Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 9

Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 9SJÓNARHÓLL Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt M eð lögum nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn mælti löggjafinn fyrir um regluverk til áherslu á vernd ábyrgðarmanna og formfestu og fagleg vinnubrögð við gerð lánasamn- inga þar sem krafist væri ábyrgðarmanna. Nokkur styr stóð um lögin á sínum tíma og álitaefni um túlkun þeirra og áhrif komið til kasta dómstóla í fjölda mála frá setningu þeirra. Lögunum er ekki einungis ætlað að taka til réttarsambands lán- veitanda, skuldara og ábyrgðarmanns við upphaf lánveitingar og þá hvort ábyrgðarmaður sé sannanlega upplýstur um áhættu þá sem felst í lánveitingu heldur mæla lögin einnig fyrir um réttar- samband lánveitanda og ábyrgðarmanns eftir að lán hefur verið veitt og þá sér- staklega formreglur sem fylgja ber við vanskil skuldara. Í 7. gr. laga nr. 32/200 er fjallað um til- kynningarskyldu lánveitanda og afleið- ingar þess að henni sé ekki sinnt. Kveðið er á um að lánveitanda beri skylda til að tilkynna ábyrgðarmanni svo fljótt sem unnt er við nánar greindar aðstæður, s.s vanskil lántaka, brottfall trygginga, and- lát lántaka og gjaldþrotaskipti á búi hans. Meginsjónarmiðið er að lánveit- andi tilkynni ábyrgðarmanni um öll þau atvik sem áhrif geta haft á forsendur ábyrgðar ábyrgðarmanni í óhag. Jafn- framt ber lánveitanda að tilkynna ábyrgðarmanni um hver áramót um stöðu láns sem hann er í ábyrgðum fyrir, þ.m.t. um vanskil og hversu mikil þau séu. Í 2. mgr. 7. gr. kemur þá fram að ábyrgðarmaður skuli vera skaðlaus af vanrækslu á framangreindri tilkynningarskyldu og ef vanrækslan er veruleg skuli ábyrgð falla niður. Í Hrd. 229/2015 reyndi á hvað teldist veruleg vanræksla á til- kynningarskyldu en samkvæmt niðurstöðu réttarins var talið að tryggingaréttindi væru varin af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og þau eignarréttindi gætu ekki á grundvelli 2. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 fallið niður, nema sýnt væri fram á að lánastofnun hefði valdið ábyrgðarmönnum öðrum og meiri skaða en bættur yrði með úrræðum 3. og 4. mgr. 7. gr., er lúta að niðurfellingu dráttarvaxta og banni við gjaldfellingu láns í heild sinni. Í Hrd. 438/2017 var tal- ið að lánastofnun hefði vanrækt tilkynningarskyldu sína en ekki talið sýnt fram á að skilyrði væru til niðurfellingar ábyrgðar skv. 2. mgr. 7. gr. Hæstiréttur komst að sambærilegri niðurstöðu í Hrd. 23/2017. Í nýlegum dómi Landsréttar frá 15. október 2021 í máli nr. 374/ 2020 kom álitaefni um niðurfellingu ábyrgðarskuldbindingar skv. 2. mgr. 7. gr. í fyrsta sinn til umfjöllunar fyrir Landsrétti. Máls- atvik voru þau að Þ ehf. hafði gefið út tryggingarbréf til LÍ hf. á árinu 2007 fyrir öllum skuldum Þ ehf. og var fasteign A sett að veði með samþykki A og maka hans. Bú Þ ehf. var tekið til gjald- þrotaskipta árið 2010 og lauk skiptum án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur. L hf. sem tekið hafði við réttindum LÍ hf. krafðist þess með stefnu þann 9. febrúar 2019 að A yrði gert að þola að fjárnám yrði gert vegna skuldar Þ ehf. inn í veðrétt sam- kvæmt tryggingarbréfi útgefnu árið 2007, tryggðu með veði í fasteign A. Í málinu var upplýst að ábyrgðarmaðurinn A hafði flutt til Nýja-Sjálands árið 2009 og verið búsettur þar síðan. Kvaðst A engar til- kynningar hafa fengið um gjaldþrot Þ ehf. og áhrif þess á ábyrgðarveitingu hans. Í málinu lá fyrir að L hf. hafði prentað út í kerfum sín- um tilkynningar til A um gjaldþrot Þ ehf. í september 2010 ásamt því að prenta út ár- lega yfirlit yfir ábyrgðir A og skuld Þ ehf. við L hf. þar sem getið var um ábyrgðarfjárhæð og óskað eftir athugasemdum við yfirlitið. Ágreiningslaust var hins vegar að L hf. gerði enga tilraun til að koma þessum tilkynn- ingum í hendur A í Nýja-Sjálandi þrátt fyrir að L hf. hefði fengið upplýsingar um heimilis- fang A í nóvember 2010. Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu L hf. hefði ekki rækt skyldu sína samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 um að tilkynna ábyrgðarmanni um öll þau atvik sem gætu haft áhrif á forsendur ábyrgðar. Með því hefði L hf. svipt A möguleikanum á því að greiða gjaldfallna afborgun miðað við stöðu skuldarinnar á gjalddaga hverju sinni eða gæta á annan hátt hagsmuna sinna. Það stoðaði ekki L hf. að bera því við að heimilisfang A hafi ekki verið skráð til fulls í þjóðskrá þar sem L hf. hafi búið yfir upplýs- ingum um heimilisfang A í Nýja-Sjálandi. Í ljósi allra atvika máls- ins og fortakslausrar tilkynningarskyldu L hf. sem hann vanrækti með öllu, yrði ekki hjá því komist að líta svo á að um verulega van- rækslu í skilningi 2. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 væri að ræða og að ábyrgð A sem veðsala yrði þar með niður fallin. Með dómi Landsréttar í máli nr. 374/2021 hefur þannig verið mörkuð lína um hvenær vanræksla lánveitanda á tilkynningu get- ur talist vera svo veruleg að til niðurfellingar ábyrgðar komi, með tilheyrandi áhrifum á tryggingaréttindi sem henni tengjast. Niðurfelling ábyrgðar LÖGFRÆÐI Birgir Már Björnsson hæstaréttarlögmaður á LEX lögmannsstofu og kennari í skuldaskila- og eignarrétti við Háskólann í Reykjavík ” Með dómi Landsréttar í máli nr. 374/2020 hefur þannig verið mörkuð lína um hvenær van- ræksla lánveitanda á til- kynningu getur talist vera svo veruleg að til niðurfellingar ábyrgðar komi, með tilheyrandi áhrifum á tryggingarétt- indi sem henni tengjast. keimur af sápustykki – skiptast á að kitla bragðlaukana. Eikin sækir á eftir því sem sopunum fjölgar og hægt að greina vott af dökku súkku- laði og sætri mandarínu. Líkt og ilmurinn er bragðið kjötmikið og fyllir munninn vel. Eftirbragðið er heitt, enda áfeng- ishlutfallið 47,4%. Milt í fyrstu en notalegir kryddtónar og salt verða meira áberandi í seinni sopum. Finna má margar viskítegundir sem komnar eru langt yfir bílprófs- aldur og hafa ekki nærri því svona mikinn persónuleika. Ardbeg Wee Beastie er til sölu hjá ÁTVR á 12.000 kr. en sérpanta þarf flöskuna. ai@mbl.is Þrátt fyrir að hafa aðeins fengið að þroskast í fimm ár er Ardbeg Wee Beastie litríkt og margslungið viskí sem kemur á óvart í hverjum sopa. Ljósmynd/Ásgeir Ingvarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.