Morgunblaðið - 26.10.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021
Sími 555 2992 / 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Valdarán Mótmælendur í Kartúm kveiktu í dekkjum og lokuðu götum.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Abdel Fattah al-Burhan, æðsti yfir-
maður súdanska hersins, lýsti í gær
yfir neyðarástandi og leysti upp
bráðabirgðastjórnina sem komið var á
fót árið 2019 eftir að herinn steypti
einræðisherranum Omar al-Bashir af
stóli.
Sagði Burhan í sjónvarpsávarpi til
þjóðarinnar að hann hygðist mynda
nýja bráðabirgða-
stjórn, en síauk-
innar spennu hef-
ur gætt síðustu
vikur í samskipt-
um hersins og
hinna borgaralegu
afla, sem deilt
hafa með sér völd-
um eftir að Bashir
var steypt af stóli.
Sagði Burhan
að herinn hefði
látið til skarar skríða til þess að „leið-
rétta gang byltingarinnar“ og hefði
því verið ákveðið að slíta bráðabirgða-
stjórninni sem og fullveldisráðinu,
sem fór með forsetavald í Súdan, en
það var skipað fulltrúum bæði hers og
borgaralegra stjórnmálaafla.
Fyrr um daginn hafði herinn látið
handtaka Abdalla Hamdok, forsætis-
ráðherra bráðabirgðastjórnarinnar,
aðra ráðherra í ríkisstjórninni og full-
trúa hinna borgaralegu afla í fullveld-
isráðinu. Var Hamdok settur í stofu-
fangelsi.
Var handtöku þeirra mótmælt á
götum höfuðborgarinnar Kartúm, og
hermdu óstaðfestar fregnir að skotið
hefði verið á mótmælendur fyrir
framan höfuðstöðvar hersins. Sagði í
yfirlýsingu frá samtökum lækna í
Súdan, sem mótmælt hafa valdarán-
inu, að um tólf manns hefðu særst.
Kveiktu mótmælendur í dekkjum og
röðuðu upp múrsteinum til þess að
loka fyrir umferðargötur í höfuðborg-
inni.
Forsvarsmenn SPA, regnhlífar-
samtaka verkalýðsfélaga í Súdan sem
voru í fararbroddi mótmælanna 2019
þegar Bashir var steypt af stóli, for-
dæmdu valdaránið harðlega í gær og
kölluðu eftir því að mótmælendur
myndu streitast á móti því með öllum
ráðum.
Þá lýstu samtök bankamanna og
lækna í Súdan því yfir að þau myndu
standa að „borgaralegri óhlýðni“.
Veifuðu mótmælendur súdanska fán-
anum og hrópuðu slagorð gegn valda-
ráninu. Sögðu mótmælendur við
AFP-fréttastofuna að þeir myndu
aldrei samþykkja yfirráð hersins, og
að mótmælum myndi ekki linna fyrr
en aftur væri hafið ferli til að koma á
lýðræði í Súdan.
Verði að virða vilja þjóðarinnar
Viðbrögð alþjóðasamfélagsins voru
flest á þá lund að fordæma valdaránið.
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi
valdaránið og krafðist þess að Ham-
dok og þeim sem hefðu verið hand-
teknir yrði sleppt úr haldi þegar í stað.
Evrópusambandið tók undir þær
kröfur að hinum handteknu yrði
sleppt sem fyrst, og Heiko Maas,
utanríkisráðherra Þýskalands, sagði
að þeir sem færu nú með stjórnar-
taumana í Súdan ættu að virða vilja
þjóðarinnar og halda áfram því ferli í
átt til lýðræðis sem hófst árið 2019.
Jeffrey Feltman, sérstakur erind-
reki Bandaríkjastjórnar í Horni Afr-
íku, sagði að Bandaríkin væru mjög
áhyggjufull vegna ástandsins í Súdan
og fregna um að herinn hefði rænt
völdum. Þá lýstu Arababandalagið og
Afríkusambandið einnig yfir áhyggj-
um sínum af ástandinu.
Skiptust í tvær fylkingar
Bráðabirgðastjórnin sem tók við í
ágúst 2019 hefur haft þann starfa að
undirbúa kosningar og stjórnarskrá,
sem átti að tryggja lýðræði í landinu
eftir tuttugu ára valdatíð Omars al-
Bashir.
Stjórnin var skipuð fulltrúum frá
hernum, sem og helstu stjórnarand-
stöðuflokkunum sem tóku við af Bas-
hir, en sá stærsti þeirra, FFC, sem
leiddi mótmælin gegn honum, skiptist
fljótlega upp í tvær hatramar fylking-
ar.
Mikill órói hefur ríkt í Súdan síðan í
síðasta mánuði, þegar herforingjar
hliðhollir Bashir reyndu að steypa
bráðabirgðastjórninni. Hafa stuðn-
ingsmenn bæði hers og hinna borg-
aralegu afla staðið að mótmælum og
gagnmótmælum í kjölfar valdaráns-
ins, og reis mótmælaaldan einna hæst
í síðustu viku.
Yasser Arman, formaður FFC,
varaði við því á fréttamannafundi á
laugardaginn að „hægfara valdarán“
væri í kortunum, en fundinum var
hleypt upp af hópi mótmælenda sem
kölluðu eftir því að herinn tæki við
fullum völdum á ný.
Hamdok forsætisráðherra hafði
einnig varað við því að deilur innan
bráðabirgðastjórnarinnar ógnuðu nú
lýðræðisferli landsins.
Sérfræðingar í málefnum Súdan
segja að mótmælin sýni að almennt sé
meiri stuðningur við fulltrúa hinna
borgaralegu afla, en að þau muni lík-
lega hafa lítil áhrif á herforingjana,
sem nú hafa ákveðið að leysa upp
bráðabirgðastjórnina.
Herinn rændi völdum á ný
- Bráðabirgðastjórnin í Súdan leyst upp og forkólfar hennar handteknir - Fjöl-
menn mótmæli í Kartúm - Skorað á herinn að sleppa hinum handteknu úr haldi
AFP
Mótmæli Fjölmennt var á götum höfuðborgarinnar Kartúm þar sem valdaráni hersins var mótmælt í gær.
Abdel Fattah
al-Burhan
ESB þurfi að láta af
hótunum sínum
Mateusz Mora-
wiecki, forsætis-
ráðherra Pól-
lands, sakaði í
gær Evrópusam-
bandið um að
hafa „beint byssu
að höfði“ Pól-
verja með hót-
unum um að ekki
yrði veitt úr
neyðarsjóðum sambandsins vegna
heimsfaraldursins nema stjórnvöld
í Póllandi breyttu um stefnu í um-
deildum umbótum sínum á dóms-
kerfi landsins.
Sagði Morawiecki í samtali við
Financial Times, að hann væri
reiðubúinn til samtals, og hét því
m.a. að leggja niður umdeildan
agadómstól gagnvart dómurum, en
bætti við að deila Pólverja og Evr-
ópusambandsins yrði ekki leyst,
nema látið yrði af hótunum um
„fjárkúgun“.
Mateusz
Morawiecki
PÓLLAND
Vinir og vandamenn Halynu Hutch-
ins, kvikmyndatökumannsins sem
lést í síðustu viku af völdum voða-
skots á tökustað myndarinnar Rust,
héldu minningarathöfn á sunnu-
dagskvöldið í Los Angeles, þar sem
fjöldi fólks kom saman og kveikti á
kertum í minningu hennar.
Háværar raddir kalla nú eftir því
að virk skotfæri verði bönnuð við
kvikmyndagerð, og höfðu um
22.000 manns undirritað bænar-
skjal þess efnis á sunnudags-
kvöldið. Þá hafa framleiðendur
sjónvarpsþáttarins „The Rookie“
ákveðið að banna öll virk skotfæri á
tökustöðum sínum vegna slyssins.
Verið var að stilla upp og æfa at-
riði, þar sem Alec Baldwin, aðal-
leikari myndarinnar, átti að draga
upp byssu sína og miða að mynda-
vélinni. Ekki er enn ljóst hvers
vegna alvöruskotfæri voru í byss-
unni, en umsjónarmenn vopna í
kvikmyndaiðnaðinum hafa sagt að
allt við slysið bendi til þess að lág-
marksöryggisreglum hafi ekki ver-
ið framfylgt.
BANDARÍKIN
AFP
Minningarathöfn Aðstandendur
kveiktu á kertum í minningu Hutchins.
Vilja banna virk
skotfæri á tökustað