Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 25

Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Skreytt fyrir jólin Jólin nálgast og um allt land er byrjað að setja upp skreytingar bæði utanhúss og innan. Þessar konur voru að skreyta hús á Selfossi í vikunni þegar ljósmyndari var þar á ferð. Eggert Fyrir fimm árum tóku stjórnvöld og at- vinnulífið saman hönd- um og hófu undirbúning verkefnis til að efla mál- tækni til stuðnings ís- lenskri tungu. Bak- grunnurinn var sá að sífellt fleiri tæki og tól skynjuðu enskt mál og brugðust við fyrirmæl- um sem flutt voru á þeirri tungu. Þá hafði lengið verið kallað eftir fjármagni og skrifaðar skýrslur um nauðsyn þess að gera íslenskuna gjaldgenga í staf- rænum heimi. Ríkið undir forystu menntamála- ráðherra sem þá var Illugi Gunnars- son og fyrirtæki í Samtökum iðnaðar- ins og Samtökum fjármálafyrirtækja með stuðningi Samtaka atvinnulífsins lögðu fram fé til að hrinda verkefninu í framkvæmd. Skilað var tillögum til stjórnvalda um að á næstu árum þyrfti að leggja mikið fé til uppbygg- ingar máltækni hér á landi – tal- greini, þýðingarvélar og gagna- grunna – ef íslenskan ætti ekki að verða út undan við þróun nýrrar tækni. Þetta var í samræmi við það sem Sigurður Pálsson sagði þegar hann veitti viðtöku verðlaunum kenndum við Jónas Hallgrímsson á Degi ís- lenskrar tungu hinn 16. nóvember 2016: „Allt byrjar á samtali. Ekkert hefst án þess. Lýðræðislegt þjóðfélag hefur trú á samtali. Lýðræðislegt þjóðfélag gerir ráð fyrir skapandi notkun tungumálsins, stendur gegn einvíddarnotkun þess, fagnar fjöl- breytileika og skáldlegri vídd.“ Samtök atvinnulífsins ákváðu að gera máltækni að sérstöku áherslu- máli árið 2017 og var menntadagur atvinnulífsins 2017 helgaður því. Rík- ið hafði þá veitt fé til frekari undir- búnings og stofnuð var nefnd til að meta þörf fyrir fjármagn og mannafla og leggja fram tillögur að næstu skrefum. Hún skilaði tillögum sínum hinn 17. júní 2017 til menntamála- ráðherra sem þá var Kristján Þór Júlíusson. Þar var að finna tillögur um menntun á sviði máltækni og fimm ára verkáætlun um uppbygg- ingu innviða máltækninnar. Ríkisstjórnin ákvað síðan að hrinda sérstakri máltækniáætlun sem fjármögnuð var til fimm ára og hefur nú- verandi menntamála- ráðherra, Lilja Alfreðs- dóttir, verið ötull talsmaður hennar. Ákveðið var að leita til sjálfseignarstofnunar- innar Almannaróms um framkvæmd máltækni- áætlunarinnar. Al- mannarómur var stofn- aður 2014 og stofnaðilar auk SA hátt í 20 fyrir- tæki, Háskólinn í Reykjavík, Stofnun Árna Magnús- sonar, Blindrafélagið og Öryrkja- bandalag Íslands. Almannarómur nýtur forystu fólks sem á bakgrunn sinn í atvinnulífinu og verkefnin byggjast á samstarfi atvinnulífs, há- skóla, stofnana, ríkisins og þátttöku almennings. Tryggt er að lausnir sem byggðar verða upp fyrir almannafé verði opnar þannig að þeir sem vilja geti nýtt tól og tæki sem skapast með máltækniáætluninni. Ánægjulegt er að sjá og heyra hve verkefnum hefur miðað vel áfram eins og glöggt hefur komið fram í tengslum við nýliðinn dag íslenskrar tungu. Ég er stoltur af liðsinni Samtaka atvinnulífsins og fyrirtækjanna í landinu við máltækni og um leið stuðninginn við íslenska tungu sem í því felst. Ástæðan er einföld og ágæt- lega orðuð af Þórarni Eldjárn á menntadegi atvinnulífsins í febrúar 2017: „Af þessum sökum og ýmsum öðrum ber okkur að standa vörð um íslenskuna alstaðar. Ekki af því að hún sé einhver vesalingur og ekki af einhverjum þjóðrembusökum eins og sumir virðast halda, heldur fyrst og fremst af tveimur ástæðum: Í fyrsta lagi af því að okkur var trúað fyrir henni og í öðru lagi af því bara.“ Eftir Halldór Benja- mín Þorbergsson »Ég er stoltur af liðsinni Samtaka atvinnulífsins og fyrir- tækjanna í landinu við máltækni og um leið stuðninginn við íslenska tungu sem í því felst. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Íslenska er málið Í dag fögnum við því að 32 ár eru síðan Barnasáttmálinn, samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, var sam- þykktur á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóð- anna. Barnasáttmálinn hef- ur leitt til víðtækra breytinga á viðhorfum til barna, en hann gerir kröfu um að litið sé á börn sem fullgilda ein- staklinga og sjálfstæða handhafa réttinda, sem aðildarríkjum sátt- málans ber að virða og vernda með öllum tiltækum leiðum. Áhrifa Barnasáttmálans gætir víða í lög- gjöf en þar ber helst að nefna meginreglu sáttmálans um rétt barna til þátttöku og áhrifa og þá kröfu sáttmálans að grundvalla eigi allar ákvarðanir og ráðstafanir sem varða börn á því sem þeim er fyrir bestu. Margt hefur áunnist Þegar litið er yfir farinn veg er ljóst að margt hefur áunnist í mál- efnum barna frá því að Barnasátt- málinn var samþykktur. Með aðild að Barnasáttmálanum skuldbinda ríki sig til að grípa til allra nauð- synlegra og viðeigandi ráðstafana til að innleiða hann að fullu á öll- um sviðum samfélagsins. Barna- réttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur sérstaklega áréttað mikil- vægi þess að ávallt sé lagt mat á áhrif tillagna og ráðstafana á börn, á fyrstu stigum ákvarðanatöku. Víða í Evrópu og ekki síst í hinum ríkjum Norðurlandanna hafa stjórnvöld innleitt formlega mat á áhrifum á börn, til að tryggja að ávallt liggi fyrir upplýsingar um áhrif ýmissa tillagna á börn, áður en þeim er hrint í framkvæmd. Slíkt mat hefur ekki verið formfest í íslenskri stjórnsýslu, en Alþingi samþykkti síðasta vor að slíkt mat ætti að innleiða hér á landi og til- lögur um framkvæmd þess ættu að liggja fyrir í lok þessa árs. Til eru innlendar fyrirmyndir að slíku verklagi sem líta má til, sem dæmi má nefna eru gerðar ríkar kröfur til framkvæmdavaldsins um að tryggja að fram fari mat á jafn- réttisáhrifum frum- varpa þegar á áforma- stigi. Með sama hætti mætti formfesta mat á áhrifum á börn við gerð frumvarpa og við mótun stefnu. Fram- kvæmd mats á áhrif- um á börn þjónar þeim tilgangi að tryggja að það sem börnum er fyrir bestu sé ávallt í fyrirrúmi þegar ákvarðanir eru teknar, en tilgangurinn er einnig sá að gera stjórnvöldum kleift að grípa til nauðsynlegra mótvægis- aðgerða, í þeim tilvikum þar sem ekki er unnt að komast hjá nei- kvæðum afleiðingum á börn, stöðu þeirra og réttindi. Á tímum heimsfaraldurs þarf iðulega að taka ákvarðanir með skömmum fyrirvara og þá er ekki alltaf hægt að fara að ýtrustu kröf- um um vandaðan undirbúning. Hins vegar hafa ákvarðanir marg- oft verið teknar á síðustu miss- erum, um afar íþyngjandi ráðstaf- anir sem varða börn með beinum hætti, án aðkomu barna og án þess að mat hafi verið lagt á möguleg áhrif á þau. Þá hefur einnig orðið misbrestur á því að börn hafi feng- ið nauðsynlegar upplýsingar um fyrirhugaðar aðgerðir eða hvernig þau geti látið mál til sín taka ef þau kjósa það. Það sýnir fram á nauðsyn þess að íslensk stjórnvöld stígi næstu skref í innleiðingu Barnasáttmálans, enda er það ekki síst þegar vá steðjar að sem hvað mikilvægast er að virða, vernda og tryggja réttindi barna, enda þekkt að í slíkum aðstæðum er heilsu og velferð barna hætta búin. Því verða viðbragðsáætlanir á sviði al- mannavarna og öryggismála að fjalla um og taka sérstakt mið af hagsmunum, réttindum og þörfum barna. Ávallt leitað eftir sjónarmiði barna Í starfi umboðsmanns barna er skýr áhersla lögð á 12. gr. Barna- sáttmálans, og unnið að því mark- miði að við mótun stefnu og töku ákvarðana sem varða börn verði ávallt leitað eftir og tekið tillit til sjónarmiða þeirra. Á síðustu miss- erum hefur embættið safnað frá- sögnum barna af daglegu lífi á tímum heimsfaraldurs, en tilgang- urinn var annars vegar að safna mikilvægum samtímaheimildum um líðan barna í áður óþekktum aðstæðum, og hins vegar að koma sjónarmiðum barna á framfæri og í opinbera umræðu. Af frásögnum barnanna að dæma hefur heims- faraldurinn reynst mörgum þeirra krefjandi tímabil, en mörg barnanna komu einnig auga á það sem var jákvætt við þessa reynslu, eins og fjölgun samverustunda með fjölskyldunni og að fá meiri tíma og svigrúm til að sinna eigin hugðarefnum. Það er því mikil- vægt að líta til reynslu og skoðana barna þegar lærdómar eru dregnir af viðbrögðum við faraldrinum og mat lagt á það hvaða aðgerða er þörf til að bæta hag og líðan barna í íslensku samfélagi. Innleiðing Barnasáttmálans er viðvarandi verkefni og fjölmargar áskoranir eru fram undan. Á þess- um degi er hins vegar full ástæða til að líta yfir farinn veg og þær fjölmörgu vörður sem mörkuðu leiðina að samfélagi þar sem rétt- indi barna eru í hávegum höfð. Börnum hefur til að mynda verið tryggð vernd gegn öllum teg- undum ofbeldis og réttur þeirra til þátttöku í öllum málum sem þau varðar hefur verið staðfestur. Þá hefur hlutdeild og vægi barna í opinberri þjóðfélagsumræðu auk- ist, sem er sérstakt ánægjuefni. Ég vil óska öllum börnum til hamingju með daginn, og það er von mín að það gefist tækifæri til þess að fagna því um land allt að í dag eru 32 ár síðan börn fengu al- þjóðlega viðurkenningu á stöðu sinni sem fullgildir þjóðfélags- þegnar og rétthafar. Eftir Salvöru Nordal » Það er mikilvægt að líta til reynslu og skoðana barna þegar lærdómar eru dregnir af viðbrögðum við faraldrinum og mat lagt á það hvaða að- gerða er þörf til að bæta hag og líðan þeirra. Salvör Nordal Höfundur er umboðsmaður barna. Dagur mannréttinda barna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.