Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021 Í liðsíþróttum er jafnan talið varhugavert að ganga til leiks með yfirlýsingum um að mark- miðið sé að vinna sem stærstan sigur. Á fréttamannafundi í gær vegna landsleiksins gegn Kýpur á Laugardalsvelli í kvöld sagði ein af ungu landsliðskonunum að planið væri að skora „eins mikið og við getum“. Vissulega er lið Kýpur búið að tapa með miklum mun gegn bæði Hollandi og Tékklandi í þessum undanriðli fyrir heims- meistaramótið. Og það kæmi ekkert á óvart þótt íslenska liðið færi að for- dæmi þeirra og myndi skora þó nokkur mörk í kvöld. En það er grundvallaratriði að sýna mótherjanum virðingu, af- greiða hann ekki fyrir fram sem léttvægan og koma til leiks með þá trú að andstæðingurinn geti ekki neitt og sigurinn verði sem stærstur. Hversu mörg mögnuð dæmi höfum við ekki séð í íþróttasög- unni um hve hættuleg slíkt getur reynst? Við Íslendingar höfum ein- mitt unnið okkar bestu sigra þegar vanmat andstæðingsins hefur verið hvað mest. Ekki þarf að leita lengra en til sigursins á Englendingum í Nice sumarið 2016 til að rifja upp nærtækt dæmi. Þorsteinn þjálfari gerði það sem hann gat í gær til að kveða niður þessar 10:0-vangaveltur og mun eflaust halda því áfram þar til flautað verður til leiks í kvöld. Spili íslenska liðið jafn vel og það gerði gegn Tékkum á föstudag er ekkert að óttast. Og með sama hugarfari. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þrír nýliðar eru í íslenska kvenna- landsliðinu í körfuknattleik sem Benedikt Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið fyrir leiki gegn Rúm- eníu og Ung- verjalandi í und- ankeppni EM í næsta mánuði. Anna Ingunn Svansdóttir úr Keflavík, Dagný Lísa Davíðsdóttir úr Fjölni og Elísabeth Ýr Æg- isdóttir úr Haukum eru nýliðarnir þrír en hinir níu leikmennirnir eru þessir: Helena Sverrisdóttir, Haukum (77), Hallveig Jónsdóttir, Val (25), Sara Rún Hinriksdóttir, Phoenix Constanta (23), Embla Krist- ínardóttir, Skallagrími (21), Þóra Kristín Jónsdóttir, AKS Falcon (21), Dagbjört Dögg Karlsdóttir, Val (8), Bríet Sif Hinriksdóttir, Haukum (6), Lovísa Björt Henn- ingsdóttir, Haukum (6), Ásta Júlía Grímsdóttir, Val (2). Hildur Björg Kjartansdóttir úr Val, Isabella Ósk Sigurðardóttir úr Breiðabliki og Guðbjörg Sverris- dóttir úr Val eru ekki með vegna meiðsla og Sigrún Björg Ólafs- dóttir kemst ekki í leikina frá Bandaríkjunum. Þrír nýliðar valdir fyrir EM-leikina Anna Ingunn Svansdóttir Óvissa er með stöðuna hjá Helenu Sverrisdóttur landsliðskonu í körfuknattleik úr Haukum sem fór af velli vegna meiðsla snemma leiks gegn Grindavík í fyrrakvöld. Hel- ena sagði við mbl.is í gærmorgun að hún væri með marinn liðþófa, bólgur og vökva inni í öðru hnénu og hefði spilað hálfmeidd að undan- förnu. „Ég er nokkuð örugg á því að það er ekkert slitið í hnénu en þetta er í ferli hjá sjúkraþjálfurum Hauka,“ sagði Helena sem vonast eftir því að spila gegn Brno í Evr- ópubikarnum á fimmtudag. Óvissa með meiðsli Helenu Morgunblaðið/Hari Tvísýnt Helena Sverrisdóttir glímir við meiðsli í hné en er bjartsýn. Sævar Baldur Lúðvíksson varð um helgina tvöfaldur Norðurlanda- meistari í skylmingum með höggs- verði en Norðurlandamótið var þá haldið í Espoo í Finnlandi. Ísland vann tvöfalt í karlaflokki því Sævar sigraði Gunnar Egil Ágústsson í úr- slitaleik, 15:12. Þeir voru síðan báð- ir í sigursveit Íslands í liðakeppni með höggsverði ásamt Jakobi Lars Kristmannssyni og Emil Ísleifi Sumarliðasyni. Anna Edda Gunn- arsdóttir Smith komst einnig á verðlaunapall en hún fékk brons í kvennaflokki. Sævar vann tvöfalt í Espoo Ljósmynd/Skylmingasambandið Sigurvegari Sævar Baldur Lúðvíks- son eftir úrslitaviðureignina. HM 2023 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Þorsteinn Halldórsson, þjálfari ís- lenska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu, segir afar mikilvægt að Ís- land mæti til leiks af fullum krafti þegar liðið fær Kýpur í heimsókn, í C-riðli undankeppni HM 2023, á Laugardalsvöll í kvöld. Ísland er með 3 stig í fjórða og næstneðsta sæti riðilsins eftir tvo spilaða leiki en Evrópumeistarar Hollands eru í efsta sætinu með 7 stig. Tékkland kemur þar á eftir með 4 stig, Hvíta-Rússland er með 3 stig og Kýpur án stiga í neðsta sætinu. Íslenska liðið tapaði sínum fyrsta leik í undankeppninni gegn Evr- ópumeisturum Hollands á Laug- ardalsvelli, 0:2, en vann svo 4:0- stórsigur gegn Tékklandi í öðrum leik sínum sem fram fór á föstu- daginn í síðustu viku á Laugardals- velli. Á sama tíma hefur Kýpur leikið þrjá leiki í undankeppninni til þessa; gegn Hvíta-Rússlandi, Tékk- landi og Hollandi. Kýpur tapaði 1:4-gegn Hvíta-Rússlandi 17. sept- ember í Minsk í Hvíta-Rússlandi og svo 0:8-gegn Tékklandi í Libe- rec í Tékklandi 21. september. Kýpverjar töpuðu svo 0:8-gegn Hollandi í Lárnaka á Kýpur á föstudaginn í síðustu viku. Kýpverska liðið er sem stendur í 126. sæti heimslista FIFA og hefur aldrei verið neðar á listanum en einmitt núna. Liðið hefur verið í 126. sæti frá því í júní á þessu ári en besti árangur liðsins á heimslist- anum er 93. sæti árið 2017. Ótrú- legt en satt þá hafa liðin aldrei mæst í knattspyrnuleik áður, en Ís- land er sem stendur í 16. sæti heimslistans og því munar 110 sæt- um á liðunum í dag. Nálgast verkefnið af festu „Það er mikill dugnaður í þessu Kýpurliði þótt úrslitin í síðustu tveimur leikjum hjá þeim hafi ekki verið góð,“ sagði landsliðsþjálfarinn Þorsteinn á blaðamannafundi ís- lenska liðsins í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í gær. Þær áttu í ákveðnu basli á móti Hollandi enda frábært lið og þær voru í basli með föstu leikatriðin á móti Tékklandi. Hollendingarnir spiluðu meira í gegnum þær á með- an Tékkarnir refsuðu þeim úr hornspyrnum og föstum leik- atriðum. Þær fengu hins vegar færi í báðum leikjum og komu sér oft í fínar stöður. Við getum því ekki nálgast þenn- an leik eins og við séum að fara að labba í gegnum þær. Við þurfum að nálgast verkefnið af festu og krafti. Það er fáránleg umræða að við séum að fara að vinna leikinn 10:0, við erum fyrst og fremst að hugsa um að vinna hann,“ sagði Þor- steinn. Það hefur verið góður stígandi í leik liðsins síðan Þorsteinn tók við þjálfun kvennalandsliðsins í janúar á þessu ári en hann stýrði áður Breiðabliki í efstu deild kvenna. „Við höfum verið að þróa okkar leik í ákveðna átt og mér finnst það hafa gengið vel. Við viljum halda boltanum innan liðsins og spila inn í ákveðin svæði. Við höfum æft það talsvert mikið að undanförnu og ég vil að við spilum þannig fótbolta að við þorum að vera með boltann. Við þurfum að þora að stjórna leikjum, sama á móti hverjum við erum að spila. Að sama skapi þurf- um við líka að verjast og við mun- um lenda í því að þurfa liggja til baka og verja markið okkar. Fót- bolti snýst um að verjast og sækja og við þurfum að vera góð í hvoru tveggja,“ bætti Þorsteinn við á blaðamannafundi íslenska liðsins. Rétt hugarfar lykillinn að árangri gegn Kýpur - Íslenska kvennalandsliðið mætir botnliði Kýpur á Laugardalsvelli í kvöld Morgunblaðið/Unnur Karen Mark Fyrirliðinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fagnar marki sínu og fjórða marki Íslands gegn Tékklandi á Laugardalsvelli á föstudaginn. Nokkuð mun hafa verið um funda- höld við götuna Sir Matt Busby Way í Manchester í gær. Staðarmiðillinn Manchester Evening News fullyrti samkvæmt heimildum að stjórn- endur Manchester United íhugi al- varlega að segja knattspyrnustjóra karlaliðsins, Ole Gunnari Solskjær, upp störfum. Liðið tapaði 0:5 gegn Liverpool á sunnudag og hefur ekki tekist að vinna í síðustu fjórum leikj- um í deildinni. Yrði Solskjær vikið úr starfi þá yrði það kostnaðarsöm ákvörðun því í sumar var gerður við hann þriggja ára samningur. Ljóst er hins vegar að pressan hefur aukist eftir þessi úrslit og ekki síst vegna þess að Cristiano Ronaldo sneri aftur til fé- lagsins. Sparkspekingar eru hins vegar ekki á einu máli um hvort sú viðbót við leikmannahópinn sé heppileg eða ekki. Ítalinn Antonio Conte var strax orðaður við stjórastöðuna en hann er atvinnulaus eftir að hafa lent upp á kant við stjórnendur Inter. Staðar- blaðið hefur heimildir fyrir því að Conte hafi áhuga á að ræða málin, fari svo að staðan losni. En hann slær þann varnagla að hann vilji heyra frá stjórnendum United hvort þeir hafi meiri áhuga á að vinna bik- ara eða selja varning. kris@mbl.is AFP Áhyggjufullur Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær var miður sín eftir tapið gegn Liverpool og sagði úrslitin þau verstu á sínum þjálfaraferli. Starfsöryggið minnkar hratt - Fundahöld hjá Manchester United

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.