Morgunblaðið - 19.11.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.11.2021, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Á næsta ári verða liðin þrjátíu ár frá upphafi Bosníu- stríðsins, harðvít- ugustu átaka í Evr- ópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Þar voru framin mörg grimmileg voða- verk, þar sem 100 þúsund manns létu lífið, en þar á meðal má nefna umsátrið um Sara- jevó, þar sem leyniskyttur drápu almenna borgara á göt- um úti, og svo fjöldamorðin í Srebrenica. Með aðkomu Atlantshafs- bandalagsins – ekki síst Banda- ríkjanna eftir að í ljós kom að Evrópusambandið réð ekki við þetta verkefni í bakgarðinum – tókst loks að fá stríðandi fylk- ingar að samningaborðinu og lauk stríðinu með Dayton- friðarsáttmálanum árið 1995. Þar var Bosníu-Hersegóvínu breytt í nokkurs konar sam- bandsríki, þar sem Lýðveldi Serba myndaði einn hlutann, en Sambandslýðveldi Bosníu og Hersegóvínu hinn, en þar fara Bosníu-Króatar og múslimar, eða Bosníakar, með völdin. Friðarsamkomulagið setti á fót ýmsar sameiginlegar stofn- anir, en sem dæmi má nefna að forsetaembætti landsins er skipað þremur mönnum, einum frá þeim þremur þjóðum sem byggja landið, og skiptast þeir á að fara með forsæti. Allra æðstu völd í landinu hafa hins vegar verið í höndum erlends aðalfulltrúa, en Carl Bildt fór fyrstur með það embætti. Þá hefur Evrópusambandið tekið við friðargæslu á svæðinu í gegnum EUFOR. Eins og gefur að skilja er stjórnkerfið sem Dayton- sáttmálinn kom á flókið og sam- bandsríkið sjálft stendur mjög höllum fæti gagnvart eining- unum tveimur sem skipa það. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi áunnist frá því að samið var um frið hefur ekki gengið sem skyldi að búa til nýja þjóðarein- ingu í Bosníu-Hersegóvínu, og því getur ástandið orðið við- kvæmt á mjög skömmum tíma. Undanfarnar vikur hefur ríkt mikil spenna í Bosníu-Herse- góvínu, en Milorad Dodik, leið- togi Bosníu-Serba og fulltrúi þeirra í forsætisnefndinni, lýsti því yfir í byrjun október að þeir hygðust senn draga sig úr öll- um stofnunum ríkisins. Í þeirri hótun fólst meðal annars að Bosníu-Serbar myndu koma sér upp eigin herafla, þvert á ákvæði Dayton-samkomulags- ins. Dodik hefur lengi stefnt að því að efna til þjóðaratkvæða- greiðslu meðal Bosníu-Serba um sjálfstæði lýðveldis þeirra, en talið er að hann njóti meðal annars stuðnings Serbíu, en ekki síður Rússlands í þeirri viðleitni, þar sem stefnan í Kreml sé nú sú að valda Evrópusam- bandinu sem mest- um ama. Nái Dodik mark- miði sínu er víst að næsta skref verður að segja serbneska lýðveldið úr lögum við Bosníu-Hersegóvínu, þá mögulega með það markmið í huga að sameina það Serbíu. Slíkt gæti hæglega leitt til end- urnýjaðra átaka innan Bosníu- Hersegóvínu, jafnvel þótt ólík- legt sé að þau verði af sömu stærðargráðu og Bosníu-stríðið var. Þessi vandi er að mörgu leyti heimatilbúinn hjá Evrópusam- bandinu, sem hefur verið afar blendið í afstöðu sinni til stöðu ríkja á Balkanskaga og hvort þau eigi erindi í ESB, líkt og stefnt var að. Macron Frakk- landsforseti hefur fyrir sitt leyti útilokað það, en ekki bætti úr skák þegar ESB-ríkin, Bret- land og Bandaríkin létu undan þrýstingi Rússa og gerðu minna úr umboði aðalfulltrúans í ályktun Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna í upphafi mán- aðarins en verið hefur til þessa. Nú er svo komið að Christian Schmidt, sem skipaður var í hlutverk aðalfulltrúans í ágúst síðastliðnum, hefur ekki verið viðurkenndur af Bosníu- Serbum, og vilja þeir líta svo á að embættið sé autt. Schmidt hefur fyrir sitt leyti reynt að vara við þeirri stöðu sem komin er upp, en fátt bendir til þess að ríki Evrópusambandsins eða Bandaríkin hafi nokkurn vilja til þess að bregðast við, áður en það verður orðið um seinan. Fáum ætti því að koma á óvart þótt íbúar Bosníu hafi nokkuð misst móðinn og álitið á Vest- urveldunum. Hin skammarlega uppgjöf ESB og furðulegt sinnuleysi Bandaríkjanna hefur þó ekki aðeins áhrif á Balkanskaga, hinni gömlu púðurtunnu Evr- ópu. Um leið og Vesturlönd gefa þar eftir er öðrum gefið svigrúm og það vilja fleiri en Serbar undir forystu hins æ harðskeyttari Aleksanders Vucic forseta. Bæði Vladímír Pútín Rússlandsforseti og Xi Jinping með sitt belti og braut hafa gert sig þar breiðari að undanförnu og vilja gjarnan öðlast frekari ítök þar. Þetta sér Krisjanis Karins forsætisráðherra Lettlands vel: „Þetta er okkar bakgarður,“ sagði hann í liðinni viku um ástandið á vestanverðum Balk- anskaga. „Annaðhvort réttir Evrópa fram höndina og dreg- ur þessi lönd nær okkur eða einhver annar mun rétta fram höndina og draga þau í aðra átt.“ Ekki er að sjá að forystu- ríki Vesturlanda hafi tekið það til sín, þó að þróunin sé grát- lega fyrirsjáanleg og hryllingur síðasta stríðs í fersku minni. Aðskilnaðarsinnar fá byr í seglin á Balkanskaga} Sinnuleysi Vesturlanda F undur norrænna ráðherra sem fara með útlendingamál stendur nú yfir í Lundi í Svíþjóð. Ég sit fundinn fyrir Íslands hönd sem dómsmálaráðherra. Slíkir fundir eru haldnir einu sinni á ári og þar gefst tæki- færi til að skiptast á skoðunum um málefni fólks á flótta og ræða þau úrlausnarefni sem eru efst á baugi í málaflokknum hverju sinni. Ísland stendur sig vel á mörgum sviðum í þessum efnum en við okkur blasa einnig erf- iðar áskoranir. Við getum ekki mælt árangur einungis í fjölda þeirra sem við veitum vernd heldur þurfa önnur kerfi, eins og mennta- kerfið, að hafa burði til að taka við og tryggja árangursríkt nám og aðlögun þeirra barna sem hingað koma. Geta okkar er alltaf tak- mörkuð við þá fjármuni, mannafla og aðstöðu sem við getum lagt í þetta brýna verkefni. Markmið okkar hlýtur þá að felast í því að tryggja þeim forgang sem eru í mestri neyð og gera það vel. Að undanförnu hefur þróunin hér á landi einkennst af mikilli aukningu umsókna um alþjóðlega vernd frá fólki sem þegar hefur hlotið vernd í öðru Evrópuríki. Á síðustu tveimur árum hefur hlutfallið farið úr 20% í 55% af þeim sem hingað leita eftir vernd. Verndarkerfið þarf að ráða við málafjöldann og geta sinnt þeim sem virkilega þurfa á vernd að halda. Þessi staða er ólík þeirri sem þekkist í hin- um norrænu ríkjunum. Skýringin felst í ólíku lagaum- hverfi hér á landi í samanburði við önnur Evrópuríki. Mikil sérstaða og frávik varðandi máls- meðferð einstakra hópa, ásamt frjálsri för um Schengen-svæðið, hefur leitt til þess að hingað kemur tiltölulega mikill fjöldi einstaklinga sem þegar hefur sótt um vernd í öðrum ríkjum Evr- ópu og það í meira mæli en stjórnsýslan ræður við. Í frumvarpi sem ég hef tvívegis mælt fyrir á Alþingi um breytingar á útlendingalögunum er lagt til að horfið verði frá því að umsóknir þeirra sem þegar eru með vernd í öðru ríki verði tekn- ar til efnislegrar meðferðar á grundvelli und- antekninga í lögunum um sérstök tengsl og sér- stakar ástæður. Þess í stað verði tekið til skoðunar hvort viðkomandi, eftir að hafa fengið synjun um efnismeðferð, eigi rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með hliðsjón af aðstæðum í því landi þar sem viðkomandi hefur þegar hlotið vernd. Þær breytingar taka mið af því lagaumhverfi sem almennt ríkir á Norðurlöndum. Við getum aldrei veitt öllum þeim sem hingað leita vernd. Sífellt verður að bregðast við nýjum áskorunum og breytingum og gæta þess að verndarkerfið er neyðarkerfi. Kerfið á fyrst og fremst að gagnast þeim sem eru í mestri neyð á hverjum tíma. Jafnframt þurfum við að taka til al- varlegrar umræðu stöðu atvinnuleyfa erlendra ríkisborg- ara og möguleika þeirra til að koma hér og starfa. Það er umræða sem vert er að taka. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Áskoranir í útlendingamálum Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is J ákvæðar fréttir berast af stofni íslenskrar sumargots- síldar. Þrír árgangar virðast vera góðir og er sá elsti þeirra að koma sterkur inn í veiðina. Þá ber minna á sýkingu í síldinni, sem fyrst varð vart 2008. Undan- farið hafa íslensku uppsjávarskipin veitt úr stofninum í Kolluál og djúpt vestur úr Faxaflóa, en á þessum slóðum hafa miðin verið síðustu ár. Nýlega er lokið leiðangri þar sem gerðar voru rannsóknir á stofni sumargotssíldar á svæði frá Austur- miðum að Reykjanesi. Unnið er að úrvinnslu gagna. Fullorðni hluti stofnsins sem hefur haft vetursetu vestan við landið verður mældur í mars. Þá hefur hann þétt sig og er að stórum hluta kominn upp undir Snæfellsnes miðað við síðustu ár. Yngstu tveir árgangar síldarinnar hafa ekki verið mældir í ár né í fyrra vegna fjárskorts. Jákvæðar fréttir Guðmundur Óskarsson, sviðs- stjóri á uppsjávarsviði Hafrann- sóknastofnunar, segir að stofn ís- lensku síldarinnar hafi verið að taka við sér síðustu ár og þær fréttir sem liggi fyrir úr nýafstöðnum leiðangri séu jákvæðar. Vitað hafi verið að ár- gangurinn frá 2017 væri góður. Hann kemur sterkur inn í veiðina fyrir vestan land og er að mestu horfinn af svæðum suðaustan við landið. Sumargotssíldin verður kyn- þroska um fjögurra ára aldur. Árgangar frá 2018 og 2019 eru þokkalega sterkir, að sögn Guð- mundar, og komu vel fram í mæl- ingum í haust. Hann tekur þó fram að matið á styrkleika árganga verði ekki áreiðanlegt fyrr en á fjórða ári. Síldin hrygnir, eins og nafnið ber með sér, einkum í júlí, og eru hrygningarstöðvarnar víðs vegar með ströndum sunnanlands og vest- an frá Snæfellsnesi að Suðaustur- landi. 1-2 ára heldur síldin sig að stórum hluta í fjörðum fyrir Norður- landi og á Vestfjörðum. 2-3 ára er hana helst að finna undan söndum sunnan- og suðaustanlands, en þá heldur hún vestur fyrir land, sé mið- að við göngur hennar síðustu ár. Í leiðangrinum í haust var langmest af 2-3 ára síld í Breiðamerkurdýpi, en eitthvað líka í Lónsdýpi, austan við Vestmannaeyjar og á fleiri svæðum. Sýkingin að fjara út? Ekki eru mörg ár síðan veiði- stofninn var helst að finna inni á Breiðafirði yfir veturinn og áður fyrir Suðausturlandi. Upp úr 1980 veiddist hún helst inni á fjörðum fyrir austan og í framhaldi af því voru vetursetustöðvarnar í allmörg ár 40-60 sjómílur austur af landinu. Þannig að það er ekki á vísan að róa með hvar síldin veiðist á næstu árum. Guðmundur segist alveg eins hafa átt von á því að breyting yrði á göngumynstri og vetrarstöðvum í ár með tilkomu stóra árgangsins frá 2017. Slíkt gerist oft þegar sterkir árgangar komi til sögunnar, en sú sé ekki raunin enn þá, hvað sem verði. Frá haustinu 2008 hefur ís- lenski sumargotssíldarstofninn ver- ið plagaður af sýkingu af völdum frumdýrsins Ichthyophonus. Rann- sóknir á sýkingunni byggjast að stórum hluta á aflasýnum, en þær eru skammt á veg komnar frá yfir- standandi vertíð. Hins vegar eru vísbendingar um að sýkingin sé loksins að fjara út eftir 13 ár, en í Noregi hafa sambærilegar sýkingar gengið yfir á um þremur árum. Sýk- ing virðist ekki vera í yngri árgöng- um og í þeim eldri sé hugsanlega ekki um virk smit að ræða, frekar skemmd eða ör í hjartavöðva frá eldri sýkingu. Sýkingin kom upp í tveimur bylgjum, fyrst 2008 og síð- an um 2015. Hluti síldarstofnsins drapst af þessum sökum og fleiri hremmingar dundu á stofninum á þessum árum. Þannig er talið að um 50 þúsund tonn, eða um 10% stofnsins, hafi drepist vegna súrefnisskorts í tveimur áföllum í Kolgrafafirði vet- urinn 2012-13. Rifja má upp að stofninn hefur áður lent í erfið- leikum og stóð tæpt upp úr 1970 vegna ofveiði og var í lágmarki 1973. Þrír góðir síldar- árgangar á leiðinni Veiðar á sumargotssíldinni skipta þjóðarbúið miklu máli. Aflaheimildir fiskveiðiársins eru upp á 72 þúsund tonn og jukust þær mjög í ár. Frá fiskveiðiárinu 2017/2018 til síðasta fiskveiði- árs var aflinn 30-40 þúsund tonn, en nokkru meiri árin á undan. Fiskveiðiárið 2014/2015 voru heimildirnar rúmlega 83 þúsund tonn, en aflinn 95 þús- und tonn. Auknar aflaheimildir SKIPTIR MIKLU MÁLI Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Venus NK Á veiðum á íslenskri sumargotssíld vestur af Faxaflóa í haust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.