Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 14

Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Seðlabanki Íslands hefur óskað eftir leyfi Reykjavíkurborgar til að end- urbæta og stækka hús sitt Kalkofns- veg 1, sem gjarnan er kallað Svörtu- loft. Meðal annars á að lyfta bygg- ingunni upp um heila hæð á afmörkuðu svæði og við það stækkar hún um 500 fermetra. Málinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Stefán Jóhann Stefánsson, rit- stjóri á skrifstofu bankastjóra, segir aðspurður að undanfarið hafi staðið yfir viðhald og endurbætur á hús- næði Seðlabanka Íslands við Kalk- ofnsveg 1. Tímabært var orðið að endurnýja húsnæðið að verulegu leyti. Til að mynda hafa lagnir verið endurnýjaðar að miklum hluta og ýmislegt uppfært, m.a. með hliðsjón af nýjum reglum og stöðlum. Enn fremur hafa rými verið opnuð til að koma fyrir fleira starfsfólki sem fylgdi sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Lokið er end- urnýjun tveggja hæða í aðalhluta hússins og unnið er að endurnýjun á tveimur efstu hæðunum. Þaki yfir miðrými verður lyft Þá er viðhald og endurbætur eftir á fyrstu hæð hússins. Hluti af end- urnýjun hennar felst í því að áætlað er að lyfta þaki yfir miðrými við- byggingar (innigarðs) til þess að tengja viðbyggingu og aðalbyggingu betur saman. Undir þakinu á mið- rýminu sé talsvert pláss sem ekki hafi nýst til þessa, enda ekki lokað að fullu fyrir veðri og vindum. Við þá framkvæmd er áætlað að nýtt 500 fermetra milligólf eða hæð verði til sem fyrst og fremst á að rúma gang- vegi og nokkur fundarherbergi. „Það þarf hvort eð er að skipta um þak í þessum miðhluta hússins og því er áformað að nýta tækifærið og tengja byggingarnar betur saman til að ná flæði á milli þeirra, en um leið aukast nýtingarmöguleikar á því húsnæði sem nú er nýtt sem aðal- inngangur og móttökusalur bank- ans,“ segir Stefán Jóhann. Hinn 4. nóvember 2019 birti Morgunblaðið frétt um að skipulags- fulltrúinn í Reykjavík hefði tekið til afgreiðslu umsókn Seðlabanka Ís- lands um hækkun hússins á lóð nr. 1 við Kalkofnsveg (Svörtuloft) að hluta til um tvær hæðir, samkvæmt tillögu arkitektastofunnar Arkþings ehf. Fréttin var byggð á gögnum sem Arkþing sendi til borgarinnar fyrir hönd Seðlabankans. Nokkrum dögum síðar birtist svo viðtal við Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóra í Fréttablaðinu þar sem hann vísaði því á bug að fram- kvæmdirnar væru áformaðar. Bank- inn vildi aðeins kanna hvort sá möguleiki væri fyrir hendi að hækka Seðlabankahúsið. Svör Stefáns Jóhanns hér að ofan sýna að nú er alvara á ferðum hjá bankanum. Nýjasta fyrirspurnin er ekki könnun, heldur stendur til að breyta og stækka Svörtuloft. Bygging hússins hófst árið 1984. Guðmundur Kr. Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson eru arkitektar. Ný millihæð byggð í Svörtuloftum - Hús Seðlabankans stækkar um 500 fermetra - Viðhald og endurbætur hafa staðið yfir undanfarið Morgunblaðið/Árni Sæberg Seðlabankahúsið Áformað er að lyfta þaki yfir miðrými viðbyggingar (innigarðs) Kalkofnsvegar 1 til þess að tengja hana og aðalbyggingu betur saman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.