Morgunblaðið - 27.10.2021, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 27.10.2021, Qupperneq 7
fimmtíu ára og eldra, þurfi kannski ekki að drífa sig heim og elda í lok vinnudags. Annar aðilinn vill kannski fara að slá nokkra golfbolta í golf- hermi sem þarna verður og makinn vill fara í píla- tes eða jóga í næsta húsi. Svo er hist yfir góðum kvöldverði á veitingastað í hverfinu eftir á.“ Þorgerður segir að veitingastaðir eigi að geta blómstrað í svona umhverfi, sérstaklega ef fyrir- tækin á svæðinu eru ekki öll með eigið mötuneyti. Spurð um verðmæti lands eins og Arnar- landsins segir Þorgerður það geta verið afstætt. Til dæmis sé land sem sveitarfélag hefur ákveðið að ekki eigi að byggjast verðlítið en land sem er inni á aðalskipulagi þar sem gert er ráð fyrir upp- byggingu sé verðmætt. „Þarna hefur alltaf legið fyrir að eigi að byggja. Það hefur verið á aðal- skipulagi lengi. En það hefur ekki legið fyrir hvernig byggð það ætti að vera.“ Auk þeirra tvö hundruð starfsmanna Ósa sem koma inn á svæðið þegar fyrirtækin í samstæð- unni flytja í hverfið er fyrirséð, miðað við áhuga fyrirtækja á uppbyggingunni, að sú tala verði fljót að hækka. Lögð verður áhersla á að opna dyrnar fyrir fyrirtækjum sem sérhæfa sig í ný- sköpun, þróun og þjónustu innan heilsugeirans að sögn Þorgerðar. „Heilsugeirinn er mjög eftir- sóknarverður geiri að hafa innan síns sveitarfé- lags, enda mjög snyrtileg og jákvæð starfsemi.“ Tilbúið í lok árs 2022 Viðbúið er að sögn Þorgerðar að margvísleg tengd starfsemi verði á svæðinu eins og t.d. heilsugæsla, sérfræðilæknar, jógastöð, tann- læknar, nuddarar, heilsurækt, en einnig verslanir með íþrótta- og útivistarvörur. „Þar verður hægt að kaupa allt sem viðkemur hreyfingu frá jóga- dýnu upp í fóðraðan spandexbúning til að nota á hjólinu þínu.“ Spurð um tímasetningar segir Þorgerður að lokum að stefnt sé að því að deiliskipulag verði tilbúið í lok árs 2022. dir og tækifæri fæðast Morgunblaðið/Árni Sæberg efninu. „Við sem komum til með að vinna saman að þessu verðum að setja hjarta og sál í þetta og vinna af ástríðu. Persónulega vil ég geta horft stolt til baka eftir 40-50 ár. Þannig vil ég að öðrum líði einnig. Þú getur búið til frábært teymi sér- fræðinga, en ef hjartað er ekki með í för verður verkefnið aldrei framúrskarandi.“ Að sögn Þorgerðar er þessa ástríðu einmitt að finna hjá samstarfsaðilanum Garðabæ sem náið er unnið með að framgangi verkefnisins. Þorgerður undirstrikar sérstöðu verkefnisins. „Mjög oft eru hannaðar einingar eða hverfisbútar þar sem mjög óljós skilaboð eru gefin um hvaða atvinnustarfsemi á að koma í hverfið. Þá getur svæðið orðið mjög ósamstætt. Hér erum við í nafla höfuðborgarsvæðisins. Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla sem að þessu koma og öll hugs- un og allt skipulag mun taka mið af þessari heilsu- tengingu. Það kemur þá engum á óvart hvaða at- vinnustarfsemi velst inn á svæðið.“ Eins og Þorgerður útskýrir er hægt að eyði- leggja gott landsvæði með engri eða illa ígrund- aðri hugmyndafræði. Það sé algjör sóun á nátt- úrugæðum. „Svo geturðu verið með slæmt landsvæði, en með góðri og vel útfærðri hugmynd geturðu bætt það til muna. Það er einstakt hjá okkur að hafa bæði gott landsvæði og góða hug- myndafræði allt frá byrjun.“ Þorgerður segir að það hjálpi svæðinu að vera ekki of stórt eins og hún orðar það. „Það þýðir að hugmyndin á að geta skinið í gegn á öllu svæðinu. Hverfið heldur vel utan um heildarsýnina.“ Iðar af lífi frá morgni til kvölds Hún bætir við að þjónustuaðilar sem koma til með að reka veitinga- og kaffihús í hverfinu muni njóta góðs af því að vera á svæði sem iðar af lífi frá morgni og langt fram á kvöld. Það sé eðli bland- aðrar atvinnu- og íbúðabyggðar eins og hér um ræðir. „Svo má ímynda sér að fólk á þessum aldri, MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 7VIÐTAL Að sögn Þorgerðar áttu Ósar hugmyndina að heilsubyggðinni. „Við sem landeigendur vor- um búin að máta alls konar hugmyndir inn á þetta svæði, reyna að finna út hvað hentaði best. Ósar eru algjörlega leiðandi með hug- myndafræðina og þeir sýna bæði í orði og á borði að þeim er full alvara með því að kaupa 49% í svæðinu. Ég er ótrúlega spennt fyrir framhaldinu. Forsvarsmenn Ósa eru skemmtilega framsæknir í sinni sýn fyrir verkefnið og mikil vítamínsprauta,“ segir Þorgerður en forsvarsmenn og stærstu eig- endur Ósa eru feðgarnir Kristján Jóhanns- son og Jóhann Ingi Kristjánsson. Hálfdán Gunnarsson framkvæmdastjóri Parlogis mun leiða uppbyggingu á atvinnuhluta svæðisins fyrir hönd Ósa. Ósar áttu hugmyndina Fólk um fimmtugt er enn í blóma lífsins eins og Þorgerður útskýrir, en húsnæðið sem boðið verður upp á er fjölbreytt og mun henta ólíkum aðstæðum fólks. „Ef halla fer undan fæti hvað heilsuna varðar geturðu bú- ið í þessu hverfi lengur en annars staðar. Þjónustan í klasanum sér til þess ásamt því að íbúðirnar verða sérhannaðar til að mæta þörfum framtíðar.“ Þar á Þorgerður við aðstöðu fyrir heilsu- rækt, tómstundir og virkan lífsstíl. Fjöl- breytta lækna- og heilbrigðisþjónustu í næsta nágrenni, sólarhringsvöktun og -þjónustu, bílakjallara og aðgengi að lyftum og aðgengi að fjarheilbrigðisbúnaði meðal annars. Getur búið lengur en annars staðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.