Morgunblaðið - 19.11.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 19.11.2021, Síða 4
200 175 150 125 100 75 50 25 0 júlí ágúst september október nóvember H ei m ild :c ov id .is kl .1 3 .0 0 íg æ r 132 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring Fjöldi innanlands- smita frá áramótum 257 eru í skimunarsóttkví1.786 erumeð virkt smit og í einangrun 2.289 einstaklingar eru í sóttkví 20 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af fjórir á gjörgæslu Staðfest smit 7 daga meðaltal Nýgengi innanlandssmita síðustu 14 daga á hverja 100 þúsund íbúa stendur nú í 562,3 og er Ísland í fyrsta skiptið orðið dökkrautt á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu um þróun heimsfaraldurs Covid-19. Þá stendur nýgengi landamæras- mita í 29,2 á hverja 100 þúsund íbúa. Tíðni smita í bylgjunni sem geng- ur núna yfir er mun hærri heldur en í fyrri bylgjum faraldursins hér á landi. Í síðustu bylgju sem stóð yfir í sumar greindust mest 154 með veiruna á einum degi. Í yf- irstandandi bylgju hefur það met verið bætt í nokkur skipti og hafa í fyrsta sinn fleiri en 200 greinst með veiruna á einum sólarhring. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra hefur sagt að markmiðið sé að ná smitum niður í 40 til 50 á dag áður en ráðist verður aftur í af- léttingar. hmr@mbl.is Ísland dökkrautt í fyrsta sinn - Nýgengi smita í hæstu hæðum 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Guðni Einarsson gudni@mbl.is Í ákvæði lífskjarasamningsins frá 2019 um hagvaxtarauka felst að á ár- unum 2020-2023 komi til fram- kvæmda launaauki á grundvelli vergrar landsframleiðslu á hvern íbúa. Hann bætist við mánaðarlaun kjarasamninga og föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu. Útreikningurinn byggir á tölum Hagstofunnar um vísitölu vergrar landsframleiðslu á mann sem birtist í byrjun mars fyrir næstliðið ár. Launaaukann á svo að greiða 1. maí. Nú er talið að ákvæðið geti virkjast í fyrsta sinn frá því lífskjarasamning- urinn var gerður. Taka verður tillit til aðstæðna Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, telur ljóst að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sé að benda á eftirfarandi: „Á meðan framleiðslugetan, hag- kerfið, er ekki að vaxa þá stöndum við ekki undir launahækkunum. Mér finnst tónninn í Seðlabankanum mjög skýr. Ef laun hækka umfram svigrúm verður brugðist við með vaxtahækkun. Ég tel að aðilar vinnumarkaðarins verði að sperra eyrun þegar Seðlabankinn talar með jafn afdráttarlausum hætti.“ Halldór telur að á árum áður hefði verkalýðshreyfingin alltaf tekið mið af efnahagslegum raunveruleika hverju sinni og samið um breyttar forsendur. „Ég tel að það sé ekki styrkleikamerki hjá verkalýðshreyf- ingunni að stíga niður fæti og segja: Hér þarf að efna allt sem samið var um. Það þarf sterka rödd innan hreyfingarinnar sem bendir á að all- ar forsendur séu brostnar og að kjarasamningar þurfi að end- urspegla þann raunveruleika,“ sagði Halldór. Hann sagði að SA hafi nokkrum sinnum óskað eftir viðræðum við verkalýðshreyfinguna um breyt- ingar á kjarasamningnum. Það var m.a. gert í apríl 2020, fljótlega eftir að heimsfaraldurinn skall á. „Svarið við þeirri málaleitan hefur verið þvert nei. Samningar skulu standa og breytingar á kjarasamningi koma ekki til álita,“ sagði Halldór. Endurskoðunarákvæði lífs- kjarasamningsins varð virkt í sept- ember síðastliðnum. Halldór sagði að þá hafi SA og ASÍ lýst því yfir að forsendur samningsins væru brostn- ar vegna vanefnda stjórnvalda. „Ég tel að sú samsetta nálgun sem lífskjarasamningurinn byggir á, að Seðlabankinn, vinnumarkaðurinn og fjármál hins opinbera vinni sam- an, sé sú leið sem kjarasamningar eiga að byggjast á. Þetta verður allt að tala saman. Með því er komið í veg fyrir að Seðlabankinn þurfi að stíga á bremsuna vegna þess að að- ilar vinnumarkaðarins fari fram úr sér. Allir tapa á slíku höfrungahlaupi og engir meira en launafólk. Nú eru bæði ríkið og vinnumarkaðurinn komin fram úr sjálfum sér og Seðla- bankinn er að stíga á bremsuna,“ sagði Halldór. Samningar skulu standa „Seðlabankinn er duglegur að vara við. En ég vil minna á að 50% af verðbólgu á Íslandi síðustu níu ár hafa verið knúin áfram vegna hækk- unar á húsnæðisliðnum í vísitöl- unni,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akra- ness. Verkalýðshreyfingin hefur bent á að ríkisstjórnin hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í tengslum við lífskjarasamninginn um afnám verðtryggingar og að draga úr vægi húsnæðiskostnaðar í neysluverðs- vísitölunni. „Auk þess er hrávöruverð og flutningskostnaður erlendis að hækka gríðarlega. Íslenskt launa- fólk ræður ekkert við það. Að koma svo í hvert skipti sem launafólk á að fá nokkra þúsundkalla og grenja á öllum torgum er ekki boðlegt á sama tíma og helmingur verðbólgunnar er knúinn áfram af skorti á húsnæði og lóðum. Það á að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni. Við börðumst fyrir því við gerð lífskjarasamningsins og það var ákveðið að gera það. En því var frestað vegna þess að menn töldu að húsnæði væri að lækka. Nú þarf að dusta rykið af þessu ákvæði.“ Vilhjálmur sagði að sér væri brugðið vegna framgöngu sumra í umræðunni um hagvaxtaraukann. Hann vitnaði í viðtal á Vísi.is í gær við Eggert Þór Kristófersson, for- stjóra Festar, sem rekur ELKO, Krónuna og N1. „Þar segir hann að það séu bara tvær leiðir til að takast á við hækk- anir vegna hagvaxtaraukans. Að hækka vöruverð eða fækka starfs- fólki! Þessi sami forstjóri fékk launahækkun árið 2019 og fór úr 5,1 milljón upp í 6,1 milljón á mánuði og fékk fimmfaldan bónus. Auk þess hefur komið fram að Festi hafi árið 2020 skilað hagnaði upp á 2,3 millj- arða. Einnig að velta Krónunnar hafi aldrei verið meiri en á síðasta ári og jókst hagnaðurinn um 22%. Að koma svo nú og tala svona við fólkið á gólfinu sem skapaði þennan arð gerir það að verkum að mér er gjörsamlega misboðið,“ sagði Vil- hjálmur. Hann sagði að Hagstofan gefi út í mars 2022 hver hagvöxturinn er á mann á þessu ári. Líklega geti hag- vaxtaraukinn orðið á bilinu 8.000 - 10.500 krónur ofan á mánaðarlauna- taxta kjarasamninga eða 6.000 - 7.875 krónur ofan á föst mán- aðarlaun fyrir dagvinnu. „Þetta er ekki að leggja íslenskt samfélag að velli,“ sagði Vilhjálmur. Hann rifjaði upp að skrifað hafi verið undir lífs- kjarasamninginn 3. apríl 2019. Nú líti út fyrir að ákvæði samningsins um hagvaxtarauka virkist í fyrsta skipti á samningstímanum. „Ég trúi ekki öðru en að atvinnurekendur hafi lesið samninginn sem var und- irritaður fyrir þeirra hönd. Hann var samþykktur af miklum meirihluta aðildarfélaga Samtaka atvinnulífs- ins.“ Vinnumarkaðurinn þarf að sperra eyrun - Verðbólgan er knúin að helmingi af húsnæðisliðnum Morgunblaðið/Hari Lífskjarasamningur Undirritun. Halldór Benjamín Þorbergsson Vilhjálmur Birgisson Höskuldur Daði Magnússon Ragnhildur Þrastardóttir „Við erum byrjuð að útskrifa þessa hópa sem komu í stórum stíl þegar þessi bylgja byrjaði,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, for- stöðumaður far- sóttarhótela Rauða krossins. Staðan á far- sóttarhótelunum var þokkaleg í gær að sögn Gylfa. „Við erum með 164 hjá okk- ur núna. Þar af eru 149 sem eru í einangrun og 14 í sóttkví en það eru foreldrar sem hafa fylgt börnum sínum sem eru í einangrun.“ Sem kunnugt er hefur mikið af börnum og ungmennum greinst með kórónuveiruna í þessari bylgju. Seg- ir Gylfi að þess sjáist merki. „Það er töluverður hluti af fólkinu sem er hjá okkur börn. Þetta eru oftar en ekki börn sem þurfa meiri eftirfylgni frá barnaspítalanum. Svo eru hér líka börn sem koma til okkar frekar en að heilu fjölskyldurnar þurfi að fara í sóttkví. Þá fórnar kannski annað foreldrið sér og kemur með barninu en hitt sér um afganginn af fjöl- skyldunni.“ Vel sett næstu vikuna Vika er nú síðan nýtt farsóttarhót- el var opnað á Reykjavík Lights-- hótelinu við Suðurlandsbraut. Þar eru 105 herbergi sem nýst hafa vel að sögn Gylfa. „Það hótel er nánast fullt hjá okkur en við höfum um leið náð að losa aðeins á hinum tveimur, Lind og Rauðará. Við erum þokka- lega vel sett núna næstu vikuna nema einhverjar hörmungar dynji yfir,“ segir Gylfi. Hann segir að á Akureyri hafi sömuleiðis bæst við pláss til að taka á móti fleiri gestum. Gylfi segir að þótt staðan á far- sóttarhótelunum sé í jafnvægi séu miklar annir þar og starfsfólk Rauða krossins hafi í mörg horn að líta. „Það eru á bilinu 20-30 manns sem koma til okkar daglega og það er nóg að gera,“ segir forstöðumaður- inn. Hyggst ekki herða aðgerðir Hertar sóttvarnaaðgerðir tóku gildi innanlands fyrir rúmri viku. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að eftir helgi verði hægt að segja til um það hvort þær hafi borið árangur. Sem stendur horfir hann ekki til þess að herða sóttvarna- aðgerðir hér innanlands. „Mér finnst fólk almennt passa sig mjög vel. Maður sér að grímunotkun virðist vera orðin almenn. Ég veit að fólk hefur verið að aflýsa alls konar viðburðum sem það er að halda sjálft eða afbóka komu sína á ýmsa við- burði. Það er í sjálfu sér merki um að fólk tekur þetta alvarlega og sér að þetta er ekki búið og við erum enn í baráttunni,“ sagði Þórólfur í gær. Mörg börn eru nú á farsóttarhótelum - Staðan er „þokkaleg“ segir forstöðumaður farsóttarhótela - Þriðja hótelið í Reykjavík nánast fullt - 164 gestir á hótelunum í gær, þar af 149 í einangrun - Enn koma 20-30 nýir gestir á hverjum degi Morgunblaðið/Unnur Karen Annir Hið nýja farsóttarhótel Reykjavík Lights var næstum fullt í gær. Gylfi Þór Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.