Morgunblaðið - 26.10.2021, Page 28

Morgunblaðið - 26.10.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að K ynferðisleg áreitni og mis- notkun hafa tröllriðið um- ræðunni að undanförnu. Einkum hefur brot karla á konum borið á góma, en þær geta líka verið tvöfaldar í roðinu auk þess sem karlar eru ekki síður misnotaðir kynferðislega. Spennusagan Þögla ekkjan eftir Söru Blædel er raunsæ frásögn af vanda- málinu og ekkert er dregið undan. Ómögulegt er að setja sig í spor þeirra sem verða fyrir kynferðis- legri áreitni og þeirra sem standa þeim næst nema fyrir þá sem hafa upplifað árásina. Engu að síður má reyna og það gerir Sara Blædel í Þöglu ekkjunni með góðum árangri. Danski glæpasagnahöfundurinn hefur byggt sögur sínar á sönnum at- burðum. Hvort svo er að þessu sinni liggur ekki fyrir en frásögnin er trú- verðug og lýsir vel ruddaskap og græðgi, eins og svo oft áður í verkum Söru Blædel. Louise Rick er lesendum vel kunn úr fyrri verkum höfundar. Hún er enn einu sinni í nýju starfi og því skiptir mikilu máli að vel takist til í fyrsta verkefninu, rannsókn á morði á kráareiganda í Danmörku. Hún hefur líka skyldum að gegna í einka- lífinu og forgangsröðin getur því ver- ið erfið. Þegar til kastanna kemur reynist morðið tengjast óhuggulegri atburðarás, sem ekki sér fyrir end- ann á fyrr en í lok sögunnar. Þögla ekkjan er áhrifarík frásögn af misnotkun, græðgi og afleiðingum illra verka, þar sem augum er sér- staklega beint að samkynhneigðum körlum og viðhorfi til þeirra. Sara Blædel hefur skrifað nokkrar mjög góðar glæpasögur og þessi raðast í flokk þeirra bestu. Stíllinn klikkar ekki, efnistökin eru góð og niður- staðan leynir á sér. Helstu persónur eru trúverðugar og höfundur dregur vel fram hvernig að því er virðist besta fólk er ekkert annað en skít- seiði af verstu tegund, sem er ekki viðbjargandi og á ekkert gott skilið. Blædel „Þögla ekkjan er áhrifarík frásögn,“ segir gagnrýnandinn. Raðast í flokk þeirra bestu Glæpasaga Þögla ekkjan bbbbm Eftir Söru Blædel. Ingunn Snædal þýddi. Bjartur 2021. Kilja, 391 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Þótt kvikmyndahátíðinni RIFF sé lokið þá er enn hægt að horfa á valdar myndir á vef hátíðarinnar, RIFF heima – watch.riff.is/. Þar hefur nú verið heimsfrumsýnd heimildarmyndin Kolapse, sem er fjölþjóðlegt verkefni sýnt á sama tíma víða um lönd og er myndin er aðgengileg öllum án endurgjalds. Nú í vikunni, til 30 október, er einnig hægt að sjá kvikmyndir sem sýndar voru á RIFF í flokknum „Ís- land í sjónarrönd“, alla stutt- myndadagskrána sem var undir þeim hatti og þrjár myndir í fullri lengd. Það eru kvikmyndirnar Ekki einleikið eftir Ásthildi Kjartans- dóttur, Uglur eftir Teit Magnússon og Hvunndagshetjur eftir Magneu Björk Valdimarsdóttur. Kolapse er lýst sem rafrænum vettvangi sem ætlað er að stuðla að samtali þjóða um neyðarástand í loftslags- og samfélagsmálum. Listamenn úr ýmsum greinum, að- gerðasinnar og leiðtogar sameina þar krafta sína, kynna verk sín og taka þátt í umræðum um framtíð Jarðar og þær áskoranir sem næstu áratugir munu hafa í för með sér. Kolapse og fleiri myndir á RIFF-heima Umræða Andri Snær Magnason í mynd- inni Kolapse sem sýnd er á RIFF-heima. Epypsk liststofnun, Art D’Egypte, hefur í fjórða sinn sett upp mynd- listarsýningu með heitinu „Forever Is Now“ en jafnframt þá fyrstu sem leyfi fæst fyrir að setja upp við Gísa-píramídana frægu við Kaíró- borg. Eftir nokkurra ára samninga- viðræður við egypsk yfirvöld og Menningarstofnun Sameinuðu þjóð- ana fékkst leyfi til að setja í fyrsta sinn upp samtímalistsýningu við frægustu píramída landsins, með verkum tíu listamanna sem komið er fyrir í eyðimörkinni nærri graf- hýsunum heimskunnu. AFP Sjónblekking Franski stjörnulistamaðurinn JR hefur komið fyrir verki sem lætur líta út fyrir að toppurinn á Keops-píramídanum, þeim hæsta af Gísa-píramídunum þremur, svífi. Hann kallar verkið „Með kveðju frá Gísa“. Myndlist við píramídana Hendur Verk ítalska listamannsins Lorenzos Quinns, „Saman“, ber við píra- mídana, hið eina af svonefndum sjö undrum fornaldar sem enn stendur. „Þjóðlög úr framtíð“ kallar Kjartan Ólafsson tónskáld nýtt verk sitt sem kemur út á streymisveitum á morg- un, miðvikudag. Þá verða jafnframt útgáfu-streymistónleikar í menning- arhúsinu Mengi sem hefjast kl. 20. Á tónleikunum kynnir Gunnsteinn Ólafsson þjóðlögin og Bára Gríms- dóttir og Pétur Húni Björnsson kveða ljóðin en að því búnu verður hin nýja tónlist Kjartans frumflutt. „Þjóðlög úr framtíð“ byggist á átta íslenskum þjóðlögum sem voru hljóðrituð og farið með í ferðalag um tækniheima nútímans, þar sem Kjartan segir að dulin og áður óþekkt blæbrigði þjóðlaganna komi fram á nýstárlegan hátt. Hljóðrit- aðar voru hendingar úr þjóðlög- unum á bæði hefðbundin og stafræn hljóðfæri og unnið með þær í hljóð- veri, bæði hvað varðar tónefni og hljóðmynd. Efniviðurinn byggist á taktmótíf- um og tónefnivið þjóðlaganna og er nýrri tækni beitt, með aðstoð gervi- greindar, til að vinna með tónefnið og setja það í semhengi við „nútíma- tónlistarumhverfi, oft með súrreal- ískri útkomu“, eins og Kjartan seg- ir. Teygir sig inn í popptónlist „Þjóðlögin eru grunnur að þess- um átta verkum og ég nota gervi- greind til að búa til alls konar varí- anta úr efniviðnum,“ segir hann. „Þá kom ýmislegt í ljós sem ég held að eigi eftir að vekja ýmsa til umhugs- unar um það hvað þjóðlögin eru innihaldsrík.“ Og hann bætir við að þar hafi eiginlega komið fram stílar sem teygi sig inn í dægur- eða popp- tónlist. „Þegar efnið fór að teygja sig inn í popptónlist ákvað ég að leyfa því bara að koma og vera ekki að þvinga þetta inn í neitt ákveðið form eða stíl. Hjá þeim sem takast á við að greina svona tónlist er hætt við að það lendi á einhvers konar flækjustigi.“ Kjartan segist beita alls kyns hljóðverkstækni á efniviðinn og hug- myndin hafi verið sú að kanna þenn- an þjóðararf, „eins og fjölmargir hafa gert. Þar á meðal Jón Ásgeirs- son, Jón Leifs, Jórunn Viðar, Jón Þórarinsson, Bára Grímsdótir og svo Egill Ólafsson og Þursaflokk- urinn.“ Þessi tónskáld notuðust vissulega ekki við gervigreind við úrvinnsluna úr þjóðlagaarfinum en Kjartan segir þau hafa notast við þá tækni sem þeim stóð til boða. „Ég nýtti þannig alla þá tækni sem ég hef aðgang að og þá fór að birtast þetta mjög áhugaverða og leynda innihald, sem er í þjóðlögunum þótt þau séu ein- föld í formi. Það sem mesta athygli vöktu voru taktmótífin. Kannski má segja að þjóðlögin hafi verið popplög síns tíma hér á landi.“ efi@mbl.is Notaði gervigreind við úrvinnslu úr þjóðlögum - Kjartan Ólafsson gefur út Þjóðlög úr framtíð Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Tónskáldið „Kannski má segja að þjóðlögin hafi verið popplög síns tíma hér á landi,“ segir Kjartan um taktmótíf þjóðlaganna sem hann vinnur með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.