Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 41

Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 41
KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Keflavík lagði Val að velli 79:78 í Subway-deild karla í körfuknattleik í Keflavík í gær. Lokakaflinn var dramatískur því sigurkarfan kom á elleftu stundu. Keflavík er þar með búin að safna saman tólf stigum í fyrstu sjö leikj- unum eins og Íslandsmeistararnir frá Þorlákshöfn. Valur er með átta stig eftir sjö leiki og hefði því með sigri jafnað við Keflavík. KR og Njarðvík eru einnig með átta stig eins og Valur í sætum 5 - 7. Sigur Keflvíkinga var ævintýra- legur því Valur var með boltann í stöðunni 78:77 fyrir Val. Valur Orri Valsson stal boltanum af Vals- mönnum þegar um tíu sekúndur voru eftir. Hann reyndi skot sem missti marks en Jaka Brodnik tók frákastið. Skottilraun hans geigaði einnig en þá kom Litháinn sterki Dominykas Milka til skjalanna. Tók frákast og skoraði sigurkörfuna með síðasta skoti leiksins. Milka sýndi sínar bestu hliðar gegn Val og skoraði 26 stig en tók auk þess 13 fráköst. Var hann langstigahæstur Keflvíkinga í leiknum. Næstur kom Calvin Burks Jr. með 14 stig. Stiga- skorið dreifðist nokkuð hjá Val en Kristófer Acox skoraði mest eða 16 stig. Hann tók einnig 13 fráköst. Pablo Cesar Bertone var með 15 stig og gaf 6 stoðsendingar. Öruggt hjá meisturunum Íslandsmeistararnir frá Þorláks- höfn halda sínu striki en liðið vann í gær sjötta deildarleikinn í röð þegar Þór frá Akureyri kom í heimsókn. Meistararnir unnu stórsigur 110:81 og eru eins og Keflvíkingar með 12 stig eftir sjö leiki. Akureyringar eru hins vegar á botninum án stiga. Þótt sigur Þórs Þorlákshafnar hafi verið öruggur þá byrjaði Þór Akureyri leikinn vel. Akureyriingar höfðu þriggja stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta en að loknum fyrri hálfleik var staðan 53:50 fyrir heimamenn. Í þriðja leikhluta skildu leiðir og meistararnir lönduðu sigrinum af miklu öryggi í síðasta leikhlutanum. Glynn Watson skoraði 24 stig fyrir Þór Þ. og gaf 12 stoðsendingar. Atle Ndiaye var stigahæstur hjá Þór Ak. með 25 stig. Eins og einnig var minnst á í blaðinu á dögunum þá tapaði Þór Þor- lákshöfn í fyrstu umferð fyrir Njarð- vík í Njarðvík. Titilvörnin byrjaði því ekki vel en fall hefur reynst fararheill því Þór Þorlákshöfn hefur unnið alla sex deildarleikina eftir það. Milka tryggði sigurinn á elleftu stundu Morgunblaðið/Árni Sæberg Öflugur Dominykas Milka var réttur maður á réttum stað gegn Val. - Íslandsmeistararnir úr Þorlákshöfn hafa unnið sex leiki í röð í deildinni ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Knattspyrnudeild Breiðabliks hef- ur samið við venesúelska miðju- manninn Juan Camilo Pérez um að leika með karlaliði félagsins næstu tvö ár. Hann kemur frá Carabobo, sem leikur í efstu deild Venesúela. Í umfjöllun Blikar.is er Pérez lýst sem leikmanni sem geti leyst marg- ar stöður á vellinum, hann búi yfir miklum hraða og sé afar leikinn með boltann. Breiðablik hafnaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar á síð- ustu leiktíð og rétt missti af Ís- landsmeistaratitlinum til Víkinga úr Reykjavík. Liðstyrkur í Kópavog Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Hall Þjálfari Óskar Hrafn Þorvaldsson er spenntur fyrir komu Pérez. Íslenska karlalandsliðið stendur í stað á nýjum styrkleikalista FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, en listinn var birtur í gær. Ísland er í 62. sæti, því sama og á síðasta lista sem var birtur í október. Ísland hef- ur fallið um sextán sæti á árinu en liðið var í 46. sæti styrkleikalistans í upphafi árs. Belgía er sem fyrr í efsta sætinu og Brasilía kemur þar á eftir. Frakkland er í 3. sæti og England í því fjórða. Danmörk er efst Norðurlandanna í 9. sæti, Sví- þjóð í 18. sæti, Noregur í 41. sæti og Finnland í 58. sæti. Morgunblaðið/Eggert FIFA Eiður Smári Guðjohnsen og Arnar Þór Viðarsson stýra liðinu. Landsliðið stendur í stað HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Kórinn: HK – Stjarnan .......................... L16 Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss ............ S14 KA-heimilið: KA – Haukar..................... S16 Kaplakriki: FH – Fram .......................... S18 Víkin: Víkingur – Grótta......................... S18 Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Origo-höllin: Valur – Afturelding.......... L16 Evrópubikar kvk., 32-liða, seinni leikur: Eyjar: ÍBV – AEP Panorama ............... L13 1. deild karla, Grill 66-deildin: Digranes: Kórdrengir – Hörður............ S19 Origo-höllin: Valur U – Berserkir .... S19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Framhús: Fram U – Valur U................. S16 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Origo-höllin: Valur – Grindavík ............. S16 Ljónagryfjan: Njarðvík – Haukar.... S18.15 Borgarnes: Skallagrímur – Keflavík S19.15 Smárinn: Breiðablik – Fjölnir........... S20.15 1. deild kvenna: Stykkishólmur: Snæfell – Ármann ....... L16 Þorlákshöfn: Hamar-Þór – Þór Ak. ...... L16 TM-hellirinn: ÍR – Fjölnir B ................. L18 Meistaravellir: KR – Aþena................... L18 Garðabær: Stjarnan – Vestri................. L18 1. deild karla: Flúðir: Hrunamenn – Höttur............ S16.30 JÚDÓ Íslandsmótið í sveitakeppni í júdó fer fram í Vallaskóla á Selfossi í dag. SKAUTAR Íslandsmeistaramótið á listskautum fer fram í Skautahöllinni í Laugardal í dag og á morgun. UM HELGINA! Fram sótti tvö stig í Garðabæinn í Olís-deild kvenna í handknattleik í í gær þegar liðið vann Stjörnuna 26:25 eftir spennuleik. Stigin fleyttu Fram upp í toppsæti deildarinnar því liðið er með 13 stig eftir átta leiki. Fram fór upp fyrir Val sem er með 12 stig og á leik til góða. Stjarn- an er með 4 stig eftir átta leiki í 7. sæti en ÍBV er einnig með 4 stig en eftir sjö leiki. Stjarnan jafnaði 14:14 með því að skora fyrstu þrjú mörkin í síðari hálfleik og náði liðið þriggja marka forskoti 21:18. Leikreyndir leikmenn Fram fóru ekki á taugum og voru aftur komnar yfir 24:23 þegar sex mínútur voru eftir. Ragnheiður Júlíusdóttir skor- aði sigurmark Fram úr vítakasti en þá voru enn þrjár mínútur eftir. Hún var markahæst með 10 mörk. Morgunblaðið/Eggert Garðabær Karen Knútsdóttir brýst í gegnum vörn Stjörnunnar í gær. Fram hafði betur eftir spennuleik í Mýrinni ÍBV er í góðri stöðu eftir fyrri leik- inn gegn gríska liðinu AEP Pano- rama í 32-liða úrslitum Evrópubik- ars kvenna í handknattleik en báðir leikirnir munu fara fram í Vest- mannaeyjum. ÍBV vann í gær 26:20 en leikurinn er skráður sem heima- leikur Panorama. Liðin mætast aftur í Eyjum í dag klukkan 13 og allar líkur virðast vera á því að ÍBV komist þá áfram í 16-liða úrslit keppninnar. „Ljóst er að Eyjakonur þurfa að fara ansi illa að ráði sínu, ætli þær ekki að vera í pottinum þegar dregið verður í 16- liða úrslitin,“ skrifaði Guðmundur Tómas Sigfússon meðal annars í um- fjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Guðmundur Tómas benti á að ÍBV hafi náð miklu forskoti sem gríska liðið hafi minnkað þegar á leið- .„Eyjakonur byrjuðu seinni hálfleik- inn frábærlega og komust 12 mörk- um yfir þegar kortér var búið. Eftir það skipti liðið mikið inn á og fengu allir leikfærir leikmenn liðsins mín- útur og það nýttu gestirnir sér með því að minnka muninn í sex mörk.“ Þjálfarinn Sigurður Bragason hefði viljað vinna stærri sigur úr því sem komið var. „Ég var ekki ánægð- ur með hvernig við enduðum, auðvit- að er ég að gefa leikmönnum séns og ég verð að gera það. Þær verða að fá að gera sín mistök og það hefði verið glatað af mér að segja þeim að fara inn á og taka þær síðan út af.“ ÍBV í góðri stöðu fyrir síðari leikinn í dag Ljósmynd/Sigfús Gunnar Markahæst Harpa Valey Gylfadótt- ir skorar eitt átta marka sinna. Í gær kom út 27. þátturinn minn af Dagmálum. Það gerir einn þátt á viku í rúmlega hálft ár sem er skemmtileg tölfræði. Ég hef spjallað við magnað íþróttafólk úr öllum íþróttum sem á það allt sameiginlegt að hafa skarað fram úr á einn eða annan hátt. Öll hafa þau haft sína sögu að segja og ég er auð- vitað bara gríðarlega þakklátur þeim fyrir að treysta mér fyrir sinni upplifun af íþróttaferlinum. Það sem allt þetta fólk á samt sameiginlegt er ótrúleg ástríða fyrir íþróttum, vinnusemi og ósérhlífni sem allir hljóta að dást að. Það er ekkert grín að vera íþróttamaður á Íslandi eins og hefur kannski áður komið fram. Réttindi íþróttafólks eru engin þannig séð og þeir sem leggja allt í sölurnar fyrir land og þjóð þurfa oft að treysta á lág- marksstyrki frá sérsambönd- unum og ÍSÍ, bara til að eiga í sig og á. Laugardalsvöllur hefur í mörg ár verið á undanþágu frá bæði Alþjóðaknattspyrnu- sambandinu og því evrópska. Nú er staðan sú að íslenska karla- landsliðið í körfuknattleik þurfti að færa heimaleik sinn gegn Rússlandi í 1. umferð und- ankeppni HM 2023 til Péturs- borgar þar sem ekki fékkst und- anþága frá FIBA til að leika á Íslandi. Ég spjallaði við Lilju Alfreðs- dóttur, þingmann Framsókn- arflokksins og sitjandi íþrótta- málaráðherra, fyrir kosningarnar í haust og þar talaði hún meðal annars um að setja nýja þjóð- arleikvanga í nýjan stjórnarsátt- mála ríkisstjórnarflokkanna. Við erum í dauðafæri að klára þetta núna og fólk hlýtur að gera sér grein fyrir því hversu mikilvægar íþróttir eru fyrir fólkið í landinu. Ég hef trú á að hver sá sem fer með ráðuneyti íþróttamála næstu fjögur árin keyri þetta verkefni áfram, hvort sem það verður Lilja eða ekki. Ef ekki þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða að íslenskir stjórnmálamenn séu fullir af skít. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.