Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 6
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýtt löggjafarþing, 152. þing, kem-
ur saman þriðjudaginn 23. nóv-
ember kl. 13.30. Gestir við þingsetn-
inguna verða örfáir líkt og 2020,
vegna sóttvarnaráðstafana. Það eru
síðan tilmæli til allra viðstaddra að
fara í hraðpróf en það hefur ekki
gerst áður í þingsögunni.
Þetta fyrirkomulag er samkvæmt
ráðleggingum embættis sóttvarna-
læknis og almannavarna, að sögn
Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra
Alþingis. „Við höfum verið í góðri
samvinnu og samráði allan faraldur-
inn en markmiðið er alltaf að halda
Alþingi starfhæfu og að koma í veg
fyrir með öllum ráðum að hópar
þingmanna smitist eða fari í
sóttkví.“
Fundum Alþingis var frestað hinn
13. júní sl. Það hefur því ekki starf-
að í rúma fimm mánuði. Það var
reyndar kallað saman einn dag, 6.
júlí, til að leiðrétta mistök sem gerð
voru við setningu laga um starfsemi
stjórnmálasamtaka.
Forsetabréf var gefið út
Á fimmtudag birtist á vef
Stjórnartíðinda forsetabréf und-
irritað af Guðna Th. Jóhannessyni,
forseta Íslands. „Ég hefi ákveðið,
samkvæmt tillögu forsætisráðherra,
að Alþingi skuli koma saman til
fundar þriðjudaginn 23. nóvember
2021. Um leið og ég birti þetta er
öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið
að koma nefndan dag til Reykjavík-
ur, og verður þá Alþingi sett að lok-
inni guðsþjónustu í Dómkirkjunni er
hefst kl. 13.30.“
Allt er til reiðu af hálfu Alþingis
fyrir þinghaldið, að sögn Rögnu
Árnadóttur. „Við höfðum beðið með
að færa þingfundasvæðið í fyrra
horf því við vildum sjá hver þróunin
yrði í faraldrinum,“ segir Ragna.
Niðurstaðan hvað þingsetningu
varðar er sú að þingfundasvæðið er
óbreytt frá því síðasta vetur, þ.e.
setið er með hæfilegu bili í þingsal,
hliðarsal og -herbergjum og at-
kvæðagreiðsluhnappar á borðunum
þar. Hversu lengi þetta fyr-
irkomulag verður við lýði verði að
koma í ljós. Það tekur 2-3 daga að
færa þingfundasvæði til fyrra horfs
en mestan tíma tekur að færa
atkvæðagreiðsluhnappa aftur í borð
inni í þingsalnum.
Þingsetningin hefst eins og venju-
lega á því að farið verður til guðs-
þjónustu í Dómkirkjunni. Að því
loknu setur forseti Íslands Alþingi.
Samkvæmt lögum um þingsköp Al-
þingis skal sá þingmaður, sem hefur
lengsta þingsetu að baki, stjórna
fundinum þangað til forseti þingsins
er kosinn og standa fyrir kosningu
hans. Aldursforseti er Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, formaður
Viðreisnar. Hún hefur setið á Al-
þingi í tæp 19 ár.
Á fyrsta fundi þingsins eftir kosn-
ingar til Alþingis skal kjósa níu
þingmenn í nefnd eftir reglum til
þess að prófa kjörbréf og kosningu
nýkjörinna þingmanna og varaþing-
manna. Sérhver nýr þingmaður skal
vinna svofellt drengskaparheit að
stjórnarskránni undireins og búið er
að viðurkenna að kosning hans sé
gild, sbr. 47. gr. stjórnarskrárinnar:
Ég undirskrifaður/uð, sem kosin(n)
er þingmaður til Alþingis Íslend-
inga, heiti því, að viðlögðum dreng-
skap mínum og heiðri, að halda
stjórnarskrá landsins.
Meðan þingmaður hefur ekki
unnið heit samkvæmt þessari grein
má hann ekki taka þátt í þing-
störfum.
Sem kunnugt er hefur undirbún-
ingsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa
verið að störfum undanfarnar vikur
og aflað gagna vegna kosningar-
innar í Noðrvesturkjördæmi. Nið-
urstöður nefndarinnar verða kynnt-
ar á fyrsta þingfundinum á
þriðjudag.
Stefnt er að því að fjármálaráð-
herra leggi fram fjárlagafrumvarpið
á Alþingi í næstu viku.
Venjan er sú að fjárlagafrum-
varpið sé lagt fram í þingbyrjun í
október. Algengasti lokadagur at-
kvæðagreiðslu um fjárlög er 22. des-
ember en fjárlög hafa verið tekin til
lokaatkvæðagreiðslu sex sinnum á
þeim degi frá 1991. Frumvarp til
fjárlaga fyrir árið 2020 varð að lög-
um á Alþingi 27. nóvember og hefur
umræðu og afgreiðslu fjárlaga
næsta árs aldrei lokið svo snemma.
Vegna þess hve seint á árinu
kosningarnar voru að þessu sinni,
þ.e. 25. september, er frumvarpið
seinna á ferðinni en oftast. En dæmi
eru um að fjárlagafrumvarp hafi
verið lagt fram enn síðar. Skemmst
er að minnast þess að kosningar til
Alþingis fóru fram 28. október 2017.
Alþingi kom ekki saman fyrr en 14.
desember og var fjárlagafrumvarp-
inu útbýtt sama dag. Það var svo
samþykkt á Alþingi að kvöldi 29.
desember. Daginn eftir var þingi
frestað til 22. janúar 2018.
Nokkur dæmi eru um að þing
starfi milli jóla og nýárs eins og
gerðist árið 2017. Að þessu sinni eru
fjórir virkir dagar milli jóla og nýárs
og þeir gætu nýst til þingstarfa ef
þurfa þykir.
Hraðpróf í fyrsta sinn á Alþingi
- Nýtt þing, 152. löggjafarþing, sett á þriðjudaginn - Tilmæli til allra viðstaddra að fara í hraðpróf
samkvæmt ráðleggingum sóttvarnalæknis - Fjárlagafrumvarpið 2017 var lagt fram 14. desember
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Undirbúningur Sóttvarnareglur munu setja svip á setningu Alþingis í næstu viku. Í gær var verið að leggja lokahönd á undirbúning fyrir athöfnina.
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Við vinnum að sölu á
eftirtöldum fyrirtækjum
• Við vinnum að sölu á veitingahúsakeðju sem veltir um
500 milljónum, þrír útsölustaðir, afkoma mjög góð.
• Veitingastaður / bistro í miðbæ Reykjavíkur.
• Pizzastaður á góðri siglingu, möguleiki að gera að
keðju.
• Ísbúðakeðja með góða afkomu og langa
rekstrarsögu, en mikla möguleika.
• Gistihús á Suðurlandi með um 20 smáhýsi.
• Herrafataverslun í Austurbæ Reykjavíkur.
• Nokkrar heildverslanir með veltu 500 til 800 millj.
• Lítið en arðsamt iðnfyrirtæki í Garðabæ.
• Matvælafyrirtæki / útflutningur á höfðuborgar-
svæðinu, velta um 500 millj.
Töluverð eftirspurn er eftir fyrirtækjum á verðbilinu 50 til 200
milljónir. Mest er spurt eftir fyrirtækjum í heildsölu, innflutningi,
veitingahúsum, ferðaþjónustufyrirtækjum og verktakafyrirtækjum
auk þess er eftirspurn eftir fyrirtækjum í sjávarútvegi.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að skoða sölu á þínu fyrirtæki.
Karítas Ríkharðsdóttir
Jóhann Ólafsson
Nýgengi innanlandssmita síðustu 14
daga á 100 þúsund íbúa var í gær
565,6 og hefur greindur fjöldi smita á
dag ekki verið undir 100 frá því 6.
nóvember.
Í gær lágu 25 á sjúkrahúsi vegna
Covid-19, eða fimm fleiri en daginn
áður. Landspítali er sem stendur á
hættustigi en mönnunarvandi hefur
plagað starfsemi hans frá upphafi
heimsfaraldursins. Þá þykir
áhyggjuefni að uppsögnum á meðal
hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku
hefur fjölgað síðustu daga.
„Við tökum þessari stöðu mjög al-
varlega og viljum engan missa,“
sagði Sigríður Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar á Landspít-
alanum, í samtali við mbl.is í gær um
ástandið.
Að sögn Sigríðar má fyrst og
fremst rekja uppsagnir starfsfólks
til starfsaðstæðna og álags. Er sífellt
verið að leita lausna til að liðka fyrir
um flæði af bráðamóttökunni sem
skapast meðal annars af því að
rúmanýting á öllum legudeildum er
yfir hundrað prósent.
Uppsagnirnar taka gildi á mis-
munandi tíma en engin þeirra verður
þó fyrr en eftir áramót. „Við vonum
náttúrulega bara í lengstu lög að við
getum náð að skapa þannig aðstæð-
ur að fólk íhugi að endurskoða upp-
sagnir,“ segir Sigríður.
Sóttkví og smitrakning rædd
Ekki eru allir sammála um hvern-
ig bregðast eigi við álaginu sem heil-
brigðiskerfið okkar er undir. Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra, hefur borið það upp hvort
skoða megi breytingar á smitrakn-
ingu og sóttkví, sérstaklega í ljósi
þess að hér eru flestir bólusettir.
Telur hún þá skynsamlegt að litið sé
til annarra landa í þeim efnum.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
almannavarna telur hins vegar frá-
leitt að draga úr rakningu í tengslum
við Covid-smit eða milda sóttkví,
enda séu þetta bestu vopnin í að
hefta útbreiðslu smita. Segir hann
rakningu ekki taka neina krafta frá
spítalanum og því fleiri sem við
náum í sóttkví því betra.
Uppsagnir vegna álags
- Sífellt verið að leita lausna á Landspítalanum - Skiptar
skoðanir um hvernig létta eigi álagið á heilbrigðiskerfinu
200
175
150
125
100
75
50
25
0 júlí ágúst september október nóvember
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
3
.0
0
íg
æ
r
192 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
217 eru í
skimunarsóttkví1.848 erumeð virkt smit
og í einangrun
2.448 einstaklingar
eru í sóttkví 25 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar affimmá gjörgæslu
Staðfest smit
7 daga meðaltal