Morgunblaðið - 22.11.2021, Side 1

Morgunblaðið - 22.11.2021, Side 1
M Á N U D A G U R 2 2. N Ó V E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 274. tölublað . 109. árgangur . Fjórar frábærar bækur! holar@holabok.is • www.holabok.is Fimmaurabrandarar 3 Ég ætlaði að segja brandara um IKEA í hádeginu í gær en ég er enn að setja hann saman! Þessi snilld og margar fleiri leynast í þessari frábæru bók. Fugladagbókin 2022 Glæsileg dagbók. Á undan hverri viku er margþættur fróðleikur um 52 fugla og glæsilegar ljósmyndir af þeim. Spæjara- hundurinn Stórskemmtilegt og spennandi ævintýri um afar klókan hund sem fær í loppurnar sakamálin sem lögreglan hefur gefist upp á. Ekki var það illa meint Ljóðaúrval Hjálmars Freysteinssonar kemur öllum í gott skap. NORÐMAÐURINN EKKI LENGUR VELKOMINN FJÖLBREYTT STARF HAFNARSTJÓRA NÝFERMDUR Í NÓVEMBER OG NÆST ERU JÓLIN DÓRA BJÖRK 10 NÚ VAR LAG 4SOLSKJÆR REKINN 27 Einkenni sumra bygginga er að breyta um svip eftir því hvert sjónarhornið er eða birtan. Þann- ig er einmitt Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti í Reykjavík, meistaraverk Guðjóns Samúelssonar húsameistara. Súlur á framhlið kirkjunnar svara til stuðlabergs og í slíkum klettum má sjá alls konar kynjamyndir. Upplýstir vekja veggir þess- ir tilfinningu dulúðar svo nánast ósjálfrátt fer fólk að skálda í skörðin með ímyndunarafli sínu. Ferðamenn sem leið eiga fram hjá reyna að fanga dýrðina og þannig breytast minningarnar í myndir og ljóð. Morgunblaðið/Eggert Kynjamyndir í klettum kirkjunnar _ Líklegt er að inflúensa eigi eftir að herja á landsmenn þegar komið er fram á nýtt ár. „Við stefnum inn í pestavetur,“ seg- ir Óskar Reyk- dalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, í samtali við Morgun- blaðið í dag. Í fyrra héldu margir sig til hlés til að forðast kórónuveiruna og aðr- ar pestir þá um leið. Læknisfræðin segir hins vegar að eftir slíkan stundarfrið verði flensan skæð. Erfitt gæti orðið að greina hana frá Covid-19 eða hefðbundnum leik- skólapestum. » 11 Óskar Reykdalsson Erfitt að greina pestir frá Covid-19 _ Eftir að hafa náð töluverðri út- breiðslu á Íslandi er nú unnið að því að kynna vörumerkjavísitölu Brandr í Þýskalandi og Noregi. Friðrik Larsen þróaði þetta mæli- tæki sem hjálpar fyrirtækjum að greina og skilja veikleika og styrk- leika eigin vörumerkja. „Mjög sterk fylgni er á milli styrkleika vörumerkja og arðsemi fyrirtækja,“ segir Friðrik og bendir á að sterk vörumerki hjálpi fyrir- tækjum líka að laða til sín hæfasta starfsfólkið. »12 Brandr-vísitalan í útrás til Evrópu Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Birgir Ármannsson, formaður und- irbúningskjörbréfanefndar, segir að hver og einn þingmaður verði að gera það upp við sig hvort viðkom- andi taki afstöðu um uppkosningu í Norðvesturkjördæmi. Kosið verður um málið á Alþingi á fimmtudag. Samkvæmt þingsköpunum hafa allir 63 þingmenn sem hafa fengið kjör- bréf þingmannsrétt, segir Birgir. Undirbúningskjörbréfanefnd mun koma saman í dag og leggja loka- hönd á greinargerð um talningu kjörbréfa í kosningunum í Norðvest- urkjördæmi. Birgir segir nefndina vera að vinna að tveimur tillögum en hann vildi ekki tjá sig um innihald þeirra. Hið minnsta þrír möguleikar eru fyrir hendi, en tillögurnar gætu t.a.m. kveðið á um uppkosningu í kjördæminu, staðfestingu seinni talningar, eða þá að talið verði í þriðja sinn. Ekki eru allir sammála um hvort við hæfi sé að þeir fimm þingmenn sem hlutu sæti eftir endurtalningu taki þátt sökum hagsmuna sinna. Einn frambjóðandi hefur sagt að vísa verði málinu til Mannréttinda- dómstóls Evrópu ef seinni talning verður látin gilda. »2 og 14 Kosið á fimmtudag - Allir 63 þingmenn eiga rétt á því að taka afstöðu til endurtalningarinnar Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri Landspítala, segir upp- sagnir starfsfólks bráðamóttöku undanfarna daga ekki hafa komið sér á óvart. „Það er langvarandi þreyta eftir langvarandi álag, ákveðin kulnun. Það hefur verið fjallað um mönnun í hjúkrun í langan tíma þannig að þessi staða ætti ekki að koma nein- um á óvart. Það er skortur víða. Það skortir hjúkrunarfræðinga, sjúkra- liða og lífeindafræðinga. Það eru mörg rauð flögg en vandinn birtist hvað mest á bráðamóttökunni,“ segir Guðlaug í samtali við Morgunblaðið. „Það hefur virkilega verið reynt að draga úr álagi á bráðamóttökunni en það dugir ekki til. Ég held að al- veg sama hvernig maður veltir við þessum steini, þá sé það í raun og veru þessi síðasta Covid-bylgja sem veltir þunga hlassinu, það er bara þannig.“ Ákveðinn vítahringur Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, segir ástæðu uppsagna þrí- þætta og að hún felist í of lágum launum, miklu álagi og slæmu starfs- umhverfi. Guðlaug segist geta tekið undir þessi orð Guðbjargar. „Það er alveg hárrétt hjá henni. Þetta eru launin, álagið og starfs- umhverfið. Þetta birtist allt á sömu einingunni, sem sagt bráðamót- tökunni. Starfsumhverfið þar er ekki ákjósanlegt. Það beinlínins ógnar ör- yggi, eins og staðan getur oft verið. Það er í rauninni hættulegt. Svo er auðvitað álagið sem fólk upplifir og verður til þess að það hrökklast úr starfi. Þetta er ákveðinn vítahringur sem við verðum að geta klippt á.“ »2 Uppsagnir á bráðamóttöku komu forstjóra ekki á óvart - Hafa reynt að draga úr álagi - Hættulegt starfsumhverfi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.