Morgunblaðið - 20.11.2021, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021
Fyrstu af þrennum útgáfutónleikum
Víkings Heiðars Ólafssonar píanó-
leikara í Eldborg Hörpu fóru fram í
gærkvöldi. Á tónleikunum lék hann
verk af nýjustu plötu sinni sem nefn-
ist Mozart & Contemporaries, sem
eins og titillinn gefur til kynna
geymir verk eftir Mozart og fimm
samtímamenn hans. Þetta eru þeir
Baldassare Galuppi, Carl Philipp
Emanuel Bach, Domenico Cimarosa
og Joseph Haydn. Platan, sem er
fjórða einleiksplatan sem Víkingur
sendir frá sér undir merkjum
Deutsche Grammophon, hefur farið
á toppinn á klassískum vinsælda-
listum víða um heim.
Á tónleikunum í gærkvöldi vígði
Víkingur nýjan Steinway-konsert-
flygil Hörpu. Forsætisráðherra og
borgarstjóri tilkynntu í vor, þegar
10 ár voru liðin frá vígslu tónlistar-
hússins Hörpu, að ríki og borg
myndu greiða fyrir flygilinn, en
kostnaður við kaupin var metinn 25
milljónir króna.
Í viðtali við Morgunblaðið fyrr í
þessum mánuði sagði Víkingur um
nýja flygilinn: „Ég vil meina að
svona flygill sé bara besta fjárfest-
ing sem þjóðarbúið getur gert. Þetta
kostar um 25 milljónir eins og einn
ráðherrajeppi en það er bara einn
ráðherra sem nýtur hans hverju
sinni en flygillinn í Hörpu hefur
glatt svoleiðis milljónir gesta. Þetta
er mikill peningur fyrir mig og þig
en þetta er ekkert miðað við hvað
fæst fyrir hann, bara fegurðin og
það sem hann hefur gert fyrir hús-
ið.“
Líkt og á fyrri útgáfutónleikum
miðlaði Víkingur hugmyndum sín-
um með vel völdum orðum á milli
verka og opnaði þannig sýn inn í
hugmyndaheim tónskáldanna. Aðrir
og þriðju útgáfutónleikarnir verða í
kvöld og annað kvöld.
Morgunblaðið/Eggert
Hljómfagur Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari valdi nýjan Steinway-konsertflygil Hörpu sem hann vígði í gær.
Víkingur vígði
nýjan flygil Hörpu
„Ég byrjaði að þróa verkið fyrir um
tveimur árum þegar ég fór í rann-
sóknarleyfi sem prófessor við sviðs-
listadeild
Listasháskóla
Íslands,“ segir
Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir um
dansverk sitt Rof
sem frumsýnt er
á Reykavík
Dance Festival í
Tjarnarbíói í
kvöld. Hún starf-
aði sem prófessor
og fagstjóri samtímadansbrautar
LHÍ á árunum 2011-2021.
„Halla Þórðardóttir, dansari
verksins, hefur unnið með mér frá
byrjun við það að þróa aðferð mína
fyrir þetta verk,“ segir Sveinbjörg og
útskýrir að rannsókn hennar felist í
því að rannsaka líkama og tækni
dansarans og þá óorðuðu þekkingu
sem líkami dansarans býr yfir. „Ég
hef mikinn áhuga á því að rannsaka
hvernig hægt sé að hámarka meðvit-
und líkamans á sviði. Við höfum
þannig rannsakað hvernig gömul
þekking og reynsla líkamans og
innra hugarástand hefur áhrif á
hreyfingu,“ segir Sveinbjörg og
bendir á að hún hafi í því skyni notast
við hugleiðslu, en sjálf er hún mennt-
aður hatha-jóga-kennari.
„Ég hef því verið að rannsaka
hvernig dansarinn geti sem best
tengst sínum innri líkama þannig að
skynjunin komi fram og hreyfingin
tengist skynjun dansarans,“ segir
Sveinbjörg sem vann fyrst hreyfiefni
í spuna með Höllu. „Eftir spunann
skrifaði Halla niður það sem hún
upplifði og ég skrifaði það sem ég
sá,“ segir Sveinbjörg og bendir á að
skrif þeirra hafi iðulega kallast á með
skemmtilegum hætti.
„Út frá þessu vann ég hreyfiefnið
áfram, kóreógraferaði og bjó til form
í kringum hreyfinguna þannig að úr
varð listaverk, “ segir Sveinbjörg
sem langar að halda áfram að þróa
aðferðina með fleiri dönsurum. „Ég
held reyndar að hægt sé að nota
þessa aðferðafræði í hvaða listformi
sem er, þótt við séum í þessu tilviki
að vinna með dans,“ segir Sveinbjörg
og leggur mikla áherslu á að Rof sé
einstaklega aðgengileg danssýning.
Leikmynda- og búningahönnuður
verksins er Júlíanna Lára Stein-
grímsdóttir, lýsingu hannaði Jóhann
Friðrik Ágústsson, tónlistin er eftir
Valgeir Sigurðsson en hreyfistýrð
hljóðhönnun er eftir Mari Garrigue.
„Halla ber tvo „wave“-snjallhringa
sem hún notar til að framkalla hljóð
eða hafa áhrif á áferð tónlistarinnar
með hreyfingar í rauntíma.“
Sveinbjörg er einn af stofnendum
Reykjavík Dance Festival og því
þykir henni sérlega vænt um að
frumsýna verkið á hátíðinni. „Ég hef
verið viðloðandi RDF í tæp 20 ár og
það er alltaf jafngaman að vera með,
því það er mikil gróska í samtíma-
dansinum í dag. Þetta er mikil
uppskeruhátíð dansara,“ segir
Sveinbjörg sem sjálf dansaði í verk-
inu When the Bleeding Stops eftir
Lovísu Ósk Gunnarsdóttur á opn-
unardegi hátíðarinnar. silja@mbl.is
„Hámarka meðvitund líkamans á sviði“
- Rof eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur
frumsýnt á RDF í Tjarnarbíói í kvöld
Ljósmynd/Saga Sig
Rannsókn Halla Þórðardóttir dansar sólóverkið Rof eftir Sveinbjörgu.
Sveinbjörg
Þórhallsdóttir
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands
mun í dag kl. 19, í samvinnu við Óp-
erudaga, standa fyrir tónleikhús-
flutningi á Rappresentazione di
Anima e Corpo eftir Emilio Caval-
ieri í Breiðholtskirkju. Aðgangur
er ókeypis en framvísa þarf nei-
kvæðu hraðprófi.
Verkið var frumflutt í Róm árið
1600 og prentað og gefið út sama
ár, segir í tilkynningu og telst það
vera fyrsta óratórían þar sem kór,
einsöngvarar og hljómsveit samein-
ast í dramatísku tónleikhúsverki.
„Verkið lýsir innri baráttu manns-
ins við sjálfan sig, hið jarðneska líf
andspænis hinu andlega, dyggðir,
feistingar og almættið,“ segir í til-
kynningu. Flytjendur eru flestir
nemendur tónlistardeildar LHÍ og
kór tónlistardeildar leikur veiga-
mikið hlutverk ásamt einsöngv-
urum deildarinnar. Kammer-
hljómsveit skólans, Camerata,
leikur í verkinu og munu Sólveig
Thoroddsen hörpuleikari og Sergio
Leopold Blanco teorbuleikari leiða
meðleikinn. Alls verða flytjendur
65 talsins og eru tónleikarnir liður í
Óperudögum í Reykjavík.
Flytja tímamótaverk Emilios Cavalieris
Í kirkju Nemendur á æfingu.
Súlan, menningarverðlaun Reykja-
nesbæjar 2021, verður afhent við
formlega athöfn í Duus Safna-
húsum í dag kl. 14 og við sama til-
efni verður ný sýning opnuð í Lista-
safni Reykjanesbæjar. Nefnist sú
Skrápur / Second Skin þar sem
sýnd verða verk Ráðhildar Inga-
dóttur og Igors Antics. Á sýning-
unni er fjallað um flótta og til-
færslur þjóða í heiminum en titill
sýningarinnar vísar til þess skjóls
sem líkaminn býr til sjálfur yfir
tíma fyrir utanaðkomandi áreiti,
eins og það er orðað í tilkynningu.
Einnig vísi orðið
í skráp sem
manneskjan
komi sér upp,
huga sínum til
varnar. Báðir
listamenn hafa
gert málefni
þjóðaflótta og
átaka sem af
þeim hljótast að
umfjöllunarefni í
fyrri sýningum. Sýningarstjóri er
Helga Þórsdóttir, safnstjóri Lista-
safns Reykjanesbæjar.
Verðlaun og sýningaropnun í Duus
Ráðhildur
Ingadóttir