Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
40 ÁRA Helgi ólst upp í Kolsholti 2 í
gamla Villingaholtshreppi en býr á
Selfossi. Hann er menntaður
tamningamaður og reiðkennari frá
Hólum og húsasmiður frá Fjölbrauta-
skóla Suðurlands. Helgi er sjálfstætt
starfandi reiðkennari og tamninga-
maður.
Helgi ræktar hross og hefur sýnt
bæði hross úr eigin ræktun og fyrir
aðra í kynbótadómi með mjög góðum
árangri. Hestar eiga hug hans allan.
FJÖLSKYLDA Kærasta Helga er
Ragnhildur Haraldsdóttir, f. 1986,
reiðkennari og taminingamaður. Börn
Helga eru Sæþór Leó, f. 2009, Helga
Lilja, f. 2013, og tvíburarnir Heiða
Guðjóna og Stella Guðna, f. 2017. For-
eldrar Helga eru Guðjón Sigurliði Sig-
urðsson, f. 1941, og Eydís Lilja Eiríks-
dóttir, f. 1943, fyrrverandi bændur í
Kolsholti, búsett á Selfossi.
Helgi Þór Guðjónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert hvorki betri né verri en þú
vilt vera og átt því að horfast í augu við
sjálfan þig. Synjaðu ekki beiðni góðs vinar
um aðstoð í neyð.
20. apríl - 20. maí +
Naut Skipuleggðu tíma þinn svo að þú
komir sem mestu í verk á sem skemmstum
tíma. Kauptu þér eitthvað fallegt í dag.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Er allt í drasli? Það jafnast ekkert
á við tiltektarkast til að koma innra lífi á
hreint. Hálfnað er verk þá hafið er.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú gætir komið auga á nýjar lausn-
ir í vinnunni eða hugsanlega hagnaðarvon.
Láttu ekki góðar hugmyndir renna út í
sandinn.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hefur lengi lagt hart að þér í starfi
og nú er komið að því að þú sjáir laun erf-
iðis þíns. Mundu, það skiptir ekki máli
hversu mikið þú þénar heldur hversu mikið
þú sparar.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Talaðu svo skýrt og skorinort að
engin hætta sé á að fólk misskilji þig. Allt
sem þú snertir verður að gulli og þú hagn-
ast bæði með því að eyða fé og afla.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú nýtur þess að vera til þessa dagana
því þú hefur hitt skemmtilegt fólk og gert
margt sem þú hefur ekki upplifað áður. Þú
ert við stjórnvölinn í eigin lífi.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þér hættir til þess að sanka
að þér of mörgum verkefnum í einu. Gættu
þess bara að ganga ekki alveg fram af þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú stendur frammi fyrir þeim
valkosti að geta tekið á þig aukna ábyrgð.
Gakktu úr skugga um að þú sért að tala um
sömu hlutina og viðmælendur þínir.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú getur ekki hamið gleði þína.
Settu þér það markmið að klára ákveðna
hluti heima fyrir og gefðu þér svo tíma fyrir
sjálfan þig.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Vegna rómantísks sambands
kanntu að ákveða að gera breytingar, betr-
umbæta eða breyta útliti þínu á einhvern
máta í dag.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er ekki hyggilegt að hleypa
málum af stað án þess að reyna að sjá
framvinduna fyrir. Taktu þér tíma til að tala
frá hjartanu við einhvern í dag.
að skólafélaginu, sem í kjölfarið var
afnumin. Auðvitað á frelsisbarátta
ekki að þurfa að snúast um lögfræði
eða reglur en gerir það því miður.“
Að loknu lagaprófi hóf Sigríður
störf hjá Verslunarráði Íslands, síð-
ar Viðskiptaráði. „Þar var gaman að
geta sameinað stjórnmálaáhugann,
lögfræðina og frelsisbaráttuna. Ég
starfaði þar í sex ár, þar til ég eign-
aðist eldri dóttur okkar. Þá tók ég
„Svo lá alls ekki beint við að fara í
lögfræði. Þvert á móti kom mér alls
konar nám í hug og ekki bara í há-
skóla, íþróttanám jafnvel ef það
hefði ekki bara verið á Laugarvatni.
Ég hins vegar endaði í lögfræði
tveimur árum eftir stúdentspróf og
líklega var það óumflýjanlegt. Ég
hef trúlega alla ævi haft áhuga á
reglum. Var með lögfræðiuppsteyt í
MR vegna skylduaðildar nemenda
S
igríður Ásthildur Ander-
sen fæddist 21. nóv-
ember 1971 á fæðingar-
heimilinu í Reykjavík og
verður því 50 ára á
morgun. Hún ólst upp í Vest-
urbænum, á æskuslóðum móður
sinnar og ömmu.
„Já, ég ólst upp á Sólvallagöt-
unni, flutti að heiman á Brávalla-
götuna og fór þaðan á Hávallagöt-
una, í hús sem amma mín og afi
byggðu árið 1936 og bjuggu í alla
tíð. Við Vesturbæingar þurfum svo
sannarlega ekki að fara yfir lækinn
til að sækja vatnið,“ segir Sigríður
en tekur þó fram að kærasta hafi
hún fundið í Breiðholtinu á mennta-
skólaárunum og þau eru gift núna.
„Glúmur hefur aldrei gert kröfu
um búsetu annars staðar og þótt
flest ef ekki öll önnur hverfi borg-
arinnar hafi upp á margt að bjóða
sem Vesturbærinn gerir ekki þá
skaut ég þar svo föstum rótum sem
barn að mér hefur aldrei komið til
hugar að færa mig um set.“ Þeir
sem þekkja Sigríði vita að með
Vesturbænum á hún við hverfið
norðan Hringbrautar, ekki Melana
og Hagana. „Annars voru uppvaxt-
arárin notaleg í alla staði. Bræður
mínir eru það mikið eldri en ég að
ég naut nánast uppeldis einbirnis.“
Sumardvöl í sveit var ekki fyrir
að fara hjá Sigríði. „Nei, það var
alltaf nóg að gera fyrir krakka í
Reykjavík. Á sumrin fórum við
Vesturbæingar margir upp í Þver-
holt og sóttum okkur Dagblaðið og/
eða Vísi, sem voru sameinuð þegar
ég var 10 ára, til að selja í lausasölu
í miðbænum. Það var mjög mikið
kappsmál að verða fyrstur til að
hrópa fyrirsagnir blaðanna á Lækj-
artorgi. Hagkvæmast var þó að fara
á föstudögum fyrir framan ÁTVR á
Snorrabraut eða Lindargötu og
reyna að sigta út þá sem voru ný-
komnir af sjónum. Þá munaði ekk-
ert um að kaupa nokkur eintök.“
Síðar tók við barnapössun, alls kyns
störf á dvalarheimilinu Grund og
samhliða háskólanámi blaða-
mennska á DV hinu gamla.
Sigríður gekk í Landakotsskóla,
svo í Hagaskóla og þaðan í MR.
mér tveggja ára leyfi. Fór á meðan
í mína fyrstu prófkjörsbaráttu hjá
Sjálfstæðisflokknum, varð þá 1.
varaþingmaður og hóf um leið störf
sem lögmaður, við málflutning og
einkum fyrirtækjalögfræði á Lex
lögmannsstofu í ein átta ár, þar til
ég varð þingmaður.“
Sigríður hefur starfað innan
Sjálfstæðisflokksins frá 15 ára aldri
þegar hún gekk í Heimdall. Hún
varð varaþingmaður árið 2007. Árið
2015 tók Sigríður fast sæti sem
þingmaður við fráfall Péturs Blön-
dal. „Svo náði ég ekki tilsettum ár-
angri í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík í sumar svo ég var ekki í
framboði að þessu sinni og er laus
allra mála af Alþingi.
Nú var ég að byrja í golfi og tek
það föstum tökum. Það þýðir ekkert
annað. Fór í mína fyrstu golfferð í
haust, golfskóla og golfleikfimi. Það
er auðvelt að tapa sér alveg en mér
finnst upplagt að nota tímann núna
á milli starfa til þess að læra eitt-
hvað nýtt og ég hef mjög gaman af
þessu. Golfið bætist við kraftlyfting-
arnar sem ég hef stundað um ára-
bil. Ég hóf reyndar æfingar í lyft-
ingasölum þegar ég var 13 ára og
hef bara aldrei látið deigan síga í
þeim efnum, af mismikilli ákefð þó.
Sigríður Á. Andersen, lögfræðingur og fyrrverandi ráðherra – 50 ára
Golfið „Glúmur hefur ekki enn komið með mér í golfið. Hann fékk þessa mynd senda af mér í golfskólanum á Spáni
og fannst vinsamlegt af skólanum að hafa holurnar fyrir byrjendur svona stórar,“ segir Sigríður.
Rótgróið Vesturbæjaríhald
Í Madríd Fjölskyldan stödd í uppá-
haldsborg Sigríðar í sumar.
Títturnar Saumaklúbbssysturnar ætla
að fagna 50 árunum í næstu viku.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Katrín Kolka Kristjánsdóttir
fæddist þann 20. nóvember 2020 kl.
21.54 á Landspítalanum og á því eins
árs afmæli í dag. Hún mældist 3.760 g
og 52 cm. Foreldrar hennar eru Ólöf
Tinna Frímannsdóttir og Kristján
Albert Loftsson.
Nýr borgari
Við
Hækk
um
í gleð
inni