Morgunblaðið - 26.10.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021
EM U17 karla
Undanriðill í Ungverjalandi:
Eistland – Ísland ...................................... 2:1
Karel Mustmaa 43., Emir Dikajev 47. –
William Cole Campbell 10.
Ungverjaland – Georgía .......................... 0:1
_ Georgía 4 stig, Ungverjaland 3, Eistland
3, Ísland 1.
Ísland mætir Ungverjalandi í lokaumferð-
inni á fimmtudag. Þrjú liðanna leika áfram í
A-deild en neðsta liðið fellur.
Bandaríkin
Orlando City – New England ................ 2:2
- Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 64
mínúturnar með New England sem hefur
þegar tryggt sér efsta sætið í Austurdeild
MLS-deildarinnar.
Rúmenía
CFR Cluj – Sepsi ...................................... 2:0
- Rúnar Már Sigurjónsson var ónotaður
varamaður hjá Cluj.
_ Efstu lið: CFR Cluj 33, U.Craiova 25,
FCSB 24, Botosani 24, Voluntari 24.
Katar
Al Ahli Doha – Al-Arabi.......................... 1:1
- Aron Einar Gunnarsson hjá Al-Arabi fór
meiddur af velli á 35. mínútu.
Spánn
Getafe – Celta Vigo .................................. 0:3
Staða efstu liða:
Real Sociedad 10 6 3 1 14:9 21
Real Madrid 9 6 2 1 24:11 20
Sevilla 9 6 2 1 16:6 20
Atlético Madrid 9 5 3 1 13:8 18
Real Betis 10 5 3 2 15:11 18
Osasuna 10 5 3 2 14:13 18
Rayo Vallecano 10 5 1 4 17:12 16
Athletic Bilbao 9 4 4 1 9:5 16
>;(//24)3;(
Olísdeild karla
HK – Afturelding ................................. 28:30
Staðan:
Valur 5 5 0 0 146:112 10
Stjarnan 4 4 0 0 121:107 8
Fram 5 4 0 1 134:125 8
Haukar 5 3 1 1 146:130 7
ÍBV 4 3 0 1 112:110 6
Afturelding 5 2 2 1 147:144 6
FH 5 3 0 2 133:124 6
KA 5 2 0 3 132:143 4
Selfoss 5 1 0 4 116:134 2
Grótta 5 0 1 4 121:133 1
HK 5 0 0 5 128:146 0
Víkingur 5 0 0 5 113:141 0
Danmörk
Kolding – Ribe-Esbjerg ...................... 35:28
- Ágúst Elí Björgvinsson kom lítið við
sögu hjá Kolding.
E(;R&:=/D
Subway-deild karla
Grindavík – Njarðvík ........................... 87:82
Staðan:
Grindavík 4 3 1 323:304 6
Keflavík 3 3 0 270:237 6
Tindastóll 3 3 0 279:261 6
Njarðvík 4 3 1 394:330 6
Þór Þ. 3 2 1 279:276 4
KR 3 1 2 290:290 2
Stjarnan 3 1 2 270:279 2
Vestri 3 1 2 264:278 2
Valur 3 1 2 213:249 2
Breiðablik 3 1 2 341:340 2
Þór Ak. 3 0 3 229:266 0
ÍR 3 0 3 267:309 0
1. deild karla
Sindri – Álftanes................................... 92:84
Staðan:
Haukar 5 5 0 546:335 10
Höttur 4 4 0 410:302 8
Sindri 5 4 1 444:408 8
Álftanes 5 3 2 460:405 6
Selfoss 5 3 2 457:448 6
Hamar 5 2 3 396:420 4
Hrunamenn 5 2 3 426:499 4
Fjölnir 5 1 4 402:493 2
Skallagrímur 4 0 4 289:380 0
ÍA 5 0 5 377:517 0
NBA-deildin
Brooklyn – Charlotte ......................... 95:111
New York – Orlando ........................ 104:110
Houston – Boston ............................... 97:107
Oklahoma City – Philadelphia......... 103:115
Sacramento – Golden State ............. 107:119
LA Lakers – Memphis ..................... 121:118
_ Austurdeild: Chicago 3/0, Charlotte 3/0,
Washington 2/0.
_ Vesturdeild: Golden State 3/0, Utah 2/0,
Minnesota 2/0, Denver 2/0.
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Undankeppni HM kvenna:
Laugardalsvöllur: Ísland – Kýpur ...... 18.45
Í KVÖLD!
EVRÓPUKEPPNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KA/Þór, ÍBV og Haukar fengu and-
stæðinga frá Spáni, Grikklandi og
Rúmeníu þegar dregið var til þriðju
umferðar í Evrópubikar kvenna og
karla í handknattleik í Vínarborg.
Íslensku liðin þrjú, kvennalið ÍBV
og KA/Þórs og karlalið Hauka, kom-
ust í gegnum aðra umferðina sem
lauk um síðustu helgi en karlalið Sel-
foss, FH og Vals og kvennalið Vals
eru öll fallin úr keppni á þessu líf-
lega Evrópuhausti í íslenskum hand-
bolta.
KA/Þór á væntanlega erfiðasta
verkefnið fyrir höndum gegn Elche
frá Spáni, spænsk lið eru jafnan hátt
skrifuð í Evrópu, en ÍBV og Haukar
ættu að eiga mun meiri möguleika
gegn andstæðingum sínum.
Spila aftur í Þessaloniku
Eyjakonur fóru áfram á drama-
tískan hátt á sunnudaginn þegar
þær unnu upp fimm marka forskot
PAOK í Grikklandi og sigruðu með
sjö marka mun í seinni leiknum eftir
gríðarlega spennu.
Nú eiga þær fyrir höndum annað
ferðalag til Grikklands því þær
drógust gegn AEP Panorama. Það
sem meira er, Panorama er líka frá
Þessaloniku í Norður-Grikklandi,
rétt eins og PAOK, þannig að Eyja-
konur fara á kunnuglegar slóðir.
Panorama lék meira að segja líka
báða leikina gegn Azeryol frá
Aserbaídsjan á heimavelli um
helgina, strax á eftir leikjum PAOK
og ÍBV á bæði laugardegi og sunnu-
degi. Panorama vann Azeryol auð-
veldlega, 37:21, í fyrri leiknum en
tapaði þeim seinni 23:27.
Miðað við þá leiki sem búnir eru á
tímabilinu í grísku deildinni er PA-
OK með sterkara lið en Panorama
þannig að möguleikar ÍBV á að kom-
ast í 16 liða úrslit keppninnar ættu
að vera talsverðir.
Sjöunda sæti á Spáni
KA/Þór, sem sló út Istogu frá Kó-
sóvó með tveimur sigrum á útivelli í
2. umferð, mætir Elche frá Spáni
sem sat hjá og kemur beint inn í
þriðju umferðina. Elche er í sjöunda
sæti af fjórtán liðum í 1. deildinni á
Spáni en er með 7 stig úr fimm leikj-
um og á leik til góða á flest liðin fyrir
ofan sig.
Elche er frá samnefndri borg
skammt frá Valencia og Alicante þar
sem Íslendingar kannast margir
hverjir vel við sig.
Fjórar konur frá Brasilíu og Arg-
entínu eru í leikmannahópi Elche og
þar á meðal landsliðskona Argent-
ínu, Joana Bolling.
Svipað og Potaissa Turda
Karlalið Hauka mætir rúmenska
liðinu Focsani og þótt það sé óþekkt
stærð hér á landi þekkja Íslendingar
talsvert til rúmenskra félagsliða eft-
ir að ÍBV og Valur léku bæði hörku-
leiki gegn Potaissa Turda fyrir fáum
árum.
Focsani er í fjórða sæti rúmensku
deildarinnar eftir átta umferðir, ein-
mitt næst á eftir Potaissa Turda, og
þarna ætti því alls ekki að vera um
óyfirstíganlega hindrun að ræða fyr-
ir Hauka.
Focsani vann Kaerjeng frá Lúx-
emborg í tveimur leikjum á sínum
heimavelli um síðustu helgi, 35:27 og
33:26, og fór því mjög örugglega
áfram. Liðið er með nokkra leik-
menn frá nágrannaþjóðum innan-
borðs, Bosníu, Serbíu, Rússlandi og
Norður-Makedóníu. Serbneska
skyttan Filip Marjanovic skoraði 13
mörk í leikjunum tveimur við Kaerj-
eng.
Erfiðast hjá
Akureyringum
- Spánn, Grikkland og Rúmenía
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Evrópa Spánn og Grikkland eru áfangastaðir hjá KA/Þór og ÍBV.
Knattspyrnumaðurinn Aron Einar
Gunnarsson meiddist í leik Al-
Arabi gegn Al Ahli í Katar í gær en
liðin áttust þá við í efstu deildinni
þar í landi.
Hann þurfti að fara af velli á 35.
mínútu vegna meiðslanna en ekki
hefur komið fram enn sem komið er
hvort þau séu alvarleg.
Aron hefur leikið alla leiki Al-
Arabi á keppnistímabilinu til þessa
en liðið er í þriðja sæti með 13 stig
eftir sjö fyrstu leikina. Al-Arabi
gerði 1:1 jafntefli gegn Al Ahli á
útivelli. sport@mbl.is
Aron Einar fór
meiddur af velli
Morgunblaðið/Eggert
Katar Aron Einar hefur leikið alla
leikina í deildinni til þessa.
Golfklúbbur Reykjavíkur hafnaði í
9. sæti í karlaflokki á Evrópumóti
golfklúbba sem fram fór í Portúgal.
Lið frá golfklúbbum í 23 löndum
tóku þátt í keppninni. Hákon Örn
Magnússon, Jóhannes Guðmunds-
son og Viktor Ingi Einarsson
kepptu fyrir hönd GR.
GR-ingar léku samtals á 16 högg-
um yfir pari en Rosendaelsche frá
Belgíu sigraði á 2 undir pari sam-
tals. Jóhannes lék á 72, 78 og 75
höggum. Viktor var á 77, 72 og 76
höggum. Hákon lék á 77, 75 og 83
höggum. kris@mbl.is
GR í 9. sæti á
EM í Portúgal
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Portúgal Jóhannes Guðmundsson
náði sér vel á strik á fyrsta hring.
Bikarmeistararnir úr Njarðvík töp-
uðu fyrsta leiknum í Subway-deild
karla í körfuknattleik á þessu
keppnistímabili í gær þegar þeir
fóru til Grindavíkur. Keflavík og
Tindastóll eru því einu taplausu lið-
in og eru með 6 stig eftir þrjá leiki
en Njarðvík og Grindavík 6 stig eft-
ir fjóra.
Grindavík vann 87:82 en Njarð-
vík var stigi yfir 44:43 að loknum
fyrri hálfleik. Ólafur Ólafsson skor-
aði 25 stig fyrir Grindavík en Nicol-
as Richotti 18 fyrir Njarðvík.
„Það var í raun fyrst og seinast
sá varnarleikur sem heimamenn
beittu gegn hinu firna sterka sókn-
arliði Njarðvíkinga sem skóp þenn-
an sigur fyrir heimamenn. Þeir
spiluðu megnið að leiknum mjög
harðan og fastan varnarleik og
gengu nákvæmlega eins langt og
dómarar leiksins leyfðu. Sóknar-
leikur Njarðvíkinga riðlast við
þetta þó hann hafi vissulega haldið
sjó allt til loka leiks að mestu,“
skrifaði Skúli B. Sigurðsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Í Grindavík Argentínumaðurinn Nicolas Richotti með boltann í leiknum í
gær. Hann skoraði 18 stig fyrir Njarðvík en það dugði ekki til sigurs.
Vörnin skóp sigurinn
HK var nálægt því að ná í sitt fyrsta
stig í Olís-deild karla í handknatt-
leik í gær þegar liðið tók á móti Aft-
ureldingu í Kórnum í Kópavogi.
Aftureldingu tókst að ná í bæði
stigin eftir spennandi lokakafla en
Afturelding vann 30:28.
HK var um tíma fimm mörkum
undir í síðari hálfleik, 19:24 og
20:25, en liðinu tókst þó að jafna um
tíu mínútum síðar 28:28. Guð-
mundur Bragi Ástþórsson kom Aft-
ureldingu yfir á ný með fjórða
marki sínum í leiknum 29:28 þegar
rúm mínúta var eftir. HK-ingum
tókst ekki að nýta sóknina í fram-
haldinu og fjaraði hún út þegar
rúmlega hálf mínúta var eftir.
Þorsteinn Leó Gunnarsson skor-
aði síðasta markið þegar um tíu
sekúndur voru eftir en hann skor-
aði sjö mörk fyrir Aftureldingu eins
og Árni Bragi Eyjólfsson.
Kristján Ottó Hjálmsson skoraði
einnig sjö mörk fyrir HK í aðeins
átta skottilraunum. HK er því enn
án stiga eftir fimm leiki en Aftur-
elding er með 6 stig.
Spenna í Kórnum
Morgunblaðið/Unnur Karen
Í Kórnum Þorsteinn Leó Gunnarsson sækir að vörn HK í gær en hann skor-
aði tvö af síðustu þremur mörkum Aftureldingar í leiknum.