Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 43

Morgunblaðið - 20.11.2021, Síða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ GEMMA CHAN RICHARD MADDEN KUMAIL NANJIANI LIA McHUGH BRIAN TYREE HENRY LAUREN RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T 91% TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is „Til hamingju með afmælið, uppá- halds sígópásu-vinur minn.“ Þann- ig hljómaði afmæliskveðja til Ein- ars Þórs frá Rauðhærða riddaran- um, Eiríki Haukssyni, á fjasbók- inni fyrir einhverjum árum. Kær- leikurinn tilfinnanlegur. Og það er á þeim vettvangi, nema hvað, sem ég hef náð að fylgjast með Einari við leik og störf á undanförnum árum. Hefi þó vitað af honum sem tónlistarmanni lengi. Hann kom fyrst fram á sviðljósið með borgfirsku þungarokkssveit- inni Túrbó árið 1985, þá bassa- leikari. Túrbó var ein af fáum alvöru íslenskum þungarokkssveitum á þeim ára- tugnum og auðnaðist að gefa út hljómsnældu, K.Ö.M.M., árið 1991. Einar hefur svo starfað með ýms- um sveitum og að ýmsum verk- efnum síðastliðna áratugi, m.a. með Buffi og Dúndurfréttum og sýnt listir sínar á uppákomum Rigg-viðburða. Við Einar deilum ástríðu fyrir alls kyns þungarokki og hefur fundum okkar oft borið saman í hinum ýmsu spjallþráðum fjasbók- arinnar þar sem hinar og þessar hljómsveitir eru mærðar. Eins lags netvinátta eiginlega. Þegar ljóst var að breiðskífa væri á leiðinni ákvað ég að nota tækifærið, hitta Ei skaltu trúnni glata Ljósmynd/Ásta Magg. Gítarleikarinn Einar Þór Jóhannsson er slyngur strengjamaður. okkar mann í raunheimum og fara yfir þessi mál. Þar höfðum við aldrei hist áður (mögulega þó ein- hvern tíma á tíunda áratugnum en hvorugur okkar man þá tíma of vel). Tónlistin á Tracks dregur dám af klassísku rokki og þungarokki frá áttunda og níunda áratugnum. Og það hressilega, svo það sé sagt. Sum lögin hljóma reyndar eins og þau hafi stokkið alsköpuð úr tíma- vél, lög sem hefðu sómt sér vel á stórkostlegum ópus magnum frá 1985, On a Storyteller’s Night. Tónlistin heilt yfir liggur í hetju- bundnu þungarokki, með dassi af iðnaðarrokki en lítið um popplegan hárblástur frá lokum níunda ára- tugarins. Opeth hin sænska kemur líka í hugann, en hún hefur gert tilraunir með þjóðlagakennt progg og slíkur blær liggur líka yfir ein- staka smíðum. Hljómborðin eru stundum eins og beint úr hasar- atriði í Miami Vice. Já, svona er platan! Söngrödd Einars minnir þá á köflum á Todd gamla Rundgren. Nei, ef þú vilt heyra móðins spretti skaltu leita annað. „Ég lék á öll hljóðfærin sjálf- ur,“ segir Einar þar sem hann sit- ur við borðstofuborðið (Ry Cooder er í græjunum og er það tilviljun). Þetta segir hann ekki af yfirlæti heldur er hann bara að lýsa stað- reyndum. Þetta er fölskvalaus drengur, allt er beint af kúnni og ástríðan fyrir kynngimagni tón- listarinnar er alger. „Vinur minn Sissi (Sigurþór Kristjánsson, sem barði húðir í Túrbó á sínum tíma) hjálpaði mér svo að taka upp.“ Einar segir að það að taka upp lög, semja þau og dútla við þau í eftirvinnslu sé sér lífsfylling. Hann vinnur fyrir sér sem tón- listarmaður en þegar vinnunni sleppir hættir tónlistin ekkert. „Hins vegar hefur staðið á því að gefa þetta út,“ viðurkennir hann. „Þetta er svo undarlegt. Maður vill gefa þetta út, maður vill að fólk heyri þetta en um leið er það afar stressandi að bera svona á borð fyrir alþjóð.“ Menn og konur hafi hins veg- ar ýtt á hann, Sissi þá sérstaklega, og fyrir það sé hann þakklátur. Platan er til á Spotify og verður þar eingöngu. Engir útgáfu- tónleikar verða þá haldnir heldur. En það er aldrei að vita nema fleiri lög fari að læðast út. Þau ku vera 120 á lager eins og er. » … lög sem hefðu sómt sér vel á stórkostlegum ópus magnum frá 1985, On a Storyteller’s Night. Einar Þór Jóhannsson er með iðnustu gítar- leikurum landsins. Hann steig í fyrsta skipti fram með eigin plötu fyrir stuttu og kallast hún Tracks. Það verður mikið um að vera hjá nemendum Menntaskóla í tónlist um helgina. 20 söngvarar og hljóðfæraleik- arar úr rytmískri deild skólans munu í kvöld kl. 20 flytja þekkt lög úr bandarískum söngleikjum og kvikmyndum í dag- skrá sem ber titilinn „Ameríska söngbókin“. Vegna kófsins geta einungis boðsgestir flytjenda verið viðstaddir en aðrir geta notið tón- leikanna í streymi á slóðinni youtu.be/q-epwPrm9Vg. Kammertónlistaruppskeruhátíð klassískrar deildar skólans verður líka haldin í dag með tvennum tón- leikum í Safnahúsinu við Hverfis- götu. Á efnisskrá verða verk frá ýmsum tímabilum, m.a. eftir Bach og Mozart. Aðeins boðsgestir mega mæta en hægt að hlusta á tón- leikana kl. 13 eða 15 á slóðunum youtu.be/mqppbkafpno og youtu.be/Ys-CCKXuxuc. Söngsýning og uppskeruhátíð J.S. Bach Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir tónleikum á morgun, sunnu- dag, kl. 16 í Hömrum í Hofi. Sif Margrét Tul- inius fiðluleikari og Hjálmar H. Ragnarsson tón- skáld koma fram og mun Sif leika tvö verk fyrir ein- leiksfiðlu, Sónötu no. 1 í g-moll eftir J.S. Bach og nýtt verk eftir Hjálm- ar, Partítu fyrir einleiksfiðlu frá árinu 2020. Hjálmar mun segja frá verkunum á tónleikunum. Miðaverð er kr. 3.000 og 20% afsláttur er fyr- ir félagsmenn í Tónlistarfélagi Ak- ureyrar og fiðlunema. Vegna samkomutakmarkana eru einungis 50 miðar í boði. Ekki er krafist hraðprófa en fólk beðið að gæta að sóttvörnum. Sif og Hjálmar leika í Hofi Sif Margrét Tulinius

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.