Morgunblaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mörg mikilvæg fuglasvæði eru á náttúrusvæðum í umdæmi Reykja- víkurborgar. Þau þarf að vakta áfram vegna þess að svæðin eru mikilvæg á landsvísu fyrir ákveðnar fuglategundir og eins til að fylgja stefnu borgarinnar um líffræðilega fjölbreytni og aðgerðaáætlun sem henni fylgdi. Þetta kemur fram í minnisblaði dr. Freydísar Vigfús- dóttur, verkefnastjóra á skrifstofu umhverfisgæða til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Skýrsl- an heitir Vöktun mikilvægra fugla- svæða í Reykjavík – staðan haustið 2021. Fuglatalningar hafa verið gerðar á mikilvægum fuglasvæðum í Reykjavík vor og haust undanfarin ár. Fuglalíf við Reykjavíkurtjörn og í friðlandinu í Vatnsmýri hefur verið vaktað árlega í meira en fjóra ára- tugi af fuglafræðingunum Ólafi K. Nielsen og Jóhanni Óla Hilmarssyni. Það er langlengsta vöktunarserían fyrir nokkurt náttúrusvæði í borg- inni og geymir afar dýrmætar upp- lýsingar. Fuglalíf á svæðinu var líf- legt á liðnu sumri og varpárangur yfir meðallagi hjá flestum tegundum sem þarna verpa. Grágæs, rauð- höfðaönd, stokkönd, skúfönd og dug- gönd komu upp ungum. Kríunni gekk betur nú en mörg undanfarin ár og komu um 50 pör upp tíu fleyg- um ungum. Að minnsta kosti 186 ungar undan tíu ólíkum tegundum voru á tjarnarsvæðinu í sumar. Leirurnar í Grafarvogi eru einn mikilvægasti viðkomustaður far- fugla í Reykjavík. Einnig eru leirur og fjörur í Blikastaðakró og Gorvík mikilvægar og farfuglar koma einnig við á leirum og fjörum í Fossvogi. Samtals fundust 24 fuglategundir í Grafarvogi. Strandfuglar voru mjög áberandi og lóuþrælar algeng- astir en líka lóur, grágæsir, tjaldar og starrar. Mikið fuglalíf getur verið við stærstu stöðuvötnin í borginni, El- liðavatn og Rauðavatn. Flórgoða hefur fjölgað á svæðinu. Vatnsstaða Rauðavatns var mjög lág í sumar og reyndu aðeins tvö flórgoðapör varp en þau voru sjö í fyrrasumar. Við vatnið sáust 22 fuglategundir og margar tegundir með unga. Við Elliðavatn sást samtals 21 tegund sumarið 2021. Álftir, topp- endur, rauðhöfðaendur, stokkendur og skúfendur voru áberandi með unga við flæðiengin til móts við El- liðavatnsbæinn. Þar sáust einnig flórgoðar með unga. Mikilvægar sjófuglabyggðir eru innan borgarlandsins, einkum í eyj- unum á Kollafirði og eins í björgum og á strandsvæðum til að mynda við Kjalarnes. Náttúrustofa Suðurlands hefur vaktað lundavarp í Akurey undanfarin ár og er það eina reglu- lega vöktun sjófugla í borgarland- inu. Náttúrustofan hefur einnig fylgst öðru hvoru með lundavarpinu í Lundey. Talið er að sjófuglavöktun megi auka til muna. Mikilvæg fuglasvæði eru í borginni - Tjörnin og Vatns- mýrin, leirur og fjörur, sjávareyjar og stöðuvötn Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Reykjavíkurtjörn Mikið fuglalíf er við Tjörnina og í Vatnsmýrinni. Þar má sjá gæsir og endur allan ársins hring. Fuglunum fjölgar svo til muna á sumrin og margir þeirra verpa í Vatnsmýrinni, meðal annars bæði endur og kríur. Nokkuð af ungum komst á legg í sumar. Leigufélagið Bríet ehf., í samvinnu við sveitarfélög á landsbyggðinni, stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum til framtíðar útleigu til einstaklinga og fjölskyldna. Auglýst er eftir byggingaraðilum til samstarfs sem skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnisins í samráði við Bríeti og viðkomandi sveitarfélag. Leigufélagið Bríet Áhugasamir eru hvattir til að óska eftir gögnum með því að senda tölvupóst á gudmundur@briet.is og soffia@briet.is og skal umsóknum skilað inn í samræmi við útlistanir fyrir 30. nóvember 2021. Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæða lausna. Frekari upplýsingar veitir eignaumsýsla Leigufélagsins Bríetar, gudmundur@briet.is og að auki soffia@briet.is auk þess sem ítarefni, þ.m.t. staðsetning uppbyggingarverkefna, er á síðu félagsins www.briet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.