Morgunblaðið - 26.10.2021, Side 32

Morgunblaðið - 26.10.2021, Side 32
Léttar veitingar Happdrætti Frábær tilboð Kynningar Uppákomur Jólavörur Ljósmyndabox á Smáratorgi 28. október frá 19:00 – 20:30 Bleikt kvöld Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Alþjóðega stuttmyndahátíðin Northern Wave var haldin í 13. skiptið um helgina í Frystiklefanum á Rifi. Auk kvikmyndasýninga var boðið upp á tónleikaveislu, þar sem Reykjavíkurdætur og Vök komu fram. Reykjavíkur- dætur báru sigur úr býtum fyrir besta tónlistarmynd- bandið við lagið „Thirsty hoes“ í leikstjórn Þuríðar Blævar Jóhannsdóttur. Besta alþjóðlega stuttmyndin var valin hin íranska „Don’t Tell Anyone“ eftir Sahar Sotoodeh, besta íslenska stuttmyndin var „Selsham- urinn“ eftir Uglu Hauksdóttur og „Krepptur hnefi“ eftir Loga Sigursveinsson fékk sérstaka viðurkenningu. Reykjavíkurdætur áttu besta tón- listarmyndbandið á Northern Wave ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 299. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. KA/Þór, ÍBV og Haukar fengu andstæðinga frá Spáni, Grikklandi og Rúmeníu þegar dregið var til þriðju um- ferðar í Evrópubikar kvenna og karla í handknattleik í Vínarborg í gær. Íslensku liðin þrjú, kvennalið ÍBV og KA/Þórs og karlalið Hauka, komust í gegnum aðra umferðina sem lauk um síðustu helgi en karlalið Selfoss, FH og Vals og kvennalið Vals eru öll fallin úr keppni á þessu líflega Evrópuhausti í íslenskum handbolta. KA/Þór á væntan- lega erfiðasta verkefnið fyrir höndum gegn Elche. »26 Andstæðingar frá Spáni, Grikklandi og Rúmeníu í Evrópukeppnunum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir liðlega aldarfjórðungi stofn- uðu hjónin Benedikt Ingi Grétarsson og Ragnheiður Hreiðarsdóttir gjafa- vöruverslunina Jólagarðinn í Sveinsbæ í Eyjafjarðarsveit, um átta km inn af miðbæ Akureyrar. Þar er sitt lítið af hverju í Eplakofanum, Pop-Up Brothers-bragganum, Bak- garði „tante Grethe“ og sjálfu jóla- húsinu, en þar hefur jólastemningin ráðið ríkjum frá því reksturinn hófst. „Grunnhugsunin var að skapa störf fyrir okkur og börnin á meðan þau væru að vaxa úr grasi,“ segir Benedikt um stofnunina 31. maí 1996. „Við töldum að starfseminni lyki þegar við hjónin færum í gröfina en þegar Margrét Vera, dóttir okk- ar, vildi koma inn í reksturinn sett- um við stefnuna á að minnsta kosti 100 ár.“ Kórónuveiran hefur víða sett strik í reikninginn en Benedikt kvartar ekki. „Íslendingar hafa alltaf verið traustir viðskiptavinir en þeir hafa aldrei verið fleiri hjá okkur en tvö undanfarin sumur. Það sem okkur þykir vænst um er að börn sem komu með foreldrum sínum, þegar við byrjuðum, eru farin að mæta með sín börn, þannig að hver kynslóð tek- ur við af annarri.“ Enginn vöruskortur Að undanförnu hefur verið rætt um vöruskort vegna veirunnar og jafnvel að jólavörur komi ekki til landsins fyrr en eftir áramót, en það hefur engin áhrif á Jólagarðinn. „Jólin eru allt árið hjá okkur og því skiptir ekki máli hvenær við fáum vörurnar auk þess sem við erum með mjög marga birgja víðs vegar í heim- inum og lendum aldrei í vandræð- um.“ Synirnir þrír; Grétar Húnn, Tóm- as Karl og Benedikt Fáfnir, aðstoð- uðu við afgreiðsluna þegar þeir voru yngri og hafa síðan séð um jólaljósin, byggingarnar og allt annað sem til fellur á jólaheimilinu. Ragnheiður á mörg systkini og Benedikt systur. Hann segir að afkomendur flestra þeirra hafi unnið hjá fyrirtækinu á sumrin auk annarra starfsmanna. „Þetta er því sannkallað fjölskyldu- fyrirtæki.“ Benedikt segir að nóg sé að gera á sumrin, ekki síst við að búa til popp, möndlur, kaffibrauð, smákökur, laufabrauð og annað meðlæti fyrir gesti. „„Útikaffihúsið“ okkar, sem er ekki kaffihús, hefur slegið í gegn. Þetta er sennilega eina kaffihúsið sem rekið er undir berum himni árið um kring og gestir njóta þess að fá sér kaffi eða kakó og með því hvern- ig sem viðrar.“ Flest sem viðkemur jólum og jóla- skreytingum má fá í jólahúsinu. „1998 létum við fjöldaframleiða jóla- sveina, sem Sunna Björk Hreiðars- dóttir teiknaði fyrir okkur, og „jóla- sveinarnir okkar“, eins og við köllum þá, hafa síðan selst best á hverjum tíma,“ segir Benedikt. Að sjálfsögðu hljómar jólatónlist í jólahúsinu allt árið. „Frá byrjun höf- um við spilað disk með John Denver og Prúðuleikurunum og annan með Ladda og Strumpunum, en um þetta leyti árs bætast svo við fleiri jólalög fram að hátíðinni sjálfri.“ Benedikt segist leggja mikið upp úr því að taka vel á móti gestum. „Við viljum að þeir finni að þeir séu velkomnir, að andrúmsloftið sé já- kvætt, og það hefur sýnt sig að það fellur í góðan jarðveg, því þeir koma aftur og aftur.“ Ljósmynd/Hulda Harðardóttir Stemning Ragnheiður Hreiðarsdóttir, Benedikt Ingi Grétarsson og Margrét Vera við búðarborðið í jólahúsinu. Alltaf jólin fyrir norðan - Jólagarðurinn hefur verið í Sveinsbæ í aldarfjórðung

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.