Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 45

Morgunblaðið - 20.11.2021, Side 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2021 110 Ve E n nú er ég staddur í út- slegnum heimi,“ segir ljóðmælandinn í „Hvítum hröfnum – apríl 2020“ en heiminum sló vitaskuld út það grimma vor vegna veirufaraldursins sem enn lætur finna fyrir sér. Og í niðurlagi ljóðsins segir að hér við sundin blá séu nú málaðar tvíbreiðar gangbrautir þvert á allar götur „því þegar straumi verður hleypt á / opn- ast flóðgáttirnar og umferðarljósin / verða óþarft glingur í mannhafinu“. Það er eflaust rétt hjá skáldinu Eyþóri Árnasyni að þegar veiru- fjandinn verður kveðinn niður og full spenna aftur sett á kerfið, þá muni hraðinn í lífinu og manngerðu um- hverfinu aukast að nýju. En hraðinn er annars aldrei mikill í ljóðheimum Eyþórs. Og í þessari nýju – og sjöttu – ljóðabók hans, Réttindabréf í byggingu skýjaborga, mætir les- endum sem þekkja til kunnuglegur og notalegur ljóðheimur, stemnings- ríkur, vel mótaður og fullt af bráð- skemmtilegum vísunum í allar áttir, sögulegum sem menningarlegum. Eyþór er eitt þeirra skálda sem hafa strax við útgáfu fyrstu bókar fundið það sem má kalla þeirra tón. Í byrjun mátti vissulega sjá áhrif frá öðrum skáldum, hvað myndsköpun og heim ljóðanna varðar, til að mynda frá skáldskap þeirra bræðra og nærsveitunga Eyþórs frá Sauðár- króki, Gyrðis og Sigurlaugs Elías- sona. En með tímanum hefur Eyþór haldið áfram að móta með markviss- um hætti sinn ljóðheim og sögusvið. Í bókunum yrkir hann oft um Reykjavík, þar sem hann er búsett- ur, og kemur jafnvel við erlendis, en hjartað slær ávallt sterkast í sveit- inni, í Skagafirði. Sem hann minnist og hyllir með margvíslegum hætti. Eins og í upphafsljóði bókarinnar, „Sumarkvöld“, þar sem ljóðmæland- inn er á leið á æskuslóðir og fagurt útsýnið heim yfir fjörðinn kveikir minningar: Ég kem vestan að og þegar ég sé yfir fjörðinn gríp ég fjöllin á lofti staldra við, horfi yfir um í aðra tíma Það er minning um langafa sem vefur beittan ljá inn í strigadruslu og varar ljóðmælanda sem lítinn dreng við því að drepa sig á honum – og síðan endar ljóðið: Og ég hef passað mig er enn á ferðinni með hann flugbeittan pakkaðan inn í horfna öld (7) Í bókinni er oft leikið með slík tímahlaup aftur í fortíð. Til að mynda í ljóðinu sem lokar bókinni, „Haustkvöld á Vatnsskarði“, en þegar fjöll æsku- slóðanna birtast ljóðmælanda í það skiptið „öslar hugurinn mýrar- sund og / hleypur harðan mel […] Þannig fer ég um ranghala hugans …“ (68) Þá leikur Eyþór í ljóðum bók- arinnar af íþrótt og áreynsluleysi með víðfeðmt net vísana. Í ljóði um það þegar rafmagnslaust varð í sveitinni á köldu vetrarkvöldi kemur til að mynda kuldablár andinn fjúk- andi yfir hæðir (Wuthering Heights) eftir ísuðum línum („Staðið við gluggann“ eftir Bubba Morthens) og bærinn var allur barinn að utan (eins og við þekkjum úr draugasögunum). Og svo fór Lenna að dreyma um „mislitar kanínur, / kálgarð og að lifa á landsins gæðum, en skotið reið af og kertið brann niður í stjakann“ – og lesandinn hefur óvænt haft við- komu í „Mýs og menn“ eftir John Steinbeck. Í öðru góðu ljóði, „Gömul bylgju- lengd“, segist ljóðmælandinn ekki hafa tekið gamla NMT-símann úr bílnum því það gæti komið hringing á þeirri bylgjulengd, en hann bíður eftir símtali ofan af Kili og hefur ill- an grun um að frændur sínir séu þar í vanda með fjárhóp. Vitaskuld er átt við Reynistaðarbræður, langt aftur í annarri öld, en ljóðmælandinn ekur „hring eftir hring / um bæinn í októ- berlok / tilbúinn að svara“ og þegar Einar mun loks hringja ætlar hann að „bregða hratt við / bruna upp eft- ir með prímus / kraftsúpur og von“. Dæmin um slíkar vísanir eru mörg: Í ljóði um Skálholt finnst ljóð- mælandanum til að mynda eins og „hið ljósa man væri mætt“; í ljóðinu „Í Borgarfirði“ er Þorsteins frá Hamri minnst með fallegum hætti en á æskuslóðum hans „ruglast allir nýtískumælar í bílnum“ og bílstjór- inn stígur út og gengur „hljóðlát skref / inn í tímann“; og í „Vorljóð í Reykjavík 2021“ segir af því að máv- ar hafi hertekið Reykjavíkurtjörn, með kuldalegu gargi og ofstopa, „eða eins og skáldið sagði: / SKÆRULIÐARNIR HAFA UM- KRINGT VATNASKÓG“. Og er vitaskuld vitnað í þekkt ljóð Einars Más Guðmundssonar. Undanfarnar vikur hefur það glatt þennan lesara að grípa í þetta Réttindabréf Eyþórs í byggingu skýjaborga, og njóta hlýjunnar og kímninnar í ljóðheimum hans. Og sem ástríðufullur fluguveiðimaður skil ég vel það kapp sem býr að baki ljóðinu „Á leið í Laxá“, þar sem ljóð- mælandi er á leið í Mývatnssveit að veiða urriða og hugurinn fer svo geyst að hraðamyndavélar við Fiski- læk nema hann ekki og þar sem hann hefur veiðileyfi á drauma taka nýju göngin ekki af honum gjald. Ljóðinu lýkur með fallegri mynd og von um töku: Línan leggur snörur flugan bíður svöl og seiðandi eftir höggi úr djúpinu (42) Morgunblaðið/Hari Hlýleg ljóð Notalegur ljóðheimur Eyþórs Árnasonar er „stemningsríkur, vel mótaður og fullt af bráðskemmtilegum vísunum“, segir rýnir. Horft yfir um í aðra tíma Ljóð Réttindabréf í byggingu skýjaborga bbbbn Eftir Eyþór Árnason. Veröld, 2021. Kilja, 72 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR L jóðskáldið Brynja Hjálms- dóttir hefur sent frá sér sitt annað ljóðasafn. Það nefnist Kona lítur við og er, eins og titillinn gefur til kynna, að mörgu leyti femínískt verk. Fyrsta ljóðabók Brynju, Okfrum- an, kom út árið 2019 og vakti góð við- brögð lesenda og gagnrýnenda. Fyr- ir hana hlaut skáldið tilnefningu til Fjöruverðlaunanna og Rauðu hrafnsfjaðrarinnar, auk þess sem hún var valin ljóðabók ársins af starfsfólki bókabúða. Líkt og fyrra verk Brynju er ljóðabókin Kona lítur við prýdd svarthvítri grafík eða teikningum, sem fara henni vel. Fyrsti hluti þessa nýja verks nefnist „Óramað- urinn“ og er fem- ínískur ljóðabálk- ur um þá karla- veröld sem við höfum búið við. Óljós vera gægist inn um skráargat inn í heim sem hún fær ekki aðgang að, veröld þar sem Óramaðurinn dvelur og lætur sig dreyma um að vera maður með mönnum. Þessi fyrsti kafli er ekki jafn ferskur og þeir tveir sem á eftir koma, þar koma fram hugmyndir sem manni finnst maður hafa heyrt áður. Í öðrum hluta verksins „Kona lítur við“ hefst hvert ljóð á einhverri gjörð konu. „Kona býr um rúmið sitt“, „Kona færir póstinum bréf“, „Kona leggur línurnar“ og svo framvegis. En þrátt fyrir að konurnar séu hér gerendurnir virðast þær hafa tak- mörkuð völd yfir eigin lífi og limum. Í þessum miðjukafla tekur skáldið fyrir alls kyns efni og leikur sér listi- lega með tungumálið í leiðinni. Þar sýnir Brynja hvers hún er megnug sem ljóðskáld. LOFORÐ Kona stingur fingunum inn um rist á risavöxnu fiskabúri Digrir píranafiskar naga undurblítt í puttana narta gegnum hold gegnum fingur og lófa kljúfa handlegginn í tvennt En það gerir ekkert til grær áður en hún giftir sig (43) Þessi ljóð eru oftar en ekki grót- esk og hálfsúrrealísk eins og þetta hér að ofan, þau eru mörg hver lík- amleg og jafnvel óhugnanleg. Fjöl- ærar kjötætuplöntur, utanlegs- martraðir, tröllaukið æxli, mélaðar hnéskeljar og margt fleira kemur fyrir á þessum síðum. Þriðji og síðasti kaflinn, „Í borg skækjunnar“, kallast á við þann fyrsta og gæðir hann þar með lífi, gefur honum tilgang. Í þessum kafla fáum við að kynnast heimi skækj- unnar, veröld þar sem veran úr fyrsta hlutanum er boðin velkomin. Það er undursamleg drauma- veröld, útópía einhvers konar, full af glimmeri og hlýju. Þar eru konur konum nægar og konur konum best- ar. Þar reynast jafnvel búa „herm- afródítur“, svo karlarnir eru ekki einu sinni þarfir til fjölgunar mann- kyns. Hugmyndin er heldur klisjuleg og það er svolítið erfitt að átta sig á því hvort það er með ráðum gert. Verkið er, eins og áður sagði, fem- ínískt. Þetta er efniviður sem hefði haft gott af ferskari vinkli en Brynja færir okkur en svo má auðvitað halda því fram að aldrei sé góð vísa of oft kveðin. Þótt nálgunin á umfjöllunarefnið sé helst til kunnugleg til þess að verkið tendri bál innra með lesand- anum sýnir Brynja að hún er afar fær. Í Kona lítur við tekst henni nefnilega að skapa fjölmargar mynd- ir sem eru áhugaverðar, nokkuð eft- irminnilegar og koma lesandanum á óvart. Skáldið Í ljóðabókinni skapar Brynja Hjálmsdóttir „fjölmargar myndir sem eru áhugaverðar, nokkuð eftirminnilegar og koma lesandanum á óvart“. Ljóðabók Kona lítur við bbbmn Eftir Brynju Hjálmsdóttur. Una útgáfuhús, 2021. Kilja, 72 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Ólíkir heimar kynjanna kallast á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.