúningsnefnd Nefndin mun
funda daglega út þessa viku.
Maðurinn sem var handtekinn af sér-
sveit lögreglu í lok júní eftir að hafa
ógnað fólki við kaffistofu Samhjálpar
með byssu var dæmdur í þriggja ára
fangelsi í síðustu viku. Þetta staðfest-
ir Friðrik Smári Björgvinsson aðstoð-
arsaksóknari. Maðurinn var sakfelld-
ur fyrir að hafa hótað almenningi,
lögreglumönnum og tveimur karl-
mönnum á kaffistofu Samhjálpar með
óhlaðinni skammbyssu. Skammbyss-
an var þó hlaðin þegar maðurinn var
handtekinn í sumar, en fyrir dómi
hélt hann því fram að hann hefði hlað-
ið byssuna skömmu fyrir handtökuna.
Ákæruvaldinu tókst ekki að sanna
annað.
Maðurinn gekkst við því að hafa
beint byssunni að öðrum náunganum
á kaffistofu Samhjálpar, en ekki hin-
um, sem var Þráinn Farestveit, fram-
kvæmdastjóri áfangaheimilisins
Verndar. Þannig neitaði hann jafn-
framt að hafa beint byssunni að lög-
reglumönnum og almennum borgur-
um, en ekki var fallist á það fyrir
dómi.
Þá var maðurinn einnig sviptur
ökuréttindum ævilangt vegna brota á
umferðarlögum og fíkniefnalögum,
enda keyrði hann undir áhrifum fíkni-
efna. Maðurinn játaði þau brot. Hann
hefur sex sinnum hlotið dóm fyrir ým-
is brot gegn umferðarlögum, fíkni-
efnalögum, tollalögum og almennum
hegningarlögum.
Byssumaðurinn
hlaut þrjú ár
- Byssan var hlaðin við handtöku