Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 15

Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 Endurgerð Framkvæmdir eru í fullum gangi við endurgerð vesturálmu höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls. Viðgerðir eru vegna mygluskemmda, og standa yfir til ársins 2023. Árni Sæberg Skammdegið og réttlætið eru af sama toga; maður skil- ur það best á vorin þegar sól- in skín að þau eru bæði vond. Sérstaklega skilur maður illa réttlæti peningastefnu í skammdeginu. Það er oftar en ekki í skjóli myrkurs í skammdeginu sem rán eru framin. Tilefni þess- arar greinar er að svo virðist sem börn og gamalmenni eigi að greiða fyrir Covid- ráðstafanir Seðlabanka Ís- lands. Víst er að innlán í bankakerfinu eru ekki lengur athvarf fyrir sparifé, innlánin eru fyrst og fremst hluti af lausafjárstýringu fyrirtækja og heimila. Reyndar er það svo að innlán lífeyrissjóða standa sem næst undir lausafjárkröfu innlánsstofnana hjá Seðla- bankanum. Eftir því sem næst verður kom- ist eru innlán lífeyrissjóða hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum ekki á neinum sér- kjörum. Þannig greiða lífeyrisþegar fyrir laust fé fjármálafyrirtækjanna. Þróun innlána Frá því Covid-faraldur hófst hafa innlán í íslenskum innlánsstofnunum aukist sem hér segir, sjá mynd: Þessar tölur segja aðeins þriðjung sög- unnar því til hliðar stendur verðbólguþróun og innlend vaxtaþróun. Verðbólga rýrir fjáreignir að öðru óbreyttu. Síðustu þrjú ár hefur verðbólgu- þróun verið döpur: Ársverðbólga frá upphafi til loka árs 2019 2,03% 2020 3,59% Frá okt. ’20 til okt.’21 4,52% Verðbætur eru sérstakt skattaandlag án þess að vera tekjur. Reyndar berjast stjórn- völd gegn frjálsu sparifé með skattastefnu. Þriðji þátturinn; vextir hafa lækkað í öf- uga átt við verðbólgu. Hinn 16. janúar 2020 voru meginvextir Seðlabankans 4,5% en eru núna 2%. Almennt er talið að börn og eldri borgarar eigi sparifé í bönkum. Veltiinnlán ein- staklinga eru sennilega mjög dreifð eign, enda þurfa allir laust fé til að þrauka mán- uðinn. Lífeyrisstoðir og sparifé Þegar stjórnmálamenn tala um lífeyr- iseign landsmanna, þá er eignin oftar en ekki talin spilafé þeirra. Eitt sinn töldu snill- ingar að hægt væri að bjarga glæpavæddu bankakerfi með því að lána bönkunum er- lendar eignir lífeyrissjóðanna. Aðrir snill- ingar töldu að það væri „siðferðileg skylda“ lífeyrissjóða að standa undir hagvexti á komandi árum. Þar sannaðist það sem Guð- bjartur sagði; „er nokkrum of gott að vera fífl“, en menn hafa ekki rétt til að fífla eignir annarra. Það verður aldrei nógsamlega lögð áhersla á að lífeyrissjóðir hafa aðeins eina skyldu. Hún er að greiða sjóðfélögum lífeyri þegar lífeyrisaldri er náð. Lífeyrisstoðirnar eru fimm talsins: . Almennir lífeyrissjóðir . Viðbótarlífeyriseign . Bætur almannatrygginga . Frjálst sparifé . Íbúðarhúsnæði Bætur almannatrygginga greiðast með sköttum af launum vinnandi fólks. Því á það að vera hagsmunamál verkalýðsrekenda, sem þykjast verja hagsmuni launtaka, að bætur almannatrygginga verði sem lægstar og að lífeyriskerfið sé að mestu sjálfbært. Það er undarleg rörsýn hjá verkalýðsrek- endum að telja lága vexti til hagsbóta fyrir sína skjólstæðinga. Verkalýðsrekendum er falið að verja hagsmuni lífeyrisþega með setu í stjórnum lífeyrissjóða. Þrátt fyrir böl og alheimsstríð hefur ávöxtun lífeyrissjóða á liðnum þremur árum verið þolanleg. Þó kann að vera að lífeyrissjóðir séu komnir að hættumörkum í innlendri verð- bréfaeign vegna einsleitni og samþjöppunar. Í raun ættu lífeyrissjóðir að eiga að lág- marki 50% af eignum sínum í erlendum eignum en ekki að hámarki eins og nú er. Lífeyrir og kaupmáttur lífeyris Landssamtök lífeyrissjóða áætla að lífeyr- issjóðir landsmanna hafi skilað að meðaltali rúmlega 9% raunávöxtun allra eigna sinna á árinu 2020. Raunávöxtun eigna sjóðanna árið 2019 var 11,8%. Í reikniforsendum sjóðanna er reiknað með 3,5% ávöxtun eigna til að sjóðirnir geti staðið við skuldbindingar sín- ar. Nýlega skilaði Lífeyrissjóður versl- unarmanna hagstæðri ávöxtun til sjóðfélaga með auknum réttindum til þeirra. Í raun þurfa lífeyrissjóðir að ávaxta eignir um 2,2% umfram 3,5% til að halda í við kaupmáttarþróun launa á almennum vinnu- markaði, þar sem kaupmáttur launa á liðn- um 30 árum hefur vaxið um 2,2% á ári. Vissulega tók í þegar glæpavætt banka- kerfi náði að sólunda 10-15% af eigum lífeyr- issjóða í hruni fjármálakerfisins 2008. Peningastefna og sparifé Árið 1974 var talið nauðsynlegt að hækka vexti verulega. Þá sagði í fréttatilkynningu Seðlabankans: „Með vaxtahækkun þessari er fyrst og fremst stefnt að því að bæta hag sparifjár- eigenda, en innstæður þeirra hafa rýrnað verulega að verðgildi vegna þeirra miklu verðhækkana sem orðið hafa undanfarna mánuði.“ Þegar þessi vaxtabreyting var ákveðin sat starfsstjórn. Forsætisráðherra sagði þessa vaxtahækkun í andstöðu við meirihluta rík- isstjórnarinnar. Þessi sami forsætisráðherra keyrði í gegnum Alþingi löggjöf um almenna heimild til verðtryggingar fimm árum síðar. Þá var tilgangurinn ekki sagður að bæta hag almennra sparifjáreigenda heldur að tryggja að framlög vinnandi fólks til lífeyris yrðu ekki að engu á báli verðbólgu. Vissulega fara hagsmunir lífeyrisþega og sparifjáreigenda saman. Þversagnir Þær voru aldir þegar menn trúðu því að Búlandstindur væri ljótur, og að and- styggilegur staður eins og Mývatn hefði orð- ið til af því fjandinn mé á móti sólinni, en draugar sendir í Gullfoss. Nú þykir Búlandstindur snotur, Mývatn og sveit þess falleg og Gullfoss helgisögn. Eins verður það talið rétt og eðlilegt þeg- ar þessi öld og sú síðasta verða gerðar upp að leggja mat á það hvernig stoðum lífeyris hefur verið sinnt. Það mun þykja ljóður á ráði þeirra sem um hafa vélað að þeim stoð- um hafi verið fórnað fyrir stundarhagsmuni. Ef til vill er það að bera í bakkafullan læk að fjalla um slíkt grundvallaratriði þegar hé- góminn einn ræður för. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Vissulega tók í þegar glæpavætt bankakerfi náði að sólunda 10-15% af eigum lífeyrissjóða í hruni fjármálakerfisins 2008. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Bakkafullur lækur peningastefnu Þróun innlána Frá því Covid-faraldur hófst hafa innlán í íslenskum innlánsstofnunum aukist sem hér segir: Aukning innlána til sept. 2021: Frá des. 2019 Frá des. 2020 Innlán alls (deposits) 22,8% 8,8% Innlán innlendra aðila 23,0% 9,2% Atvinnufyrirtæki 40,8% 23,6% Heimili 16,8% 4,3% Lífeyrissjóðir 5,9% -1,9%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.