Morgunblaðið - 19.11.2021, Qupperneq 27
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Robert Turner skoraði 23 stig fyrir
Stjörnuna þegar liðið vann 87:73-
sigur gegn Tindastól í úrvalsdeild
karla í körfuknattleik, Subway-
deildinni, í Mathús Garðabæjarhöll-
inni í Garðabæ í sjöundu umferð
deildarinnar í gær.
Jafnræði var með liðunum framan
af, allt þangað til í fjórða leikhluta, en
þá náði Stjarnan mest átján stiga for-
skoti, 80:62, og Tindastól tókst ekki
að vinna upp forskot Stjörnunnar.
Shawn Hopkings skoraði 16 stig og
tók tíu fráköst fyrir Stjörnuna en Sig-
tryggur Arnar Björnsson var stiga-
hæstur í liði Tindastóls með 17 stig.
Stjarnan er með 6 stig í áttunda
sæti deildarinnar, fjórum stigum frá
fallsæti, en Tindastóll er með 10 stig í
fjórða sætinu, líkt og Grindavík, Þór
frá Þorlákshöfn og Keflavík.
_ Óvæntustu úrslit tímabilsins til
þessa urðu á Ísafirði þegar Vestri
vann fimmtán stiga sigur gegn topp-
liði Grindavíkur.
Leiknum lauk með 86:71-sigri
Vestra en fyrirliðinn Nemanja
Knezevic fór mikinn fyrir Vestra,
skoraði 21 stig og tók fjórtán fráköst.
Vestri leiddi með fjórum stigum í
hálfleik, 40:36, en það varð hins vegar
algjört hrun í leik Grindvíkinga í
fjórða leikhluta. Þeir skoruðu ein-
ungis 8 stig í leikhlutanum, gegn 20
stigum Vestra.
Julio Afonso skoraði 20 stig og tók
þrettán fráköst fyrir Vestra en El-
bert Matthews var stigahæstur
Grindvíkinga með 19 stig.
Vestri er með 4 stig í níunda sæt-
inu, líkt og ÍR, en Grindavík er með
10 stig í efsta sætinu.
_ Njarðvík er komið á beinu braut-
ina eftir þrjá tapleiki í röð en liðið
vann 110:105-sigur gegn nýliðum
Breiðabliks í Ljónagryfjunni í Njarð-
vík.
Nicolas Richotti og Mario Mataso-
vic fóru mikinn í sóknarleik Njarðvík-
inga en þeir skoruðu báðir 23 stig og
þá tók Matasovic ellefu fráköst í
leiknum.
Blikar leiddu í hálfleik, 63:53 en
Njarðvíkingar skoruðu 30 stig gegn
17 stigum Breiðabliks í þriðja leik-
hluta. Blikum tókst þrívegis að
minnka forskot Njarðvíkur í tvö stig í
fjórða leikhluta en lengra komust
þeir ekki.
Sinisa Bilic var stigahæstur
Breiðabliks með 21 stig en Blikar eru
með 2 stig í tíunda og þriðja neðsta
sætinu. Njarðvík er hins vegar með 8
stig í sjötta sætinu.
_ Sigvaldi Egill Lárusson fór á
kostum fyrir ÍR þegar liðið vann stór-
sigur gegn KR í TM-hellinum í Breið-
holti.
Leiknum lauk með 107:85-sigri ÍR-
inga en Sigvaldi gerði sér lítið fyrir og
skoraði 27 stig, ásamt því að taka tíu
fráköst.
Varnarleikur KR-inga var ekki
upp á marga fiska í leiknum en ÍR-
ingar leiddu með sextán stigum í hálf-
leik, 56:40 og KR-ingum tókst aldrei
að snúa leiknum sér í vil.
Tomas Zdanavicius skoraði 19 stig
fyrir ÍR og Colin Pryor 18 stig, ásamt
því að taka ellefu fráköst. Shawn Glo-
ver var stigahæstur KR-inga með
22 stig og Þorvaldur Orri Árna-
son skoraði 16 stig.
ÍR er áfram í tíunda sæti deild-
arinnar, tveimur stigum frá fall-
sæti en KR er hins vegar í
fimmta sætinu með 8 stig.
Óvæntustu
úrslit
tímabilsins
Morgunblaðið/Eggert
Tilþrif Bandaríkjamaðurinn Robert Turner var stigahæstur í liði
Stjörnunnar gegn Tindastól í Garðabæ í gær með 23 stig og níu fráköst.
- Þriðji sigur Stjörnunnar kom gegn
Tindastól - KR átti fá svör gegn ÍR
„Það verður bara að koma í ljós
hvað maður endist lengi í þessu,“
sagði Júlían J. K. Jóhannsson,
margfaldur heims- og Evr-
ópumeistari í réttstöðulyftu, í Dag-
málum, frétta- og menningarlífs-
þætti Morgunblaðsins.
Júlían, sem er 28 ára gamall,
byrjaði að æfa kraftlyftingar þegar
hann var fimmtán ára gamall og
hefur náð undraverðum árangri í
íþróttinni á þeim tíma.
Hann setti heimsmet í rétt-
stöðulyftu á heimsmeistaramótinu í
Dubai árið 2019 þegar hann lyfti
405,5 kg og er ríkjandi heims-
methafi í greininni í dag. Þá var
hann var útnefndur íþróttamaður
ársins í kjöri íþróttafréttamanna
sama ár en fimm sinnum hefur
hann hlotið nafnbótina kraftlyft-
ingamaður ársins.
„Á meðan mér finnst þetta gam-
an og ég get stundað íþróttina af
krafti þá mun ég halda áfram að
gera það,“ sagði Júlían.
„Markmiðið er að verða heims-
meistari í samanlögðum árangri og
um það snýst þetta allt hjá mér í
dag. Það er auðvitað ákveðin róm-
antík sem felst í því að hætta á
toppnum en það er enn þá róm-
antískara, að mínu mati, að gera
það ekki. Á sama tíma á maður
bara að hætta þegar maður er sjálf-
ur tilbúinn og ég er klárlega ekki
kominn á þann stað,“ sagði Júlían.
Ætlar að verða heimsmeistari
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sterkur Júlían J. K. Jóhannsson var
kjörinn íþróttamaður ársins 2019.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021
_ Amanda Andradóttir, leikmaður
norska knattspyrnufélagsins Våler-
enga og íslenska kvennalandsliðsins,
hefur verið valin besti ungi leikmað-
urinn hjá félaginu. Amanda er aðeins
17 ára gömul og verður 18 ára í des-
ember en hún lék 15 leiki með Våler-
enga á tímabilinu og skoraði fjögur
mörk. Þá lék hún sína fyrstu A-
landsleiki í haust þegar hún kom inn á
sem varamaður gegn Hollandi í sept-
ember og lék allan leikinn gegn Kýpur
í október í undankeppni HM á Laug-
ardalsvelli.
_ Knattspyrnumaðurinn Daníel Ingi
Jóhannesson, 14 ára leikmaður ÍA, er
á leið til danska úrvalsdeildarfélags-
ins Köbenhavn þar sem hann mun
æfa á reynslu. Eldri bróðir hans, hinn
18 ára gamli Ísak Bergmann Jóhann-
esson, er á mála hjá félaginu. Þeir
bræður eru synir Jóhannesar Karls
Guðjónssonar, þjálfara karlaliðs ÍA og
fyrrverandi atvinnu- og landsliðs-
manns. Alls eru fjórir Íslendingar á
mála hjá Köbenhavn en ásamt Ísaki
eru þeir Hákon Arnar Haraldsson og
Orri Steinn Óskarsson samnings-
bundnir Köbenhavn. Þá leikur Andri
Fannar Baldursson með liðinu á láni
frá Bologna á Ítalíu.
_ Helgi Sigurðsson hefur verið ráð-
inn þjálfari 2. flokks Fjölnis í knatt-
spyrnu karla. Helgi lét af störfum sem
þjálfari ÍBV eftir að hafa stýrt Eyja-
mönnum upp í úrvalsdeildina að nýju í
haust. Orðrómur var uppi um að Helgi
myndi taka við 2. flokki Fjölnis og
einnigstýra venslaliði Fjölnis, Vængj-
um Júpiters, í 4. deildinni en sá orð-
rómur reyndist ekki á rökum reistur.
_ Sadio Mané, sóknarmaður enska
knattspyrnufélagsins Liverpool, er
klár í slaginn um helgina þegar liðið
tekur á móti Arsenal í ensku úrvals-
deildinni á Anfield í Liverpool á laug-
ardaginn. Þetta staðfesti Jürgen
Klopp, stjóri Liverpool, á blaða-
mannafundi í gær. Fyrirliðinn Jordan
Henderson
og Andy
Robert-
son eru
báðir í
kapphlaupi
við tímann að
ná leiknum en þeir
meiddust báðir í lands-
leiksverkefnum í ný-
liðnum lands-
leikjaglugga. Klopp
staðfesti hins vegar að
þeir Joe Gomez, James
Milner, Naby Keita og
Roberto Firmino muni
allir missa af leiknum á
laugardaginn vegna
meiðsla.
Eitt
ogannað
MEISTARADEILDIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Breiðablik tókst ekki að sýna sínar
bestu hliðar þegar liðið tók á móti
Kharkiv frá Úkraínu í B-riðli Meist-
aradeildar kvenna í knattspyrnu á
Kópavogsvelli í gær.
Yuliia Shevchuk sem kom Khar-
kiv yfir á 42. mínútu eftir laglega
skyndisókn og Olha Ovdiychuk inn-
siglaði sigur Kharkiv á 74. mínútu
þegar hún slapp ein í gegn en hún
lyfti boltanum snyrtilega yfir Telmu
Ívarsdóttur í marki Blika og lokatöl-
ur á Kópavogsvelli því 2:0, Kharkiv í
vil. Eftir frábæra byrjun Breiðabliks
í Meistaradeildinni gegn Frakk-
landsmeisturum París SG hefur
hallað undan fæti hjá liðinu og því
hefur einfaldlega ekki tekist að finna
taktinn enda keppnistímabilinu hér
heima löngu lokið.
Agla María Albertsdóttir var besti
leikmaður Blika í gær og bjó til
hættulegustu færi íslenska liðsins en
samherjum hennar tókst ekki að
koma boltanum í netið.
Blikar voru einfaldlega of varn-
arsinnaðir í leiknum og hefðu ef til
vill mátt leggja mun meira púður í
sóknarleikinn. Þær hefðu líka mátt
mæta mótherjanum framar á vell-
inum enda höfðu þær engu að tapa,
sitjandi í neðsta sæti riðilsins.
Úrslitin þýða að Breiðablik er
áfram í neðsta sæti B-riðils með 1
stig. París SG er öruggt með sæti í
útsláttakeppninni og efsta sæti rið-
ilsins en Real Madrid og Kharkiv há
harða baráttu um annað sætið.
Hallað undan fæti hjá Blikum
- Breiðablik bíður
enn þá eftir sínum
fyrsta sigri í
Meistaradeildinni
Morgunblaðið/Eggert
Tilfinningar Bakvörðurinn Hafrún Rakel Halldórsdóttir átti erfitt með að
leyna vonbrigðum sínum eftir tap Breiðabliks í Meistaradeildinni í gær.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Þór Ak. ............. 18.15
Blue-höllin: Keflavík – Valur............... 20.15
1. deild karla:
Dalhús: Fjölnir – ÍA .................................. 18
Höfn: Sindri – Skallagrímur................ 19.15
Vallaskóli: Selfoss – Álftanes .............. 19.15
Flúðir: Hrunamenn – Hamar.............. 19.15
Ásvellir: Haukar – Höttur ................... 19.30
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – Fram................ 19.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Set-höll: Selfoss U – Afturelding U .... 18.30
Ásvellir: Haukar U – ÍR ........................... 20
Dalhús: Vængir J. – Fjölnir................. 20.15
Í KVÖLD!