Morgunblaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
Skreytt fyrir jólin Jólin nálgast og um allt land er byrjað að setja upp skreytingar bæði utanhúss og innan. Þessar konur voru að skreyta hús á Selfossi í vikunni þegar ljósmyndari var þar á ferð.
Eggert
Fyrir fimm árum
tóku stjórnvöld og at-
vinnulífið saman hönd-
um og hófu undirbúning
verkefnis til að efla mál-
tækni til stuðnings ís-
lenskri tungu. Bak-
grunnurinn var sá að
sífellt fleiri tæki og tól
skynjuðu enskt mál og
brugðust við fyrirmæl-
um sem flutt voru á
þeirri tungu. Þá hafði
lengið verið kallað eftir fjármagni og
skrifaðar skýrslur um nauðsyn þess
að gera íslenskuna gjaldgenga í staf-
rænum heimi.
Ríkið undir forystu menntamála-
ráðherra sem þá var Illugi Gunnars-
son og fyrirtæki í Samtökum iðnaðar-
ins og Samtökum fjármálafyrirtækja
með stuðningi Samtaka atvinnulífsins
lögðu fram fé til að hrinda verkefninu
í framkvæmd. Skilað var tillögum til
stjórnvalda um að á næstu árum
þyrfti að leggja mikið fé til uppbygg-
ingar máltækni hér á landi – tal-
greini, þýðingarvélar og gagna-
grunna – ef íslenskan ætti ekki að
verða út undan við þróun nýrrar
tækni.
Þetta var í samræmi við það sem
Sigurður Pálsson sagði þegar hann
veitti viðtöku verðlaunum kenndum
við Jónas Hallgrímsson á Degi ís-
lenskrar tungu hinn 16. nóvember
2016: „Allt byrjar á samtali. Ekkert
hefst án þess. Lýðræðislegt þjóðfélag
hefur trú á samtali. Lýðræðislegt
þjóðfélag gerir ráð fyrir skapandi
notkun tungumálsins, stendur gegn
einvíddarnotkun þess, fagnar fjöl-
breytileika og skáldlegri vídd.“
Samtök atvinnulífsins ákváðu að
gera máltækni að sérstöku áherslu-
máli árið 2017 og var menntadagur
atvinnulífsins 2017 helgaður því. Rík-
ið hafði þá veitt fé til frekari undir-
búnings og stofnuð var nefnd til að
meta þörf fyrir fjármagn og mannafla
og leggja fram tillögur að næstu
skrefum. Hún skilaði tillögum sínum
hinn 17. júní 2017 til menntamála-
ráðherra sem þá var Kristján Þór
Júlíusson. Þar var að finna tillögur
um menntun á sviði máltækni og
fimm ára verkáætlun um uppbygg-
ingu innviða máltækninnar.
Ríkisstjórnin ákvað síðan að
hrinda sérstakri máltækniáætlun
sem fjármögnuð var til
fimm ára og hefur nú-
verandi menntamála-
ráðherra, Lilja Alfreðs-
dóttir, verið ötull
talsmaður hennar.
Ákveðið var að leita til
sjálfseignarstofnunar-
innar Almannaróms um
framkvæmd máltækni-
áætlunarinnar. Al-
mannarómur var stofn-
aður 2014 og stofnaðilar
auk SA hátt í 20 fyrir-
tæki, Háskólinn í
Reykjavík, Stofnun Árna Magnús-
sonar, Blindrafélagið og Öryrkja-
bandalag Íslands. Almannarómur
nýtur forystu fólks sem á bakgrunn
sinn í atvinnulífinu og verkefnin
byggjast á samstarfi atvinnulífs, há-
skóla, stofnana, ríkisins og þátttöku
almennings. Tryggt er að lausnir sem
byggðar verða upp fyrir almannafé
verði opnar þannig að þeir sem vilja
geti nýtt tól og tæki sem skapast með
máltækniáætluninni.
Ánægjulegt er að sjá og heyra hve
verkefnum hefur miðað vel áfram
eins og glöggt hefur komið fram í
tengslum við nýliðinn dag íslenskrar
tungu.
Ég er stoltur af liðsinni Samtaka
atvinnulífsins og fyrirtækjanna í
landinu við máltækni og um leið
stuðninginn við íslenska tungu sem í
því felst. Ástæðan er einföld og ágæt-
lega orðuð af Þórarni Eldjárn á
menntadegi atvinnulífsins í febrúar
2017: „Af þessum sökum og ýmsum
öðrum ber okkur að standa vörð um
íslenskuna alstaðar. Ekki af því að
hún sé einhver vesalingur og ekki af
einhverjum þjóðrembusökum eins og
sumir virðast halda, heldur fyrst og
fremst af tveimur ástæðum: Í fyrsta
lagi af því að okkur var trúað fyrir
henni og í öðru lagi af því bara.“
Eftir Halldór Benja-
mín Þorbergsson
ȃg er stoltur af
liðsinni Samtaka
atvinnulífsins og fyrir-
tækjanna í landinu við
máltækni og um leið
stuðninginn við íslenska
tungu sem í því felst.
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins.
Íslenska er málið
Í dag fögnum við
því að 32 ár eru síðan
Barnasáttmálinn,
samningur Sameinuðu
þjóðanna um réttindi
barnsins, var sam-
þykktur á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóð-
anna.
Barnasáttmálinn hef-
ur leitt til víðtækra
breytinga á viðhorfum
til barna, en hann gerir kröfu um
að litið sé á börn sem fullgilda ein-
staklinga og sjálfstæða handhafa
réttinda, sem aðildarríkjum sátt-
málans ber að virða og vernda með
öllum tiltækum leiðum. Áhrifa
Barnasáttmálans gætir víða í lög-
gjöf en þar ber helst að nefna
meginreglu sáttmálans um rétt
barna til þátttöku og áhrifa og þá
kröfu sáttmálans að grundvalla
eigi allar ákvarðanir og ráðstafanir
sem varða börn á því sem þeim er
fyrir bestu.
Margt hefur áunnist
Þegar litið er yfir farinn veg er
ljóst að margt hefur áunnist í mál-
efnum barna frá því að Barnasátt-
málinn var samþykktur. Með aðild
að Barnasáttmálanum skuldbinda
ríki sig til að grípa til allra nauð-
synlegra og viðeigandi ráðstafana
til að innleiða hann að fullu á öll-
um sviðum samfélagsins. Barna-
réttarnefnd Sameinuðu þjóðanna
hefur sérstaklega áréttað mikil-
vægi þess að ávallt sé lagt mat á
áhrif tillagna og ráðstafana á börn,
á fyrstu stigum ákvarðanatöku.
Víða í Evrópu og ekki síst í hinum
ríkjum Norðurlandanna hafa
stjórnvöld innleitt formlega mat á
áhrifum á börn, til að tryggja að
ávallt liggi fyrir upplýsingar um
áhrif ýmissa tillagna á börn, áður
en þeim er hrint í framkvæmd.
Slíkt mat hefur ekki verið formfest
í íslenskri stjórnsýslu, en Alþingi
samþykkti síðasta vor að slíkt mat
ætti að innleiða hér á landi og til-
lögur um framkvæmd þess ættu að
liggja fyrir í lok þessa árs. Til eru
innlendar fyrirmyndir að slíku
verklagi sem líta má til, sem dæmi
má nefna eru gerðar ríkar kröfur
til framkvæmdavaldsins um að
tryggja að fram fari mat á jafn-
réttisáhrifum frum-
varpa þegar á áforma-
stigi. Með sama hætti
mætti formfesta mat á
áhrifum á börn við
gerð frumvarpa og við
mótun stefnu. Fram-
kvæmd mats á áhrif-
um á börn þjónar
þeim tilgangi að
tryggja að það sem
börnum er fyrir bestu
sé ávallt í fyrirrúmi
þegar ákvarðanir eru
teknar, en tilgangurinn er einnig
sá að gera stjórnvöldum kleift að
grípa til nauðsynlegra mótvægis-
aðgerða, í þeim tilvikum þar sem
ekki er unnt að komast hjá nei-
kvæðum afleiðingum á börn, stöðu
þeirra og réttindi.
Á tímum heimsfaraldurs þarf
iðulega að taka ákvarðanir með
skömmum fyrirvara og þá er ekki
alltaf hægt að fara að ýtrustu kröf-
um um vandaðan undirbúning.
Hins vegar hafa ákvarðanir marg-
oft verið teknar á síðustu miss-
erum, um afar íþyngjandi ráðstaf-
anir sem varða börn með beinum
hætti, án aðkomu barna og án þess
að mat hafi verið lagt á möguleg
áhrif á þau. Þá hefur einnig orðið
misbrestur á því að börn hafi feng-
ið nauðsynlegar upplýsingar um
fyrirhugaðar aðgerðir eða hvernig
þau geti látið mál til sín taka ef
þau kjósa það. Það sýnir fram á
nauðsyn þess að íslensk stjórnvöld
stígi næstu skref í innleiðingu
Barnasáttmálans, enda er það ekki
síst þegar vá steðjar að sem hvað
mikilvægast er að virða, vernda og
tryggja réttindi barna, enda þekkt
að í slíkum aðstæðum er heilsu og
velferð barna hætta búin. Því
verða viðbragðsáætlanir á sviði al-
mannavarna og öryggismála að
fjalla um og taka sérstakt mið af
hagsmunum, réttindum og þörfum
barna.
Ávallt leitað
eftir sjónarmiði barna
Í starfi umboðsmanns barna er
skýr áhersla lögð á 12. gr. Barna-
sáttmálans, og unnið að því mark-
miði að við mótun stefnu og töku
ákvarðana sem varða börn verði
ávallt leitað eftir og tekið tillit til
sjónarmiða þeirra. Á síðustu miss-
erum hefur embættið safnað frá-
sögnum barna af daglegu lífi á
tímum heimsfaraldurs, en tilgang-
urinn var annars vegar að safna
mikilvægum samtímaheimildum
um líðan barna í áður óþekktum
aðstæðum, og hins vegar að koma
sjónarmiðum barna á framfæri og
í opinbera umræðu. Af frásögnum
barnanna að dæma hefur heims-
faraldurinn reynst mörgum þeirra
krefjandi tímabil, en mörg
barnanna komu einnig auga á það
sem var jákvætt við þessa reynslu,
eins og fjölgun samverustunda
með fjölskyldunni og að fá meiri
tíma og svigrúm til að sinna eigin
hugðarefnum. Það er því mikil-
vægt að líta til reynslu og skoðana
barna þegar lærdómar eru dregnir
af viðbrögðum við faraldrinum og
mat lagt á það hvaða aðgerða er
þörf til að bæta hag og líðan barna
í íslensku samfélagi.
Innleiðing Barnasáttmálans er
viðvarandi verkefni og fjölmargar
áskoranir eru fram undan. Á þess-
um degi er hins vegar full ástæða
til að líta yfir farinn veg og þær
fjölmörgu vörður sem mörkuðu
leiðina að samfélagi þar sem rétt-
indi barna eru í hávegum höfð.
Börnum hefur til að mynda verið
tryggð vernd gegn öllum teg-
undum ofbeldis og réttur þeirra til
þátttöku í öllum málum sem þau
varðar hefur verið staðfestur. Þá
hefur hlutdeild og vægi barna í
opinberri þjóðfélagsumræðu auk-
ist, sem er sérstakt ánægjuefni.
Ég vil óska öllum börnum til
hamingju með daginn, og það er
von mín að það gefist tækifæri til
þess að fagna því um land allt að í
dag eru 32 ár síðan börn fengu al-
þjóðlega viðurkenningu á stöðu
sinni sem fullgildir þjóðfélags-
þegnar og rétthafar.
Eftir Salvöru
Nordal
» Það er mikilvægt
að líta til reynslu
og skoðana barna
þegar lærdómar eru
dregnir af viðbrögðum
við faraldrinum og mat
lagt á það hvaða að-
gerða er þörf til að bæta
hag og líðan þeirra.
Salvör Nordal
Höfundur er umboðsmaður barna.
Dagur mannréttinda barna